Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Síða 23
Úttekt | 23Mánudagur 8. ágúst 2011
sem erfiði og þrátt fyrir að
frægðarsól Duran Duran hafi
hnigið til viðar undir lok ní
unda áratugarins hafa böndin
sem tengdu Simon og Yasmin
árið 1985 reynst traust allt til
dagsins í dag.
Safn fyrirsætunnar
Nú er rétt að árétta að ekki
er um einstefnu að ræða; að
popparar horfi til tískuheims
ins í leit að lífsförunaut, því
jöfnunni má allt eins snúa við.
Gítarleikari Strokes, Albert
Hammond yngri, er yngri tón
listarunnendum eflaust að
góðu kunnur en fólk sem kom
ið er yfir miðjan aldur man
sennilega betur eftir föður
hans, Albert Hammond, sem
átti þó nokkra smelli á áttunda
áratug síðust aldar; I’m a Tra
in, It Never Rains in Southern
California og fleiri.
Hammond yngri var um
skeið í sambandi með fyrirsæt
unni Agyness Deyn, sem mun
vera nokkuð hátt metin á sín
um starfsvettvangi. Reyndar
sagði Agyness skilið við Ham
mond yngri árið 2009 en hún
ætti að vera nokkuð vel skóluð
í því þar sem hún hefur í gegn
um tíðina verið í sambandi við
allmarga tónlistarmenn, til
dæmis Josh Hubbard í Padd
ingtons, Miles Kane í Last Sha
dow Puppets og Alex Green
wald í Phantom Planet.
Eins og málum er háttað
nú gætu fyrrverandi kærast
ar hennar stofnað hljómsveit
saman; The Ex’s, Hinir fyrr
verandi, og hver veit nema
fjöldinn gæti nægt til að stofna
stórhljómsveit þegar fram líða
stundir.
Þess má til gamans geta að
Albert Hammond yngri er, sem
fyrr segir, sonur Alberts Ham
mond og Claudiu Fernández,
argentínskrar fyrrverandi fyrir
sætu og fegurðardrottningar,
og ljóst að hvað varðar foreldra
hans þá laðaðist tónlistarmað
urinn að tískudrottningum –
eða öfugt eða bæði.
Strandvörðurinn og
slæmu strákarnir
Næst skal nefna til sögunnar
konu að nafni Pamela Ander
son. Ekki er hægt um vik að
ákvarða hvaða flokki hún til
heyrir, en hún er titluð sem
leikkona, fyrirsæta, framleið
andi og ýmislegt fleira. Frægð
hennar byggir öðru fremur
á þungavigtarþáttaröðinni
Strandvörðum en í henni var
hún í burðarhlutverki ásamt
David Hasselhoff, leikara af
sömu stærðargráðu og henn
ar.
Frægð hennar náði hæstu
hæðum þegar myndband með
henni og rokkaranum Tommy
Lee úr hljómsveitinni Mötley
Crüe lak á netið. Pamela og
Tommy voru gift árin 1995 til
1998, en hafa átt í erfiðleikum
með að segja skilið við hvort
annað því í kjölfar skilnaðar
Músíkantar
og módel
þeirra voru þau saman með
hléum til ársins 2009.
Tommy Lee er ekki það
sem gjarna er kallað tengda
mömmudraumur enda hefur
hann orðspor slæma stráksins
í heimi rokksins. Næsti eigin
maður Pamelu var af nokkuð
svipuðum toga og vakti mikla
athygli. Pamela gekk að eiga
rokkarann Kid Rock árið 2006.
Samband þeirra hófst árið
2001 eftir að þau kynntust á
tónlistarhátíð VH1 og þau trú
lofuðust árið eftir. Einhverjar
vöflur virðast þó hafa verið á
því trúlofuninni var slitið síð
ar.
Öllum að óvörum gengu
þau í hnapphelduna árið
2006, en Adam var ekki lengi
í paradís því þau skildu fimm
mánuðum síðar.
Módelsafnarinn
Í yfirreið af þessum toga væri
ófyrirgefanlegt að líta fram hjá
rokkaranum Rod Stewart. Um
afrek Rods í tónlistinni þarf
vart að fjölyrða, en þess utan
hafa kvennamál hans oftar
en ekki verið milli tannanna
á fólki.
Í þeim hópi kvenna sem
Rod hefur verið í slagtogi með
eða kvænst er að finna að
minnsta kosti fjórar fyrirsætur,
leikkonu og fyrrverandi eigin
konu leikara. Frá 1971 til 1975
var Rod í sambandi með fyrir
sætunni Dee Harrington. Við
keflinu tók sænska leikkon
an Britt Ekland, sem var gift
leikaranum Peter Sellers á sjö
unda áratugnum. Samband
þeirra varði til 1977.
Rod kvæntist fyrsta skipti
árið 1979, Alönu Hamilton,
fyrrverandi eiginkonu leikar
ans George Hamilton, og ent
ist hjónabandið í fimm ár.
Þegar þar var komið sögu
var Rod farinn að renna hýru
auga til fyrirsætunnar Kelly
Emberg en sjö árum síðar,
1990, voru glæðurnar í sam
bandi þeirra aska ein.
Við tók fyrirsætan Rachel
Hunter og gengu hún og Rod
í hjónaband árið 1990, slitu
samvistir níu árum síðar og
skildu endanlega árið 2006.
Rod Stewart var þó ekki
lengi utan hnappheldu því
hann gekk í hjónaband með
Penny Lancaster árið 2007.
Penny Lancaster er – merki
legt nokk – fyrirsæta.
Það er vel við hæfi að enda
umfjöllun um Rod Stewart á
orðum sem hann lét falla með
skírskotun til skilnaða sinna:
„Í stað þess að kvænast aftur,
þá ætla ég að finna konu sem
ég kann ekki við og bara gefa
henni hús.“
Bowie og Iman
Um hjónaband tónlistar
stjörnunnar Davids Bowie og
fyrirsætunnar Iman er ekki
margt að segja. Þau gengu í
hjónaband árið 1992 og litlum
sögum fer af einkalífi þeirra.
Bowie er eitt stærsta nafn
rokksögunnar og áhrif hans
á hana verða seint fullmetin.
Iman er tískumódel og hefur
einnig drepið fæti inn í veröld
leiklistarinnar, meðal annars
í myndinni No Way Out með
Kevin Costner og í bandarísku
sjónvarpsþáttunum Miami
Vice. Iman hefur einnig getið
sér gott orðspor vegna starfa
sinna að mannúðarmálum.
Veltandi steinar safna
ekki mosa
Næstan skal nefna til sög
unnar tónlistarmann af
sömu stærðargráðu og
Bowie, eilífðarrokkarann
Mick Jagger, en hann og
Bowie sameinuðu krafta sína
í laginu Dancing in the Street
árið 1985, því mikla tískuári,
og bar myndbandið með lag
inu þess skýr merki, en nóg
um það.
Mick Jagger er ekki eftir
bátur kollega síns Rods Stew
art með tilliti til sambanda
við fyrirsætur. Þrátt fyrir að
hafa aðeins kvænst í tvígang
hefur hann verið orðaður við
fjölda fagurra fljóða sem hafa
átt það sammerkt að hafa
unnið fyrirsætustörf.
Reyndar voru þær kon
ur sem hann lét svo lítið að
kvænast báðar fyrirsætur.
Þar ber fyrsta að nefna Bi
öncu De Macias sem hann
kvæntist 1971. Hún er nú um
stundir ötull talsmaður sam
félags og mannréttindamála
en var á árum áður leikkona
og fyrirsæta.
Seinni kona Jaggers var
ofurfyrirsætan Jerry Hall sem
kastaði sambandi sínu og
popparans Bryans Ferry, úr
Roxy Music, fyrir róða vegna
Jaggers. Mick og Jerry létu
gefa sig saman að hindúasið
í Indónesíu árið 1990. Síðar
sá Mick Jagger ástæðu til að
bera brigður á lögmæti at
hafnarinnar og hjónabandið
var ógilt árið 1999.
Á meðal þeirra kvenna
sem hafa verið í sambandi við
Mick Jagger má nefna Chrissie
Shrimpton, Anitu Pallenberg,
Cörlu Bruni, Sophie Dahl og
Luciönu Gimenez, sem allar
eiga það sameiginlegt að hafa
verið fyrirsætur á einum eða
öðrum tímapunkti. Núna er
Mick Jagger í sambandi með
fyrirsætunni L’Wren Scott,
en reyndar ku fyrirsætustörf
hennar hafa vikið að einhverju
leyti fyrir hönnunarstörfum að
undanförnu.
Þess má til gamans geta
að Georgia May Jagger, dóttir
Micks, og Django James, sonur
Daves Stewart úr Eurythmics,
eiga í sambandi.
Bítilssonur og fyrrverandi
Bítlar
Afsprengi Johns Lennon og
Yoko Ono, Sean Lennon,
er Íslendingum að góðu
kunnur. Sean er engin und
antekning frá því sem að
framan hefur verið til um
fjöllunar. Sean er nú í sam
bandi við bandarísku fyrir
sætuna Charlotte Kemp
Muhl sem hóf störf sem slík
þrettán ára að aldri og varð
sextán ára yngsta fyrirsæt
an sem hafði prýtt forsíðu
breska tímaritsins Harper’s
and Queen. Charlotte hefur
unnið að tónlistartengdum
verkefnum með Sean, með
al annars í hljómsveitinni
The Ghost of a Saber Tooth
Tiger. Einnig stofnaði hún
með honum útgáfufyrirtæk
ið Chimera.
Félagi föður Seans, Paul
McCartney, hefur einnig
leitað í raðir fyrirsætna því
hann var í hjónabandi með
Heather Mills, fyrrverandi
– reyndar – fyrirsætu. Ringo
Starr, trymbill Bítlanna,
kvæntist leikkonunni og
fyrirsætunni Barböru Bach
1981 og hefur það hjóna
band haldið allar götur síð
an.
George Harrison, gítar
leikari Bítlanna, kvæntist
fyrirsætunni Pattie Boyd
árið 1966, þau skildu 1967
og skömmu síðar fyllti önn
ur rokkstjarna, Eric Clapton,
skarð George.
Af framansögðu má ætla
að heimar tónlistar og tísku
skarist meira en fólk kann að
gera sér grein fyrir og hafa
þekktir einstaklingar í röð
um beggja löngum haft mik
il áhrif á þá sem standa utan
heima tónlistar og tísku.
Mick Jagger og Jerry Hall
Jerry var seinni kona Jaggers, en
hjónaband þeirra var ógilt.
Síungur tónlistarmaður með
Rachel Hunter Rod Stewart hefur
vart leitað út fyrir raðir fyrirsæta í leit
að kvonfangi.
„ Í stað þess að
kvænast aftur
ætla ég að finna
konu sem ég kann
ekki við og bara gefa
henni hús.