Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Page 13
Erlent 13
V
ið ætlum að gera þessum
mönnum eins erfitt fyrir og
við mögulega getum,“ segir
Julius Kipng‘etich, yfirmað-
ur Kenya Wildlife Service
(KWS), í Afríkuríkinu Kenía. Um er
að ræða hóp eftirlitsmanna sem tel-
ur hátt í 3.500 manns og sér um eft-
irlit með veiðiþjófum í þjóðgörðum
Kenía.
DV fjallaði á dögunum um veiði-
þjófnað í öðru Afríkuríki, Austur-
Kongó. Þar kom fram að verslun með
fílabein skilaði veiðiþjófum gríðar-
legum tekjum í vasann á hverju ári.
Veiðiþjófnaður hefur aukist mjög í
Afríku á undanförnum árum en sam-
hliða því hefur gæsla og eftirlit einnig
verið hert til muna. Þýska blaðið Der
Spiegel fjallaði á dögunum ítarlega
um stöðu mála í Kenía en í umfjöllun
blaðsins kemur meðal annars fram
að uppreisnarhópar í ríkjum á borð
við Sómalíu séu að stóru leyti fjár-
magnaðir með sölu á fílabeini.
23 tonn gerð upptæk
Á dögunum fengu undirmenn
Kipng‘etich í KWS, átta manna hóp-
ur, fregnir af því að veiðiþjófar væru
væntanlegir á svæðið sem þeir gættu
skammt frá landamærum Sómalíu.
Þeir földu sig í runnum og biðu átekta.
Þegar veiðiþjófarnir komu loks á
svæðið voru þeir ekki teknir neinum
vettlingatökum. Það var umsvifalaust
skotið á þá og veiðiþjófarnir svöruðu í
sömu mynt. Einn sómalskur veiðiþjóf-
ur lá í valnum en hinum fimm tókst
að flýja við illan leik. Í raun var þetta
ósköp venjulegur dagur fyrir eftir-
litsmennina. Þennan dag tókst þeim
hins vegar að vera á undan veiðiþjóf-
unum en oftar en ekki hafa þeir komið
að sundurtættum fílahjörðum.
Talið er að í Afríku sé að finna allt
að 500.000 fíla, en veiðiþjófar drepa
tugi þúsunda á hverju ári – tala sem
fer hækkandi með hverju árinu. Tolla-
yfirvöld um allan heim, aðallega í
Afríku, gerðu upptæk rúm 23 tonn af
fílabeini á síðasta ári sem er mesta
magn sem hefur verið lagt hald á í yfir
20 ár.
„Blóðfílabein“ og
„blóðdemantar“
Á undanförnum misserum hafa upp-
reisnarhópar og skæruliðasamtök í
Afríku beint spjótum sínum í auknum
mæli að fílum. Þeir beita hríðskotariffl-
um til að drepa fílana, taka af þeim
skögulennurnar og selja svo á svörtum
markaði. Með þessu tekst þeim að fjár-
magna vopnakaup og hernað. Með-
al þessara samtaka eru íslamistasam-
tökin al-Shabab í Sómalíu, Janjaweed
í Súdan og hinn alræmdi Frelsisher
drottins (e. Lords Resistance Army) í
Úganda undir stjórn Josephs Kony.
„Á undanförnum árum hafa
skipulögð glæpasamtök og jafn-
vel hryðjuverkasamtök reynt að ná
ítökum á þessum markaði,“ sagði
Tom Caramone, bandarískur sér-
fræðingur, þegar hann kom fyr-
ir öldungadeild Bandaríkjaþings í
maí síðastliðnum til að ræða um-
fang vandans víða í Afríku. Sér-
fræðingar í Afríku eru þegar farn-
ir að tala um „blóðfílabein“ sem
er tilvísun í „blóðdemantana“ sem
stríðsherrar Síerra Leóne notuðu
til að fjármagna vopnakaup sín. 90
prósent fílabeins sem selt eru fara
til Kína eða Taílands þar sem eftir-
spurn er mikil. Beinin eru oftar en
ekki mulin niður og notuð í lækn-
ingaskyni.
Skotið til að drepa
Julius Kipng‘etich ætlar ekki að láta
veiðiþjófa og uppreisnarhópa slá sig
út af laginu. Sjö manna hans hafa verið
drepnir í skotbardögum á undanförnu
ári og að hans mati er aðeins ein leið til
að svara því: „Skjóta til að drepa. Það
verður engum varnaðarskotum skot-
ið heldur miðað á hjartað eða höf-
uðið. Þessir menn eru harðir naglar og
vilja drepa eins marga af okkur og þeir
geta,“ segir hann.
Það er ljóst að til að stemma stigu
við veiðiþjófnaði í Afríku verður að
berjast á móti af hörku. „Við landa-
mærin að Sómalíu störfum við eins og
her,“ segir hann en á umræddu svæði
senda stríðsherrar al-Shabab undir-
menn sína yfir landamærin til Kenía til
að drepa fíla.
Stórtækur Frelsisher
Það er ekki bara í Kenía og Austur-
Kongó sem stórtækir veiðiþjófar láta
á sér kræla. Á stóru svæði nálægt Gúlú
í norðurhluta Úganda eru fílar nán-
ast útdauðir. Þeir urðu fyrir barðinu
á veiðiþjófum á vegum Frelsishers
drottins. „Við skutum á allt sem á vegi
okkar varð,“ segir Joseph Okot, 25 ára
fyrrverandi meðlimur í hernun. Hann
segir að hermennirnir, fótgöngu-
liðarnir, hafi fengið kjötið af fílunum á
meðan yfirmennirnir fluttu fílabeinið
á brott.
Frelsisherinn er enn stórtækur á
landsvæði sem liggur á landamær-
um Austur-Kongó, Suður-Súdans og
Mið-Afríkulýðveldisins – landsvæði
sem ekkert þessara ríkja stjórnar. „Þeir
ráða þessu svæði algjörlega og sala á
fílabeini er aðaltekjulind þeirra,“ segir
Michael Wamithi, ráðgjafi ríkisstjórn-
ar Kenía í náttúruvernd, í samtali við
Der Spiegel. Hann segir að væntan-
lega sé aðeins ein leið fær til að bjarga
fílum sem eru í útrýmingarhættu á
stórum svæðum Afríku, að gera rót-
tækar breytingar á samþykkt um bann
við sölu fílabeina frá árinu 1989. „Svo
lengi sem það er markaður fyrir þetta
þá munu drápin halda áfram.“ n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Fjármagna
hernað með
drápum
á Fílum
n Eftirlitsmenn standa í ströngu í Afríku n Skjóta veiðiþjófa án þess að hika
„Það verður eng-
um varnaðarskot-
um skotið heldur miðað
á hjartað eða höfuðið
Vígbúast Hópar á borð
við íslamistasamtökin
al-Shabab í Sómalíu eru
í auknum mæli farnir að
beina augum sínum að
fílabeini í nágrannaríkinu
Kenía. Mynd ReuteRS
Beinin brennd Fílstennur sem tollayfirvöld gera upptækar eru oftar en ekki brennd eins
og sést á meðfylgjandi mynd frá Kenía.
Mánudagur 17. september 2012