Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Qupperneq 16
16 | Erlent 8. ágúst 2011 Mánudagur S jö manns féllu í skotárás sem gerð var á Badbaado-búðirn- ar í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, á föstudag. Vopn- aðir hermenn réðust inn í búðirnar í þeim tilgangi að ræna mat sem útdeila átti til fólks í búðunum. Alger ringulreið ríkti í kjölfarið og hófst skotbardagi á milli ránsmanna og hermanna sem gæta búðanna. Hungursneyðin er orðin svo al- varleg að í stað þess að flýja stríðs- hrjáð svæði, líkt og fólk hefur gert síðastliðin 20 ár, flýr nú fólk til stríðs- hrjáðra svæða. Tugþúsundir Sómala hafa haldið til Mogadishu, til að flýja hungur. Yfir 21 þúsund manns haf- ast við í Badbaado-búðunum sem opnaðar voru 12. júlí síðastliðinn. Búðirnar eru einungis 400 metra frá átakalínum al-Shabab, regnhlífar- samtaka íslamista með tengsl við al- Kaída, og stuðningsmanna stjórn- valda í Mogadishu. Glundroði í Sómalíu Engin eiginleg stjórn hefur ver- ið yfir allri Sómalíu síðan í janúar 1991 þegar forsetanum, Mohamed Siad, var steypt af stóli. Ríkisstjórn Sómalíu, sem nýtur stuðnings Sam- einuðu þjóðanna, fer með völd- in í Mog adishu. Héraðið Puntland í Norður-Sómalíu nýtur töluverðs sjálfræðis og þá eru stór svæði í suðri undir stjórn al-Shabab. Borgara- styrjöld ríkir í landinu með tilheyr- andi glundroða sem nú hefur aukist í kjölfar hungursneyðarinnar þar sem flóttamenn streyma í allar áttir. Ástandið er verst á svæðum sem lúta stjórn al-Shabab. Hjálparstarfs- menn eru ekki öruggir þar og nánast ómögulegt er að koma fólki til að- stoðar. Liðsmenn al-Shabab hafna því að hungursneyð ríki í landinu og telja að hjálparstarfsmenn séu út- sendarar vestrænna ríkja sem vilji steypa þeim af stóli. Flókið mál er að semja við sam- tökin þar sem þau eru í raun einung- is regnhlífarsamtök og þykja sundur- leit sem slík. „Al-Shabab er eins og marghöfða dreki. Ef þú semur við einn haus þýðir það ekki að annar hafi lagt blessun sína yfir það,“ sagði embættismaður ráðherraráðs Evr- ópusambandsins. Hindra för flóttamanna Neyðarástand ríkir einnig í ná- grannalöndunum Eþíópíu og Ke- níu þar sem að minnsta kosti 14 manns hafa dáið úr hungri undan- farna daga. Bæði lönd hafa átt fullt í fangi með að glíma við hungur eigin íbúa en löndin þurfa einnig að taka við tugþúsundum flóttamanna frá Sómalíu. Í Dadaab-búðunum í Ke- níu hafast við um 370.000 manns eða um 0,9 prósent íbúafjölda í Ke- níu. Til samanburðar eru flótta- menn á Íslandi um 0,03 prósent landsmanna. Dadaab-búðirnar eru í hundrað kílómetra fjarlægð frá landamærum Keníu og Sómalíu en talið er að yfir 1.300 Sómalar fari yfir landamærin dag hvern í von um að verða sér úti um mat. Landamærun- um var opinberlega lokað árið 2008 vegna borgarastyrjaldarinnar í Sóm- alíu en stjórnvöld í Keníu óttuðust að skæruliðar héldu yfir landamærin. Bernard Ole Kipury, sem fer með stjórn Dadaab-búðanna, segir að þar sem að Kenía sé aðili að alþjóðasátt- málum geti Kenía ekki vísað hjálpar- þurfi fólki frá. Al-Shabab reyna hins vegar að hindra för flóttamanna til Keníu. „Þeir sögðu að betra væri að deyja í móðurlandinu. Þeir vildu að við bæðum fyrir rigningu,“ sagði Mo- hammed Abdi, flóttamaður á leið til Dadaab. „Það er kaldhæðnislegt að við erum að flýja þrátt fyrir að varan- legur friður sé þar sem ég bý í Sómal- íu,“ segir Abdi sem kveðst hafa verið auðugur maður. Mun fleiri íbúar glíma við verstu þurrka í 60 ár Yfir 30 þúsund börn hafa dáið úr hungri og 10 milljónir manna eru við það að svelta. Í Sómalíu þurfa 3,2 milljónir manna, þriðjungur af áætl- uðum heildarfjölda landsmanna, á tafarlausri neyðaraðstoð að halda. Þurrkarnir á horni Afríku eru þeir verstu í 60 ár. Til viðbótar við þá stað- reynd hefur orðið gífurleg fólksfjölg- un á svæðinu. Sem dæmi má nefna að í Eþópíu bjuggu 31 milljón manns árið 1973, þegar hungursneyð ríkti í landinu, en í dag búa þar um 80 milljónir. Þurrkar eru einnig algeng- ari á svæðinu nú en áður fyrr vegna loftlagsbreytinga. Fyrir fimmtíu árum höfðu þurrkarnir komið á tíu ára fresti en síðan árið 1990 hafa þeir komið á tveggja til þriggja ára fresti. Þá endast þurrkarnir líka lengur. Hefði verið hægt að koma í veg fyrir hörmungarástand Segja má að hungursneyðin sé að miklu leyti manngerður vandi þó rót vandans sé skortur á regni (að vísu er hægt að deila um hvort sá skortur sé tilkominn vegna loft- lagsbreytinga af manna völdum). Styrjöldin í Sómalíu hefur óneitanlega ýtt verulega undir hungursneyðina. „Stríð drepa ekki margt fólk á beinan hátt. Hins veg- ar geta þau drepið milljónir með því að gera þær berskjaldaðar fyr- ir vandamálum sem auðveldlega ætti að vera hægt að leysa,“ segir Simon Levine sem starfar við þró- unaraðstoð. Vandinn er langt frá því að vera nýr af nálinni. Árið 2008 varaði embættismaður Sameinuðu þjóð- anna við því að einn af hverjum sex íbúa Sómalíu ætti á hættu á að svelta. Viðbrögð voru hins vegar af skornum skammti og ekki hjálpaði til að Sómalía var skilgreint sem eitt af höfuðvígjum hryðjuverka- manna í stríðinu gegn hryðjuverk- um. John Vidal, pistlahöfundur Guard ian, bendir á að hægt hefði verið að forðast þennan harmleik með því að veita 46,5 milljörðum króna í langtímaþróunarverkefni en nú sé fénu veitt í neyðaraðstoð. Segir Afríku geta fætt heiminn Kanayo Nwanze, foreti Alþjóða- sjóðs um þróun landbúnaðar, seg- ir vandann að miklu leyti fólginn í vanrækslu við landbúnað. Hann gekk svo langt að halda því fram að Afríka gæti fætt allan heiminn. Það gerði hann á neyðarfundi sjóðsins í Róm þar sem ástandið í Austur- Afríku var rætt. Máli sínu til stuðn- ings tók hann Gansu-hérað í Kína sem dæmi. Héraðið hefur oft og tíðum þurft að glíma við þurrka sem feli í sér að ekki sé hægt að veita vatni til ræktunar og tölu- verða jarðvegseyðingu. Þrátt fyr- ir það heldur Nwanze því fram að bændum hafi tekist að framfleyta sjálfum sér og auka við tekjur sín- ar. „Ég hitti bónda sem fór úr því að þéna 2 dollara á dag árið 2006 í að þéna 35 dollara á dag í fyrra,“ hélt Nwanze fram. Hann segir vel- gengnina fólgna í stefnu stjórn- valda sem fjárfesti í sveitunum svo unnt sé að halda ræktun áfram með betri tækni. Hins vegar hafi landbúnaður verið vanræktur í Afríku samhliða aukinni iðnvæð- ingu og nú þurfi Afríka að horfast í augu við það. Á einum áratug fór stuðningur alþjóðasamfélagsins við landbúnað í Afríku úr 2,3 billj- ónum króna niður í 349 milljarða króna. Árið 2009 hafði þó stuðn- ingurinn hækkað upp í rúmlega eina billjón króna. Nwanse segir að hægt sé að nýta mun fleiri land- svæði í Afríku undir landbúnað án þess að skaða umhverfið verulega og tækifærin séu fyrir hendi. Velta fyrir sér næstu þurrkum Talið er að hungursneyðin muni vara að minnsta kosti fram í des- ember á þessu ári. Landbúnaðar- sjóðurinn er nú þegar farið að vekja athygli á þurrkum sem munu eiga sér stað einhvern tímann á tíma- bilinu 2015 til 2017. Á heimasíðu sjóðsins er spurt hvort þá verði færri flóttamenn gangandi færri kíló- metra til að fá nauðsynlega hjálp. Hvort nóg verði af vatni og nægur matur verði fyrir þá sem nú þjást af hungri. Svarið við spurningunum sé falið í viðbrögðum alþjóðasam- félagsins og skulbindingum þeirra þegar vel árar. Hungur rekur fólk til stríðshrjáðra svæða Farast úr hungri Tugþúsundir barna deyja í hungursneyð sem hægt hefði verið að forðast. n Sómalar flýja til átakasvæða í von um mat n Tugþúsundir barna hafa dáið úr hungri n Velta fyrir sér viðbrögðum Alþjóðasamfélagsins þegar næstu þurrkar munu skella á „Al-Shabab er eins og marghöfða dreki. Ef þú semur við einn haus þýðir það ekki að annar hafi lagt bless- un sína yfir það. Björn Reynir Halldórsson blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is Hvað þýðir hungursneyð? n Til þess að skilgreina hungursneyð opinberlega á ákveðnu svæði þarf að uppfylla eftirfarandi atriði: n Yfir 30 prósent barna þjáist af mikilli vannæringu n Tveir fullorðnir eða fjögur börn, af hverjum tíu þúsund einstaklingum, deyi dag hvern úr hungri n Íbúar hafi aðgang að mat sem nemi minna en 2.100 kílókalóríum á dag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.