Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2012, Blaðsíða 15
U
ng kona fer heim úr skóla vegna
mikilla tíðaverkja. Hún tekur
strætó og í vagninum líður yfir
hana af verkjum. Þegar hún
rankar við sér, veltir hún fyrir sér hvort
þetta eigi í alvöru að vera svona sárt.
Kona mætir á heilsugæslustöðina með
þvagsýni vegna sársauka við þvaglát.
Verkir við blæðingar eru einnig sár
ir. Ekkert finnst í þvagsýninu og ekki
þykir ástæða til að tengja þetta tvennt
saman. Hún hugsar með sér að vænt
anlega sé hún bara svona gölluð. Ung
stúlka er nýlega byrjuð á blæðingum.
Verkir eru miklir og hún liggur í fóstur
stellingu á gólfinu heima og bíður eftir
að móðir hennar komi heim úr vinnu.
Verkjalyf virðast lítið virka og tíminn
líður hægt.
Allt eru þetta raunverulegar sögur
af konum með endómetríósu eða leg
slímuflakk.
Hvað er endómetríósa?
Endómetríósa er krónískur, sársauka
fullur sjúkdómur sem orsakast af því
að frumur úr innra lagi legsins finnast
á öðrum stöðum í kviðarholinu en leg
holinu. Legslímuflakk hefur fundist á
eggjastokkum, eggjaleiðurum, blöðru,
ristli, legböndum og víðar. Sjúkdómur
inn er meðfæddur og virðist að veru
legu leyti háður erfðum.
Frumur í legslímuflakki bregðast
við mánaðarlegum hormónabreyting
um líkt og þær gera á sínum eðlilega
stað í leginu. Afleiðingin er að blæð
ingar eiga sér stað inn í vefi og valda
þar bólgu og örvefsmyndun með sam
gróningum milli líffæra í kviðarholinu
og blöðrumyndun á eggjastokkunum.
Í stað þess að fara út úr líkamanum
eins og við hefðbundnar blæðingar
kemst blóðið ekki í burtu. Slæmir verk
ir tengdir tíðablæðingum koma í kjöl
farið og verða oft mjög langvinnir og
erfiðir.
Af þeim konum sem hafa sjúkdóm
inn eru um 60% með einkenni og um
20% með mjög sár einkenni. Sjúk
dómurinn einkennist meðal annars af
miklum sársauka við blæðingar, sárs
auka við egglos, verkjum í kviðarholi á
milli blæðinga, verkjum við samfarir,
þvaglát og hægðalosun, erfiðleikum við
að verða barnshafandi og ófrjósemi, erf
iðleikum á meðgöngu og við fæðingu.
Þjáðst í hljóði
Talið er að 5–10% kvenna í heiminum
þjáist af endómetríósu en erfiðustu
tilfellin nái til um 2% kvenna. Árið
2012 voru rúmlega 70.000 konur á Ís
landi á aldursbilinu 13 til 45 ára. Má
því reikna með að á hverjum tíma eigi
hundruð ef ekki þúsundir kvenna í
vanda vegna sjúkdómsins hér á landi,
en hjá mörgum greinist sjúkdómurinn
seint og ekki fyrr en óafturkræfar vefja
skemmdir hafa orðið.
Ranghugmyndir hafa lengi verið
uppi um sjúkdóminn og upplýsinga
gjöf villandi. Ein þessara ranghug
mynda er að verkir séu eðlilegur hluti
af lífi konunnar eða að tíðaverkir séu
fyrst og fremst sálrænir. Aðrar kon
ur fá að heyra að þær séu bara með
lágan sársaukaþröskuld. Þegar þessu
er haldið fram getur það fælt stúlkur
og konur frá því að leita sér hjálpar.
Einnig þekkist að læknar ráðleggi jafn
vel ungum stúlkum að verða barns
hafandi til að losna við sjúkdóminn.
Vandinn er að meðganga og brjósta
gjöf geta, líkt og hormónameðferð,
dregið tímabundið úr einkennum
en lækna ekki sjúkdóminn. Sama
gildir um aðgerðir þegar leg og/eða
eggjastokkar eru fjarlægð, en með því
er oft ekki tekið á legslímuflakki utan
legsins.
Áhrif endómetríósu geta verið mik
il á líf kvenna. Í breskri rannsókn frá
2005 kom fram að 65% kvenna höfðu
fengið ranga sjúkdómsgreiningu í upp
hafi og að meðalgreiningartími er 8,3
ár. Jafnframt kom fram að 78% þeirra
kvenna sem þjást af legslímuflakki
hafa misst að meðaltali 5,3 daga í
mánuði úr vinnu sökum sjúkdómsins.
Konur með endómetríósu eru einnig
mun líklegri til að eiga í erfiðleikum
við að eignast börn og þurfa á tækni
frjóvgun að halda og eiga í erfiðleikum
á meðgöngu og við fæðingu.
Tökum sjúkdóminn alvarlega
Það er kominn tími til að hætta að
þjást í hljóði. Endómetríósa er sjúk
dómur sem þarf að taka alvarlega
og konur sem af honum þjást trúan
legar. Því mun ég á þessu þingi endur
flytja tillögu um að ráðherra beiti sér
fyrir fræðslu um sjúkdóminn og skoði
möguleikann á stofnun göngudeildar
fyrir konur með endómetríósu. Með
flutningsmenn mínir eru Álfheiður
Ingadóttir, Sigríður Ingibjörg Inga
dóttir, Siv Friðleifsdóttir, Höskuldur
Þórhallsson, Björn Valur Gíslason og
Mörður Árnason.
Íslenskar stúlkur eru bráðþroska og
hefjast blæðingar hjá þeim við 13 ára
aldur að meðaltali. Því er algengt er
að stúlkur leiti fyrst til kennara, hjúkr
unarfræðinga eða heimilislækna vegna
verkja. Með því að auka fræðslu um
sjúkdóminn og tryggja að stúlkur fái
greiningu sem fyrst má draga úr skaða,
vanlíðan og verkjum. Með samþykkt
ályktunarinnar gætum við stutt við
starfsfólk heilbrigðis og skólastofn
ana, stytt greiningartíma, tryggt sér
hæfða þjónustu og aukið lífsgæði stórs
hóps kvenna.
Að lokum vil ég minna á ráðstefnu
sem Samtök um endómetríósu halda
um sjúkdóminn laugardaginn 15. sept
ember í Hörpunni. Hún er hugsuð fyr
ir fagfólk, konur og aðstandendur og
hefst klukkan 9. Nánari upplýsingar
má finna á vefnum endo.is.
Það er brjálað
veður
Þetta er
viðbjóðslegt
Hrönn Björnsdóttir í Mývatnssveit segir veturinn kominn. – DVLíkamsræktarfólk tekur lyf ætlað hestum til að grennast. – DV
Sársauki er ekki sjálfsagður
Spurningin
„Já, heldur betur. Maður þolir
þetta alveg.“
Hafþór Magnússon
27 ára og atvinnulaus
„Nei, ég er nýkomin frá Svíþjóð
þar sem er enn sumar og sól.“
Dodda Maggý
31 árs myndlistarmaður
„Já, já. Ég er bara ánægð.“
Elín Von
53 ára hómópati
„Já, það er fínt að fá smá
tilbreytingu.“
Sjöfn Guðlaugsdóttir
23 ára nemi
„Já, þetta er samt óþarflega
snemmt og óþarflega kalt.“
Arngunnur Árnadóttir
24 ára tónlistarkona
Ertu sátt/ur við
að veturinn sé á
næsta leiti?
1 Nýr vandræðagemlingur í Hollywood Amanda Bynes lenti í
árekstri og stakk af – í tvígang.
2 „Maður skilur ekki af hverju einhver myndi gera svona
lagað“ Helena Mawby, amma Krist-
jáns Hinriks Þórssonar sem myrtur
var í Oklahoma í Bandaríkjunum um
helgina.
3 Gengur illa að ganga út? Nokkur góð ráð fyrir einhleypa einstak-
linga sem vilja ganga út.
4 Gunnlaugur græðir enn á Kögunarauðnum Fjárfestingar-
félag hans græddi 364 milljónir króna
í fyrra.
5 Gefins hús í Grindavík Gegnt því að viðkomandi fjarlægi húsið
af lóðinni.
6 „Ég er þeirrar skoðunar að hrunið sé fall frjálshyggj
unnar“ Sigmundur Davíð segir
tíðarandann fyrir hrun hafa verið
óheilbrigðan.
7 Bankastjóri, ekki knattspyrnustjóri Rafael Benitez um tíma sinn
hjá Liverpool skömmu áður en hann
hætti.
Mest lesið á DV.is
Skýr skilaboð Nokkrir tugir komu saman á Austurvelli á þriðjudag og mótmæltu þegar Alþingi var sett. Mótmælin fóru friðsamlega fram
þó að sumum hafi verið nokkuð heitt í hamsi. Mynd EyÞór ÁrnaSonMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 12. september 2012
Hann vildi
öllum vel
Þór Karlsson missti son sinn í harmleik í Tulsa í Oklahoma. – DV
Kjallari
Eygló Harðardóttir
„Áhrif endó
metríósu
geta verið mikil á
líf kvenna