Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Síða 15
Aðdáendur hafa elt mig Hún er megin- uppistaðan Fanney Ósk Þórisdóttir segir meðlimi Kúra þekkta í Danmörku. – DVÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir fjölskylduna skipta mestu máli. – DV Frjáls Palestína Spurningin „Nei, ég keypti ekki passa en ég fer alveg á einhverjar myndir.“ Ásdís María Viðarsdóttir 25 ára vinnur í Spúútnik „Mig langar meira en allt að mæta á þessar yndislegu sýningar en ég bara því miður get það ekki.“ Hrafnkell Ingi Gissurarson 21 árs yfirbarþjónn á Café Zimsen „Ég ætla að skoða nokkrar bíómyndir en ég nenni ekki að kaupa mér passa.“ Dagur Gonzales 21 árs barþjónn „Ég kaupi mér ekki passa en ég ætla að reyna að sjá sem flestar myndir.“ Alfreð Jóhann Eiríksson 19 ára nemi „Nei, ég er með internet- tengingu.“ Jafet Hálfdán Finnbjörnsson 23 ára grillmeistari Ætlar þú á RIFF í ár? 1 Drengur ættaður frá Íslandi féll eftir umsátur lögreglu Særði lögreglu og lést eftir skotsár í Kansas í Bandaríkjunum á föstudag. 2 Ekki hleypt á klósettið Unnið að agavandamálum í Hagaskóla. 3 Kjóllinn klikkaði á Emmy Sofia Vergara úr Modern Family komst í hann krappan á Emmy-verðlauna- hátíðinni. 4 „Hefur haft ömurleg áhrif á líf fjölda ungra kvenna“ Sölvi Tryggvason hvetur alla til að horfa á umfjöllun sína um nauðgunarlyf. 5 Óttast að 5 ára stúlku hafi ver-ið rænt Umfangsmikil leit lögreglu stóð yfir í Bretlandi á þriðjudag. 6 Hells Angels-meðlimir hand-teknir Tveir meðlimir handteknir í Árósum á mánudag og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. 7 Öllum starfsmönnum Europris sagt upp Fullyrt að rekstri allra verslana verði hætt og rýmingarsala muni hefjast í vikunni. Mest lesið á DV.is P alestína er ekki frjálst land. Jafnvel sá hluti landsins sem Palestínumenn sjálfir byggja er sundurtættur og víggirtur og vaktaður af varðmönnum Ísraelsríkis. Þessu hefur heimsbyggðin fengið að kynnast um áratugaskeið og sum okkar af ferðum okkar um Palestínu en þang­ að fór ég ferð árið 2005 í för sem aldrei mun líða mér úr minni. Ég fór víða um og sendi heim pistla daglega og setti inn á heimasíðu mína. Ég ræddi við fjölda Palestínumanna en einnig fulltrúa almennra borgara í Ísrael sem andvígir voru hernáms­ stefnu ríkisstjórnar sinnar. Það var hugrakkt fólk. Þegar haldið var heim á leið fékk ég að kynnast því í fyrsta skipti að vera berháttaður á flugvelli. Það var í Tel Aviv en svo áhugasamir voru leitar­ menn um mína persónu að þeir létu sér ekki nægja að klæða mig úr fötun­ um heldur héldu þeir tölvunni minni eftir í landinu og fékk ég hana ekki að nýju fyrr en að nokkrum vikum liðn­ um. Svo smávægilegt þótti mér það þó í samanburði við allt sem ég hafði séð að ég lét þessa aldrei getið opinber­ lega. Hinu hamraði ég á, kynþáttamúr­ unum, eftirlitinu, ofbeldinu – hinni daglegu kúgun. Þeim sem stíga inn á opinberan vettvang alþjóðasamskipta ber að láta frá sér heyra um mannréttindabrot sem þeim vettvangi tengjast. Það gera þó fáir. Flestir flytja áferðarfallegar ræður, bragðdaufar og svo lítið and­ ar yfirleitt frá opinberu ræðuhaldi að ekkert er hreyft við lognmollunni. Þess vegna fær ofbeldið þrifist. Góð ræða Össurar Í þessu ljósi þótti mér einstaklega ánægjulegt að lesa ræðu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok síðustu viku. Þar ræddi hann á mjög afdráttarlausan hátt um ofbeldið gegn Palestínumönnum og setti fram þá afdráttarlausu kröfu að kynþátta­ múrarnir yrðu rifnir niður og mann­ réttindin virt. Hann minnti á að á Alþingi Ís­ lendinga hefði verið samþykkt án nokkurs mótatkvæðis að Palestína skyldi viðurkennt sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Utanríkisráðherra Íslands fjallaði einnig um önnur mál þar sem mér þóttu áherslur hans góðar og nefni ég þar sérstaklega aðfinnslur gagn­ vart getuleysi öryggisráðsins til að taka á hryllingsmálum á borð við fjöldamorðin í Sýrlandi og málefnum Palestínumanna. Orðrétt sagði Össur Skarphéðinsson: „Sannleikurinn er sá að öryggisráðið er orðið að hindrun sem kemur í veg fyrir að lausnir verði fundnar á málum af því tagi sem nú er uppi í Sýrlandi. Við verðum að breyta öryggisráðinu, þannig að það verði verkfæri, ekki hindrun til lausnar slík­ um atburðum sem nú í ár eiga sér stað í Sýrlandi – eða eins og gerðist í fyrra varðandi aðildarumsókn Palestínu.“ Öryggisráðið og fortíðin Undir þetta sjónarmið vil ég heils­ hugar taka. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna eins og það er skipulagt eru leifar gamallar heimsvaldastefnu og skiptingar heimsins í áhrifasvæði stórveldanna. Þar eiga þau sína full­ trúa sem hafa neitunarvald. Það gerir það að verkum að sjái stórveldin eigin hagsmunum á einhvern hátt ógnað, hika þau ekki við að beita neitunar­ valdi sínu. Reynslan sýnir að smærri ríki sem tímabundið drepa niður fæti í öryggis­ ráðinu fá litlu áorkað auk þess sem mikið er gert af hálfu hinna stóru bræðra og systra í að kæfa raddir þeirra eða þvinga þau til undirgefni við eigin hagsmuni. Um þetta eru til fjöldamörg dæmi sem ég áður hef margoft vakið máls á í ræðu og riti. Það var mikið lán fyrir Ísland á sín­ um tíma að fá ekki inngöngu í öryggis­ ráð Sameinuðu þjóðanna. Það varð aldrei að veruleika sem betur fer þótt mikið væri reynt. Íslandi til sóma Íslendingar eiga sér hins vegar verðug verkefni á alþjóðavettvangi. Alþjóða­ deild Slysavarnarfélagsins Lands­ bjargar hefur sýnt og sannað að um okkur munar í björgunarstarfi í nátt­ úruhamförum og íslenskt hjúkrunar­ fólk hefur að sama skapi staðið sig vel við erfiðar aðstæður. Þá hafa íslensk­ ir vísindamenn hlutverki að gegna í rannsóknum hvort sem er á sviði jarð­ varma eða lífríkis sjávar svo mikilvæg dæmi séu nefnd. Síðast en ekki síst á rödd Íslands að hljóma um alla heimsbyggð um mann­ réttindi líkt og gerðist í ræðu Össur Skarphéðinssonar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Ræða hans þar var Íslandi til sóma og öðrum vonandi til eftirbreytni. Höfundur er innanríkisráðherra. Glaðbeitt Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra vakti sannarlega athygli þegar hún mætti til ríkisráðsfundar á Bessastöðum á mánudag, enda bæði hýr á brá og áberandi vel til fara. Hver veit nema hún hafi nýtt síðustu andartökin fyrir fundinn til þess að sinna embættiserindum símleiðis. Mynd SiGtryGGur AriMyndin Umræða 15Miðvikudagur 3. október 2012 Kjallari Ögumundur Jónasson „Í þessu ljósi þótti mér einstaklega ánægju- legt að lesa ræðu Össurar Skarphéðinssonar utanrík- isráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok síðustu viku Þetta er alveg með ólíkindum Ásgeir Guðmundsson undrast hvað rannsókn á lifrarpylsunni tekur langan tíma. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.