Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Blaðsíða 38
Í
dag finnum við fyrir því að
fólk vill kynæsandi undirfatn
að, blúndur, háa sokka og fylgi
hluti. Ég trúi að þetta séu áhrif
vegna vinsælda erótískra bók
mennta um þessar mundir,“ segir
Sigríður Hallgrímsdóttir hjá Deben
hams. „Þessu ætlum við hreinlega
að bregðast við og auka úrvalið hjá
okkur,“ bætir hún við.
Áhrifanna er einnig að greina
hjá mörgum vinsælustu undir
fatamerkjum heims. Hjá Agent
Provocateur sem reyndar hefur
lengi daðrað við það forboðna má
greina áhrif kvalalosta og hjá öðrum
merkjum einnig, svo sem Lasvis
cious. Annars eru helstu straumar
og stefnur öllu þægilegri viðureign
ar. Gagnsæi er lykilorð í tískunni í
haust. Bæði eru efni í undirfötum
gagnsæ og þá mega þau vel sjást í
gegnum þunnar blússur og kjóla.
Hjá Dolce & Gabbana eru undirföt
in í barokkstíl og þau fá að njóta sín í
gegnum annan fatnað eða ein og sér
sem flíkur. Fallegt korselett gæti not
ið sín eitt og sér við jakka og buxur.
Kvalalosti
Meira um Agent Provocateur. Mað
ur að nafni Joseph Corré á heiður
inn af merkinu sem í dag er eitt
vinælasta undirfatamerki heims.
Þess má geta að Joseph er sonur
Vivienne Westwood fatahönnuð
ar. Joseph leggur metnað sinn í að
hanna hágæða, ögrandi undirfatn
að. Herferðir þeirra eru jafnan áber
andi og mikið umtalsefni.
Fyrsta konan til að auglýsa
undirfötin var tónlistarkonan Kylie
Minoque, á eftir henni voru það
til að mynda Kate Moss og Maggie
Gyllenhaal sem sátu fyrir.
Nú er það systir Penelope
Cruz, Monica Cruz, sem situr fyr
ir. Herferðin kallast „Wilhelmina:
Show your true self“. Umgjörðin
er frá Viktoríutímabilinu í London
og segir sögu af dularfullri konu
sem heillar og tælir. Litapallettan
er dimm, rauðir og svartir, dökk
brúnir litir. Kvenlegar línur eru ýkt
ar og það fer ekki á milli mála að
vísað er í kvalalosta með nærfötum
sem samanstanda af böndum. Ef til
vill hafa vinsældir 50 grárra skugga
eitthvað haft um þetta að segja. En
í herferðinni sjálfri situr Monica fyr
ir á mynd með keðjum og stól sem
virðist helst ætlaður til pyntinga.
Austræn áhrif
Ítalski undirfatnaðurinn frá La Perla
er ávallt í fremsta flokki. Í haust og
vetrarlínunni eru smáatriðin fengin
úr heimsmenningu fjarlægra og
ólíkra staða.
Japönsk og kínversk áhrif er helst
að greina, kímónósloppar og litir
sem minna á blátt blek, bleik blóm
kirsuberjatrjáa og gulan við.
Blúndur, silki og satín og gagnsæ
efni eru áberandi. Vegna þess að í
ár er ár drekans framleiddi La Perla
sérstök undirföt úr svörtu tjulli og
satíni með ísaumuðum gylltum
dreka.
Gagnsætt og nútímalegt
Í versluninni GK fæst nú undirfata
merkið Forrest & Bob. Merkið er
tiltölulega nýtt af nálinni og þyk
ir nútímalegt. Haust og vetrarlín
an samanstendur af mjaðmabuxum
í anda fimmta áratugar og látlaus
um höldurum með engum spöng
um eða nærbuxum sem liggja
mjög langt niðri. Efnin eru gagnsæ
nælonefni.
Hreint og án hafta
Ekki eru allir uppteknir af kvalalosta
og því að vitna í klúrar sögur. And
stæðan við umgjörð og höft er einnig
í tísku. Náttúra og laus form og fatn
aður án hafta. Hjá Chloe mátti sjá
þykk ullarnærföt. Og haftaleysið og
hreinleikinn var ráðandi í hausttísku
Jil Sander. Þar svifu fyrirsæturnar um
í pastellitum og gagnsæum bolum,
engir brjóstahaldarar og ekkert mál.
38 Lífsstíll 14.–16. september 2012 Helgarblað
Forboðin
og heit
hausttíska
n Nærföt geta skapað heilmikla stemningu n DV skoðaði haust- og vetrartískuna í ár„Áhrif
vegna
vinsælda
erótískra
bókmennta
Svona finnur þú
réttu stærðina
Flestar konur ganga í rangri stærð brjóstahalda. Talið er að 95% kvenna gangi í of
þröngum eða of víðum brjóstahaldara. Flestar konur þora heldur ekki að láta mæla
stærð sína. Hér á eftir fara leiðbeiningar um hvernig má finna réttu stærðina.
Skref 1: Undirmálið mælt
Taktu málbandið og leggðu það utan um líkamann rétt undir brjóstunum.
Ef þú kaupir brjóstahaldara sem er þrengri að ummáli en líkamsvöxturinn sýnist þú
feitlagnari en þú ert í raun og veru. Ef þú kaupir brjóstahaldara sem er stærri en þú ert
að ummáli þá veitir hann engan stuðning.
Skref 2: Skálastærðin mæld
Nú rennir þú málbandinu utan um líkamann yfir mið brjóstin. Flestar konur detta í þá
gryfju að hugsa sem svo: Ég er með lítil brjóst, því hlýt ég að vera í skálastærð A.
það er ekki endilega rétt. Skálastærðin er alltaf í einhverju hlutfalli við ummálið. Skála-
stærðin er hugsanlega í A-stærð ef þú ert mjög grönn. Eftir því sem ummálið stækkar,
því líklegra er að skálastærðin sé C eða D og það þrátt fyrir að brjóstin séu ekki endilega
risastór.
Hér eru nokkrar leiðbeiningar um hvernig góður brjóstahaldari á að vera
1. Brjóstahaldarinn passar vel ef skálin hylur allt brjóstið, það er, lyftist ekki upp á það
og nær vel út til hliðanna.
2. Fáðu einhvern til að aðstoða þig.
3. Því lengra sem brjóstahaldarinn nær niður á bakið, því betur passar hann þér. Taktu
eftir ef hann lyftist upp að aftan því þá er ummálið of vítt.
4. Ummál stærða brjóstahaldara hleypur á 5 sentímetrúm. Því verður þú að námunda
stærð þína. Það er, ef þú mælir 77 sentímetra um brjóstkassann þá tekur þú stærð 75 og
ef þú mælir 78 sentímetra þá tekur þú stærð 80.
5. Strekktu síðast á hlýrunum þannig að þeir veiti þéttan stuðning undir brjóstin.
n 95% kvenna í rangri stærð brjóstahalda