Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Qupperneq 8
ríkið tvígreiddi lögmannsstofu B reska lögfræðistofan Ashurst fékk tvígreiddan reikning í gegnum fjársýslu- og starfs- mannakerfi ríkisins. Þetta staðfestir ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, Guðmundur Árnason. „Ég kannast við það. Það var tvígreiddur reikningur til Ashurst,“ segir hann. Lögfræðistofan vinnur fyrir Ís- land í tengslum við Icesave-málið og nemur kostnaður við vinnu stofunn- ar tugum milljóna. Nigel Ward, lög- fræðingur Ashurst, sem starfaði fyrir íslenska ríkið, segir í svari við fyrir- spurn DV að hann geti ekki tjáð sig um málefni tengd viðskiptavinum. „Ég er hræddur um að ég geti ekki tjáð mig um málefni viðskiptavina af þessum toga.“ Kostnaður upp á milljónir Reikningurinn sem íslensk stjórn- völd hafa greitt Ashurst vegna vinnu stofunnar nemur tugum milljóna króna. Samkvæmt svari fjármála- ráðuneytisins við fyrirspurn DV um kostnaðinn segir að hann hafi numið tæpri 31 milljón króna. „Tvígreiðslan átti sér stað 9. febrúar 2011, en upp komst um mistökin samdægurs, bæði af innra eftirliti ráðuneytis- ins og erlenda aðilanum. Var ráðu- neytinu endurgreiddur kostnaður- inn þremur virkum dögum síðar, þann 15. febrúar 2011,“ segir Angan- týr Einarsson, skrifstofustjóri í fjár- málaráðuneytinu, í svari við fyrir- spurn DV. Þetta er eina tilfellið þar sem reikningur hefur verið tvígreiddur í fjármálaráðuneytinu, samkvæmt Angantý. „Aðeins er vitað um þetta eina tilvik tvígreiðslu reiknings í fjár- málaráðuneytinu. Í þessu tilviki bár- ust frumrit reikninga tvisvar sinnum með sömu fylgiskjölum,“ segir enn fremur í svarinu. Ráðuneytið uppgötvaði mistökin Guðmundur segir að mistökin hafi uppgötvast hjá fjármálaráðuneytinu við afstemmingu. „Það uppgötvað- ist samdægurs hjá okkur og var aft- urkallað,“ segir hann. Reikningurinn var afturkallaður um leið og málið komst upp og segir hann að reikn- ingurinn hafi fengist endurgreiddur. „Þetta uppgötvaðist við yfirferð hjá okkur.“ Kastljós greindi frá því í síðustu viku að tvígreiðslur hafi átt sér stað í kerfinu en ekki kom fram hver hefði fengið tvígreiddan reikning. Frétta- tíminn greindi frá því á föstudag að grunur léki á að Lee Buchheit, samningamaður Íslands í Icesave- deilunni, hafi fengið tvígreitt en Fjár- sýsla ríkisins hafnaði því í yfirlýsingu sem send var fjölmiðlum. Í þeirri yfirlýsingu kom fram að erlendar greiðslur færu ekki í gegnum kerfið. Mannleg mistök en ekki kerfið Stefán Kjærnested varafjársýslu- stjóri segir að umrædd tvígreiðsla til Ashurst hafi ekki komið til vegna galla í kerfinu heldur hafi mannleg mistök átt sér stað við umsókn um gjaldeyrismillifærslu hjá Seðlabank- anum. Greiðslan hafi verið tvíbók- uð einfaldlega vegna þess að tvisvar sinnum hafi verið óskað eftir henni. „Það er sótt tvisvar sinnum um þetta og þar af leiðandi tvisvar sinnum millifært út af bankareikningi okkar. Síðan eftir að þetta átti sér stað tekur bókhaldið við og bókhaldið þarf að bóka að greiðslan hafi átt sér stað,“ segir hann um greiðsluna. Stefán segir að ekki sé heim- ilt að greiða í erlendri mynt úr kerf- inu. „Málið er þannig að reiknistofan hefur ekki heimilað okkur að senda gjaldeyrisbeiðni í gegnum kerfið. Heldur er þetta raunverulega gert þannig að fjármálaráðuneytið útbýr gjaldeyrisumsókn á gamaldags, hefð- bundinn hátt. Hún er send til okkar á pappír og sá pappír er svo lagður inn í Seðlabankann og óskað eftir gjald- eyrismillifærslu. Það er svo millifært út af okkar reikningi í Seðlabankan- um,“ segir Stefán um hvernig erlend- ar greiðslur á borð við greiðsluna til Ashurst eru framkvæmdar. „Mistök- in liggja í því að pappírinn fór tvisvar sinnum inn í Seðlabankann. Það eina sem kerfið gerir er að skrá það, að þegar menn eru búnir að vinna að þessu ferli algjörlega fyrir utan kerfið þarf að bóka færsluna.“ Ekki einsdæmi Eins og áður segir er málið eins- dæmi hjá fjármálaráðuneytinu. „Ég veit ekki um fleiri mál en ég hef ekki endilega bestu yfirsýnina á það,“ seg- ir Guðmundur ráðuneytisstjóri. Þrátt fyrir það hafa álíka mál komið upp annars staðar í ríkiskerfinu. Stefán hjá Fjársýslunni segir mál- ið ekki einsdæmi þegar litið er yfir allar stofnanir ríkisins en segir þó að aðeins einu sinni hafi komið upp að kerfið sjálft klikki með þeim hætti að um tvígreiðslu verði að ræða. Ekki fengust upplýsingar um hvaða greiðslu Stefán vísaði til né hversu há hún var. Stefán sagði þó að sú greiðsla hefði verið endurgreidd inn- an við viku eftir að hún var fram- kvæmd. n Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Breska lögfræðistofan Ashurst fékk tvígreiddan reikning „Þetta uppgötvað- ist við yfirferð hjá okkur. Tvígreiðslur Gunnar H. Hall fjársýslustjóri sagði í samtali við DV að ekki væri hægt að framkvæmda greiðslur til útlanda í gegnum kerfið. Slíkar greiðslur væru færðar inn í kerfið eftirá. 8 Fréttir 3. október 2012 Miðvikudagur Rann til í bleytu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á þriðjudag Landspítalann skaða- bótaskyldan vegna líkamstjóns rúmlega fertugrar kona sem rann til í bleytu á gangi spítalans. Kon- an hlaut af völdum fallsins sam- fallsbrot um miðbik brjósthryggj- ar auk þess sem tveir hryggjarliðir féllu saman. Skömmu áður en konan rann hafði skúringavél ver- ið ekið um ganginn og skilið eftir sig tauma. Erindið var sent ríkis- lögmanni til afgreiðslu sem hafn- aði skaðabótakröfu stefnanda ári síðar. Ríkislögmaður vísaði til þess að konan hefði séð starfsmenn við ræstingu og því hefði hún mátt gera sér grein fyrir því að gólfið væri blautt. Enn fremur að hún hefði líka mátt vita að gólfið hafi alltaf verið skúrað á þeim tíma sem stefnandi átti erindi á deild 11-B. Landspítalanum var gert að greiða konunni 800 þúsund krón- ur í málskostnað. Fullt úr úr dyrum hjá Europris Fullt var út úr dyrum í Europris á Granda þegar ljósmyndara DV bar að garði síðdegis á þriðjudag. Rýmingarsala hófst um morgun- inn en öllum starfsmönnum Europris á Íslandi hefur verið sagt upp störfum. Rekstri allra versl- ananna verður hætt á Íslandi að lokinni rýmingarsölu. 46 manns missa vinnuna í kjölfar þessara breytinga. Eins og sjá má á með- fylgjandi mynd var margt um manninn og margir notfærðu sér tilboðin. Nokkrar biðraðir höfðu myndast og fólk mátti því bíða lengi í röðum. Þrjár verslanir eru í rekstri á Íslandi en nýverið var verslun Europris á Korputorgi lokað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.