Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Síða 11
Fréttir 11Mánudagur 17. september 2012
Draumaprinsinn
var ofbelDismaður
Vinnur úr reynslunni
Hún segist hafa fengið mikla hjálp
í Kvennaathvarfinu og það hafi
í raun bjargað lífi hennar. Hún
dvaldi þar í mánuð. „Það hefur
bjargað mér að fara þarna. Áður en
ég lét verða af því hringdi ég þang-
að, stundum oft á dag, og stund-
um fór ég. Það var rosalega gott að
hafa svona athvarf til þess að leita
í. Ég á vinkonur og allt svoleiðis en
það er svo gott að leita til fólks sem
þekkir þetta og veit að svona eiga
hlutirnir ekki að vera. Þær eru svo
yndislegar allar konurnar þarna
og vinna svo gott starf. Það er svo
gott að vera þarna og manni líður
vel. Ég var með yngra barnið með
mér og það fór vel um okkur þó að
það væri þröngt stundum og mað-
ur þyrfti að vera með öðrum í her-
bergi. Það er bara svo nauðsyn-
legt að hafa svona stað til að hjálpa
manni út úr svona.“
Hún segist ekki hafa búist við því
að hún gæti lent í svona sambandi.
„Ég er bara rosalega blíð og góð og
vil öllum vel. Ég trúi á það góða í
fólki. Ég bara trúði ekki að það væri
til svona fólk.“
Jóna segist enn vera að vinna
sig út úr reynslunni og vonast til
að geta með tímanum nýtt reynslu
sína til hjálpar öðrum í svipaðri
stöðu. Hún vonast til að geta starfað
í Kvennaathvarfinu og hjálpað kon-
um að komast út úr ofbeldissam-
böndum. n
Ofbeldisfullur
draumaprins
Draumaprins Jónu reyndist
vera ofbeldisfullur og beitti
hana bæði andlegu og líkam-
legu ofbeldi. Hún flúði undan
honum í Kvennaathvarfið.
Mynd eyþór árnason
Þ
að dvelja í athvarfinu um 100–
130 konur árlega og með þeim
50–70 börn. Þannig að oft
hafa verið hátt í 200 hér í hús-
inu,“ segir Sigþrúður Guðmunds-
dóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra
Kvennaathvarfsins. Athvarfið stend-
ur fyrir söfnun þar sem núverandi
húsnæði þess er alltof lítið. Sigþrúð-
ur segir að þörfin sé því ver og mið-
ur brýn. „Það væri best ef það væri
ekki þörf fyrir Kvennaathvarf á Ís-
landi en því miður er það ekki raun-
in,“ segir hún. Raunin er sú að komum
í athvarfið hefur fjölgað eftir hrun á
sama tíma og fjárframlög til þess hafa
dregist saman.
aðstoð við uppbyggingu
„Ný íslensk rannsókn sýnir okkur að
21 prósent kvenna verður fyrir of-
beldi maka eða fyrrverandi maka yfir
ævina,“ segir hún. Konur geta komið
í Kvennaathvarfið og fengið þar hjálp
við að koma sér út úr ofbeldissam-
böndum og fá aðstoð við að byggja
sig upp að nýju. Í athvarfinu er hægt
að dveljast en þar líka hægt að koma
í viðtöl hjá ráðgjöfum og þar fer líka
fram hópastarf sem um 200–300 kon-
ur nýta sér árlega.
Húsið alltof lítið
Starfsemin þarf nýtt húsnæði þar sem
það gamla er orðið of lítið. „Núna hef-
ur það verið ljóst í mjög langan tíma
að athvarfið sem við erum í núna er
alltof lítið. Á undanförnum árum hef-
ur það oft verið þannig að það er alveg
að springa utan af okkur. Alveg upp í
22 í einu. Þá eru nýtt öll herbergi og
skúmaskot. Það hefur gengið ótrúlega
vel en það er ekki sú aðstaða sem við
viljum bjóða okkar konum sem þurfa
rólegheit og það að vera tryggar og ör-
uggar,“ segir hún.
„Við þurfum hús sem er meira en
500 fermetrar, með hátt í 20 herbergj-
um eða vistarverum. Þau myndu ekki
nýtast öll sem svefnherbergi held-
ur líka sem viðtalsherbergi og fyr-
ir hópastarfið. Við höfum augastað á
húsi sem myndi henta okkur mjög vel
en við myndum þurfa um 25 milljónir
til þess að brúa bilið.“
stórt skref
Átakið á sér fyrirmynd frá árinu 1992
þegar síðast var safnað fyrir nýju hús-
næði. „Þetta er átak sem er í rauninni
endurgerð af átaki frá 1992 sem hét þá
Allir með tölu. Og ágóðanum var þá
varið til húsnæðiskaupa og athvarfið
komst í nýtt húsnæði.
Það var ákveðið að endurvekja
þetta gamla átak, við breyttum aðeins
um nafn og nú heitir það Öll með tölu.
Það var ungur hönnuður, Elsa Niel-
sen, sem hannaði merkið fyrir okkur
og tölurnar fást í átta litum.“
Aðspurð hvort konur séu orðn-
ar óhræddari við að leita sér aðstoð-
ar til þess að komast úr ofbeldissam-
böndum nú en áður segir Sigþrúður
það alltaf vera mikið mál að komast
úr slíkum aðstæðum. „Þrátt fyrir alla
umræðuna og alla fræðsluna þá er
það stórt skref að skilgreina sig í of-
beldissambandi. Leyndin og skömm-
in er mjög mikil.“ n
„Skömmin mjög mikil“
n 100–130 konur dvelja árlega í Kvennaathvarfinu og 50–70 börn
Mikil þörf Sigþrúður segir það vera
drauminn að þurfa ekki Kvennaathvarf á
Íslandi. Það sé því miður ekki raunin.
Gott málefni
Tölurnar í átakinu verða seldar til og
með 23. september. Hægt er að kaupa
tölur í verslunum Krónunnar, Nóa-
túns, Kjarvals, í verslunum Samkaupa
Úrvals, Nettó, hjá Póstinum, á kaffistof-
um Félagsstofnunar stúdenta, í Hámu,
í Bóksölu stúdenta, á Kaffitári, Ba-
balú, Kaupfélagi Skagfirðinga, í versl-
uninni Blómsturvöllum, í verslun-
inni Móðir, kona, meyja á Laugavegi
86–94 og í Fiskbúðinni Freyjugötu 1.
Einnig inni á vefnum allirmeðtolu.is.