Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2012, Qupperneq 20
Fantasíur nærri
veruleikanum
Endurbætt sigurformúla
F
IFA-leikirnir hafa nú
um nokkurra ára skeið
verið ókrýndir konungar
íþróttaleikjanna og það
hefur ekkert breyst með tilkomu
FIFA 13. Þó að ávallt séu talsverð-
ar breytingar á FIFA-leikjunum
milli ára heldur EA Sports áfram að
byggja á þeirri sigurformúlu sem
birtist í FIFA 12. Þá var varnarleik-
urinn tekinn í gegn en nú er spjót-
unum meira beint að sóknarleikn-
um sem er orðinn raunverulegri
en nokkru sinni fyrr. Þó skal tekið
fram að varnarleikurinn hefur verið
fínpússaður þó hann byggi á sama
grunni og í FIFA 12.
Í FIFA 13 eru leikmenn ekki haldn-
ir þeirri yfirnáttúrulegu getu að geta
tekið á móti hvaða sendingu sem er
eins og Zidane eða Xavi. Þú getur
misst boltann of langt frá þér þegar
þú færð erfiða sendingu eða sleppur
í gegn. Man einhver þegar Gervinho
slapp í gegnum vörn Manchester
City á dögunum en missti boltann of
langt frá sér? Þannig hlutir gerast líka
í FIFA 13.
Gervigreindin er líka orðin miklu
betri. Þetta birtist til dæmis þegar þú
sækir hratt að marki andstæðings-
ins. Hér áður fyrr tóku samherjarn-
ir fyrirsjáanleg hlaup og möguleik-
arnir til að senda leikmenn í gegn
voru takmarkaðir. Í FIFA 13 taka
leikmenn betur ígrunduð hlaup og
leggja jafnvel lykkju á leið sína til
að forðast rangstöðu. Þetta gefur
manni fleiri valmöguleika og leik-
irnir verða opnari fyrir vikið.
Það má nefna fleiri smávægilegar
nýjungar í leiknum. Til dæmis renna
menn sér á boltann þegar hann er
á leið út af vellinum eins og leik-
menn almennt gera. Þetta gerir upp-
lifunina af spiluninni líkari þeirri
sem gerist í raun og veru. Leikurinn
fylgir líka leikmönnum og liðum eft-
ir í rauntíma. Ef Wayne Rooney fer í
lægð og hættir að skora er líklegra að
hann eigi erfiðar uppdráttar en ella í
leiknum.
Be A Pro, Ultimate Team og fleiri
aukamöguleikar eru á sínum stað
en nú er búið að bæta við svoköll-
uðum Skill Games. Þar getur þú æft
knattrakið, aukaspyrnurnar, fyrir-
gjafirnar og skotin og klárað brons-,
silfur- og gullstig.
FIFA 13 er jafn góður og fót-
boltaleikir verða en auðvitað eru
alltaf einhverjir þættir sem mætti
laga og betrumbæta. Hversu auð-
velt er til dæmis að komast inn í
innkast og ná boltanum? Litlu gall-
arnir gleymast þó fljótt enda er leik-
urinn heilt yfir til fyrirmyndar þó
breytingin frá FIFA 12 sé ekkert brjál-
æðislega mikil. n
20 Menning 3. október 2012 Miðvikudagur
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Tölvuleikur
FIFA 13
Fótboltaleikur
Tegund leiks: PS3
Betri sóknarleikur Lionel Messi nýtur sín
vel í FIFA 13.
Hjónaerjur
í útvarpinu
Útvarpsleikhúsið frumflytur
nýtt leikrit eftir Mikael Torfa-
son, Harmsögu, sunnudaginn 7.
október á Rás 1. Umfjöllunarefnið
er hjónaerjur:
„Ragnar og Sigrún hafa ver-
ið að rífast síðustu daga og muna
ekki lengur um hvað. Þau ætla að
skilja, eða öllu heldur Sigrún vill
skilja en Ragnar tekur það ekki í
mál enda hættir hún svo oft við og
það er bara svo óþolandi að vita
ekki hvar maður hefur konuna
sína. Merkir það að hún sé „passi-
ve-aggressive“ eða er hún bara
geðveik eins og allar konur? Og
hvað með þetta endalausa and-
lega ofbeldi?“
Tónleikar í Há-
skóla Íslands
Háskólatónleikar í Háskóla Íslands
hefjast í hádeginu í dag, miðviku-
daginn 3. október, og verða með
reglulegu millibili út skólaárið.
Tómas R. Einarsson
kontrabassaleikari og Ómar Guð-
jónsson gítarleikari leika eigin
verk, ný og nýleg, á Háskólatorgi.
Um er að ræða fyrstu Háskólatón-
leika skólaársins. Enginn aðgangs-
eyrir og allir velkomnir.
Ef lífið væri
söngleikur
Ef lífið væri söngleikur er yfir-
skrift tónleika sem haldnir verða
á föstudaginn kemur í Salnum
Kópavogi.
Tónleikaröðin samanstendur
af fjórum mismunandi tónleikum
þar sem farið er breitt í sögu, stíl
og tónlistarhefðir söngleikjanna.
Á fyrstu tónleikunum, 5.
október, taka meðal annarra þátt
Bjarni Snæbjörnsson, Margrét
Eir, Sigríður Eyrún Friðriksdótt-
ir og Orri Huginn Grétarsson. Þau
bregða sér til Broadway, West End,
flytja verk úr Kabarett, Vesalingun-
um, Fiðlaranum á þakinu og fleiri
verkum. Við flygilinn situr píanó-
leikarinn Kjartan Valdemarsson.
Þ
ýska lista- og kvikmynda-
gerðarkonan Ulrike Ottin-
ger sýnir valdar ljósmyndir
í anddyri Norræna hússins
á meðan Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Reykjavík stendur
yfir. Á hátíðinni verður mynd henn-
ar, Unter Schnee, sýnd og Ulrike er
komin til landsins af því tilefni.
„Mikið er fallegt hér,“ segir Ulrike
þar sem hún kemur til fundar við
blaðamenn í Norræna húsinu. Hún
er aðdáandi verka finnska arkitekts-
ins Alvars Alto og finnst gaman að
því að ljósmyndasýning sé sett upp
einmitt í þessu húsi. „Reykjavík er
ung borg,“ segir hún. Eins og Berlín,“
bætir hún við hugsi þar sem hún
horfir út um gluggann á Vatnsmýrina
og miðborgina með bros á vör.
Efnið leiðir
Þetta er fyrsta heimsókn Ulrike til
landsins. Hún er klædd í gráa og
þægilega buxnadragt og hefur kom-
ið sólgleraugum haganlega fyrir í
vestinu.
Ulrike er listamaður sem hefur lagt
lag sitt við fjölda listgreina en þekktu-
st er hún fyrir kvikmyndir sínar. Hún
segist aðspurð ekki upptekin af form-
inu heldur leyfi efniviðnum að leiða
sig áfram í leit að aðferðum. „Til að
byrja með hafði ég einfaldlega áhuga
á ljósum, litum og formum. Ég bjó og
starfaði sem listamaður í París á sjö-
unda áratugnum og byrjaði að mála.
Ég skrifaði fyrsta kvikmyndahandritið
mitt í París og sneri aftur heim og leik-
stýrði myndinni Laocoon & Sons með
hinni yndislegu Tabeu Blumenschein
í einu aðalhlutverka.“
Fær ekki fjármagn
Ulrike hefur í fyrri myndum sín-
um lagt mikla áherslu á sérstakar,
sterkar og litríkar kvenpersónur í
mörgum mynda sinna. Í Freak Or-
lando skiptir söguhetjan um kyn, í
mynd um Jóhönnu af Örk er sögu-
sviðið Mongólía, í Madame X fara
um litríkir kvensjóræningjar og í
mynd sinni Dorian Gray in the Mirr-
or of the Yellow Press er Dorian leik-
inn af ofurfyrirsætu sjötta áratugar-
ins, Veruschku von Lehndorf. Hún
segir leikarann eða leikkonuna sjálfa
oft vera mikilvægan innblástur. „Ég
leitaði lengi að Dorian Gray. Þegar
ég hitti Veruschku á leiklistar hátíð í
Avignon þá sá ég strax að þar var rétti
leikarinn kominn. Hún var með eins-
taka líkamstjáningu og með mikla
hæfileika á sviði. Ég ákvað því að
nota hana.“
Ulrike hóf vinnu við myndina
Blood Countess árið 2009, en myndin
fjallar um blóðþyrsta greifynju, og
vildi Ulrike fá Tildu Swinton í aðal-
hlutverkið. Það er miður að enn hafi
ekki fengist fjármagn í hana. „Ég er
miður mín yfir því, algjör martröð
og verkefnið er stopp, það fæst ekki
í það fjármagn.“
Heillaðist af Asíu
Í seinni tíð hefur Ottinger gert fjölda
heimildamynda í Asíu og á ljós-
myndasýningu í Norræna húsinu ber
að líta myndir úr ferðalögum henn-
ar. Hún segist hafa heillast í barn-
æsku af ævintýrabókum um þess-
ar slóðir. „Síðan í æsku hef ég verið
heilluð af Mongólíu, Indlandi og
Austurlöndum. Ég átti barnabækur
sem voru heillandi, faðir minn átti
vin sem fór í leiðangra á þessar slóð-
ir og skrifaði barnabækur um ævin-
týrin. Þær átti ég og í raun voru þær
einstakar heimildir um þessi svæði.
Eitthvað sem heillar í æsku heillar
alla ævi,“ segir Ulrike. „Einu sinni
fórum við faðir minn í heimsókn til
þessa ævintýramanns. Þar fékk ég að
sjá kistu, svipaða þeim sem hirðingjar
fara með í ferðalög. Hann opnaði
kistuna og sýndi mér alla hlutina og
ég var hugfangin,“ bætir hún við.
„Ég fæ innblástur úr raunveruleik-
anum. Menning fólks er svo litrík og
ævintýraleg, skáldskapur og fantasíur
eru hreint út sagt afar nálægt raun-
veruleikanum og ég held að ég hafi
alltaf leitt hugann að þeirri staðreynd
þegar ég vinn að list minni.“ n
kristjana@dv.is
n Ulrike Ottinger, fræg lista- og kvikmyndagerðarkona er stödd hér á landi„Ég er
miður
mín yfir því,
algjör martröð
og verk efnið
er stopp
Fær innblástur frá konum Veruschka von Lehndorf í hlutverki Dorians Gray.
Ulrike Ottinger í Norræna húsinu
Listakonan fjölhæfa Ulrike hitti blaðamenn
og ræddi um list sína. MyNd sigTryggUr Ari