Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Blaðsíða 12
12 Erlent 17. september 2012 Mánudagur
B
reska lögreglan rannsakar nú
hvort karlmaður sem fannst
látinn úti á götu í vesturhluta
Lundúna hafi verið laumufar-
þegi sem féll úr flugvél. Flest
virðist benda til þess að maðurinn,
sem var á þrítugsaldri og af afrískum
uppruna, hafi komið sér fyrir í hjóla-
búnaði vélarinnar en fallið út þegar
vélin kom inn til lendingar á sunnu-
daginn fyrir viku. Dæmi sem þetta er
ekkert einsdæmi eins og breska ríkis-
útvarpið, BBC, komst að á dögunum.
Frá árinu 1947 hafa 96 slík dæmi svo
vitað sé komið upp um allan heim.
Mörg dæmi
Engin vitni voru að því þegar mað-
urinn féll til jarðar en lík hans fannst
við Mortlake á Portman Avenue í ró-
legri íbúðagötu. Nokkrir íbúar þóttu-
st hafa heyrt eitthvað, dynk eða háan
hvell, en engin vitni voru að atvikinu.
„Ég reikna með að hann hafi þegar
verið látinn. Aumingja maðurinn hef-
ur verið mjög örvæntingarfullur,“ segir
John Taylor, 79 ára íbúi í götunni, sem
þóttist hafa heyrt það þegar maðurinn
skall til jarðar.
Sem fyrr segir er dæmi sem þetta
ekkert einsdæmi á þessu svæði. Árið
2001 fannst lík Mohammeds Ayaz,
21 árs Pakistana, á bílastæði nærri
Richmond í Lundúnum. Fjórum árum
áður féll laumufarþegi úr hjólabún-
aði vélar og lenti skammt frá staðn-
um þar sem lík Ayaz fannst. Einnig eru
dæmi þess að lík hafi fundist á sjálfum
Heathrow-flugvellinum undir sömu
kringumstæðum. 24. ágúst síðast-
liðinn, aðeins sextán dögum áður en
líkið fannst við Mortlake, fundust lík-
amsleifar manns í hjólabúnaði Boeing
747-flugvélar sem var að koma frá
Höfðaborg í Suður-Afríku. Og árið 2002
fundust lík tveggja tólf ára pilta í hjóla-
búnaði vélar Ghana Airways sem var
að koma frá Accra, höfuðborg Gana.
96 tilvik
Stephen Veronneu, fulltrúi banda-
rísku flugmálastjórnarinnar (FAA),
segir í samtali við BBC að 96 dæmi
séu til frá árinu 1947 um laumufar-
þega sem reynt hafa að koma sér
milli landa með því að koma sér fyr-
ir í hjólabúnaði flugvéla. Þetta hefur
gerst í 85 flugferðum. Hlutfall þeirra
sem fundist hafa látnir er mjög hátt,
eða hátt í 75 prósent. Veronneu bend-
ir á að hólfið sem geymir hjólabún-
aðinn sé mjög súrefnissnautt og auk
þess sé enginn búnaður til að halda
hita. Því sé í raun undantekning að
menn komist lífs af úr slíkum aðstæð-
um. Þegar komið sé í 22 til 33 þúsund
feta hæð muni súrefnisþurrð gera vart
við sig sem veldur meðvitundarleysi.
Kuldinn í háloftunum er auk þess
óbærilegur, eða allt að 63 stiga frost.
Veronneu segir að allt bendi til þess
að maðurinn sem fannst við Mortla-
ke hafi verið laumufarþegi og útilokar
ekki að hann hafi verið meðvitundar-
laus þegar hann féll frá borði.
Hrikalegar aðstæður
„Þeir frjósa í hel eða deyja af völd-
um súrefnisskorts. Ef laumufar-
þegar vissu hvað þeir væru að fara út
í myndi enginn leggja í það að fela
sig í hjólabúnaði flugvéla,“ segir Dav-
id Learmount hjá Flight International
Magazine.
Þrátt fyrir þessi orð Learmounts eru
til mörg dæmi þess að laumufarþegar
hafi lifað af flugferðir sem þessar. Þeir
eiga það þó allir sameiginlegt að hafa
ferðast tiltölulega stuttar vegalengd-
ir. Árið 2010 komst tvítugur Rúmeni
lífs af frá flugferð frá Vín í Austurríki til
Lundúna. Vélin fór þó aldrei upp fyr-
ir 25 þúsund feta hæð vegna slæms
veðurs og varð það manninum til lífs.
Árið 2000 komst Fidel Maruhi Tahiti
lífs af þegar hann laumaði sér í hjóla-
búnað vélar sem var á leið frá Tahíttí
til Los Angeles. Og tveimur árum síð-
ar komst Victor Alvarez Molina lífs af
þegar hann laumaði sér um borð í vél
sem var á leið frá Kúbu til Kanada. All-
ir þjáðust af ofkælingu þegar komið
var til lendingar.
Öryggisgæsla aukin
Flestir þessara einstaklinga eru frá
vanþróuðum ríkjum og fullir ör-
væntingar í leit að nýju og betra lífi.
„Við þekkjum ekki kringumstæður
þessa fólks nákvæmlega. En í starfi
okkar með flóttamönnum vitum við
að sumir hreinlega neyðast til að grípa
til mjög dramatískra aðgerða,“ segir
Deborah Harris hjá Refugee Council,
sjálfstæðum samtökum sem aðstoða
hælisleitendur í Bretlandi. „Stundum
þarf þetta fólk að yfirgefa heimili sín
með mjög skömmum fyrirvara og á í
mörgum tilfellum enga peninga til að
ferðast.“
Norman Shanks, fyrrverandi ör-
yggisfulltrúi BAA sem á Heathrow-
flugvöll, segir að eina leiðin til að
stemma stigu við þessu sé að auka
öryggisgæslu. „Öryggisgæsla og eft-
irlit er oft á tíðum lítið í þróunarríkj-
unum – ekki það sama og við sjáum
á Vesturlöndum. Eina leðin til að
koma í veg fyrir laumufarþega er að
öryggisgæsla verði aukin.“
Hvað varðar manninn sem
féll af himnum ofan á Portman
Avenue er niðurstöðu krufningar
enn beðið. Bresku lögreglunni,
Scotland Yard, hefur enn ekki tek-
ist að bera kennsl á hann. í fórum
hans fannst mynt frá Angóla sem
rennir stoðum undir það að hann
hafi verið þaðan. n
Laumufarþegar sem
deyja í fLugvéLum
n Fjölmörg dæmi um að laumufarþegar feli sig í hjólabúnaði flugvéla
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Fjölmörg dæmi
96 tilvik frá árinu 1947 til 11. september 2012 Komust lífs af:
24%
Létust:
76%
HeiMild: FAA
Mikil áhætta
Þetta er hættan sem stafar að laumufarþegum í hjólabúnaði flugvéla
n Kremjast þegar lendingarbúnaðurinn fer niður
n Ofkæling
n Kul
n Heyrnartap
n Eyrnasuð
n Súrefnissþurrð
n Blóðsýring (veldur meðvitundarleysi og jafnvel dauða)
„Þeir frjósa í hel
eða deyja af
völdum súrefnisskorts
Komið til lendingar Frá árinu 1947
hafa 96 einstaklingar laumað sér í
hjólabúnað flugvéla svo vitað sé um
heim allan. Yfirgnæfandi meirihluti
þeirra hefur látið lífið, eða 76 prósent.
Róleg gata Maðurinn sem féll úr hjóla-
búnaði vélar í byrjun mánaðarins fannst á
þessari götu.
Myrti tvo
hermenn
Byssumaður sem var klæddur
í búning afgönsku lögreglunn-
ar skaut tvo breska hermenn til
bana á laugardag. Hermennirnir
voru verðir á eftirlitssvæði í Nahri
Sarraj í Helmand-héraði í suður-
hluta Afganistans þar sem rætur
talíbana eru sterkar. Á föstudag
voru tveir bandarískir hermenn
skotnir til bana í herstöð í sama
héraði og níu aðrir hermenn
særðust í árásinni. Árásarmaður-
inn var klæddur í búning banda-
ríska hersins.
Það sem af er þessu ári hafa
47 erlendir hermenn verið myrt-
ir í Afganistan undir svipuðum
kringumstæðum, þar af 12 í ágúst
síðastliðnum.
Ólánsamur
þjófur
Lögreglan í Miami í Bandaríkj-
unum handtók á dögunum karl-
mann sem reyndi að nota stolið
greiðslukort til að greiða fyrir bjór
á bar í borginni. Óhætt er að segja
að tilraun mannsins hafi mis-
heppnast illilega. Hann braust
inn í bifreið sem stóð skammt frá
barnum og stal þar greiðslukorti.
Maðurinn, David Weber 53 ára,
gekk svo rakleiðis inn á barinn þar
sem hann pantaði bjór. Þegar kom
að því að greiða tók afgreiðslu-
maðurinn eftir því að á kortinu
sem Weber rétti honum var mynd
af honum sjálfum og nafn. Kortinu
hafði Weber því stolið úr bif-
reið barþjónsins sem tók á móti
kortinu. Barþjónninn hringdi strax
á lögreglu sem kom á vettvang og
handtók Weber.
Í hart vegna
nektarmynda
Lögmenn bresku konungsfjöl-
skyldunnar munu koma fyrir
dómara í París í dag, mánudag,
til að krefjast bóta vegna nekt-
armynda sem franska tímaritið
Closer birti á dögunum. Á mynd-
unum má sjá Katrínu hertogaynju
af Cambridge berbrjósta í sólbaði.
Þá munu lögmenn fjölskyldunnar
einnig ætla að krefjast lögbanns á
frekari myndbirtingar. Útgáfufélag
Closer, Mondadori, gefur einnig
út ítalska slúðurblaðið Chi en
forsvarsmenn þess gáfu það út um
helgina að í blaði dagsins í dag,
mánudags, yrði að finna 50 nekt-
armyndir af Katrínu.