Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Side 18
Einbúum fjölgar
V
erst af öllu er í
heimi einn að
búa í Reykjavík.
Kúldrast uppi á
kvistherbergi í
kulda og hugsa um pólitík!“
Þetta sungu félagarnir í Ríó
tríó á áttunda áratugnum.
Margt hefur breyst í tíðar
andanum síðan þá. Í dag
búa æ fleiri einir og margir
hverjir kjósa sér það hlut
skipti sjálfir.
Tölfræðin segir sína
sögu. Samkvæmt Euro
monitor International hef
ur fjöldi þeirra sem búa
einir aukist með miklum
hraða. Frá 153 milljón
um árið 1996 til 277 millj
óna árið 2011. Aukningin er
um 80 prósent á 15 árum. Í Bretlandi
er einn á heimili í 34 prósentum til
vika. Í Bandaríkjunum 27 prósent. Í
Svíþjóð búa flestir einir, eða á alls 47
prósentum heimila. Í Noregi eru ein
búar á 40% heimila.
Í tölum um kjarnafjölskyldur, sem
Hagstofan heldur utan um, má sjá að
97.082 Íslendingar eru skráðir ein
ir. Sú tala gefur víst ekki alnákvæma
mynd af því hversu margir búa einir
en gefur ágæta vísbendingu. Ástæð
an fyrir því að talan er ekki nákvæm
er sú að við 18 ára aldur fær hver
fullráða einstaklingur svokallað fjöl
skyldunúmer. Þrátt fyrir að hann búi
ef til vill áfram hjá foreldrum sín
um reiknast hann sem einstæðing
ur þangað til hann flyst með öðrum á
heimili eða stofnar til sambúðar.
Reikna má með mun nákvæm
ari tölum um búsetuskilyrði og lífs
hætti Íslendinga þegar vinnu á fyrsta
manntali Íslendinga verður lokið á
næsta ári.
Þrátt fyrir það hversu algengt það
er að fólk búi eitt er lítið rætt um
þessa breytingu sem er að verða á
samfélögum heimsins. DV ræddi við
nokkra sem búa einir og spurði þá
um ástæður þess og um kosti þess og
galla. n
kristjana@dv.is
Flestir einir
í Svíþjóð
Samkvæmt Euromonitor
International hefur
fjöldi þeirra sem búa
einir aukist með miklum
hraða. Frá 153 milljónum
árið 1996 til 277 milljóna
árið 2011. Aukningin er um 80
prósent á 15 árum. Í Bretlandi er einn á
heimili í 34 prósentum tilvika. Í Banda-
ríkjunum 27 prósentum. Í Svíþjóð búa
flestir einir eða á 47 prósentum heimila. Í
Noregu er hlutfallið 40 prósent.
18 Lífsstíll 17. september 2012 Mánudagur
n Rúmlega 90.000 Íslendinga skráðir einir n Einbúum hefur fjölgað um 80 prósent
Breytist smám
saman í fúlan
Adolf Hitler
Silja Bára Ómarsdóttir er aðjunkt við
stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og
er þekkt meðal vina og kunningja fyrir að
vera einstaklega góð heim að sækja og
hún þykir matgæðingur mikill. Hún segist
ekki geta svarað því hvers vegna hún búi í
ein. „Mér hreinlega hefur ekki dottið í hug
að búa með neinum síðustu árin,“ segir
Silja Bára.
„Helstu kostirnir við það að búa ein eru
að maður ræður öllu, það er enginn sem
pirrar sig á því að maður gleymi að ganga
frá eða nenni ekki að taka úr uppþvotta-
vélinni. Það eru engir „mikilvægir“ hlutir
sem fylgja öðrum inn á heimili manns og
maður vill ekki hafa þar. Það er hægt að
vera með gesti í mat og gistingu án þess
að abbast upp á neinn annan, og ekkert
mál þegar fólk ílengist eftir mat af því
það er ekki að halda vöku fyrir neinum.
Ókostirnir eru sennilega fyrst og fremst
fjárhagslegir, þótt það sé líka svolítið
þreytandi að þurfa að vera manneskjan
sem fer alltaf út með ruslið. Það fer mun
hærra hlutfall af tekjum einstaklings í
að standa straum af kostnaði við rekstur
heimilis, það greiðir aðeins einn af
íbúðaláninu og það er dýrara að kaupa
inn í minni einingum. Askja af Smjörva er
oft komin fram yfir síðasta söludag áður
en ég er búin með hana og ef ég kaupi
lítra af mjólk, þá helli ég eiginlega alltaf
helmingnum af honum. Samfélagið er
hannað fyrir stærri heimili en fyrir einbúa
og við berum töluverðan kostnað af því,
líka samfélagslegan, sem birtist í sóun.“
„Samfélagið
er hannað
fyrir stærri heimili
Dýrt að búa einn
Silja Bára segir
samfélagið hannað
fyrir stærri heimili.
Raunveruleikinn gæti
verið annar miðað við
tölfræði um lifnað-
arhætti í heiminum.
Fer alltaf út með ruslið
Gott að vera ein
heima með syninum
Silja Bára Ómarsdóttir:
Stefán Máni:
Kristrún Ösp Barkardóttir:
Stefán Máni rithöfundur hefur búið
einn um nokkurra ára skeið og segir
það leiðinlegt til lengdar. „Kostir
þess að búa einn eru til dæmis að
ráða öllu, þurfa ekki að tala tillit
til neins og geta haft hlutina sem
og lífið sjálft eftir eigin höfði. Einn
tannbursti í tannburstaglasinu,
heilt rúm til að velta sér um í og
hátta- og vaknitími nákvæmlega
eftir óskum. Ekki slæmt! Gallarnir
eru þeir að þetta er leiðinlegt
til lengdar, að ráða öllu þýðir að
maður breytist smám saman í
fúlan Hitler sem veit ekki einu
sinni lengur af hverju hann vill
hafa hlutina einmitt svona en ekki
hinsegin. Svo er líka þessi fjarlægi
möguleiki að einhver annar geti
haft betri hugmyndir, betri smekk
og svo framvegis. Það er þægilegt
að ráða hvað er í matinn en það
þýðir líka að hugmyndirnar
eru í það minsta 50 prósent
færri og líkurnar á að prófa
eitthvað nýtt hverfandi.
Sjálfstæði er hollt og gott
en betur sjá augu en
auga. Sá sem býr einn
þráir oft félagsskap
en hinn þráir ef til
vill meira næði,
meira frelsi. Það
er vandlifað!“
Kristrún Ösp Barkardóttir fyrirsæta býr ein
með ungum syni sínum og Sveins Andra
Sveinssonar hæstaréttarlögmanns og segir
það ofboðslega notalegt.
„Ég hef ekki enn fundið þann rétta sem get-
ur hugsað sér að búa með mér og ég honum.
Mér finnst ofboðslega notalegt að vera ein
með syninum.
Maðurinn þarf að ganga vel um og hafa
frumkvæði í að gera hluti, ekki bíða eftir að
ég geri þá. Hins vegar held ég að þegar fólk
verður ástfangið séu þessir hlutir eitthvað
sem fólk lítur fram hjá.“
Kristrúnu Ösp finnst gott að geta ráðið sér
sjálf á heimilinu.
„Ég get haft mína hentisemi, ég veit hvar
hlutirnir eru því ég er sú eina sem mögulega
lét þá frá mér síðast. Ég get haft mína tónlist
á heima hjá mér, kaupi aðeins inn það sem
mér finnst gott. Þarf ekki að bíða eftir því
að smbýlismaður minn sé búinn í sturtu á
morgnana og þess háttar.“
Gallana segir hún ekki marga, þótt henni
finnist ekki sérlega gaman að elda mat fyrir
einn.
„Það er aðallega eldamennskan, það er
ekki gaman að elda fyrir sig eina.
Vinirnir eru duglegir að koma í heimsókn en
ég er mikil félagsmanneskja og væri því ekki
verra að eiga notaleg kvöld með makanum.
Ég held ég sjái ekki gallana almennilega fyrr
en ég er farin að búa með manni og við erum
hamingjusöm saman.“
„Leiðinlegt
til lengdar
„Það er ekki
gaman að
elda fyrir sig eina
Ræður sér sjálf „Ég kaupi aðeins
inn það sem mér finnst gott,“ segir
Kristrún Ösp sem kann ágætlega við
frelsið sem fylgir því að búa ein.
Gott að þurfa ekki að
taka tillit „Einn tann-
bursti í tannburstaglas-
inu, heilt rúm til að velta
sér um í... “telur Stefán
Máni upp spurður um
kosti þess að búa einn.