Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Side 21
Sport 21Mánudagur 17. september 2012
Moyes óttast að
missa Fellaini
Svo virðist sem David Moyes,
stjóri Everton, sé þegar búinn að
sætta sig við að missa hinn bráð-
skemmtilega Marouane Fellaini
frá liðinu strax í byrjun næsta árs.
Viðurkennir Moyes að hann hafi
engin ráð til að halda kappanum
lengur en lið á borð við Manchest-
er United hafa sýnt Fellaini áhuga
upp á síðkastið. Sjálfur hefur
Belginn lýst yfir áhuga á að prófa
sig hjá stærri klúbbi.
Frábært hjá
stelpunum
Íslenska kvennalandsliðið lagði
landslið Norður-Íra 2–0 á Laugar-
dalsvellinum um helgina en sig-
urinn tryggir stelpunum sæti í
umspili í úrslitakeppni EM. Mörk
Íslands skoruðu þær Hólmfríður
Magnúsdóttir og Fanndís Friðriks-
dóttir en íslensku stelpurnar áttu
leikinn með húð og hári og hefði
sigurinn auðveldlega getað orðið
mun stærri. Lokaleikur stelpn-
anna í undankeppninni er á mið-
vikudaginn við norska landsliðið
í Osló og sigur fleytir stelpunum
okkar beint í úrslitakeppnina án
umspils. Áfram Ísland!
Annað tímabil í
uppnámi í NHL
Timabilið í íshokkídeildinni NHL
vestanhafs er enn einu sinni í
uppnámi. Leikmenn og eigendur
liða eru aftur komnir í hár saman
vegna launamála og hafa eigendur
brugðið á það ráð að slá af fyrstu
leiki tímabilsins að minnsta kosti.
Það gæti aldeilis teygst í þessari
rimmu því síðast þegar ekki náð-
ist samkomulag milli þessara aðila
2004/2005 var alls ekkert leikið í
NHL það tímabilið.
Veislan að hefjast
n Real Madrid tekur á móti Man.City í Meistaradeild Evrópu
A
lltaf er gaman þegar leik-
tímabilið í Evrópu hefst á
nýjan leik eftir sumarfrí en
það er ekkert nema hrein
veisla þegar keppni hefst í
Meistaradeild Evrópu. Fyrstu leikirn-
ir fara fram á morgun, þriðjudag, og á
miðvikudag.
Allir leikir þessarar viku eru fróð-
legir þó skemmtanagildi þeirra sumra
sé kannski takmarkað fyrir íslenska
áhugamanninn. Fáir eru þannig lík-
legir til að taka sér frí úr vinnu til að sjá
Braga frá Portúgal mæta Cluj Napoca
frá Rúmeníu svo dæmi sé tekið.
Real – City leikur númer
eitt, tvö og þrjú
Viðureign spænsku og ensku meist-
aranna, Real Madrid og Manchester
City, á heimavelli þeirra fyrrnefndu
er að öðrum ólöstuðum stærsta
viðureign þessarar umferðar Meist-
arardeildarinnar. Ekki síst fyrir þær
sakir að spænska liðið hefur byrj-
að sína leiktíð langt undir vænting-
um og reytir Jose Mourinho nú hár
sitt og skegg af bræði. Hann skaut
föstum skotum á leikmenn sína á
sunnudag og sagði engan neista í leik
liðsins. Manchester City hefur held-
ur ekki byrjað tímabilið með sérstök-
um bravúr; stálheppið að vinna sig-
ur á nýliðum Southampton í fyrsta
leik sínum og ósannfærandi í öðrum
leikjum hingað til. City er þó í fjórða
sætinu í enska meðan Real Madrid
verður að gera sér tíunda sætið að
góðu.
Gerir PSG alvarlega atlögu?
Spútniklið Evrópu þessa leiktíðina
ætti að vera franska liðið PSG sem
hefur hrúgað inn stjörnum í lið sitt
einmitt með það að sérstöku mark-
miði eigenda þess að gera liðið að
stórveldi í Evrópu. Nú er möguleik-
inn en PSG mætir Dinamo Kiev í
fyrsta leik sínum. Verður forvitnilegt
að vita hvort tekist hefur að hamra
þar saman félagslið sem att getur
kappi við þá allra bestu en byrjun
PSG í deildinni heima er þó ekkert til
að hrópa húrra fyrir hingað til.
Giroud hittir gamla félaga
Fáir ættu að vera bjartsýnni en
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fyr-
ir útileik liðsins gegn Montpellier á
morgun. Arsenal burstaði lið South-
ampton í deildinni um helgina og
virðast leikmenn loks farnir að finna
fjölina sína þar á bænum. Ein stjarna
Arsenal, Olivier Giraud ,var keypt frá
frönsku meisturunum og gjörþekkir
því andstæðinginn. Þá hafa þeir þeir
frönsku vægast sagt byrjað tímabil-
ið illa og aðeins unnið einn leik af
fimm.
Ríkjandi meistarar Chelsea mæta
Gömlu konunni frá Torino, Juvent-
us. Tölfræði Juventus gegn enskum
liðum á Englandi í Meistaradeildar-
keppninni er bágborin í meira lagi.
Liðið hefur aðeins tvívegis í átján
viðureignum hirt öll stigin í boði.
Manchester United ætti varla að
verða skotaskuld úr því að vinna sig-
ur á hinu tyrkneska Galatasaray. Ekki
bara af því að United er miklu betra
lið heldur líka vegna þess að Tyrkirn-
ir hafa aldrei nokkurn tímann unnið
sigur á Englandi.
Fyrsti Evrópuleikur Vilanova
Hinn nýi þjálfari Barcelona, Tito Vila-
nova, hefur gert fína hluti með hið
stórkostlega Barcelona í byrjun leik-
tíðarinnar en nú reynir fyrst á hann í
Evrópuleik. Börsungar fá í heimsókn
Spartak Moskvu og enginn býst við
miklu af Rússunum. n
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
Leikirnir í vikunni
A-riðill
Dinamo Zagreb – Porto
PSG – Dinamo Kiev
B-riðill
Montpellier – Arsenal
Olympiakos – Schalke
C-riðill
Malaga –Zenit Petersburg
AC Milan – Anderlecht
D-riðill
Dortmund – Ajax
Real Madrid – Manchester City
E-riðill
Shakhtar Donetsk – Nordsjælland
Chelsea – Juventus
F-riðill
Lille – BATE Borisov
Bayern Munchen – Valencia
G-riðill
Barcelona –Spartak Moskva
Celtic – Benfica
I-riðill
Man Utd – Galarasaray
Braga – Cluj
Eiga titil
að verja
Leikmenn
Chelsea eru
núverandi
Evrópumeistar
eftir sigur á
Bayern München
í vor. Þeir mæta
Juventus í vik-
unni. MynD REutERS
F
imleikafélag Hafnarfjarðar er
Íslandsmeistari í knattspyrnu
karla í sjötta skiptið eftir að
liðið gerði góða ferð inn í
Garðabæ og náði þar stigi í
viðureign sinni við Stjörnuna í leik
sem endaði 2–2. Þannig hefur FH
42 stig, eða ellefu stigum meira en
næstu lið, og það þó þrjár umferðir
séu enn eftir í Pepsi-deild karla.
Fyrir leikinn á sunnudagskvöld var
Fimleikafélagið reyndar komið með
níu fingur á titilinn þetta árið. Að-
eins KR og Stjarnan áttu möguleika á
að ná Hafnfirðingunum að stigum en
aðeins að því gefnu að FH tapaði öll-
um síðustu leikjum sínum.
Leikur liðanna var hraður og
skemmtilegur og ljóst að báðir aðil-
ar ætluðu að selja sig dýrt. Aðeins tók
tíu mínútur fyrir Stjörnuna að kom-
ast yfir en fimm mínútum síðar hafði
FH jafnað. FH-ingar bættu við marki
í síðari hálfleik og leit út fyrir sigur
FH vel fram yfir venjulegan leiktíma
þegar Mark Doninger náði að skora
og jafna fyrir heimaliðið.
Ekki minni spenna er á botnin-
um eftir leiki dagsins. Lið Grindavík-
ur undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar
er fallið eins og reyndar hefur leg-
ið í loftinu um tíma. Grindvíkingar
lágu fyrir heimamönnum í Eyjum
2–1 sem með sigrinum komust upp
í annað sætið við hlið KR sem stein-
lá 0–4 fyrir fersku liði Breiðabliks.
Blikarnir eiga fyrir vikið enn ágæta
möguleika á að ná sér í Evrópusæti.
Enn er ekki útséð um hvort Selfoss
eða Fram fylgir Grindvíkingum nið-
ur um deild en ekki var baráttugleði
fyrir að fara hjá Fram sem tekið var í
bakaríið 5–0 í Keflavík og lék um tíma
tveimur færri vegna spjalda. Selfys-
singar voru heldur ekki á tánum 100
prósent í útileik gegn Fylki sem síð-
arnefnda liðið vann 2–0 en gestirnir
misstu tvo leikmenn af velli með rauð
spjöld eins og Fram. Þegar þrjár um-
ferðir eru eftir á Fram tvö stig á Sel-
foss en fræðilega séð geta Valur með
25 stig og Fylkir með 26 stig fallið líka
en til þess þarf ýmislegt óvenjulegt að
gerast síðustu umferðirnar. n
albert@dv.is
FH gulltryggði titilinn
n Markaregn og óvænt úrslit í Pepsi-deild karla
Meistarar FH-ingar tryggðu sér
Íslandsmeistaratitilinn með því
að gera jafntefli gegn Stjörnunni,
2–2, í Garðabæ.
MynD EyþóR ÁRnASon