Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2012, Blaðsíða 20
Lyktin skiptir öllu máli
n Vond lykt hefur meiri áhrif en slæmt skopskyn
A
ð líta vel út, hafa gott skopskyn
og koma vel fyrir er alls ekki
nóg þegar farið er á stefnumót.
Hvernig þú lyktar getur nefni-
lega haft úrslitaáhrif, ef marka má
könnun sem vefmiðillinn Huffington
Post lagði fyrir lesendur sína.
Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar vilja þrír af hverjum
fjórum Bretum meina að ef einstak-
lingurinn sem þeir hitta lyktar illa
dragi það verulega úr áhuga þeirra á
honum. Vond lykt er meira óaðlað-
andi en slæmt skopskyn, en aðeins
um 14 prósent þeirra sem tóku þátt í
könnunni sögðu þann þátt hafa afger-
andi áhrif.
Reykingalykt er sú lykt sem karl-
menn vilja síst finna af hinu kyninu,
en tæplega 45 prósent karla sögðu
slíka lykt gera konur mjög óaðlað-
andi. Andremma kom þar á eftir, en
rúmlega 30 prósent karla sögðu hana
hafa mikil áhrif.
Konur eru ekki eins harðar á
reykingalyktinni og karlmenn en
þeim finnst síst aðlaðandi að finna
andremmu af hinu kyninu. Rúm-
lega 40 prósent kvenna sögðu þá lykt
draga úr áhuga þeirra á körlum. Um
30 prósent kvenna sögðu hins vegar
reykingalyktina hafa mest áhrif.
Önnur lykt, eins og súr áfengislykt,
táfýla og lykt af gervibrúnku virðist
hafa minni áhrif en undir 10 prósent-
um þátttakenda í könnunni sögðu
þessa lykt skipta máli.
Miðað við þessar niðurstöður er
því best að þrífa sig vel fyrir stefnumót
og vera í hreinum fötum. Þá er einnig
skynsamlegt að tannbursta sig vel og
vandlega.
20 Lífsstíll 22. ágúst 2012 Miðvikudagur
1 Hvítt hveiti Sumir læknar halda því fram að mataræðið hafi
ekki áhrif á ástand húðar en niðurstöður
ástralskar rannsóknar sýna annað. Próf-
aðu að taka út hvítt brauð og pasta.
2 Sofðu á bakinu Samkvæmt rannsókn amerískra vísindamanna
færðu frekar hrukkur ef þú sefur alltaf í
sömu stellingunni. Í niðurstöðunum kom
í ljós að það er best að sofa á bakinu ef
þú vilt slétta húð.
3 Verðu þig Ef þú vinnur með sterk efni eða í vatni skaltu muna
að nota hanska. Sérstaklega ef þú þjáist
af exemi.
4 Notaðu sólarvörn Ekki eyða peningum í sólarvörn með himin-
hárri SPF-vörn. Samkvæmt rannsókn ver
sólarvörn númer 50 okkur gegn um 98%
af útfjólubláum geislum á meðan vörn
númer 100 ver okkur fyrir 99%. Þetta
er frekar spurning um að bera oftar og
meira á sig.
5 Fáðu þér rauðvín Vínber innihalda kraftmikil andoxunar-
efni sem vinna gegn áhrifum öldrunar.
Ekki drekka of mikið – glas á dag er
yfirdrifið.
6 Andlitsnudd Gefðu sjálfum þér fimm mínútna nudd með
uppáhaldskreminu þínu.
7 Notaðu báðar hendur Rannsóknir hafa sýnt að rétthend-
ir bera meira af sólarvörn á vinstri hlið
líkamans og svo öfugt. Vertu viss um að
bera á allan líkamann.
8 Njóttu skuggans Endur-teknar grettur mynda hrukkur og
línur. Settu á þig sólgleraugu eða hafðu
það gott í skugganum.
9 Borðaðu fisk Heilbrigð húð þarf á hollri fitu að halda. Lax
er fullur af ómega-3 fitusýrum. Skelltu
honum á grillið.
10 Hafragrautur á morgn-ana Samkvæmt bandarískri
rannsókn hafa hafragrjón róandi áhrif á
húðina.
11 Skrúbbaðu Nýjar húðfrumur eru sífellt að myndast. Með aldrin-
um hægist á ferlinu en þú getur flýtt fyrir
með því að skrúbba létt yfir andlitið.
12 Forðastu transfitu Þessi framleidda fita skemmir húðina,
ef marka má húðsérfræðinginn Ariel
Haus.
13 Andaðu rólega Samkvæmt stórri rannsókn hefur andlegt
ástand áhrif á húðina. Stress og álag
verður til þess að bólur og exem versna.
Prófaðu jóga!
13 leiðir
að bólu-
lausri húð
Ekki reykja! Karlmönnum
þykir það mjög óaðlaðandi að
finna reykingalykt af konum
sem þeir fara á stefnumót
með.
U
m eitt prósent af mannkyn-
inu er kynlaust (e. asexual)
ef marka má fullyrðingar
sérfræðinga sem rannsak-
að hafa kynferðislega hegð-
un einstaklinga í fjölda ára. Kyn-
lausir einstaklingar eru þeir sem
laðast ekki kynferðislega að öðrum
einstaklingum og hafa jafnvel aldrei
fundið fyrir löngun í kynlíf eða kyn-
ferðislegar athafnir.
Anthony Bogaert, prófessor við
Brock-háskóla í Kanada, fór fyrir
rannsókninni og hefur nú ritað bók-
ina Understanding asexuality, sem
fjallar meðal annars um niðurstöð-
ur rannsóknarinnar, en bókin kem-
ur út í september.
Kynlausum fer fjölgandi
Sé miðað við að um eitt prósent af
mannkyninu sé kynlaust þá eru um
sjötíu milljónir einstaklinga í heim-
inum sem ekki hafa neina kyn-
hvöt. Í bók Bogaerts kemur fram
að þessum einstaklingum fari fjölg-
andi. Hann vill meina að hugsan-
lega megi rekja ástæðuna til klám-
væðingarinnar sem sífellt ágerist í
menningunni. Hún leiði einfaldlega
til þess að sumir einstaklingar verða
afhuga kynlífi.
Bogaert telur að kynleysi hafi
ekki verið rannsakað nógu mikið og
þeir einstaklingar sem telja sig kyn-
lausa geti fundist þeir utanveltu í
samfélaginu vegna þess. Aðrir sér-
fræðingar hafa bent á að kynleysi sé
ekki nýtt af nálinni og þrátt fyrir að
sífellt fleiri stígi fram og segist vera
kynlausir þýði það ekki endilega
að kynlausum fari fjölgandi heldur
frekar að samfélagið sé orðið opnara
og því þori fleiri að viðurkenna að
þeir tilheyri þessum hópi.
Vilja jafnvel eignast börn
Bogaert vill meina að það séu tvær
tegundir af kynleysi. Annars vegar er
um að ræða einstaklinga sem hafa
einhverja kynhvöt sem beinist þó
ekki að öðrum. Einstaklingar í þess-
um hópi fá útrás fyrir kynhvötina og
fullnægja þörfum sínum með sjálfs-
fróun. Sumir þeirra vilja jafnvel eiga
í tilfinngasambandi og eignast börn,
en nýta sér þá tæknifrjóvgun.
Hins vegar er um að ræða
einstaklinga sem hafa enga kynhvöt
eða þörf fyrir kynferðislega full-
nægingu, hvorki með sjálfum sér né
öðrum.
Þegar Bogaert talar um að eitt
prósent mannkyns sé kynlaust þá á
hann við síðari hópinn.
Nýr heimur opnast
Kynlausir einstaklingar hafa lýst
því hvernig opnaðist fyrir þeim nýr
heimur þegar þeir kynntust hug-
takinu og hvað það stendur fyr-
ir. Joshua Hatton, 23 ára nemandi
frá Birmingham, er einn þeirra.
Hann sagði frá því í viðtali við The
Independent hvernig allt hefði
komið heim og saman þegar hann
kynnti sér hugtakið.
„Ég þurfti ekki lengur að ljúga að
sjálfum mér og gat verið ég sjálfur.
Samfélagið gerir ráð fyrir því að ungir
menn stundi kæruleysislegt og skul-
bindingalaust kynlíf. Nú líður mér
miklu betur,“ sagði Hatton í samtali
við The Indepentent.
Kynlausum fjölgar
n Sumir hafa kynhvöt sem beinist ekki að öðrum einstaklingum
Engin kynhvöt
Kynlausir einstak-
lingar finna ekki
fyrir löngun í kynlíf
eða kynferðislegar
athafnir.
Prófessor Anthony Bogaert hefur rann-
sakað kynleysi og bók hans Understanding
asexuality kemur út í september.