Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Side 3
Fréttir 3Mánudagur 17. september 2012
Lýðheilsusjóður
200,6 milljónir króna
Lýðheilsusjóður var stofnaður á
grunni forvarnasjóðs, sem áður var
til, en markmið hans samkvæmt
lögum er að styrkja lýðheilsustarf
bæði innan og utan embættisins.
Gamla varnarsvæðið við
Keflavíkurflugvöll
541,4 milljónir króna
Á gamla varnarsvæðinu við
Keflavíkurflugvöll er Ásbrú rekin
af ríkinu en þar búa rúmlega 1.800
manns á háskólagörðum. Þar hafa
einnig fyrirtæki aðsetur.
Ríkisstjórnarákvarðanir
159,0 milljónir króna
Sjóður sem ríkisstjórnin getur sótt
í fyrir ýmis „ófyrirséð“ verkefni. Til
að mynda gerði Ríkisendurskoðun
athugasemd við ákvörðun Guðbjarts
Hannessonar velferðaráðherra um
að sækja um heimild í fjáraukalög-
um til að standa straum af kostnaði
ríkisins vegna PIP-brjóstapúðamáls-
ins þegar nóg var af óráðstöfuðu fé í
fjárlögum og var þar bent á flokkinn
ríkisstjórnar ákvarðanir.
Sóknaráætlanir landshluta
411,2 milljónir króna
Eitt af meginverkefnum vinstri-
stjórnarinnar þegar samstarfsyfir-
lýsingin var undirrituð fyrir rúm-
um þremur árum. Er um að ræða
sóknaráætlanir fyrir alla landshluta
til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til
framtíðar.
Greiðslur til samtaka höfund
arréttarhafa fyrir ljósritun á
höfundarréttarvernduðu efni
8,9 milljónir króna
Ríkið þarf að greiða höfundarréttar-
höfum fyrir ljósritun á höfundar-
réttarvernduðu efni. Við leit er ekki
að sjá hvaða efni og í hvaða tilgangi
það er ljósritað.
Framlög til stjórnmála
samtaka
289,9 milljónir króna
Tilgangur þessara styrkja ríkisins
til stjórnmálasamtaka er að draga
úr hættu á hagsmunaárekstrum og
tryggja gagnsæi í fjármálum. Mark-
mið laganna er að auka traust á
stjórnmálastarfsemi og efla lýð-
ræðið.
Vernd Breiðafjarðar
8,0 milljónir króna
Lög um vernd Breiðafjarðar voru
samþykkt árið 1995 og er þeim ætlað
að stuðla að verndun Breiðafjarðar,
einkum landslags, jarðmyndana,
lífríkis og menningarminja. Var
markmiðið að vernda fjörðinn fyr-
ir átroðningi ferðamanna þannig
að spjöll myndu ekki fást af. Lög-
in voru samþykkt á meðan Össur
Skarphéðinsson hafði lyklavöld í
umhverfisráðuneytinu.
Vatnajökulsþjóðgarður
370,4 milljónir króna
Markmið þjóðgarðsins er að vernda
landslag, lífríki, jarðmyndanir og
menningarminjar svæðisins og gefa
almenningi kost á að kynnast og
njóta náttúru þess og sögu.
Natura 2000 samstarfsnetið
151,4 milljónir króna
Með þessu verkefni er markmiðið
að skrá vistkerfi og fuglalíf á Íslandi
til að auðkenna svæði sem þarfn-
ast verndar. Verkefnið mun einnig
nýtast í skipulagsvinnu og ýmsum
öðrum verkefnum opinberra aðila.
Verkefnið nýtur fjárstuðnings frá
Evrópusambandinu.
Stofnun Vilhjálms
Stefánssonar
29,7 milljónir króna
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
á Akureyri er íslensk norður-
slóðastofnun. Stofnuninni er ætl-
að innlent og alþjóðlegt hlutverk
viðvíkjandi rannsóknum, upplýs-
ingamiðlun, ráðgjöf og samvinnu
á sviði sjálfbærrar þróunar og um-
hverfismála á norðurslóðum. Gert
er ráð fyrir að rekstrarkostnaður
stofnunarinnar verði 51,5 milljónir
króna á næsta ári. Tekjur stofnunar-
innar nema 21,8 milljónum króna á
næsta ári samkvæmt ráðagerð ríkis-
ins og þarf því að brúa 29,7 milljóna
tap af sjóðnum með greiðslu úr rík-
issjóði. n
LitLu verkefnin
á spena ríkisins
n Margt smátt hefur lifað af blóðugan niðurskurð síðustu ára n 3,6 milljarðar í verkefni sem fara ekki hátt
Ríkisstjórnarákvarðanir Liður í fjárlögum fjármálaráðuneytisins sem ráðherrar geta
gripið til í sérverkefni. 159 milljónir króna fara í þann lið.
K
arlmaður á fertugsaldri ligg-
ur þungt haldinn á gjör-
gæsludeild Landspítalans
eftir að öflug sprenging varð
í fjölbýlishúsi í Ofanleiti
á sunnudag. „Þetta er mannlegur
harmleikur,“ segir Jakob Ingi Ásgeirs-
son nágranni sem fór ekki varhluta af
þeim hörmungum sem áttu sér stað.
Nágrannar hafa lýst því hvernig hús-
ið nötraði eftir háværan sprengju-
hvell rétt fyrir hádegi á sunnudag.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins í Reykja-
vík var kallað á vettvang og lauk
slökkvistörfum til fulls um eftirmið-
degið.
Hinn slasaði er með alvarleg
brunasár en hann var inni í íbúð-
inni þegar sprengingin varð. Fólk úr
nágrenninu var fljótt á vettvang og
aðstoðaði manninn. Hann gekk þó
sjálfur út úr íbúðinni og var fluttur á
slysadeild með sjúkrabíl. Þegar blað-
ið fór í prentun var maðurinn enn
sagður í lífshættu og lá meðvitundar-
laus í öndunarvél.
Stóð grafkyrr og illa brenndur
Ingvar Ágústsson var á meðal þeirra
sem voru fyrstir á vettvang. Hann
og kona hans, Helga Margrét Back-
man, voru stödd í nágrenninu þegar
þau heyrðu hvellinn. Ingvar leit
inn um glugga á íbúðinni þar sem
sprengingin varð. „Inni í stofunni
stóð maður og ég sá að það var eld-
ur í hljómflutningsgræjum rétt hjá
honum,“ segir Ingvar. „Ég stökk inn
um gluggann, greip teppi og slökkti
eldinn í græjunum. Svo reyndi ég
að koma manninum út; hann stóð
þarna fáklæddur og illa farinn.
Hann var grafkyrr og það heyrð-
ist hvorki hósti né stuna frá hon-
um. Hann fullvissaði mig samt um
að það væri enginn annar í íbúð-
inni.“ Veggur hafði hrunið yfir sófa
við dyr sem lágu út á veröndina. Eft-
ir að Ingvar hafði þrykkt sófanum til
gat slasaði maðurinn gengið það-
an út. „Við reyndum að snerta hann
sem minnst, en það var ótrúlegt að
hann skyldi standa uppi og vera með
meðvitund.“ Ingvar og fleiri hlúðu að
manninum og færðu hann lengra frá
glugganum eftir að bálið stækkaði.
„Sem betur fer komu sjúkraliðarn-
ir stuttu síðar. Ég ætlaði að fara inn
aftur með slökkvitæki en þá var reyk-
urinn orðinn svo mikill að ég ákvað
að gera það ekki. Maður var auðvitað
sjokkeraður,“ segir hann.
„Sá reyk stíga upp“
„Ég var uppi í búðinni minni með
sjö mánaða son minn. Skyndilega
heyrðum við gríðarlegan hvell og
húsið hristist eins og í jarðskjálfta,“
segir Haukur Halldórsson, íbúi í Of-
anleiti. „Ég leit út um gluggann og sá
reyk stíga upp frá glugganum að neð-
an. Þá flýttum við okkur út.“ Haukur
og fjölskylda hans halda til hjá skyld-
mennum sem búa í nágrenninu.
Reykmengunin var slík að íbúar
þurftu að halda sig frá íbúðum sín-
um og finna sér annan svefnstað að-
faranótt mánudags. Rauði krossinn
var þeim innan handar.
Gríðarlegur þrýstikraftur
Heildstæðu mati á reykskemmdum
í húsinu er ekki lokið en ljóst er að
íbúðin þar sem sprengingin varð er
handónýt. Rannsókn á eldsupptök-
um tafðist nokkuð vegna reykmeng-
unarinnar en slökkvistarfi lauk að
fullu um eftirmiðdegi sunnudags. Er
málið nú á borðinu hjá rannsóknar-
deild lögreglunnar sem litlar skýr-
ingar hefur viljað gefa á málinu.
Ósprunginn gaskútur fannst inni
í eldhúsinu en greint var frá því í
kvöldfréttum Stöðvar 2 að mögulega
hefðu fleiri gaskútar verið í íbúðinni
og sprungið. Bendir alltént flest til
þess að um slys hafi verið að ræða.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu,
greindi frá því í hádegisfréttum RÚV
að sprengingin hefði haft gríðar-
legan þrýstikraft. Rúður brotnuðu í
nágrenninu, vatn flæddi upp úr kló-
settum í nærliggjandi íbúðum vegna
þrýstingsins og tveir bílar urðu fyrir
hnjaski. Þá þeyttust glerbrot yfir leik-
völl sem er beint fyrir utan íbúðina.
Heppin feðgin
Anton Brink Hansen ljósmyndari
var með tveggja ára dóttur sinni á
leikvellinum tíu mínútum áður en
sprengingin varð. Tilviljun réð því
að feðginin ákváðu að færa sig yfir
á annan leikvöll rétt áður en ósköp-
in dundu yfir. „Leikvöllurinn er beint
fyrir framan íbúðina og það þeyttu-
st hlutir þarna þvert yfir,“ segir Ant-
on sem prísar sig sælan að hafa farið
með dóttur sína á annan leikvöll. n
„Mannlegur
harmleikur“
n Hræðileg aðkoma eftir sprengingu n Maður í lífshættu
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
„Ég leit út um gluggann og
sá reyk stíga upp frá
glugganum að neðan.
Þá flýttum við okkur
út.
Sprenging í Ofanleiti Ekki
hefur enn verið upplýst um
eldsupptök. Mynd eyþóR áRnaSOn
Ingvar ágústsson Ingvar hjálpaði slasaði
manninum út úr íbúðinni.