Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Blaðsíða 17
En fólkið er
okkur gott
Þetta er svo
siðlaust
Pedro og Aldo byggja upp fjölmiðlaveldi á Íslandi. – DVHjalti Björnsson áfengisráðgjafi gagnrýnir smálán. – DV
Spurningin
„Nei, og ég held að ég geti ekki
mælt með þeim.“
Hermann Hreiðarsson
38 ára knattspyrnukappi
„Nei. Ég held samt að þau séu
hættulega freistandi.“
Hrefna Björg Gylfadóttir
17 ára menntaskólanemi
„Nei, aldrei. Ég trúi því vel að þau
geti verið hættuleg ungu fólki.“
Davíð Þorsteinsson
63 ára eðlisfræðikennari
„Nei, hvorug okkar. Það er örugg-
lega frekar léleg ákvörðun.“
Ásdís Kristjánsdóttir og Fríða
Halldórsdóttir
18 ára menntaskólanemar
„Nei, það hef ég ekki gert. En
þau hafa skapað áhugaverða
umræðu í samfélaginu.“
Skúli Þórðarson
30 ára pylsusali
Hefur þú tekið
smálán?
1 Bjarni fluttur í glæsihús Bjarni Ármannsson flutti nýlega með
fjölskyldu sína inn í glæsilegt hús í
Frederiksberg í Kaupmannahöfn.
2 Öfgafemínisti á túr í strætó Hildur Lilliendahl deildi með lesendum
sínum upplifuninni af því að fara á túr
í strætó.
3 Býr í bílnum: „Ég kemst ekkert í húsið“
Særún Stefánsdóttir öryrki hefur þurft
að búa í bílnum sínum sökum fátæktar.
4 Pete Burns í reðasafninu Breski sjónvarpsmaðurinn tekur upp
efni í nýja þáttaröð.
5 „Mitt ráð: Bendið kröfuhafan-um á barnið sjálft“
Pétur Blöndal er harðorður um
starfsemi smálánafyrirtækja.
6 Hjálpar einmana fólki úr einangrun
Sunna Rós Baxter stofnaði Facebook-
hóp fyrir fólk sem langar til að kynnast
nýju fólki.
7 Grýttu húsráðanda Jón Þorgeir Ragnarsson varð fyrir
barðinu á ungmennum sem reyndu að
veiða kanínur í Elliðaárdalnum.
Mest lesið á DV.is
Á ríkið eignarhlut í Hörpunni?
E
ftir ítarlega skoðun, þar sem skoð-
að var hvert einasta skjal frá Al-
þingi frá árinu 2000 til dagsins í
dag, er alveg ljóst að ríkissjóður
hefur enga ábyrgð tekið á byggingu eða
rekstri tónlistarhússins Hörpunnar.
Í gögnum hjá Fyrirtækjaskrá, um
stofnun Austurhafnar – TR ehf. er að
finna fundargerð stofnfundar, dagsetta
10. apríl 2003, sem haldinn var að Sölv-
hólsgötu 4, Reykjavík. Fund þennan sátu
starfsmenn þriggja ráðuneyta, einn frá
Reykjavíkurborg, þrjár tilteknar persón-
ur, hæstaréttarlögmaður sem fundar-
stjóri og héraðsdómslögmaður sem
fundarritari.
Athygli vekur að hrl. fundarstjórinn
kallar ekki eftir umboði frá Alþingi til
handa þeim sem segjast hafa heimild til
að stofna þetta félag fyrir hönd ríkisins.
Ekki er heldur kallað eftir umboði borg-
arstjórnar Reykjavíkur. Heimildir fyrir
því að ríkissjóður og Reykjavíkurborg
séu stofnendur þessa einkahlutafélags
eru því engar og slíkar heimildir hvergi
finnanlegar.
Undirritað án umboðs
Í 4. gr. stofnsamnings félagsins segir
að íslenska ríkið eigi 54 prósent í fé-
laginu og Reykjavíkurborg 46 prósent.
Með þessu plaggi er ekkert heim-
ildarplagg frá Alþingi, sem staðfesti
þá ákvörðun Alþingis að þeim aðilum
sem tilteknir eru í fundargerð stofn-
fundar, sé heimilt að stofna þetta félag
í nafni ríkisins.
Undir þetta plagg skrifar einnig að-
ili f.h. Reykjavíkurborgar, með stimpli
borgarinnar en án þess að leggja fram
nauðsynlegt heimildarplagg frá borg-
arstjórn til staðfestingar á að stofnun
félagsins og eignarhlutdeild sé heimil-
uð. En undirritun, sem sögð er vera f.h.
ríkisins, eru þriggja aðila sem undir-
rita samninginn án umboðs. Öll nöfnin
eru ólæsileg og engar kennitölur. Engin
heimild frá Alþingi og ekkert umboð
er heldur til þessara manna, sem veitir
þeim löglega heimild til að undirrita f.h.
ríkisins.
Í tilkynningu til Hlutafélagaskrár, um
stofnun einkahlutafélagsins Austurhafn-
ar – TR ehf. er einnig getið um framan-
greinda eigendur og eignarhluti. Engar
samþykktir, heimildir eða umboð fylgja
frá Alþingi eða borgarstjórn um heimild
til að stofna þetta félag.
Mesta athygli vekur að ríkisendur-
skoðandi skuli hafa áritað og stimplað
þetta plagg, þar sem honum hlýtur að
hafa verið ljóst að Alþingi hafði ekki veitt
heimild til stofnunar þessa félags og þar
með gat félagið ekki verið í 54 prósenta
eignarhlut ríkisins. Af þessu er ljóst að
þjóðinni er í raun engin trygging í emb-
ætti ríkisendurskoðanda, fyrir réttum
vinnubrögðum við að skuldbinda rík-
issjóð.
Ríkissjóði óviðkomandi
Eins og um er getið í upphafi, hef
ég skoðað öll skjöl Alþingis er varða
ákvarðanatökur, aftur til ársins 2000
og ekkert skjal fundið sem heimilar að
hlutafélag sé stofnað með eignarhlut
ríkissjóðs, til byggingar eða reksturs
tónlistar- og ráðstefnuhúss. Einnig
hef ég grandskoðað heimildakafla
lagasafns Alþingis, í leit að heimild til
stofnunar svona hlutafélags, en þar er
enga slíka heimild að finna.
Niðurstaða þessarar athugunar er
því sú að tónlistar- og ráðstefnuhúsið
Harpa, sé ríkissjóði algjörlega óviðkom-
andi. Eins og staðan blasir við að lokinni
þessari umfangsmiklu könnun, virðist
þarna á ferðinni mjög alvarlegt skjala-
fals sem augljóslega á að hafa þann til-
gang að ná verulegum fjármunum úr
ríkissjóði og frá Reykjavíkurborg, vegna
óraunhæfra áætlana sem einstaklingar
settu af stað.
Er þeim tilmælum hér með beint til
ríkislögreglustjóra og saksóknara, að
skoðuð verði ábyrgð þeirra einstaklinga
sem stóðu að stofnun þessa félags, því
eins og gögnin liggja fyrir, virðist ljóst að
þarna hefur verið framið mjög alvarlegt
skjalafals, þar sem á mjög óábyrgan hátt
er reynt að koma byggingu og rekstri
tónlistarhússins Hörpu bakdyramegin
undir ábyrgð skattgreiðenda.
Kátt á hjalla Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff tóku um helgina þátt í málþingi íslenskra og kínverskra vísindamanna í tilefni af siglingu kínverska ísbrjótsins Snæ-
drekans (Xuelong) um norðurpólinn og norðausturleiðina. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 22. ágúst 2012
Þær eru mjög dug-
legar að koma
Mæður hljómsveitarmeðlima Melchior koma gjarnan á tónleika. – DV
H
ermann Guðmundsson, fyrr-
verandi forstjóri olíurisans N1,
er einn hjartahlýjasti krafta-
verkamaður íslenskrar við-
skiptasögu. Hermann stýrði fyrirtæki
sínu af snerpu og áræði. Og alltaf var
í öndvegi samúðin með þeim smáa.
Þannig var himinhátt bensínverð
eingöngu til þess að tryggja að Atl-
antsolía, Skeljungur og Olís færu ekki
á hausinn með tilheyrandi skaða fyr-
ir viðskiptalífið. Þetta upplýsti Her-
mann í viðtali við Viðskiptablaðið.
Olíurisinn N1 hefur gengið í gegn-
um miklar þrengingar. Stjórnar-
formaðurinn Bjarni Benediktsson,
núverandi formaður Sjálfstæð-
isflokksins, barðist um á
hæl og hnakka í lánastofn-
unum í útlöndum til að
tryggja að félagið lifði.
Með samstilltu átaki er-
lends banka og íslenskra
lífeyrissjóða tókst að halda
fyrirtækinu á floti og í
þeirri stöðu að geta vernd-
að hin olíufyrir-
tækin. Svimandi
hátt bensínverð
og afskriftir tuga
milljarða tryggðu
að Hermann gat
haldið verndar-
hendinni á lofti.
Það er sjónarsviptir að Hermanni.
Þetta er olíusalinn sem gerðist bóka-
útgefandi. Hann gaf út bækur
með Jónínu Ben og Björgvin
G. Sigurðssyni. Jónína seldist
nokkuð en hin lítið. Niður-
staðan var sú að stórtap varð
á ævintýrinu. En há verð-
lagning bókanna var auðvit-
að til að tryggja afkomu lítilla
bókaforlaga. Hermann vildi
ekki setja neinn á haus-
inn. Og lífeyrissjóð-
irnir tryggðu
að þessi Hrói
Höttur olí-
unnar gæti
haldið áfram
að spenna
upp eldsneytisverð til að vernda
smælingjana. Og það er einhvern
veginn þannig að öll þessi mann-
gæska verður til þess að Svarthöfði
borgar með bros á vör 240 krónur á
lítra. Mest af þessu rennur jú til góð-
gerðarmála.
Það er brýn nauðsyn til þess að
Hermann Guðmundsson komist aft-
ur í þá aðstöðu að hygla smælingjum
samfélagsins. Það ráðslag eigenda N1
að reka manninn er ófyrirgefanlegt.
Þú rekur ekki Hróa Hött nema þú sért
illur fógeti. Þjóðin þarf að sameinast
um að finna þessu olíuborna gull-
hjarta nýjan vettvang. Hermann er
auðvitað ráðherraefni ef hvergi finnst
smuga í einkageiranum. Sameinumst
um að finna honum nýjan stall.
Svarthöfði
Olíuborið gullhjarta
„Niðurstaða þessarar
athugunar er því sú
að tónlistar- og ráðstefnu-
húsið Harpa sé ríkissjóði
algjörlega óviðkomandi.
Aðsent
Guðbjörn Jónsson