Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Side 20
20 | Fókus 8. ágúst 2011 Mánudagur
Chili Peppers
í beinni
Hljómsveitin Red Hot Chili
Peppers verður í beinni út-
sendingu í Sambíóunum í lok
ágúst. Nánar tiltekið 30. ágúst
klukkan 19.00. Útsendingin er
frá útgáfutónleikum sveitar-
innar en þeir eru að senda frá
sér sína fyrstu plötu í fimm
ár. Sú nefnist I’m With You en
hún verður spiluð í heild sinni
á tónleikunum ásamt völdum
eldri slögurum. Aðeins er
um þessa einu tónleika að
ræða en þeir fara fram í Köln í
Þýskalandi og verða sendir út
í háskerpu. Hægt er að kaupa
miða á sambio.is.
Fuglar á
toppnum
Íslenskur fuglavísir eftir Jó-
hann Óla Hilmarsson situr
á toppi metsölulista bóka-
verslana fyrir vikuna 17. til 30.
júlí. Bókin er endurútgefin og
endurbætt og hafa bæst um 40
nýjar fuglategundir í bókina
frá fyrri útgáfum. Í bókinni er
ítarlega fjallað um alla varp-
fugla á Íslandi og aðra fugla
sem venja komur sínar hing-
að. Bókin hefur að geyma um
700 ljósmyndir af fuglum og
eggjum auk varp- og vetrarút-
breiðslukorta. Bókin er sögð
henta sem greinarhandbók,
jafnt fyrir vana fuglaskoðara
sem og óvana áhugamenn.
Bókmenntaborgin Reykjavík
n Reykjavík valin bókmenntaborg UNESCO
Þ
etta þýðir það að við
erum búin að fá við-
urkenningu Unesco
á því að Reykjavík
sé menningarborg
og hafi mikilvægu hlutverki
að gegna og verðmætum að
miðla alþjóðlega, sérstaklega
á vettvangi bókmennta og
orðsins lista. Svo þýðir þetta
náttúrlega að við munum
leggja ríkari áherslu á orðs-
ins listir í Reykjavík en við
höfum áður gert. Það verður
gert með ýmsum hætti,“ seg-
ir Svanhildur Konráðsdóttir,
sviðsstjóri Menningar- og
ferðamálasviðs Reykjavíkur-
borgar, aðspurð hvaða þýð-
ingu það hafi fyrir Reykja-
vík að vera valin ein af
bókmenntaborgum UNESCO.
Hún segir þetta vera mik-
inn heiður fyrir borgina. Í út-
nefningunni segir meðal
annars að Reykjavík státi af
framúrskarandi bókmennta-
hefð í formi ómetanlegra mið-
aldabókmennta sem varð-
veittar séu í borginni og eru
þar sérstaklega nefndar Ís-
lendingasögurnar, Eddukvæði
og Íslendingabók.
Svanhildur segir mikla
undirbúningsvinnu liggja
að baki umsókninni. „Það
er orðið vel á annað ár sem
við höfum verið að vinna að
þessu og umsóknin er um
130 blaðsíður. Þar þurftum
við að kortleggja bókmennta-
arf, bókmenntalífið, útgáfu,
menntun og það sem snýr
að skólastarfi og svo fram-
vegis. Einnig þurftum við
auðvitað að gera grein fyr-
ir því hver okkar framtíðar-
sýn væri og hvað við hefðum
fram að færa í alþjóðasam-
starfi skapandi borga. Í bréf-
inu frá UNESCO segir að þeir
hafi líka horft til þess hvað ís-
lenski bókmenntaarfurinn er
ríkur hér og hvað hann skipt-
ir miklu máli í alþjóðlegu og
bókmenntalegu samhengi.“
viktoria@dv.is
Leggja áherslu á orðsins listir Í tilefni þess að Reykjavík hefur verið valin ein af bókmenntaborgum UNESCO
verður lögð ríkari áhersla á orðsins listir.
Blómstrandi
Bogomil
Hátíðin Blómstrandi dagar fer
fram í Hvergerði um næstu
helgi. Þar verður ýmislegt á
dagskrá, svo sem tónleikar
með Bogomil Font og Hákörl-
unum á Hótel Náttúru. Tón-
leikarnir eru föstudaginn 12.
ágúst klukkan 22. Þennan
sama daga fara fram Berg-
þórutónleikar klukkan 21 í
Hveragerðiskirkju. Þar verður
leikið valið efni úr söngvasafni
Bergþóru Árnadóttur. Á laug-
ardag er svo blómadansleikur
á Hótel Örk þar sem Á móti sól
leikur fyrir dansi.
L
andsbankinn hefur ver-
ið styrktaraðili Menn-
ingarnætur frá upphafi
og þeirra styrkur felst
í því að styrkja þátt-
takendur beint. Þessir styrkir
eru hugsaðir svona sem minni
hvatningarstyrkir. Þeir fara
beint í umgjörð viðburðanna,“
segir Auður Rán Þorgeirsdóttir
annar verkefnastjóra viðburða
hjá Höfuðborgarstofu sem sér
um skipulagningu Menningar-
nætur. Viðburðurinn er hald-
inn í sextánda sinn þann 20.
ágúst næstkomandi með viða-
mikilli dagskrá.
Hún segir styrkina koma
að góðum notum fyrir ýmsa
listamenn. „Við viljum styðja
sem flesta til að framkvæma
sína viðburði. Þetta eru ekki
háar upphæðir en það skiptir
oft máli fyrir fólk að geta sótt í
þennan sjóð og sótt um.“
Um 60 umsóknir bárust
og 50 fengu styrki á bilinu 50–
200 þúsund krónur hver. „Það
voru fleiri umsóknir í ár en hafa
verið. Þetta er valið af stjórn
Menningarnætur.“
Hún segir nokkur skilyrði
fyrir því að fólk fái styrk. „Allir
viðburðir verða að vera ókeyp-
is og þeir verða að sýna fjöl-
breytni og höfða til sem flestra.“
Auður segir atriðin sem
fengu styrk vera af fjölbreytt-
um toga. Allt frá heimilisleg-
um garðtónleikum til minni
listahátíða. Styrkir voru veittir
í flokkunum tónlist, leiðsögn
og fræðslu, leiklist, fjöllistavið-
burðum, gakktu í bæinn, dans,
myndlist, ljósmyndun og fleira.
viktoria@dv.is
Styrkir veittir til menningarviðburða
n Menningarnæturpottur Landsbankans veitti 50 styrki til atriða á Menningarnótt
Mikið líf á Menningarnótt Það er jafnan mikið um að vera á menningarnótt og margir sem koma að viðburð-
inum. 50 atriði fengu styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans í ár.
W
ill Rodman er vís-
indamaður sem
leitar að lækn-
ingu við Alzhei-
mer-sjúkdómn-
um með því að gera tilraunir
á simpönsum. Eftir hræði-
legt óhapp neyðist hann til að
taka að sér eitt afsprengi til-
rauna sinna, óvenjugáfaðan
simpansa unga.
Leikstjórinn Rupert Wyatt
á að baki eina aðra mynd í
fullri lengd, en þetta verð-
ur að teljast frumraun hans í
Hollywood. Handritshöfundar
myndarinnar hafa ekki beint
verið iðnir við kolann undan- farin ár, því að síðasta mynd
þeirra var The Relic frá árinu
1997. Það kemur í raun og
veru ekki á óvart því handritið
virkar eins og það hafi legið og
safnað ryki í mörg ár.
Persónurnar eru illa skrif-
aðar, flestar mjög flatar og of-
ureinfaldar eins og til dæm-
is yfirmaður Rodmans. John
Lithgow er allra skástur, en
frammistaða James Franco er
flöt og líflaus og lítur hann út
fyrir að nenna þessu ekki.
Verstur er Tom Felton
(Draco úr Harry Potter) sem
gengur nærri því að eyðileggja
myndina, en persóna hans er
ýkt upp úr öllu valdi og bein-
línis óþolandi, af allt öðrum
ástæðum en til var ætlast.
Kjánahrollurinn nær hámarki
þegar Felton mælir tvo af
þekktustu frösum Apaplánetu-
myndanna og fer langt með að
eyðileggja þá.
Aparnir eru tölvugerðir í
þessari tilraun, en ekki menn
í búningum eins og í gamla
daga. Það virkar heilt yfir nokk-
uð vel en brellurnar eru langt
frá því að vera eins frábærar og
haldið hefur verið fram. Sum
atriði virka hálfköruð, sérstak-
lega þar sem aðalpersónan
Sesar kemur við sögu. Andy
Serkis stendur sig þó vel og eru
hreyfingar hans og líkamstján-
ing raunveruleg. Margir af hin-
um öpunum líta samt vel út,
t.d. Koba, hálfblindi apinn af
rannsóknastofunni.
Gömlu myndirnar um
Apaplánetuna virkuðu vegna
þess að það var greinilegt að
þær áttu ekki að vera tekn-
ar mjög alvarlega. Þær voru
á vissan hátt hallærislegar en
höfðu mikinn sjarma og sterka
karaktera. Það vantar allt slíkt
í þessa mynd. Við það bland-
ast síðan illa skrifaðar línur og
vandræðaleg samtöl sem bein-
línis fá mann til að halda fyrir
eyrun.
Rise of the
Planet of the Apes
Leikstjóri: Rupert Wyatt
Handrit: Rick Jaffa, Amanda Silver.
Leikarar: Andy Serkis, James
Franco, John Lithgow, Freida Pinto,
Brian Cox, Tom Felton.
105 mínútur
Bíómynd
Jón Ingi
Stefánsson
Upprisa apanna James Franco og Freida Pinto Frammistaða Fran-
cos er líflaus og leit hann út fyrir að nenna þessu ekki.
Sesar Andy
Serkis stendur
sig vel þó svo að
tölvuteikningin
hafi ekki alltaf
heppnast vel.