Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn E inhver viðbjóðslegasta starf­ semi á fjármálamarkaði á sér stað í svokölluðum smálán­ um. Rekstur lánafyrirtækj­ anna byggist upp á „lög­ legum“ en siðlausum lánum sem bera okurvexti. Og þetta gefur af sér gríðarlegan hagnað ef marka má að fyrirtæki í þessum geira hafa sprottið upp eins og gorkúlur. Ef miðað er við auglýsingafarganið eru eigendurnir að græða á tá og fingri. Það ömurlega við rekstur smá­ lánafyrirtækjanna er að þau gera út á ógæfu. Þau fá ungt fólk til þess með gylliboðum að taka smálán. Sum þeirra bjóða vaxtalausar 15 þúsund krónur. Það er afskaplega þægileg og einföld lausn að senda SMS og fá umsvifalaust slíkt lán. En það er í smálánunum eins og í dóp­ inu. Fyrsta sprautan fæst frítt svo dópsalinn komi sér upp tekjulind í ógæfu fíkils. Og nú liggja saman leiðir dópsal­ anna og eigenda smálánafyrirtækj­ anna. Hópur ungra fíkla hefur notað hina auðveldu leið smálánanna til þess að fjármagna neyslu sína og er nú í miklum vandræðum með lög­ fræðinga, blóðhunda okurfyrirtækj­ anna, á hælunum. Þessir unglingar eru bæði fastir í vítahring dóps og skulda. Dópsalinn og okurlánarinn eiga sameiginlega hagsmuni í að viðhalda ástandinu og ná sem mestu út úr fórnarlömbum sínum. Hjalti Björnsson, áfengisráðgjafi á Vogi, vakti athygli á alvöru þessa máls í mánudagsblaði DV. Hann sagði að það kæmi sér á óvart hversu stórt vandamálið væri og hve margir ættu um sárt að binda. „Það er ólíð­ anlegt að það séu einhver svona fyr­ irtæki að fjármagna neysluna,“ sagði Hjalti. Hann bendir á að ungt fólk í vímu geti fengið lán af þessum toga. „Þetta er svo siðlaust,“ sagði ráð­ gjafinn sem þekkir til stórs hóps for­ eldra sem í örvæntingu eru að reyna að borga börnin sín út úr klóm smá­ lánafyrirtækjanna. Alþingi hefur fram að þessu sýnt málinu skeytingarleysi. Þó eru dæmi um að þingmenn og ráðherrar hafi poppað upp og lofað að koma bönd­ um á þessi fyrirtæki. Efndir eru enn­ þá ekki neinar. Og áfram heldur hringekjan sem steypir ungu fólki í glötun. „Komdu til okkar og fáðu vaxtalausar 15 þúsund krónur,“ kalla þeir blíðum rómi. Og svo byrjar of­ beldið og þeir gera þig gjaldþrota. Eflaust er þetta allt saman löglegt. En það er alveg klárt að þarna er á ferðinni siðleysi. Aðferðir dópsal­ ans speglast í þeim gjörningi að láta ungt fólk fá vaxtalaust lán til að venja það við. Koss Björns Vals n Björn Valur Gíslason, þing­ flokksformaður Vinstri grænna, er ekki í stuðnings­ mannaliði Ólafs Ragnars Grímssonar, núverandi for­ seta Íslands. Þetta kann að hljóma einkennilega þar sem pólitískar rætur for­ setans og Björns Vals liggja samhliða í Alþýðubanda­ laginu sáluga og VG. Björn er þekktur fyrir að hafa upp­ nefnt þjóðhöfðingjann sem forsetaræfilinn. En nú hef­ ur hann iðrast og leggur til á bloggi sínu að handhafar forsetavalds kveðji Ólaf með kossi við brottför og taki þannig við valdinu. Dorrit á Sámsstöðum n Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mouessaieff festu kaup á hinu ágætasta húsi í Mos­ fellsbæ í ársbyrj­ un. Var það talin vísbending um að hann hygðist draga sig í hlé frá forseta­ embættinu sem varð ekki og búa hjónin áfram á Bessastöð­ um. Húsið í Mosfellsbæ er þeim eigi að síður hjartfólg­ ið ef marka má bæjarblaðið Mosfelling sem staðhæfir að Dorrit hafi nefnt nýja heim­ ilið Sámsstaði, til heiðurs hundi sínum. Simmi og guðlastið n Þeir eru ekki margir hér­ lendis eða erlendis sem standa með rússsneska leiðtoganum Vladimír Pútin í baráttu hans gegn pönk­ urunum í Pussy Riot sem geta átt von á nokkurra ára fangelsi fyrir að hafa beðið þess upphátt í kirkju að Pútin hyrfi úr embætti. Út­ varpsmaðurinn Sigmar Vil- hjálmsson tjáði sig um málið í þætti sínum, Simmi og Jói á Bylgjunni, þar sem hann benti á að stúlkurnar væru uppvísar að guðlasti. Mátti skilja málflutninginn sem svo að fyrsti stuðningsmað­ ur Pútins á Íslandi hefði stigið fram. Óvíst með Svavar n Fátt hefur heyrst af áformum hjónanna Svavars Halldórssonar og Þóru Arn- órsdóttur eftir að Þóra tap­ aði baráttunni um Bessa­ staði. Hún hefur látið í ljós von um að koma Svavari á sjóinn og fara í doktorsnám. Bæði eiga þau vís störf á Ríkisútvarpinu en erfitt verður fyrir Þóru að snúa aftur undir formerkjum óháðrar fréttamennsku. Aft­ ur á móti gæti Svavar snúið aftur ef metnaður hans leyf­ ir slíkt. Þá gæti Þóra auð­ veldlega farið í framboð fyrir hvern þann flokk sem henni sýndist. Mótið leggst vel í mig [Ísland] hefur verið yndislegt Tinna Kristín Finnbogadóttir keppir á Ólympíuskákmótinu. – DV Hollywood-stjarnan Russell Crowe kvaddi Ísland. – Twitter „Þetta er svo siðlaust“ É g fagna því að það eigi að rann­ saka viðskiptahætti birgja og smávöruverslana. Þetta mál hef­ ur verið mér hugstætt lengi. Ég rak litla heildverslun með hársnyrti­ vörur á árunum 1986 til 2000 og voru Aðföng einn af mínum viðskiptavin­ um. Aðföng var innkaupafélag fyrir Baug sem þá rak Hagkaup og Bónus en keypti nokkru seinna 10–11. Ég tel að það hafi verið algjört klúður hjá Samkeppniseftirlitinu að hleypa þeirri sölu í gegn, því þá var Baugur kominn með yfir 40 prósent af matvörumark­ aðnum. Kúgun í krafti stærðar Að gefnu tilefni langar mig að vekja athygli á því hvernig þessir aðilar stunduðu viðskipti; með undirliggj­ andi hótunum og kúgun. Alltaf þegar ég var kölluð á fund í Aðföngum var það til þess að krefjast meiri afslátt­ ar og ef ég maldaði í móinn var gefið í skyn að viðskiptum við mitt fyrir­ tæki yrði hætt. Skýrt var tekið fram að ég mátti ekki hækka vöruna þrátt fyrir að gengi og frakt hækkaði og mátti alls ekki gefa öðrum verslunum meiri afslátt en Baugur fékk. Í fyrstu þegar ég fór að selja Aðföngum vör­ ur fengu þeir 10 prósenta afslátt eins og Fjarðarkaup, það var var mesti af­ sláttur sem ég gaf á þeim tíma. Þegar ég hætti mínum viðskiptum voru Að­ föng komin með 25 prósenta afslátt en Fjarðarkaup ennþá með 10 prósent. Ég er ekki að halda því fram að það sé eitthvað óeðlilegt við að Aðföng fengu hærri afslætti í krafti stærðar sinnar en þarna var of mikill munur á. Óttaslegnir birgjar Ég hef það fyrir satt að það voru fleiri birgjar og framleiðendur sem voru að kvarta yfir viðskiptaháttum Aðfanga á þessum tíma en þorðu ekki heldur að koma fram af ótta við að vera sagt upp viðskiptum. Mér er mjög minn­ isstætt þegar Jóhannes í Bónus kom fram í sjónvarpsviðtali og var spurður um þessi atriði. Þá svaraði hann því til að hann léti kúnnana sína alltaf njóta afsláttarins sem þeir fengju hjá birgj­ um enda vinur litla mannsins. Stað­ reyndin var hins vegar sú að á þessum tíma var varan mín ódýrari í Fjarðar­ kaupum heldur en í verslunum Jó­ hannesar þrátt fyrir 15 prósenta mun á innkaupsverði! Iceland eða nýja Ísland? Áður en Jóhannes í Bónus komst í einokunaraðstöðu skrifaði hann merkilega grein um hvernig of stór markaðshlutdeild einstakra fyrir­ tækja hækkaði vöruverð – kannski hann vilji endurbirta hana núna? Jó­ hannes er mættur aftur með risakeðj­ una Iceland, fer mikinn og stefnir á að ná stórum hluta markaðarins. En hvað með nýja Ísland; heilbrigða samkeppni og góða viðskiptahætti? Ég vil minna okkur neytendur á að við höfum val, ennþá. Vinur litla mannsins, kominn aftur! Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 22. ágúst 2012 Miðvikudagur „Ég er ekki að halda því fram að það sé eitthvað óeðlilegt við að Aðföng fengu hærri afslætti í krafti stærðar sinnar en þarna var of mikill munur á. Aðsent Áslaug Harðardóttir „Komdu til okkar og fáðu vaxtalausar 15 þúsund krónur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.