Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 15
Það var í partíiÉg er í opnu hjónabandi Fyrsta tattú Fjölnis Geirs Bragasonar var gert með rakvél. – DVEgill Ólafsson segir öll hjónabönd hafa gott af því að loftað sé út. – DV Egg á Ögmundi Spurningin „Vel, af því ég er að upplifa svo marga nýja hluti.“ Marín Manda Magnúsdóttir 33 ára viðskiptafræðinemi „Vel, að öllu leyti. Ég er mjög spenntur fyrir vetrinum eins og flestir.“ Árni Björn Gestsson 24 ára nemi „Mjög vel. Ég er að flytja í íbúð við hliðina á systur minni og er að hefja nám.“ Júlía Karlsdóttir 22 ára nemi „Vel, sumarið var gott og því hlýt- ur veturinn að verða hagstæður fyrir okkur skíðafólkið.“ Eyjólfur Ingólfsson 31 árs matreiðslumaður „Bara vel. Skólinn er að byrja og honum fylgir mikil tilhlökkun.“ Lilja Björk Magnúsdóttir 21 árs nemi Hvernig leggst veturinn í þig? 1 Ísland er undarlegur staður Áströlsk fjölmiðlakona lýsti reynslu sinni af Íslandi í pistli. 2 Fjölnir olli föður sínum vonbrigðum Fjölnir Geir Bragason ákvað að verða húðflúrari þvert á vilja föður síns. 3 Köstuðu peningum út um gluggann Bankaræningjar á flótta undan lögreglu gripu til sinna ráða. 4 Var efins um Seacrest Julianne Hough óttaðist að kærastinn, Ryan Seacrest, væri of áhrifamikill og frægur áður en þau byrjuðu saman. 5 Leita að markaðsvænna nafni á Ísland Forsvarsmenn Inspired by Iceland leita út fyrir landsteinana að hentugra nafni fyrir landið. 6 Komst af sjálfsdáðum úr íbúðinni Íbúi í Ofanleiti þar sem sprenging varð komst við illan leik út úr íbúðinni. 7 Öflug sprenging í Ofanleiti Miklar skemmdir urðu á íbúðinni þar sem sprenging varð á sunnudag. Mest lesið á DV.is Þ að versta sem hent getur Asíu- búa er að „missa andlitið“. Abstrakt „andlit“ einstaklings í þeim heimshluta felur í sér allt í senn þjóðfélagsstöðu, mannorð, áhrif, reisn og heiður viðkomandi. „And- litsmissir“ lítillækkar mann í aug- um jafningjanna; í Japan til forna var sjálfsmorð oft álitið geðslegri kostur en andlitsmissir. Áherslan á að halda eða bjarga andlitinu vegur oft þyngra en raunverulegt andlag samskiptanna, sem oft leiðir til glórulausra málalykta. Óttinn við ásjónuhrun er líka ís- lenskt þjóðareinkenni, sem hérlendir embættismenn og bankastjórnendur sýndu sérlega vel í kjölfar bankahruns- ins; einnig hér gat þetta viðhorf af sér hinar fáránlegustu staðhæfingar sem brutu í bága við alla heilbrigða skyn- semi, sem og starfslýsingar þessara einstaklinga, sem samkvæmt stöðum sínum báru fortakslausa ábyrgð á því sem gerðist – eða ekki – undir þeirra stjórn og fengu vel borgað fyrir þá meintu ábyrgðarbyrði. „Ekki langt í hrun ríkisins...“ Að hafa „egg á andlitinu“ þýðir að eitt- hvað óskaplega vandræðalegt hef- ur komið fyrir mann, yfirleitt af eigin völdum. Þetta er staðan sem Ögmund- ur Jónasson innanríkisráðherra er í þessa dagana, eftir að hafa brotið jafn- réttislög við skipan í sýslumannsemb- ættið á Húsavík. Ráðherrann sagði fjölmiðlum að hann teldi sig hafa „rétt til þess að ræða málið málefnalega og skýra rök- in“ fyrir þeirri ákvörðun sinni að brjóta landslög. Þessi yfirlýsing ráðherra í landi, sem á að heita lýðræðisríki, er sannarlega óhugnanleg – og það frá stjórnmálamanni sem allan sinn feril hefur barist fyrir siðbótum í stjórn- málum. Það sem A finnst „málefnalegt“ þykir B argasta firra. En þess vegna höfum við lög. „Þar sem lögin lúta öðru valdi og sjálf skortir vald, er að mínu mati ekki langt í hrun ríkisins,“ sagði Plató, „en ef lögin eru húsbóndi ríkisstjórnarinnar og hún þeirra þræll, lofar ástandið góðu og menn munu njóta allra guðanna gæða.“ Neyðarréttarsjónarmið geta í ákveðnum tilvikum réttlætt aðgerðir andstæðar lögum, eins og t.d. í kjöl- far bankahrunsins, þegar stjórnvöld hefðu átt að hirða „eignir“ þeirra sem með fjársvikum lögðu landið í rúst og spilltu orðspori þess í samfélagi þjóð- anna um ókomna áratugi, þ.e., þegar það er nauðsynlegt vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Persónulegar skoðan- ir ráðherra, sama hversu „málefna- legar,“ réttlæta hins vegar ekki lög- brot. Ekkert er verra en afsökunar- beiðni Nógu slæmt var að gagnrýnendur vildu ekkert um „rök“ ráðherrans heyra, en það sem honum virtist þykja verst var að „… málflutningurinn [gekk] út á að reyna að koma manni niður á hnén, afsakandi.“ La-dí-da. Fátt hugnast íslenskum stjórnmálamönnum verr en að þurfa að biðjast afsökunar eða viðurkenna eigin mistök. Ekki ein einasta þeirra tólf hræðna úr ríkisstjórn og yfirstjórn- um fjármálastofnana ríkisins töldu sig bera nokkra ábyrgð á bankahruninu eða atburðum í aðdraganda þess; fyr- ir rannsóknarnefnd Alþingis vísuðu þau öll því á bug að hafa gert mistök eða gerst sek um vanrækslu þó ábyrgð þeirra væri í raun, samkvæmt starfslýs- ingum þeirra, hlutlæg. Hvers vegna er svona erfitt að segja fyrirgefðu? Að viðurkenna að maður hafi gert mistök, klúðr- að djobbinu, ekki staðið sig eins vel og maður átti að gera? Lét ginnast af þrjótum og þorpurum, freistast af fíflum og frathænsnum. Hvað er málið? Ein synd kallar á aðra Tilgangur játningar, eins af sjö sakra- mentum kaþólsku kirkjunnar, er að sætta samband skriftabarnsins við Guð. Þegar við syndgum, neitum við okkur um „náð Guðs“ og okkur reynist þá auðveldara að syndga enn meira. Eina leiðin úr þessum vítahring er að viðurkenna syndir okkar, iðrast þeirra, biðjast fyrirgefningar og bæta fyrir þær. Þannig öðlumst við náð – sálarró, frið – og styrk til að forðast nýjar synda- gjörðir. Þetta ferli er auðvitað ekki einka- eign kaþólikka eða kristinna, held- ur höfðar til mannlegrar samvisku og sómatilfinninga; tilgangurinn er að sætta samband okkar við okkur sjálf og aðra. „Sorry Seems To Be The Hardest Word“ Með öðrum orðum: Þegar við ger- um rangt verðum við að biðjast fyr- irgefningar. Fyrirgefningin „lækn- ar“ samband okkar við þá sem við skuldum hana og veitir okkur og þeim sálarró og frið og, jafnvel enn mikil- vægara, getur forðað okkur frá áfram- haldandi misgjörðum – því ein syndin býður annarri heim. Allir vinna, ekki satt? Ónei. Eins og Elton söng: „Sorry Seems To Be The Hardest Word.“ „Andlegur þroskavöxtur einstak- lings er í beinu hlutfalli við vandræða- legheitin sem hann þolir.“* Hvort ber vott um meiri þroska, reisn, heiður og hugrekki – að viðurkenna mistök sín og biðjast afsökunar eða að þræta fyrir þau eins og snúið roð í hundskjafti og telja sig „halda andlitinu“? *Haft eftir bandaríska uppfinninga- manninum Douglas Engelbart (fann upp tölvumúsina). Flottur í tauinu Þessi ágæti herramaður skar sig örlítið úr í hópi gangandi vegfarenda þegar ljósmyndari átti leið fram hjá Hótel Borg á dögunun. Óhætt er að segja að hann hafi verið með útlitið á tæru og býsna flottur í tauinu. Mynd jgMyndin Umræða 15Mánudagur 17. september 2012 Kjallari Íris Erlingsdóttir „Neyðar- réttar- sjónarmið geta í ákveðnum til- vikum réttlætt aðgerðir and- stæðar lögum Þetta er alveg perfect drengur Ásdís Rán er að deita fyrirsætu og fótboltamann. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.