Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 12. september 2012 Miðvikudagur É g er náttúrulega mjög ósáttur við þetta,“ segir Páll Sverrisson, sem nafngreindur er í úrskurði Persónuverndar. Persónuvernd segir mistök hafa átt sér stað sem rekja má til veikinda starfsmanna. Páll kærði Heilbrigðisstofnun Aust­ urlands fyrir að senda upplýsingar um sjúkrasögu sína, sem hann hafði óskað eftir, í almennum pósti en ekki ábyrgðarpósti. Páll taldi vinnubrögð stofnunarinnar í málinu óásættanleg, enda gætu viðkvæmar upplýsingar um sjúkrasögu hans hafa endað fyrir mistök í pósthólfi annarra. Ábyrgðar­ póstur er ekki afhentur nema gegn undirskrift. Hann óskaði eftir upplýsingun­ um vegna kærumáls sem hann rek­ ur. Forsaga þess máls er sú að hann ljóstraði upp um deilu á milli tveggja lækna sem hann varð vitni að. Í úr­ skurði siðanefndar Læknafélags­ ins, sem málið rataði til, kom svo fram bútur úr sjúkrasögu Páls, sem siðanefndin átti að afmá en gerði ekki. Í annað sinn er nú óvandlega farið með sjúkrasögu Páls. Persónuvernd nafngreindi Í úrskurði Persónuverndar er Heil­ brigðisstofnun Austurlands snupruð fyrir að senda ekki sjúkrasögu Páls í ábyrgðarpósti. „Heilbrigðisstofn­ un Austurlands (HSA) viðhafði ekki nægar öryggisráðstafanir við út­ sendingu sjúkraskráar Páls Sverris­ sonar. Lagt er fyrir HSA að viðhafa slíkar ráðstafanir eftirleiðis,“ segir þar. Úrskurðurinn er opinber og er Páll líkt og sjá má nafngreindur þar, þrátt fyrir að í upphafi úrskurðarins sé hann nefndur „A“. Hann er sá eini sem er nafngreindur í úrskurðinum. Þetta segist Páll vera ósáttur við og hann kveðst vera að íhuga að kæra Persónuvernd: „Ég er að íhuga mína stöðu.“ Sigrún Jóhannesdóttir hjá Pers­ ónu vernd segir að um mistök hafi verið að ræða. „Þetta fór inn síðdeg­ is í gær [mánudag] en þetta er farið út. Í niðurstöðuorðunum var nafnið hans fyrir mistök ekki afmáð,“ segir hún. Aðspurð hvort ekki sé venjan að afmá nöfn segir hún svo vera og segir að aldrei áður hafi verið gerð mistök á borð við þessi við birtingu úrskurða Persónuverndar. „Það er lögfræðingur sem sér um þetta en hún er búin að vera mikið veik og það var annar sem var að hlaupa í skarðið og setja inn fréttir. Ég var ekki búin að yfirfara þetta.“ Úrskurðað gegn siðanefnd Forsaga málsins er sú að Persónu­ vernd komst að þeirri niðurstöðu í febrúar að siðanefnd Læknafélags Íslands hafi verið óheimilt að birta upplýsingar úr sjúkraskrám Páls í úrskurði nefndarinnar sem birtist í Læknablaðinu síðastliðið haust. Páll hafði dregist inn í mál sem var honum óviðkomandi, einn læknir hafði kallað annan „fylli­ byttu frá Borgarnesi“ og Páll hafði orðið vitni að því. Hann kom mál­ inu á framfæri og það endaði hjá siðanefnd Læknafélagsins. Siðanefndin úrskurðaði um mál ið en greint var frá atriði úr sjúkrasögu Páls. „Það er hægt að lesa það úr gögnunum um hvern er verið að ræða. Það vita all­ ir hver ég er,“ sagði hann við DV um málið á sínum tíma. Persónu­ vernd komst að þeirri niðurstöðu að siðanefndin hafi verið í órétti og var gert að eyða upplýsingunum um Pál úr vefútgáfu úrskurðarins í Læknablaðinu. n Klúðraði nafn- leynd Kæranda n Nafngreindur í úrskurði Persónuverndar n „Ég er mjög ósáttur “ Símon Örn Reynisson blaðamaður skrifar simon@dv.is „Ég er að íhuga mína stöðu Ósáttur Í annað sinn hefur nú verið farið óvandlega með sjúkrasögu Páls. Í þetta sinn var það Persónuvernd. Grafið eftir sauðfé Í kjölfar illviðrisins á mánudag er óttast um afdrif fjölda sauð­ fjár, einkanlega norðanlands, þar sem veðrið var hvað verst, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda. Í mörgum tilvikum eru afréttir og önnur beitilönd ósmöluð, enda göngur og réttir í gangi fram eftir septembermánuði. Bændur hafa haft í nógu að snúast við að huga að fé sínu og koma því í skjól, bæði í heima­ löndum og öðrum beitilöndum eftir því sem fært er. Björgunar­ sveitir hafa unnið að því með bændum. Víða er hins vegar ill­ fært eða ófært vegna snjóa, þó veðrið hafi gengið niður. Landssamtök sauðfjárbænda vilja hvetja bændur til að leita sér aðstoðar við að gæta að fénu, eft­ ir því sem þörf er á. Miklu skiptir að hægt sé að bjarga sem fyrst öllu því fé sem fennt hefur yfir, ekki síst ef snjóinn frá í gær tekur ekki upp aftur á næstu dögum, stendur enn fremur í tilkynningunni. Grunur um íkveikju á Nesinu Grunur leikur á að reynt hafi verið að kveikja í íbúð í fjölbýl­ ishúsi á Seltjarnarnesi aðfara­ nótt mánudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu urðu sótskemmdir á stigagangi hússins en íbúðin sem lagður var eldur að er á áttundu hæð. Eldurinn komst ekki inn í íbúðina. Lögreglan seg­ ir að ekki hafi verið mikil hætta fyrir aðra íbúa hússins sökum hversu hratt gekk að slökkva eldinn. „En það er auð­ vitað alltaf almannahætta á ferð ef það er kveikt í, en þetta fór betur en á horfðist sem bet­ ur fer.“ Karlmaður er í haldi lög­ reglu og málið er í rannsókn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.