Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 17. september 2012 Mánudagur F járlög ríkisins fyrir árið 2013 voru kynnt með mik- illi viðhöfn í síðustu viku. Samkvæmt þeim má landsmönnum vera ljóst að áframhaldandi niðurskurður blasir við flestum stofnunum sam- félagsins. Við lestur fjárlaganna getur verið áhugavert að rýna í smáa letrið, svo að segja, en þar má finna fjölda lítilla stofnana og sjóða sem hljóta fjárstuðning frá ríkinu á komandi ári. Oft er ekki um háar fjárhæðir að ræða, settar eru tíu milljónir til að styðja við íslenska fornritafélag- ið og 18 milljónir í sjóð til síldar- rannsókna, en þegar þessir „litlu molar“ eru teknir saman blasir við dágóð upphæð. Þannig mun rík- ið greiða um 3.600 milljónir króna með þeim 25 stofnunum, samtök- um og sjóðum sem DV fjallar um í eftirfarandi úttekt. Hafa ber í huga að í þessari úttekt eru þó einnig stærri samtök eins og Bændasam- tök Íslands. Þess má einnig geta að listi DV yfir smærri pósta í fjárlögum er engan veginn tæmandi og ýmsu mætti við hann bæta. Hið íslenska fornritafélag 10 milljónir króna Hið íslenska fornritafélag, eða Forn- ritafélagið, er félag sem var stofnað í Reykjavík árið 1928 til þess að gefa út íslensk fornrit í vönduðum útgáf- um. Vest-norrænt menningarhús í Kaupmannahöfn 11,9 milljónir króna Fyrsta skóflustungan að hinu Vest- norræna menningarhúsi var tek- in í Kaupmannahöfn í lok ágúst síð- astliðins. Samkvæmt upplýsingum sem finna má á vefsíðunni nordatl- antiskhus.dk á menningarhúsið í senn að vera samkomustaður Græn- lendinga, Íslendinga og Færeyinga jafnframt því að vera sýningargluggi vestnorrænnar menningar í Dan- mörku. Óbyggðanefnd 80,4 milljónir króna Á vefsíðu óbyggðanefndar segir að nefndin sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hafi það þríþætta hlutverk að kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda. Að skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur, sem og að úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna. Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna 12 milljónir króna Menntastofnun Íslands og Banda- ríkjanna, eða Fulbrightstofnunin eins og hún er jafnan kölluð í dag- legu tali, var stofnsett með samningi milli ríkisstjórna Íslands og Banda- ríkjanna árið 1967. Stofnunin starfar með fjárveitingum beggja samnings- aðila og styrkir Íslendinga til náms og rannsóknarstarfa í Bandaríkjun- um og Bandaríkjamenn til náms og kennslu- og rannsóknarstarfa á Ís- landi. Stofnunin miðlar einnig upp- lýsingum um nám og framhalds- menntun í Bandaríkjunum, svo og námsstyrki í bandaríska háskóla. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 199,6 milljónir króna Hlutverk FA er að vera samstarfs- vettvangur ASÍ, SA, BSRB, Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytis um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í samstarfi við aðrar fræðslustofnanir á vegum aðildar- samtakanna. Markmiðið er að veita starfsmönnum, sem ekki hafa lok- ið prófi frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Safnasjóður 130 milljónir króna Fjallað er um safnasjóð í safnalögum nr. 106/2001, en þar segir um hlut- verk og tilgang sjóðsins: „Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starfsemi safna sem heyra undir lög þessi. Safnaráð úthlutar úr sjóðnum styrkj- um til safna samkvæmt sérstökum úthlutunarreglum sem ráðið setur og menntamálaráðherra staðfestir […] Kostnaður af starfsemi safnaráðs greiðist úr safnasjóði.“ Listskreytingasjóður 1,5 milljónir króna Markmið Listskreytingasjóðs ríkis- ins er að fegra opinberar byggingar og umhverfi þeirra með listaverk- um og stuðla þannig að listsköpun í landinu. Hafréttarstofnun Íslands 8 milljónir króna Hafréttarstofnun Íslands er rann- sókna- og fræðslustofnun á sviði haf- réttar við Háskóla Íslands sem lýtur sérstakri stjórn og hefur sjálfstæðan fjárhag. Sjóður til síldarrannsókna 18 milljónir króna Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem hefur þann tilgang að efla vöruþróun síldarafurða og afla nýrra markaða fyrir síldarafurðir. Bændasamtök Íslands 425,1 milljón króna Bændasamtök Íslands eru heildar- samtök allra bænda í landinu en fé- lagsmenn eru um 6.000 talsins. Hjá Bændasamtökunum starfa um þess- ar mundir um 50 manns en stöðu- gildin eru alls 48. Meginstarfsstöð- in er í Bændahöllinni í Reykjavík en starfsmenn eru einnig á landsbyggð- inni. Fiskræktarsjóður 11 milljónir króna Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán og styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rann- sóknir í ám og vötnum og auka verð- mæti veiði úr þeim, að því er fram kemur á vef Fiskistofu. Loftrýmiseftirlit 243,7 milljónir króna Á vef utanríkisráðuneytisins segir að loftrýmiseftirlit sé kerfisbundið eftirlit loftrýmis með rafrænum, sjónrænum eða öðrum aðferðum, aðallega í þeim tilgangi að bera kennsl á og afmarka hreyfingar flugskeyta og loftfara, vin- veittra og óvinveittra, innan loftrýmis- ins þar sem eftirlitið fer fram. Landhelgissjóður Íslands 18,5 milljónir króna Sjóðurinn var stofnaður árið 1913 og hafði það að meginmarkmiði að safna saman fésektum fyrir ólöglegar veiðar sem síðan yrðu nýttar til þess að fjármagna landhelgisgæsluna. Jöfnunarsjóður alþjónustu 45 milljónir króna Jöfnunarsjóður alþjónustu er sjóður í vörslu Póst- og fjarskiptastofnunar. Fjarskiptafyrirtæki sem á hafa ver- ið lagðar skyldur til að veita alþjón- ustu geta sótt um endurgreiðslu úr jöfnunarsjóði. Til að standa straum af endurgjaldi til þeirra er innheimt jöfnunargjald af fjarskiptafyrirtækj- um sem starfrækja fjarskiptanet eða -þjónustu. Kirkjumálasjóður 240,2 milljónir króna Sjóðurinn kostar rekstur prestssetra, tónlistarfræðslu kirkjunnar, Kirkju- ráðs, Kirkjuþings, prestastefnu, þjálf- un prestsefna, Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og fleira. LitLu verkefnin á spena ríkisins n Margt smátt hefur lifað af blóðugan niðurskurð síðustu ára n 3,6 milljarðar í verkefni sem fara ekki hátt Birgir Olgeirsson blaðamaður skrifar birgir@dv.is Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Fólkið sem borgar brúsann Íslenska þjóðin kemur til með að borga þessi verkefni sem DV telur upp. Steinsvaf með- an barnið grét Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu fékk óvenjulega tilkynningu rétt fyrir klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags. Tilkynnt var um mik- inn barnsgrát og að barnið hefði grátið nánast alla nóttina. Vaknaði grunur um að barnið væri eitt heima þar sem enginn kom til dyra þrátt fyrir að búið væri að berja duglega á hurðina. Því var fenginn lásasmiður til að opna íbúðina og kom þá í ljós að móðir- in lá í rúminu við hliðina á barninu en svaf svona fast að hún rumskaði ekki fyrr en lögreglan var komin inn á gafl hjá henni. Á laugardagskvöld var einnig tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti. Þar hafði maður verið stunginn í handlegg með bitvopni. Þrír voru handteknir og er málið í rannsókn. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að töluverð ölvun hafi verið í bænum en engin stórmál að ofan- greindu undanskildu. „Forkastan- leg“ launa- hækkun „Það er forkastanlegt að hækka einungis laun eins manns. Af þessu leiðir sú skýlausa krafa að almenn- ir læknar njóti einnig langþráðr- ar sanngirni og umbunar fyrir þá ábyrgð og álag sem starfi þeirra fylgir.“ Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Félags almennra lækna sem haldinn var síðastliðinn föstudag. Á fundinum var ályktað um nýlega launahækk- un Björns Zoëga, forstjóra Landspít- alans. Í ályktuninni sem send var fjöl- miðlum um helgina kemur fram að Félag almennra lækna fagni því að velferðarráðherra hafi áttað sig á samkeppnisstöðu íslenskra heil- brigðisstétta og launi vel unnin störf. Félagið telur hins vegar að tryggja beri aðlögun almennra lækna, líkt og annarra stétta, við upphaf starfs. „Engin eða lítil aðlögun er veruleiki sem flestir læknar glíma við. Það ógnar öryggi sjúklinga, dregur úr af- köstum og starfsánægju.“ Haldið innan eðlilegra marka Ellefu þingmenn hafa að nýju lagt fram þingsályktunartillögu um breytta framtíðarskiptan refaveiða. Markmiðið með tillögunni er að refastofninum verði haldið innan eðlilegra marka. Til að það náist megi refaveiðar ekki vera bannaðar á ákveðnum landsvæðum og teknar verði aftur upp greiðslur úr ríkissjóði vegna fækkunar refa. Samkvæmt tillögunni muni rannsóknir verða á hendi vísindamanna en veiðistjórn- un, það er skipulagning, stjórnun og leiðbeiningarþjónusta við veiði- menn, á hendi reyndra veiðimanna. Tillagan var einnig lögð fram í fyrra en hlaut ekki afgreiðslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.