Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Page 15
Aðdáendur
hafa elt mig
Hún er megin-
uppistaðan
Fanney Ósk Þórisdóttir segir meðlimi Kúra þekkta í Danmörku. – DVÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir fjölskylduna skipta mestu máli. – DV
Frjáls Palestína
Spurningin
„Nei, ég keypti ekki passa en ég
fer alveg á einhverjar myndir.“
Ásdís María Viðarsdóttir
25 ára vinnur í Spúútnik
„Mig langar meira en allt að
mæta á þessar yndislegu
sýningar en ég bara því miður get
það ekki.“
Hrafnkell Ingi Gissurarson
21 árs yfirbarþjónn á Café Zimsen
„Ég ætla að skoða nokkrar
bíómyndir en ég nenni ekki að
kaupa mér passa.“
Dagur Gonzales
21 árs barþjónn
„Ég kaupi mér ekki passa en ég
ætla að reyna að sjá sem flestar
myndir.“
Alfreð Jóhann Eiríksson
19 ára nemi
„Nei, ég er með internet-
tengingu.“
Jafet Hálfdán Finnbjörnsson
23 ára grillmeistari
Ætlar þú á
RIFF í ár?
1 Drengur ættaður frá Íslandi féll eftir umsátur lögreglu
Særði lögreglu og lést eftir skotsár í
Kansas í Bandaríkjunum á föstudag.
2 Ekki hleypt á klósettið Unnið að agavandamálum í Hagaskóla.
3 Kjóllinn klikkaði á Emmy Sofia Vergara úr Modern Family komst
í hann krappan á Emmy-verðlauna-
hátíðinni.
4 „Hefur haft ömurleg áhrif á líf fjölda ungra kvenna“ Sölvi
Tryggvason hvetur alla til að horfa á
umfjöllun sína um nauðgunarlyf.
5 Óttast að 5 ára stúlku hafi ver-ið rænt Umfangsmikil leit lögreglu
stóð yfir í Bretlandi á þriðjudag.
6 Hells Angels-meðlimir hand-teknir Tveir meðlimir handteknir í
Árósum á mánudag og úrskurðaðir í
gæsluvarðhald.
7 Öllum starfsmönnum Europris sagt upp Fullyrt að
rekstri allra verslana verði hætt og
rýmingarsala muni hefjast í vikunni.
Mest lesið á DV.is
P
alestína er ekki frjálst land.
Jafnvel sá hluti landsins sem
Palestínumenn sjálfir byggja
er sundurtættur og víggirtur og
vaktaður af varðmönnum Ísraelsríkis.
Þessu hefur heimsbyggðin fengið að
kynnast um áratugaskeið og sum okkar
af ferðum okkar um Palestínu en þang
að fór ég ferð árið 2005 í för sem aldrei
mun líða mér úr minni.
Ég fór víða um og sendi heim pistla
daglega og setti inn á heimasíðu mína.
Ég ræddi við fjölda Palestínumanna
en einnig fulltrúa almennra borgara
í Ísrael sem andvígir voru hernáms
stefnu ríkisstjórnar sinnar. Það var
hugrakkt fólk.
Þegar haldið var heim á leið fékk
ég að kynnast því í fyrsta skipti að vera
berháttaður á flugvelli. Það var í Tel
Aviv en svo áhugasamir voru leitar
menn um mína persónu að þeir létu
sér ekki nægja að klæða mig úr fötun
um heldur héldu þeir tölvunni minni
eftir í landinu og fékk ég hana ekki að
nýju fyrr en að nokkrum vikum liðn
um. Svo smávægilegt þótti mér það þó
í samanburði við allt sem ég hafði séð
að ég lét þessa aldrei getið opinber
lega.
Hinu hamraði ég á, kynþáttamúr
unum, eftirlitinu, ofbeldinu – hinni
daglegu kúgun.
Þeim sem stíga inn á opinberan
vettvang alþjóðasamskipta ber að láta
frá sér heyra um mannréttindabrot
sem þeim vettvangi tengjast. Það gera
þó fáir. Flestir flytja áferðarfallegar
ræður, bragðdaufar og svo lítið and
ar yfirleitt frá opinberu ræðuhaldi að
ekkert er hreyft við lognmollunni. Þess
vegna fær ofbeldið þrifist.
Góð ræða Össurar
Í þessu ljósi þótti mér einstaklega
ánægjulegt að lesa ræðu Össurar
Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna
í lok síðustu viku. Þar ræddi hann á
mjög afdráttarlausan hátt um ofbeldið
gegn Palestínumönnum og setti fram
þá afdráttarlausu kröfu að kynþátta
múrarnir yrðu rifnir niður og mann
réttindin virt.
Hann minnti á að á Alþingi Ís
lendinga hefði verið samþykkt án
nokkurs mótatkvæðis að Palestína
skyldi viðurkennt sem sjálfstætt og
fullvalda ríki.
Utanríkisráðherra Íslands fjallaði
einnig um önnur mál þar sem mér
þóttu áherslur hans góðar og nefni
ég þar sérstaklega aðfinnslur gagn
vart getuleysi öryggisráðsins til að
taka á hryllingsmálum á borð við
fjöldamorðin í Sýrlandi og málefnum
Palestínumanna. Orðrétt sagði Össur
Skarphéðinsson: „Sannleikurinn er sá
að öryggisráðið er orðið að hindrun
sem kemur í veg fyrir að lausnir verði
fundnar á málum af því tagi sem nú er
uppi í Sýrlandi. Við verðum að breyta
öryggisráðinu, þannig að það verði
verkfæri, ekki hindrun til lausnar slík
um atburðum sem nú í ár eiga sér stað
í Sýrlandi – eða eins og gerðist í fyrra
varðandi aðildarumsókn Palestínu.“
Öryggisráðið og fortíðin
Undir þetta sjónarmið vil ég heils
hugar taka. Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna eins og það er skipulagt
eru leifar gamallar heimsvaldastefnu
og skiptingar heimsins í áhrifasvæði
stórveldanna. Þar eiga þau sína full
trúa sem hafa neitunarvald. Það gerir
það að verkum að sjái stórveldin eigin
hagsmunum á einhvern hátt ógnað,
hika þau ekki við að beita neitunar
valdi sínu.
Reynslan sýnir að smærri ríki sem
tímabundið drepa niður fæti í öryggis
ráðinu fá litlu áorkað auk þess sem
mikið er gert af hálfu hinna stóru
bræðra og systra í að kæfa raddir
þeirra eða þvinga þau til undirgefni
við eigin hagsmuni. Um þetta eru til
fjöldamörg dæmi sem ég áður hef
margoft vakið máls á í ræðu og riti.
Það var mikið lán fyrir Ísland á sín
um tíma að fá ekki inngöngu í öryggis
ráð Sameinuðu þjóðanna. Það varð
aldrei að veruleika sem betur fer þótt
mikið væri reynt.
Íslandi til sóma
Íslendingar eiga sér hins vegar verðug
verkefni á alþjóðavettvangi. Alþjóða
deild Slysavarnarfélagsins Lands
bjargar hefur sýnt og sannað að um
okkur munar í björgunarstarfi í nátt
úruhamförum og íslenskt hjúkrunar
fólk hefur að sama skapi staðið sig vel
við erfiðar aðstæður. Þá hafa íslensk
ir vísindamenn hlutverki að gegna í
rannsóknum hvort sem er á sviði jarð
varma eða lífríkis sjávar svo mikilvæg
dæmi séu nefnd.
Síðast en ekki síst á rödd Íslands að
hljóma um alla heimsbyggð um mann
réttindi líkt og gerðist í ræðu Össur
Skarphéðinssonar á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna. Ræða hans þar
var Íslandi til sóma og öðrum vonandi
til eftirbreytni.
Höfundur er innanríkisráðherra.
Glaðbeitt Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra vakti sannarlega athygli þegar hún mætti til ríkisráðsfundar á Bessastöðum á mánudag, enda bæði hýr á brá og áberandi
vel til fara. Hver veit nema hún hafi nýtt síðustu andartökin fyrir fundinn til þess að sinna embættiserindum símleiðis. Mynd SiGtryGGur AriMyndin
Umræða 15Miðvikudagur 3. október 2012
Kjallari
Ögumundur
Jónasson
„Í þessu ljósi þótti mér
einstaklega ánægju-
legt að lesa ræðu Össurar
Skarphéðinssonar utanrík-
isráðherra á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í lok
síðustu viku
Þetta er alveg
með ólíkindum
Ásgeir Guðmundsson undrast hvað rannsókn á lifrarpylsunni tekur langan tíma. – DV