Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2012, Qupperneq 44
A
ðdáendur enska boltans
geta tekið gleði sína á
ný um helgina en þá fer
fram heil umferð. Þó
svo að aðeins þrjár um-
ferðir séu búnar eru línur ör-
lítið farnar á skýrast á toppi og
botni. Chelsea, Manchester City
og Manchester United – sem var
af flestum spáð þremur efstu sæt-
unum – eru öll í ágætum málum í
deildinni; Chelsea á toppnum með
níu stig, Manchester City með sjö
stig og Manchester United með sex
stig. Swansea, undir stjórn Dan-
ans Michaels Laudrup, er í öðru
sæti deildarinnar og West Brom í
þriðja sæti, sem verður þó að telj-
ast nokkuð óvænt.
Arsenal með sjálfstraust
Chelsea getur haldið sigurgöngu
sinni í deildinni áfram þegar liðið
mætir QPR á útivelli á laugardag.
Chelsea er eina liðið sem enn hefur
ekki tapað stigum en QPR, sem sank-
aði að sér nýjum leikmönnum í sum-
ar, hefur byrjað tímabilið afleitlega.
Það situr í næstneðsta sæti með eitt
stig eftir þrjá leiki og markatöluna
2–9. Fari allt samkvæmt bókinni ætti
Chelsea-liðið að landa þægilegum
sigri á Loftus Road. Þó ber að hafa í
huga að Chelsea tapaði fyrir QPR á
þessum velli í fyrra.
Arsenal leitar enn að sínum fyrsta
sigri á heimavelli á tímabilinu og
raunar hefur liðið ekki unnið í síð-
ustu þremur heimaleikjum sínum í
deildinni. Arsenal tekur á móti ný-
liðum Southampton sem sitja á
botni deildarinnar – án stiga. South-
ampton-liðið hefur þó leikið vel og
var óheppið að ná ekki að minnsta
kosti einu stigi gegn Manchester
United í síðustu umferð. Arsenal-liðið
er þó fullt sjálfstrausts eftir góðan 2–0
sigur á Liverpool í síðustu umferð.
Manchester-liðin í eldlínunni
Manchester United byrjaði tímabil-
ið illa þegar liðið tapaði fyrir Ever-
ton í fyrsta leiknum. Síðan þá hafa
United-menn unnið tvo leiki, gegn
Fulham á heimavelli, 3–2, og svo
gegn Southampton á útivelli, einnig
3–2. Robin van Persie hefur verið
sjóðandi heitur en hann varð fyrir
smávægilegum meiðslum í landsleik
Hollendinga og Ungverja í vikunni.
Með Wayne Rooney á meiðslalistan-
um má United illa við að missa van
Persie í meiðsli en hann er marka-
hæstur í deildinni með fjögur mörk.
United mætir Wigan á heimavelli
sem hefur byrjað tímabilið ágætlega
og er með fjögur stig.
Englandsmeistarar Manchester
City mæta Stoke á útivelli á laugar-
dag. City fékk góðar fréttir í vikunni
þegar Sergio Aguero mætti aftur til
æfinga. Óvíst er þó hvort hann verði
með í leiknum gegn Stoke en City
ætti þó ekki að vera í neinum vand-
ræðum með að fylla skarð hans.
Stoke hefur byrjað tímabilið illa og
gert þrjú jafntefli í fyrstu þremur
leikjunum.
Liverpool leitar enn að sínum
fyrsta sigri í deildinni. Liðið er með
eitt stig eftir fyrstu þrjá leikina en
ætti að eiga ágæta möguleika á að
komast á sigurbraut um helgina
þegar það mætir Sunderland á úti-
velli. Sunderland hefur aðeins leikið
tvo leiki á tímabilinu, báða á útivelli,
og gert jafntefli í þeim báðum. n
Laugardagur
Norwich-West Ham 1
„Mér sýnist á öllu að þetta verði fallslagur
en ég myndi halda að Norwich vinni sinn
fyrsta sigur í vetur.“
Arsenal-Southampton 1
„Southampton hafa komið
á óvart í upphafi tímabils en
Arsenal verður of stór biti.
Arsenal vinnur.“
QPR-Chelsea X
„Þetta verður dramatískur baráttuleikur.
Ég held að það sé komið að Chelsea að
tapa stigum. Ég segi jafntefli.“
Stoke-Man. City 2
„Annar hörkuleikur og erfiður útivöllur
fyrir meistarana. Ég held að þeir taki
þetta samt og vinni.“
Sunderland-Liverpool 2
„Ég tippa á Liverpool-sigur.
Þeir hafa byrjað illa en ég hef
trú á að þeir rétti úr kútnum
núna. Suarez og Gerrard
skora – enda engir aðrir sem
skora mörkin.“
Fulham-West Brom 1
„Tvö lið sem hafa komið á óvart. Ég held
að Fulham taki þetta á heimavelli.“
Man. United-Wigan 1
„Sennilegast ójafnasta
viðureign tímabilsins. Ég
verð hissa ef United skorar
ekki fimm mörk.“
Aston Villa-Swansea 2
„Swansea hefur byrjað vel og ég held að
það haldi áfram. Þeir vinna á Villa Park.“
Sunnudagur
Reading-Tottenham 1
„Hörkuleikur. Ég spái því
að vandræði Villas-
Boas haldi áfram. Gylfi
Sigurðsson skorar en
Reading vinnur.“
Mánudagur
Everton-Newcastle X
„Everton hefur komið mér á óvart en
Newcastle eru líka sterkir. Ég spái jafn-
tefli en Everton-sigur kæmi ekki á óvart.“
44 Sport 14.–16. september 2012 Helgarblað
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Þægileg helgi
fyrir toppliðin
n Fjórða umferð ensku deildarinnar n Liverpool leitar að fyrsta sigrinum
Stórleikur á Laugardalsvelli:
Sæti í umspili
tryggt með sigri
Íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu tekur á móti Norður-
Írlandi í undankeppni EM á laugar-
dag. Um gríðarlega mikilvægan
leik er að ræða því með sigri mun
Ísland tryggja sér sæti í umspili
fyrir Evrópumótið á næsta ári sem
fram fer í Svíþjóð. Eftir leikinn gegn
Norður-Írlandi fer liðið til Noregs
þar sem það mætir heimastúlkum
á miðvikudag. Ísland trónir á toppi
riðilsins með 19 stig en norsku
stúlkurnar eru aðeins stigi á eftir í
öðru sæti. Með sigri gegn Norður-
Írum – sem er í fjórða sæti riðilsins
með 11 stig – og jafntefli gegn Nor-
egi mun Ísland tryggja sig beint inn
á Evrópumótið.
Miðasala á leikinn er í fullum
gangi og kostar miðinn þúsund
krónur. Frítt er inn fyrir 16 ára og
yngri.
Vissir þú að...
n Luis Suarez, leikmaður
Liverpool, er sá leikmaður í
ensku úrvalsdeildinni sem
hefur oftast skotið framhjá
markinu – inni í teig. Það
hefur gerst 8 sinnum.
n Manchester United hefur unnið
níu af síðustu tíu heimaleikjum sínum í
ensku úrvalsdeildinni.
n Arsenal hefur gert jafntefli
í síðustu þremur heimaleikj-
um sínum í ensku deildinni
og Stoke í síðustu fjórum
heimaleikjum.
n Liverpool og Stoke eru grófustu liðin
í ensku deildinni það sem af er. Bæði lið
hafa fengið sjö gul spjöld og eitt rautt.
n Robin van Persie hefur
skorað 67 prósent marka
Manchester United á
tímabilinu, eða fjögur
af sex.
n Arsenal heldur boltanum best af
öllum liðum í deildinni. Þeir hafa verið
með boltann 61 prósent að meðaltali í
fyrstu þremur leikjunum.
n Sunderland heldur boltanum verst
og hafa verið með hann að meðaltali
32,5 prósent í leikjum sínum.
Hörkuleikir fram undan
DV leitaði til Kristjáns Atla Ragnarssonar, ritstjóra Kop.is sem er stuðningsmannasíða
Liverpool-manna á Íslandi, og fékk hann til að spá í spilin fyrir leiki helgarinnar. Það þarf
varla að koma á óvart að hann spáir sínum mönnum sigri og býst við hörkuleik þegar
QPR tekur á móti Chelsea.
Sjóðheitur Carlos Tevez hefur farið
vel af stað með Englandsmeisturum
Manchester City í vetur. Hann verður
að öllum líkindum í fremstu víglínu
þegar City mætir Stoke um helgina.
Mynd ReUteRS
Moutinho
hrærður
Joao Moutinho, miðjumaður
Porto, virðist ekkert hafa á móti
því að ganga í raðir Tottenham, en
hann var orðaður við félagið undir
lok félagaskiptagluggans í ágúst.
Í viðtali á dögunum sagði hann
að stjóri Tottenham, landi hans
Andre Villas-Boas, sé einn sá besti
í Evrópu. „Ég var mjög stoltur af
áhuganum sem þeir sýndu
– sérstaklega vegna þjálfarans sem
er einn sá besti í Evrópu. Félaga-
skiptaglugginn er lokaður núna og
ég einbeiti mér að fullu að Porto.
Ég vil helst ekki tjá mig um eitt-
hvað sem gerist kannski eða gerist
ekki. Ég get sýnt mínar bestu hlið-
ar hjá Porto og mun einbeita mér
100 prósent að því verkefni.“
Tvö ár er
langur tími
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, hefur kveðið niður
sögusagnir þess efnis að hann sé
nálægt því að skrifa undir nýjan
samning við félagið. Samningur
Wengers rennur út árið 2014 og
hafa fjölmiðlar í Bretlandi greint
frá því að aðeins formsatriði sé
fyrir Wenger að endurnýja samn-
inginn. „Ég á tvö ár eftir. Það eina
sem skiptir mig máli í augna-
blikinu er leikurinn gegn South-
ampton um helgina. Tvö ár er
langur tími í starfi sem þessu og
það eina sem ég hugsa um er að
standa mig vel,“ segir Wenger sem
er orðinn 62 ára.