Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 14
Sandkorn L aunhækkunin til Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, er á góðri leið með að setja allt á ann­ an endann. Björn var ágætlega launaður fyrir með langt á aðra milljón í mánaðarlaun þegar Guð­ bjartur Hannesson velferðarráðherra ákvað að færa honum launahækkun sem nemur tæplega 450 þúsund krón­ um á mánuði. Þar með var ríkisforstjór­ inn kominn með 2,3 milljónir króna á mánuði. Þau laun eru ekkert smáræði ef litið er til þess að hjúkrunarfræðingar eru með tæplega 300 þúsund í laun. Forstjórinn er því ígildi nær átta slíkra. Velferðarráðherra hefur varið ákvörðun sína með því að Björn sé af­ skaplega hæfur forstjóri sem hafi fengið tilboð um annað starf erlendis. Með því að rétta honum hálfa milljón aukalega á mánuði hafi tekist að halda honum. Nú er vitað að á Landspítalanum starfar fjöldinn allur af fólki sem skarar fram úr á sínu sviði. Ráðherra velferðar hlýtur að ætla að grípa til almennra aðgerða í samræmi við hækkun á launum for­ stjórans. Það hlýtur að vera á teikni­ borði hans hugmynd um allsherjar­ hækkun um 25 prósent á mann. En líklega er aðgerð Guðbjarts sértæk. Stöðugur niðurskurður og sparnaður hefur verið við lýði á spítalanum lengi. Fullyrt er að tækjakostur sé orðinn úr­ eltur og mannekla geti stofnað sjúkum í óþarfa hættu. Örlæti ráðherrans við æðsta mann spítalans kemur í þessu ljósi mjög á óvart. Þessi ákvörðun verður að flokkast sem axarskaft. Pólitísk blinda hefur orðið til þess að stjórnmálamaður sem kennir sig við jöfnuð ákveður að hækka einungis toppinn á spítalanum. Hann sér ekki fram fyrir tærnar á sér og hefur stuðlað að því að vinnustaður Björns logar nú af heift hinna forsmáðu sem mega éta það sem úti frýs á meðan milljónum er hent í æðstu silkihúfuna. Hver stéttin af annarri krefur nú ríkis­ sjóð um launahækkun af sama toga og Björn fékk. Og óróleikinn er þegar kom­ inn út í samtök opinberra starfsmanna. Krafa er uppi um holskeflu launahækk­ ana sem fátækur ríkissjóður þyrfti að mæta. Og þar á eftir kemur allur hinn frjálsi vinnumarkaður. Guðbjartur á varla annan kost en þann að afturkalla með einhverjum hætti launahækkunina. Sjálfur hlýtur Björn að vilja spóla til baka og færa þannig ró yfir stofnun sína. Sá skaði er þó orðinn að Guðbjartur er heillum horfinn í pólitík. Hann hefur um hríð verið nefndur sem verðugur arftaki Jó­ hönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra en nú er hans pólitíski ferill í uppnámi. Eðlileg krafa er uppi um afsögn hans vegna málsins. Flestum er nú ljóst að hann skortir getu til að stjórna svo sátt haldist í samfélaginu. Guðbjartur hefur með framgöngu sinni valdið sjálfum sér og flokki sínum miklum skaða. Hann er í úlfakreppu og ekki sýnilegt hvernig hann nær að vinda ofan af málinu. Mál­ ið er hápólitískt og þarf hugsanlega að koma til kasta forsætisráðherra. Arftaka leitað n Eftir að ljóst varð að Ás- björn Óttarsson hættir þing­ mennsku fyrir Sjálfstæðis­ flokkinn í Norðvestur­ kjördæmi er arftaka hans leitað. Þar eru einkum tveir nefndir. Kristinn Jón- asson, bæjarstjóri Snæfells­ bæjar, er vinsæll og þykir hafa verið farsæll í starfi. Þá er vilji til að Ólafur Adolfsson, lyfsali á Akranesi, fari fram. Ólafur var knattspyrnu­ maður í fremstu röð hjá ÍA og hefur vakið athygli fyrir baráttu gegn lyfsölukeðj­ unum. Hann var valinn Vestlendingur ársins 2009. Margir telja eðlilegt að Skagamenn fái sinn mann í þingmannasveitina. Pétur óráðinn n Það hefur legið í loftinu að Pétur Blöndal muni hætta þingmennsku eftir kjör­ tímabilið. Nú heyrist aft­ ur á móti að honum hafi snúist hug­ ur og hann ætli að halda áfram. Pétur er skeleggur þingmaður sem aldrei hefur farið troðnar slóðir. Hann þykir hafa skýra sýn á efnahagsmál og fjár­ málalífið. Pétur hefur vakið sérstaka athygli á grein­ ingu sinni á bóluhagkerfinu. Hann er með sterkt bakland meðal flokksmanna en hef­ ur litla náð fyrir augum for­ ystunnar. Flokkur gufar upp n Allt útlit er fyrir að megn­ ið af borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins gufi upp á kjörtímabilinu. Þor- björg Helga Vigfúsdóttir er flutt til Spánar. Geir Sveinsson er einnig farinn til útlanda. Þá bendir margt til þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir og Kjartan Magnússon muni fara í landsmálin. Þar með sitja eftir á fleti þeir Gísli Mart- einn Baldursson og Júlíus Víf- ill Ingvarsson. Líklegra er að Júlíus verði næsta borgar­ stjóraefni. Friðjón langar n Friðjón R. Friðjónsson, kosningastjóri Þóru Arnórs- dóttur og fyrrverandi að­ stoðarmað­ ur Bjarna Benediktsson- ar, er sagður vera að íhuga framboð í Kraganum. Friðjón er reyndur kosningasmali og stýrði kjöri Bjarna til for­ manns á sínum tíma. Frið­ jón er almannatengill og hefur unnið fyrir marga forystumenn Sjálfstæðis­ flokksins. Hvort það eigi eft­ ir að nýtast honum í próf­ kjöri á eftir að koma í ljós. Það verður þó varla talið honum til tekna að hafa að­ stoðað Þóru Arnórsdóttur í forsetakjörinu þegar flestir sjálfstæðismenn kusu Ólaf Ragnar. Ég er brotinn maður Hví ekki heimspeki? Gunnar Þorsteinsson er ekki lengur virkur í Krossinum. – DV Popparinn Ingó veðurguð er sestur á skólabekk. – DV Laun silkihúfunnar E r þörf á stjórnarskrárákvæði um bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ESB? – svo sem frumvarp stjórnlagaráðs kveður á um. Ég tel brýna þörf fyrir slíkt ákvæði. Til þess liggja tvær höfuð­ ástæður. Frá þingi til þjóðar Nú háttar svo til, að ríkisstjórnin hefur lofað að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, þegar drög að samningi um aðild liggja fyrir. Þingmenn virðast þó sumir ekki taka loforð ríkisstjórnar­ innar alvarlegar en svo, að þeir segjast ætla að gera ESB að kosningamáli fyrir alþingiskosningarnar vorið 2013. Það ættu þeir þó einmitt ekki að gera, úr því að ríkisstjórnin hefur lofað að vísa málinu til þjóðaratkvæðis. Þar með er málið komið úr höndum Alþingis, og þingmenn ættu að haga málflutn­ ingi sínum í samræmi við það og beina heldur kröftum sínum að þeim mál­ um, sem Alþingi hefur á sinni könnu. Vandinn hér er sá, að loforð ríkis­ stjórnarinnar um þjóðaratkvæða­ greiðslu um ESB er einhliða. Ríkis­ stjórnin gæti hlaupið frá loforðinu og dregið Ísland inn í ESB í krafti einfalds meiri hluta á Alþingi. Forseti Íslands gæti þá að vísu beitt málskotsrétti sín­ um og skotið málinu í þjóðaratkvæði, en fyrir því er engin trygging að lög­ um. Frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár byrgir brunninn með því að mæla fyrir um bindandi þjóðar­ atkvæðagreiðslur um samninga, sem fela í sér framsal ríkisvalds. Hér fer þó e.t.v. betur á að tala um að deila fullveldi með öðrum þjóðum en að framselja vald. Þjóðin ekki spurð fyrr en eftir á Dæmi Bretlands er umhugsunarvert í þessu viðfangi. Bretar gengu inn í ESB 1973 í stjórnartíð Íhaldsflokksins und­ ir forsæti Edwards Heath, án þess að þjóðin væri spurð. Verkamannaflokk­ urinn undir forustu Harolds Wilson lofaði að efna til þjóðaratkvæðis um aðildina að ESB, kæmist flokkurinn til valda, og það gerði hann 1974 og hélt þá þegar þjóðaratkvæðagreiðslu um, hvort Bretar vildu vera áfram í ESB. Í atkvæðagreiðslunni sögðu 67% kjós­ enda já. Málið var leyst. Dæmi Bret­ lands sýnir, að ríkisstjórn getur upp á sitt eindæmi tekið ákvörðun um aðild að ESB, sé enginn varnagli sleginn í stjórnarskrá. Stundum, stundum ekki Stofnríki ESB (Frakkland, Ítalía, Þýska­ land, Belgía, Holland og Lúxemborg) héldu ekki þjóðaratkvæðagreiðslur um stofnun ESB. Þær þjóðir, sem síð­ ar slógust í hópinn, hafa flestar en ekki allar greitt atkvæði fyrir fram um aðild að ESB nema Bretar, sem greiddu at­ kvæði eftir á um málið. Írland samþykkti með 83% atkvæða að ganga inn í ESB 1973 og Danmörk með 63% atkvæða. Noregur hafnaði aðild sama ár með 54% atkvæða. Grikkland gekk inn 1981 án þjóðar­ atkvæðis. Portúgalar og Spánverjar gengu inn 1986, einnig án þjóðarat­ kvæðis. Austurríki, Finnland, Svíþjóð og Noregur héldu þjóðaratkvæða­ greiðslur um aðild að ESB 1994. Aust­ urríki samþykkti með 67% atkvæða að ganga inn 1995, Finnland með 57% at­ kvæða og Svíþjóð með 53% atkvæða, en Noregur hafnaði inngöngu öðru sinni með 52% atkvæða. Í næstu hrinu 2003 ákváðu mörg lönd að ganga í ESB: Malta (54% at­ kvæða með inngöngu), Slóvenía (90%), Ungverjaland (84%), Litháen (90%), Slóvakía (92%), Pólland (78%), Tékkland (77%), Eistland (67%) og Lettland (67%). Búlgaría, Kýpur og Rúmenía gengu hins vegar inn án þjóðaratkvæðis líkt og Grikkir, Portú­ galar og Spánverjar höfðu áður gert. Fyrr á þessu ári héldu Króatar þjóðar­ atkvæðagreiðslu og ákváðu að ganga inn með 66% atkvæða. Norðmenn eru eina þjóðin, sem hefur hafnað aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu, og það tvisvar. Síðasta orðið Af þessu stutta yfirliti má ráða, að þjóðþing ESB­landanna hafa ýmist haldið þjóðaratkvæðagreiðslur um aðild að ESB eða lokið málinu á eigin spýtur án þess að spyrja kjósendur. Í þessu ljósi sýnist brýnt, að stjórnarskrá Íslands tryggi, að þjóðin eigi síðasta orðið um aðild að ESB. Fylgismenn að­ ildar vilja varla þröngva þjóðinni inn í ESB gegn vilja hennar. Það vil ég ekki. Þjóðaratkvæði og ESB Kjallari Þorvaldur Gylfason Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 17. september 2012 Mánudagur „Ríkis- stjórnin gæti hlaupið frá loforðinu Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is „Vinnustaður Björns logar nú af heift hinna forsmáðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.