Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2012, Síða 6
6 Fréttir 19. september 2012 Miðvikudagur
S
taðan er bara sú að ég verð
kominn á götuna á sunnu
daginn af því að ég fæ ekki
þessa fyrirgreiðslu eins og mér
var lofað. Ég verð bara henda
búslóðinni í ruslið og fá inni á gisti
skýli eða eitthvað, ég veit ekkert hvert
ég á að fara,“ segir Snorri Harðarson
sem segir Velferðarsvið Reykjavíkur
borgar hafa svikið sig um vilyrði fyr
ir styrk eða láni til fyrirframgreiðslu
húsaleigu. Vegna þessa komi hann til
með að missa leiguíbúð sem hann tók
á leigu í byrjun mánaðarins um næstu
mánaðarmót þar sem leigusalinn vill
fá þriggja mánaða leigu í tryggingu.
Hann segir leigusalann hafna því að
hann fái restina af mánuðinum endur
greidda. „Hún bar fyrir sig kostnaði
vegna þrifa en samt er íbúðin í miklu
betra standi en þegar ég tók við henni.“
Tölvan eyðilagðist
og missti íbúðina
„Ég var á skólastyrk hjá borginni og
ætlaði að halda því áfram, var á tölvu
braut í Tækniskólanum, en þá eyði
lagðist tölvan mín. Það var búið að
segja mér það að borgin biði stund
um upp á einhver lán til þess að bjarga
svona hlutum. Ég reyndi að hafa sam
band við félagsráðgjafann minn sem
svaraði mér ekki fyrr en tveimur vikum
seinna. Þá var ég búinn að missa svo
mikið úr skólavistinni – ég hafði ekk
ert að gera í náminu með enga tölvu,
þannig ég varð að hætta í náminu.
Á sama tíma þurfti ég að flytja því ég
missti húsnæðið sem ég var í. Ég var
búinn að fá vilyrði um að fá þessa fyr
irframgreiðslu borgaða og þess vegna
tók ég íbúðina á leigu, annars hefði ég
ekki gert það því ég hafði ekki efni á
því,“ segir Snorri.
„Bull og vitleysa“
Hann segist stöðugt hafa reynt að fá
úrlausn sinna mála hjá Velferðarsviði
borgarinnar eftir að hann flutti inn í
íbúðina. „Ég var með ráðgjafa sem var
búinn að gefa mér vilyrði fyrir því að fá
þennan styrk. Þeir eru með reglur um
það að maður geti fengið tryggingar
af íbúðum greidda. Ég var búinn að fá
loforð um að það væri ekkert mál og
allt svona. Svo flyt ég inn í íbúðina og
allt sem þeir hafa sagt mér virðist vera
bull og vitleysa. Ég fæ ekki húsaleigu
bætur og ekki þennan styrk. Það er
alveg sama hvað maður gerir og við
hvern maður reynir að tala þá er bara
logið og bullað í manni. Ég er búinn
að reyna allt í þessum málum. Ég er
búinn að fá föður minn, fyrrverandi
lögreglumann, með mér í þetta líka
en það bulla bara allir í honum og
ljúga að honum líka.“
Leigusalinn fengið nóg
Að sögn Snorra, verður hann vegna
þessa, á götunni á sunnudaginn.
Leigu salinn vilji fá fyrirframgreiðsl
una til þess að hafa einhverja trygg
ingu. Hann ber leigusalanum ekki
vel söguna þrátt fyrir að hafa leigt af
honum tvær íbúðir áður. „Hún sýndi
mér skilning framan af, og ætlaði að
leyfa mér að vera til mánaðamóta
en það breyttist,“ segir hann. „Hún
er bara búin að missa þolinmæð
ina og ég verð heimilislaus.“ Hann er
afar ósáttur við að fá ekki restina af
mánuðinum endurgreidda og seg
ist hafa tekið við íbúðinni í hrikalegu
ástandi. Fyrsti sólarhringurinn hafi
bara farið í að þrífa. „Það voru smokk
ar inn í innstungunum og íbúðin var
bara ógeðsleg.“
Samkvæmt upplýsingum frá Vel
ferðarsviði Reykjavíkurborgar þá
geta starfsmenn ekki tjáð sig um mál
einstaklinga. Hins vegar væri þessi
einstaklingur líklega að sækja um lán
eða styrk samkvæmt 23. grein. En í
henni segir: Styrkur eða lán til fyrir
framgreiðslu húsaleigu og til trygg
ingar húsaleigu. Heimilt er að veita
þeim sem fengið hafa fjárhagsað
stoð til framfærslu samkvæmt regl
um þessum í mánuðinum sem sótt er
um og í mánuðinum á undan lán eða
styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu.
Þinglýstur húsaleigusamningur skal
liggja fyrir eða önnur staðfesting um
að samningur eigi við rök að styðj
ast. Miða skal við að leigufjárhæð
sé í samræmi við leigu á almennum
markaði. Aðstoð á grundvelli þessar
ar greinar að er hámarki veitt einu
sinni á ári. Ákvæði 1. mgr. gilda einnig
um þá sem njóta sérstakra húsaleigu
bóta. n
„Logið og
buLLað í manni“
n Snorri segist vera að missa heimili sitt vegna vanefnda borgarinnar
„Svo flyt ég inn í
íbúðina og allt sem
þeir hafa sagt mér virðist
vera bull og vitleysa
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Ósáttur Snorri er ósáttur
við borgina og segist hafa
verið svikinn um fyrirgreiðslu
vegna íbúðar. Mynd EyþÓr Árnason
Vilja rannsaka lífeyrissjóði
n nefndin skili skýrslu 1. nóvember 2013
M
eirihluti stjórnskipunar og
eftirlitsnefndar hefur lagt
til að Alþingi skipi þriggja
manna rannsóknarnefnd
til að rannsaka starfsemi lífeyris
sjóðanna. Þingmennirnir leggja til
að starfsemi sjóðanna verði rann
sökuð allt frá gildistöku laga um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og
starfsemi lífeyrissjóða frá 1997 og til
ársloka 2011. Rannsóknarnefndin
á að varpa ljósi á starfsemi sjóð
anna varðandi fjárfestingarstefnu,
stjórnun, stefnumótun, ákvarðana
töku, áhættumat, endurskoðun, eft
irlit, markaðsáhrif, tryggingafræði
lega stöðu og ábyrgð launagreiðenda
á lífeyrisskuldbindingum, þar sem
það á við, og loks tengsl við atvinnu
rekendur, verkalýðshreyfinguna og
stjórnmálamenn.
Auk þess vilja þingmennirnir
meðal annars að rannsóknarnefndin
kanni samskipti stjórnar og stjórn
enda lífeyrissjóðanna við fjármála
stofnanir og fyrirtæki sem sjóðirnir
áttu viðskipti við, gjafir, boðsferðir og
fleira á árunum 1997–2011 og hver
voru áhrif setningar „neyðarlag
anna“ á fjárhagslega afkomu sjóð
anna.
Lagt er til að rannsóknarnefndin
skili af sér skýrslu til forseta Al
þingis eigi síðar en 1. nóvember
2013. Þingmennirnir sem mynda
meirihluta í nefndinni eru Valgerð
ur Bjarnadóttir, Álfheiður Inga
dóttir, Róbert Marshall, Lúðvík
Geirsson, Magnús M. Norðdahl,
Vigdís Hauksdóttir og Margrét
Tryggvadóttir. n
adalsteinn@dv.is
Mynduðu meirihluta Valgerður er for-
maður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Tveir dópaðir
í umferðinni
Um miðnætti á mánudagskvöld
var ökumaður bifreiðar stöðvaður
í Kópavogi vegna gruns um akstur
undir áhrifum fíkniefna. Maður
inn var færður á lögreglustöðina
í Kópavogi þar sem sýni voru tek
in. Ökumaðurinn var látinn laus
að því loknu. Um tveimur tímum
síðar, aðfaranótt þriðjudags, var
ökumaður stöðvaður í Hafnarfirði
vegna gruns um akstur undir áhrif
um áfengis og fíkniefna. Maðurinn
var ósáttur við afskiptasemi lög
reglu og veitti nokkurn mótþróa.
Hann var handtekinn og færður á
lögreglustöðina í Hafnarfirði þar
sem sýni voru tekin, en látinn laus
úr haldi að því loknu.
Loks var tilkynnt um slys á
Lamb hagavegi um áttaleytið á
þriðju dagsmorgun og að tveir væru
slasaðir. Í ljós kom að bifreið hafði
verið ekið á kyrrstæða bifreið og
voru hinir slösuðu fluttir á bráða
móttöku Landspítalans í Fossvogi
en bifreiðarnar voru fjarlægðar af
vettvangi með kranabíl.
Aka fram
hjá slysum
Mannekla hefur orðið til þess
að lögreglumenn á Selfossi hafa
ítrekað þurft að forgangsraða í
störfum sínum. Dæmi eru um að
lögreglumenn aki rakleitt fram hjá
umferðarslysum vegna annarra
alvarlegra slysa á sama tíma.
Fram kom í kvöldfréttum Stöðv
ar 2 að niðurskurður hjá lögreglu
embættinu á Selfossi væri orðinn
svo mikill að á köflum eru einung
is þrír lögreglumenn á vakt hverju
sinni og þar af einn fastur á vakt
stöð. Það þýðir að einungis tveir
lögreglumenn sjá raunverulega um
löggæslu á níu þúsund ferkílómetra
svæði. Á umráðasvæðinu búa tæp
lega þrettán þúsund manns fyrir
utan þann fjölda sem um svæðið
ferðast en það nær að stórum hluta
til vinsælla hálendissvæða.