Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2012, Side 23
Heill í Höfn
Menning 23Mánudagur 17. september 2012
Aukatónleikar
Ásgeirs Trausta
Uppselt er á útgáfutónleika Ás-
geirs Trausta á Faktorý þriðju-
daginn 18. september og verða því
aukatónleikar haldnir á sama stað
þann 17. september.
Þessi ungi tónlistarmaður kom
fyrst fram á sjónarsviðið í sjón-
varpsþættinum Hljómskálan-
um í vor og hefur síðan þá gefið
út smáskífurnar Sumargestur og
Leyndarmál en bæði lögin hafa
náð miklum vinsældum. Það síð-
arnefnda kom honum á kortið
sem einum efnilegasta tónlist-
armanni landsins. Platan Dýrð
í dauðaþögn kom svo út fyrir
skömmu og er tónlist hans lýst
sem þjóðlagapoppi og raftónlist
þar sem fallegar laglínur, gítar-
plokk og há og falleg rödd Ásgeirs
gegna lykilhlutverki.
Ásamt Ásgeiri Trausta kemur
hljómsveitin Eldar fram á tónleik-
unum.
Bók um engla
fékk andlegan
yfirlestur
Í síðustu viku gaf bókaútgáfan
Draumsýn út Leyndarmál
englanna, hina umtöluðu bók
Mörtu Lovísu Noregsprinsessu
og Elisabeth Nordeng og eru þær
stöllur staddar hér á landi vegna
útgáfunnar.
Það var einn eigenda Draum-
sýnar, Örn Þ. Þorvarðarson, sem
er þýðandi. Hann ákvað að bók-
in þyrfti, utan hins venjubundna
prófarkalesturs, andlegan yfir-
lestur. Hann fékk því Sigrúnu
Gunnarsdóttur, heilara og miðil,
til að fara yfir bókina og færa orð-
færið á andlegri nótur sem hæfir
englum.
Ölduslóð
Svavars
Þriðja sólóplata söngvaskálds-
ins Svavars Knúts kemur út í vik-
unni og ber hún heitið Ölduslóð.
Af því tilefni blæs Svavar Knútur
til útgáfutónleika í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 20. september. Á
tónleikunum koma fram, ásamt
Svavari, nokkrir af þeim lista-
mönnum sem tóku þátt í gerð
plötunnar, þar á meðal hin heims-
þekkta söngkona Markéta Irglová
frá Tékklandi.
Tónleikarnir hefjast stundvís-
lega klukkan 20.30 en húsið er
opnað klukkan 20.00.
D
júpið er byggt á þeim voða-
atburði sem varð 11. mars
1983 þegar vélbáturinn
Hellisey VE 503 sökk og fjór-
ir menn fórust. Einn komst
lífs af, Guðlaugur Friðþórsson, og var
þrekraun hans mikil.
Hann lagðist til sunds um mið-
nætti í fimm gráðu köldum sjó sem
tók hátt í sex tíma og gekk svo um
þriggja kílómetra leið að Suðurgerði
í Vestmannaeyjum rétt fyrir sjö um
morguninn.
Kvikmyndin Djúpið gerir þessum
atburðum skil og er einnig lauslega
byggð á samnefndu leikverki Jóns
Atla Jónassonar.
Leikstjórinn reynir ekki að draga
úr gráma og doða hversdagsins eða
nota húmor til að brjóta upp frá-
sögnina. Hún verður þess vegna auð-
mjúk og raunsæ.
Sigur fyrir áhöfnina
Við dveljum með Guðlaugi í öldun-
um. Kvikmyndatakan og tón- og
hljóðvinnslan gæðir þær stundir
ógnarraunsæi. Venjulega eru sen-
ur sem þessar teknar í tanki en hér
er myndað úti á rúmsjó. Afrakstur-
inn er undraverður. Lýsingin er full-
komin. Það er kannski varla hægt að
ímynda sér að einhver lýsing þurfi
að vera í slíku myrkri. En því meiri er
listin. Hljóðheimurinn er magnað-
ur. Brakandi öldur og strengjatónlist
í fullkomnu samræmi við náttúruna.
Hér er engu ofaukið. Baltasar
Kormákur notar lítil en fögur mynd-
ræn tákn í þögninni. Blá peysa sem
gleymist hjá þreyttri móður og
barnateikning sem er lögð blaut á
ofn boðar vá.
Leikur Ólafs Darra er fagur. Hér er
verið að segja sögu þeirra sem farast
um leið og sögð er saga þess sem lif-
ir af. Það gerir hann á hárfínan máta.
Fallegastur er kaflinn þar sem
hann er einn og berst um í hafinu og
talar við fuglinn sem fylgir honum.
Samtal fuglsins og sjómannsins er
áhrifamikið. Það byggir á lífsreynslu
Guðlaugs sjálfs. Sterkt er einnig at-
riðið þegar myndavélin fjarlægist
hátt upp í himin og smæð mannsins
í ólgandi hafinu verður ljós.
Veröld í myrkrinu
Þegar hann gengur á land og geng-
ur svo berfættur yfir úfið og hvasst
hraunið finna áhorfendur nærri því
til líkamlegs sársauka. Þessum áhrif-
um hefur Baltasar Kormákur náð
vegna þeirrar nándar sem verður
með aðalsöguhetjunni.
Undirsjávartökur eru fallegar
og ljóðrænar. Það er merkilegt að
þótt Ólafur Darri sé einn í mynd
í kolsvörtu hafinu dágóðan tíma
myndarinnar þá er hvergi dauð
stund. Leikstjóranum tekst að
búa til veröld í myrkrinu og það
er sjaldan sem ég hef orðið jafn
snortin.
Sund Guðlaugs er orðið ein af
Íslendingasögunum nýju og með
þessari kvikmynd fær þessi saga
að bindast sjálfsmynd okkar náið.
Útrásir, hrun og endurreisn. Hvað
sem líður – þá erum við alltaf tengd
hafinu og háð náttúrunni. Þessu vill
Baltasar Kormákur gera skil. Hann
kemst heill í höfn. Sigur fyrir alla
áhöfnina ef svo má að orði komast.
Djúpið er hjartnæmt, ljóðrænt og
tæknilega fullkomið verk. n
„Djúpið
er hjart-
næmt, ljóðrænt
og tæknilega
fullkomið verk
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bíómynd
Djúpið
Leikstjórn: Baltasar Kormákur.
Handrit: Baltasar Kormákur og Jón Atli
Jónasson.
Kvikmyndataka: Bergsteinn Björgúlfsson.
Leikarar: Ólafur Darri Ólafsson, Björn
Thors, Rúnar Guðbrandsson, Jóhann G.
Jóhannsson, Kristján Franklin Magnús, Stefán
Hallur Stefánsson.
Sigur fyrir áhöfnina
Baltasar kemst heill í höfn.
Sigur fyrir alla áhöfnina ef
svo má að orði komast.