Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Blaðsíða 10
Réðust að kanínum og grýttu Jón
n Lögreglumaður meiddist í átökum við ungmenni
L
ögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hafði um eittleytið að-
faranótt þriðjudags afskipti af
hópi drengja sem höfðu grýtt
steinum í húsráðanda í Elliðaár-
dalnum. Húsráðandinn, Jón Þor-
geir Ragnarsson, segir málið hið
alvarlegasta enda grjótkast ekkert
annað en árás auk þess sem lög-
reglumaður er óvinnufær eftir af-
skipti af ungmennunum.
DV greindi frá því á dögunum
að Jón Þorgeir og Heiðar Hallsson
gættu kanínanna í Elliðaárdalnum
og hafa komið fyrir brettum, spýt-
um, trjágreinum og ýmsu öðru á
svæðinu til verndar kanínunum.
Þar geta þær leitað sér skjóls og
varið sig fyrir ágangi máva. Eftir
umfjöllunina hefur verið talsverð-
ur umgangur fólks um dalinn og
hefur verið átroðningur á lóð Jóns
Þorgeirs þar sem ungmenni eru
öllum stundum næturinnar. Að-
faranótt þriðjudags sauð upp úr
þegar Jón Þorgeir reyndi að stöðva
ungmennin sem sveifluðu háfum
til að reyna að fanga kanínur. Hann
skipti sér af og bað þau um að
hætta. Drengirnir hentu þá grjóti
í Jón sem hringdi á lögregluna og
faldi sig í garðinum. Drengirn-
ir héldu grjótkastinu áfram, en
þegar lögreglan kom á vettvang
stuttu síðar hlupu þeir á brott.
Einn drengjanna hljóp að bifreið
og hugðist aka á brott. Lögreglu-
maður kom að bifreiðinni og opn-
aði dyrnar bílstjóramegin og hugð-
ist ræða við piltinn sem er 17 ára.
Pilturinn setti þá bifreiðina í
bakkgír og hugðist komast und-
an lögreglu. Við þetta klemmd-
ist fótur lögreglumannsins undir
hurðinni.
Ökumaðurinn var síðan yf-
irbugaður með piparúða af lög-
reglumanninum sem þarna var
einn og nokkuð meiddur á ökkla
og þurfti að leita á slysadeild. Ök-
umaðurinn var vistaður í fanga-
geymslu eftir skoðun á slysadeild.
Hann mun einnig hafa meiðst á
fæti við handtökuna. Annar 16 ára
piltur var handtekinn og var hann
sóttur af foreldrum á lögreglustöð-
ina.
astasigrun@dv.is
10 Fréttir 22. ágúst 2012 Miðvikudagur
Þann 24. ágúst drögum við út 5O milljónir á einn miða í Milljónaveltunni. Í hverri
Milljónaveltu drögum við að auki út 5 stakar milljónir, aðeins úr seldum miðum.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
22
24
6
ER VESKIÐ LÉTT?
5O MILLJÓNIR Á
EINN MIÐA
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 66 11
eða hjá næsta umboðsmanni.
ÞÚ GETUR
ENN VERIÐ
MEÐ!
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA Á
WWW.HHI.IS
EÐA Í SÍMA
8OO 66 11
DRÖGUM
24.
ÁGÚST
Grýttur Jón Þorgeir reyndi
að vernda kanínurnar.
Þ
ær eru í anda svona auglýs-
inga sem höfða til táninga
og námsmanna,“ segir Andr-
és Jónsson almannatengill
hjá Góðum samskiptum um
auglýsingar smálánafyrirtækjanna.
Athygli hefur vakið að auglýsingar
flestra fyrirtækjanna fimm sem veita
smálán hérlendis eru mjög áberandi í
fjölmiðlum. „Þau virðast auglýsa mjög
mikið,“ segir Andrés.
Tvisvar hefur verið reynt að koma
lögum yfir starfsemi smálánafyrir-
tækja en í hvorugt skiptið komst frum-
varpið í gegnum þingið, nú síðast
vegna tímaskorts. Þriðju tilraunina á
að gera núna í haust þegar frumvarpið
verður lagt fram nánast óbreytt frá því
síðast. DV hefur fjallað um skaðsemi
smálána og á mánudag var fjallað
um fíkla sem nota smálán til þess að
kaupa sér vímuefni. Fjölmargir hafa
lent í vítahring vegna lánanna en afar
auðvelt er að fá lánin sem bera mjög
háa vexti, sum upp í 600 prósent.
Ólíkt auglýsingum fjármálafyr-
irtækja
Andrés segir auglýsingar smálánafyr-
irtækjanna ólíkar þeim sem þekkjast
hjá fjármálafyrirtækjum. Þegar ver-
ið sé að auglýsa smálán sé sífellt ver-
ið að sannfæra fólk hversu auðvelt sé
að taka lán en ekkert talað um hvaða
afleiðingar þær geta haft í för með sér.
„Þetta er mjög ólíkt auglýsingum hjá
hefðbundnum fjármálaþjónustufyr-
irtækjum þar sem gert er út á traust
og langtímasamband. Hjá þeim er
það: „Vantar þig pening? Við reddum
því! Við millifærum eftir korter.“ Það
er gert sem mest úr því hvað þetta er
lítið mál. Það er verið að gera út á hina
mannlegu villu sem er að gera alltaf
ráð fyrir að þetta reddist í framtíð-
inni, að peningar falli af himni ofan.
Þeir sem eru í lánastarfsemi vita það
ósköp vel að svo er ekki. Það er ver-
ið að nýta sér ákveðinn breyskleika.
Flest okkar eru ekkert voðalega góð í
því að átta okkur á því að við verðum
ekkert endilega fjáðari þegar að því
kemur að borga og við verðum líklega
jafn blönk.“
Eiga að höfða til ungs fólks
Auglýsingar smálánafyrirtækjanna
virðast sumar hverjar sérstaklega
eiga að höfða til ungs fólks. Aug-
lýsingastjörnur Smálána eru til að
mynda tveir litlir hundar sem tala
saman á krúttlegan hátt. Fyrir versl-
unarmannahelgina kom auglýsing
frá fyrirtækinu þar sem hundarn-
ir vildu ólmir skella sér á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum en komust
ekki vegna peningaleysis. Þá gripu
hundarnir á það ráð að taka sér smá-
lán og málið var leyst. Andrés segir
svona auglýsingar augljóslega beint
til yngri neytenda. „Það fer ekkert á
milli mála. Þessar auglýsingar eru
þannig,“ segir hann og tekur fram
að vissir hópar séu viðkvæmari fyrir
slíkum gylliboðum eins og smálána-
fyrirtækin bjóða upp á í auglýsingum
sínum. „Ákveðnir hópar eru í áhættu.
Til dæmis fatlaðir, þroskaheftir, sein-
færir, fíkniefnaneytendur og fleiri,“
segir Andrés.
Á gráu svæði siðferðilega
Í fyrrnefndu frumvarpi sem stend-
ur til að leggja fram á Alþingi í haust
er lagt til að sett verði í lög upplýs-
ingaskylda smálánafyrirtækjanna.
„Í öllum auglýsingum, sem varða
lánssamninga þar sem gefnar eru
upplýsingar um vexti eða tölur varð-
andi kostnað neytandans af lán-
inu, verður gerð krafa um að fram
komi staðlaðar upplýsingar, svo
sem um útlánsvexti, árlega hlutfalls-
tölu kostnaðar, lánsfjárhæð og lengd
lánssamnings. Fyrir og við samn-
ingsgerðina sjálfa eru síðan enn ít-
arlegri upplýsingakröfur. Neytendur
ættu því að vera vel upplýstir um þau
kjör sem lánveitendur bjóða,“ segir í
fréttatilkynningu sem efnahags- og
viðskiptaráðuneytið sendi frá sér á
þriðjudag.
„Miðað við fjölda þessara auglýs-
inga þá virðast þessi fyrirtæki vera
mjög arðbær. Þetta er mjög siðlaust,
á mjög gráu svæði siðferðilega, sam-
félagið verður að taka á því og lög-
gjöfin ef hún getur,“ segir Andrés.
„Þetta er
mjög siðlaust“
n Almannatengill segir smálánafyrirtækin reyna að höfða til unglinga
„Ákveðnir hópar eru
í áhættu. Til dæm-
is fatlaðir, þroskaheftir,
seinfærir, fíkniefnaneyt-
endur og fleiri“
Þegar að var gáð segjast þau hafa
fengið þau svör að einstaklingurinn
gæti skráð sjálfan sig af lista yfir að
hann mætti ekki taka svona lán en
þau hafa ekki fengið staðfest að hann
hafi gert það.
Fyrirtæki lána fyrir vímuefnum
Þau segja það vera einn mest svekkj-
andi að meðan þau láni ekki barninu
sínu fyrir eiturlyfjum séu fyrirtæki úti
í bæ tilbúin til að gera það.
„Við höfum alltaf neitað að lána
honum pening vegna þess að við
vitum í hvað þetta fer. Að vita svo
til þess að einhverjir gaurar úti í bæ
séu að fjármagna þetta fyrir þau ger-
ir mann mjög reiðan. Mann langar
að gera einhvera ljóta hluti, maður
er svo reiður inni í sér,“ segir móðir-
in. „Þetta er það sem maður er reið-
astur út í og það er ótrúlegt að þetta
skuli ekki vera stoppað,“ segir hún og
hristir höfuðið.
Ætla ekki að borga skuldina
Foreldrarnir ætla sér ekki að borga
skuld sonarins. „Það kemur ekki til
greina. Þetta eru bara glæpamenn.
Frekar verður hann bara gjaldþrota,
það kostar hann 250 þúsund krónur
og þá fá þessir glæpamenn ekki krónu.
Við vitum vel að það er ólöglegt að
borga ekki sína skuldsetningu en þetta
er bara siðlaust dæmi og þeir viður-
kenna það sjálfir. Segja að þetta sé á
gráu svæði. Af hverju er það ekki skoð-
að af hverju þetta sé á gráu svæði?“
spyr faðirinn. „Hann á ekki neitt og
það er ekkert hægt að taka af honum.“
„Það er verið að taka þessi lán
þegar fólk er ekki í réttu ástandi, það
myndi enginn lána manni sem kæmi
blindfullur inn í banka 100 þúsund
krónur. Hann yrði bara ekki afgreidd-
ur. En svo er verið að lána þeim í
þessu ástandi pening og ekki einu
sinni athugað hvort viðkomandi sé
borgunarmaður fyrir því. Þau gera
sér ekki grein fyrir því hvað þau eru
að gera vegna þess hvernig ástandi
þau eru í. Þetta er bara hröð lausn og
skítt með það, skítt með afleiðingarn-
ar,“ segir móðirin og segir foreldra í
þessari stöðu ekki eiga að borga smá-
lánaskuldir barna sinna. „Ég ráðlegg
öllum sem eiga við þetta að stríða að
borga ekki krónu. Hvað ætla þeir að
gera, þeir geta ekki gengið á svona
krakka, þeir eiga ekki neitt?“
„Við viljum að sjálfsögðu að hann
borgi sitt. En hann er í meðferð núna
og ég vil fá hann í lag áður en hann
gerir það. Það þýðir ekkert fyrir okk-
ur að hjálpa honum núna. Það þarf
að sýna að hann sé í lagi. Ef að þetta
kemst í lag núna, búið að borga og
svo fellur hann þá er bara allt kom-
ið í sama bullið aftur,“ segir faðirinn.
Fjármagna neysluna
með smálánum
Það var í foreldrafræðslu með öðrum
foreldrum fíkla á Vogi sem þau átt-
Taka smálán fyrir dópi
10 Fréttir
20. ágúst 2012 Mánudagur
Þ
að sem mér fannst sláandi
var hversu margir foreldrar
voru sammála um að þessir
krakkar væru að nota þessi
smálán til þess að fjármagna
neysluna, eins og okkar,“ segir móð-
ir 19 ára gamals fíkils. Sonur hennar
hefur notað lán frá smálánafyrirtækj-
um til að fjármagna vímuefnaneyslu
sína og er nú stórskuldugur. Báðir
foreldrar drengsins, sem hér verða
kölluð Gunnar og Elsa, setja stórt
spurningamerki við starfsemi smá-
lánafyrirtækjanna og spyrja hvort
það geti talist eðlilegt að fyrirtæk-
in láni ungum einstaklingum, sem
margir hverjir myndu aldrei fá lán
hjá venjulegum lánastofnunum, fyrir
vímuefnaneyslu þeirra.
Hjalti Björnsson, áfengisráðgjafi
á Vogi, tekur í sama streng og segir
vandamálið víðtækt.
„Þetta er svo siðlaust“
Smálánafyrirtækjum á Íslandi hef-
ur fjölgað hratt. Smálánin virka á
þann hátt að send eru SMS-skilaboð
eða farið inn á heimasíðu. Lánin eru
veitt þeim sem eru 18 ára og eldri
og yfir leitt eru þau afgreidd um leið.
Hjá flestum fyrirtækjunum er hægt
að fá lán frá 1.000 krónum og upp í
150 þúsund krónur. Vextir á þessum
lánum eru langtum hærri en vextir
á venjulegum lánum og standi fólk
ekki í skilum er það fljótt að safna
upp í háa skuld.
„Ef maður kæmi vímaður til
bankastjórans og bæði um 100 þús-
und króna lán þá myndi enginn heil-
vita bankastjóri lána manni í þannig
ástandi. Þetta er svo siðlaust, það
er ekkert verið að skoða í hvaða
ástandi fólk er. Ekkert verið að ganga
úr skugga um að fólk sé í lagi,“ segir
Hjalti sem starfað hefur sem áfengis-
ráðgjafi á Vogi um árabil. Hann hefur
séð um foreldrahópa og segist hafa
orðið sérstaklega var við það undan-
farið hversu margir foreldrar tali um
það að smálánafyrirtækin hreinlega
fjármagni vímuefnaneyslu barna
þeirra. Þetta sé stórt vandamál með-
al ungra fíkla.
Reyna að redda sér peningum
Hjalti segir þetta fljótt að vinda upp
á sig. „Þetta er voða mikið þannig að
í fyrstu eru krakkar að fá lánuð efni.
Það virðist vera mjög auðvelt í þess-
um vímuefnaheimi að fá efni til að
selja. Þau ætla svo kannski að selja
efnin og fá þá einhvern ágóða af því
og fá svo jafnvel efni til eigin nota.
Sem fíklar nota þau alltaf meira en
þau ætla sér og lenda fljótlega í erf-
iðleikum í að standa í skilum við
„dílera“ sína.
Oft heyrir maður að þá byrji þau
að reyna að redda sér peningum.
Framan af löglega, með því að taka
þessi smálán, svo lokast það og þá
eru þau farin að stela og brjótast inn.“
Settur á lista
Sonur Gunnars og Elsu tók fyrsta
smálánið aðeins nokkrum dögum
eftir að hann varð 18 ára. „Hann
var nýorðinn 18 ára og þeir lánuðu
honum pening, hann var ekki með
vinnu og ekki á bótum eða neitt en
samt lánuðu þeir honum pening þótt
hann væri enginn borgunarmaður.
Svo kom það í ljós að hann hafði tek-
ið þetta lán og það var ekkert borg-
að enda hafði hann enga peninga til
þess að borga með. Hann fór svo á sjó
og þegar hann kom af sjónum vildi
hann borga þetta lán. Þá var þetta
ekki nema 40 þúsund króna lán,“ seg-
ir faðir hans en lánið var upphaflega í
kringum 10 þúsund krónur.
Faðir hans fór á fund í smálána-
fyrirtækinu þar sem sonur hans hafði
tekið lánið og náði að semja um
greiðslu við og upphæðin var lækk-
uð. „Ég fór svo í kjölfarið á fund hjá
lögfræðingi þarna til að ganga frá
þessu. Þar var upphæðin lækkuð og
borguð. Þar viðurkenndi hún, lög-
fræðingurinn, að þessi lán væru á
gráu svæði,“ segir faðirinn.
Þegar þau ræddu lánið og í hvaða
ástandi sonur þeirra var þegar hann
tók það segja foreldrarnir að lög-
fræðingurinn hafi tjáð þeim að
hann gæti látið setja sig á lista til að
hann gæti ekki tekið slíkt lán. „Lög-
fræðingurinn sagði við okkur að það
væri hægt að setja hann á lista þannig
að hann gæti ekki fengið svona lán.
Hann bað um það sjálfur að það yrði
gert af því að hann á við fíkniefna-
vandamál að stríða og tók þessi lán
í tómri vitleysu. Hún samþykkti það
og í raun og tók af okkur loforð um að
það væri gert.“
Úr 116 í 400 þúsund
Sonur þeirra náði svo að halda sér á
beinu brautinni í smátíma en fljót-
lega fór að halla undan fæti hjá hon-
um aftur. Foreldrana grunaði þó ekki
að hann væri að taka smálánin þar
sem þau stóðu í þeirri trú að hann
gæti það ekki lengur, þar sem hann
væri á fyrrgreindum lista.
„Það fóru svo að berast reikningar
hingað heim og þá sáum við að hann
hafði verið að taka þessi helvítis smá-
lán,“ segir faðir hans. „Ég hringdi
þarna upp eftir og í fyrstu ætlaði
maðurinn ekki að gefa mér upp
hvað sonur okkar skuldaði mikið því
að hann væri orðinn 18 ára gamall.
Hann ítrekaði það við mig að samtal-
ið væri tekið upp en ég sagði að mér
væri alveg sama og kallaði þetta bara
glæpafyrirtæki.
Ég gerði syni okkar þá grein fyr-
ir því að hann byggi á okkar heim-
ili, við sæjum um hann og hann
yrði að segja mér þetta. Þá kom í
ljós að heildarlánin hjá honum voru
116 þúsund krónur. Með lögfræði-
kostnaði og vöxtum var upphæð-
in hins vegar 400 þúsund krónur,“
segir faðirinn en það er sú upphæð
sem piltinum er gert að greiða og
skuldin er komin í innheimtu hjá
lögfræðingi. Foreldrunum kom þetta
mikið á óvart, ekki síst vegna þess að
þeir töldu að honum yrðu ekki veitt
smálán vegna þess að hann hefði
verið settur á lista yfir þá sem gætu
ekki tekið lánin.
„Ef maður kæmi
vímaður til
bankastjórans og bæði
um 100 þúsund króna lán
þá myndi enginn heilvita
bankastjóri lána manni í
þannig ástandi. Þetta er
svo siðlaust.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
Úttekt
Í
mars síðastliðnum fjallaði DV um að
smálánafyrirtækin Kredia og Hrað
peningar væru með hlutfallslega
fleiri viðskiptavini á aldrinum 18–19
ára en sem nemur hlutfalli viðskipta
vina Landsbankans, eins stærsta við
skiptabanka landsins, á aldrinum 18–25
ára sem eru með yfirdrátt. Samkvæmt
upplýsingnum frá smálánafyrirtækj
unum eru níu prósent viðskiptavina
undir 20 ára en samkvæmt gögnum
frá Landsbankanum eru átta prósent
þeirra sem eru með yfirdráttarlán 25
ára eða yngri.
Hærri vextir
Upphæðirnar sem einstaklingar hafa
möguleika á að fá í gegnum smálána
fyrirtækin eru þó umtalsvert lægri en
þær sem einstaklingar geta fengið sem
yfirdráttarheimild hjá bönkunum. Vext
irnir á yfirdráttarlánum eru þó ekkert í
líkingu við það sem gerist hjá smálána
fyrirtækjunum og eru því smálánin
umtalsvert kostnaðarsamari en yfir
dráttarlán. Kröfurnar sem gerðar eru á
lántakendur yfirdráttarlána eru þó ekki
ósvipaðar þeim sem gerðar eru á lán
takendur smálána.
Smálánafyrirtækin hafa flest einfald
ar reglur sem snúast um að viðskipta
vinir megi ekki vera á vanskilaskrá,
skjólstæðingar umboðsmanns skuldara
eða eiga útistandandi skuldir við fyrir
tækin. Þar að auki kveða skilmálar
flestra fyrirtækjanna á um að viðskipta
vinur sé með virkan farsíma og netfang.
Falla ekki undir nein lög
„Þau falla ekki undir nein lög, ekki undir
lög um neytendalán vegna tímalengd
ar og ekki undir lög um fjármálafyrirtæki
þar sem þetta eru ekki endurgreiðanleg
ir fjármunir. Þau hafa því fallið svolítið á
milli,“ sagði Hildigunnur Hafsteinsdóttir,
lögfræðingur hjá Neytendasamtökunum,
í samtali við DV í mars. Þá stóðu vonir til
að tekið yrði á þessu í nýjum neytenda
lögum og að í þeim yrðu væntanlega
gerðar kröfur um greiðslu og lánshæf
ismat auk bættrar upplýsingagjafar til
lántakenda. „Eins og er verður fólk bara
að passa sig og vera meðvitað en okk
ur finnst það ekki nóg. Þarna er verið að
ráðast á viðkvæma hópa og í raun er ver
ið að veiða fólk í gildru. Það hefur einnig
gengið illa að uppræta þessa starfsemi
í löndum í kringum okkur, svo sem Sví
þjóð og Finnlandi, og það er ekkert lakari
neytendavernd þar. Málið er að það er
atvinnufrelsi hér á landi og ég gæti í raun
boðið þér lán með 2.000 prósenta vöxt
um ef þú vilt taka það,“ sagði hún.
Hún sagði að þeir sem væru í góðri
fjármálastöðu færu í banka og fengju
lán þar. Smálán höfðuðu meira til fólks
sem væri í slæmri stöðu og gæti ekki
fengið lán á annan hátt. „Ég man eftir
bréfi frá ungu pari en konan hafði tekið
smálán. Hann tók svo lán til að greiða
hennar lán og svo koll af kolli. Þetta
verður vítahringur sem erfitt er að kom
ast út úr, þó svo upphæðirnar séu ekki
háar,“ sagði hún.
Frumvarp í burðarliðnum
Frumvarp til laga um neytendalán
er nú til meðferðar hjá efnahags og
viðskiptanefnd Alþingis. Frumvarpið
tekur meðal annars til smálánafyrir
tækja og eru þeim sett ítarleg skilyrði
fyrir lánveitingum. Taki lögin gildi munu
fyrirtækin þurfa að greina frá öllum
kostnaði vegna lántöku í kynningar
efni sínu auk þeirrar heildarfjárhæð
ar sem lántakandi þarf að greiða. Þá
þurfa fyrirtækin, áður en lánin eru veitt,
að kynna lántakendum afleiðingar
þess að standa ekki í skilum. Upplýsa
þarf lántakendur um allar breytingar á
vaxtakjörum áður en þær taka gildi og
verða fyrirtækin jafnframt skylduð til
að meta lánshæfi viðskiptavina. Neyt
endastofa mun annast eftirlit með
starfsemi smálánafyrirtækja. n
Fleiri ungir taka lán
Frumvarp sem tekur á smálánunum í vinnslu
Vandamálið víðtækt Hjalti Björnsson
áfengisráðgjafi.
14. mars 2012
n Fíklar í skuldafeni vegna smálána n Foreldrar ósáttir og segja þetta siðlaust
Fréttir 11Mánudagur 20. ágúst 2012
uðu sig á hversu víðtækt vandamál-
ið væri. Á fundinum voru um tíu aðr-
ir foreldrar og flestir höfðu þeir sömu
sögu að segja. Börnin voru sokkin í
skuldafen og flest þeirra skulduðu
smálán. Þessari fræðslu stjórnaði
einmitt Hjalti sem sá á þessum sama
fundi að þetta væri æði stórt vanda-
mál.
„Ég held að allir þeir sem áttu
börn sem voru orðin 18 ára hafi haft
þessa sömu sögu að segja. Þau höfðu
fjármagnað neysluna með smálán-
um og skulduðu mörg stórar upp-
hæðir vegna þessa,“ segir Gunnar.
Hjalti tekur í sama streng. „Það
kom mér á óvart hversu stórt þetta
vandamál er. Það er ólíðanlegt að
það séu einhver svona fyrirtæki að
fjármagna neysluna. Nánast allir
foreldrar á fundinum sem áttu börn
sem voru orðin 18 ára höfðu sömu
sögu að segja af þessum smálán-
um.“
Flest nota lánin
„Þetta eru nokkur fyrirtæki og á stutt-
um tíma getur þú náð þér í kannski
hátt í hálfa milljón með því að fá
hæsta lán á hverjum stað,“ segir Hjalti
en ofan á það bætast vextir. Ef lánið
er svo ekki greitt og fer í skuld getur
lánsupphæðin margfaldast eins og í
tilfelli sonar Elsu og Gunnars.
„Foreldrar reyna oft að bjarga börn-
unum fyrst og borga. Reyna að koma
í veg fyrir að þau lendi í vandræð-
um því þau óttast líka þessi fyrirtæki
enda virðast þau líka gera út á ótta hjá
fólki. Svo ef þú borgar ekki strax bara
tvöfalda þeir upphæðina, eins og það
hjálpi eitthvað,“ segir Hjalti.
Af þeim sem hann þekkir segir
hann flesta sem séu sokknir í þetta
skuldafen smálánanna vera 18–19
ára. „Þau virðast vera að fara mjög
illa út úr þessu. Þetta eru krakkar sem
eru farnir að nota þessi efni og orðin
háð. Þeir eru kannski ekkert það illa
farnir en þeir þurfa efnin sín. Þá opn-
ast bara þessi leið fyrir þá. Eins og ég
sé þetta eru flestir krakkarnir sem
koma inn í meðferð, ekki allir en
langflestir, að nota þessi lán og eru í
vandræðum með þau,“ segir hann.
„Reynum að forðast þetta“
„Ef það koma upp svona tilvik setj-
um við viðkomandi á svartlista og
lokum á hann,“ segir Birkir Björns-
son, framkvæmdastjóri Múla. „Við
reynum að forðast þetta eins og
heitan eldinn. Allir okkar viðskipta-
vinir fara í greiðslumat sem tengt er
opinberum gögnum.“ Hann fullyrð-
ir að flestir af viðskiptavinum Múla
séu komnir yfir þrítugt og aðeins
5 prósent viðskiptavina séu und-
ir tvítugu. Þá geti þeir aðeins feng-
ið 10 þúsund króna lán en vextirnir
séu í samræmi við almenna vaxta-
töflu og fari eftir lánatímabili.
Að sögn Óskars Stefánssonar,
rekstrarstjóra Hraðpeninga, eru
viðskiptavinir félagsins þeir sömu
og fá lán hjá öðrum fjármálastofn-
unum og þurfa því að standast
lánshæfismat. „Einstaklingar yngri
en 20 ára fá ekki hærra lán en 10
til 15 þúsund krónur við fyrstu lán-
töku og þá fyrst eftir að hafa stað-
ist lánshæfismat,“ segir hann. Ekki
náðist í forsvarsmenn fleiri smá-
lánafyrirtækja við vinnslu greinar-
innar. n
Siðlaust Foreldrarnir eru ósáttir við
að sonur þeirra fái lán hjá smálánafyr-
irtækjum þegar hann er ekki borgunar-
maður fyrir lánunum. 116 þúsund króna
lán hans er komið í 400 þúsund krónur. „Hann var ekki
með vinnu og ekki
á bótum eða neitt en
samt lánuðu þeir honum
Siðlaust Foreldrarnir eru ósáttir við að sonur þeirra
fái lán hjá smálánafyrirtækjum þegar hann sé ekki
borgunarmaður fyrir lánunum. 116 þúsund króna lán
hans er komið í 400 þúsund krónur.
Siðlaust Andrés segir auglýsingarnar
í anda auglýsinga sem eiga að höfða til
táninga og námsmanna.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Ekkert stórmál Hundurinn í auglýsingu Smálána segir ekkert stórmál að taka smálán.
Þeir sem hafa lent í vítahring smálánanna eru líklega ósammála því.
20. ágúst sl.
„Þetta er mjög ólíkt
auglýsingum hjá
hefðbundnum fjármála-
þjónustufyrirtækjum