Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2011, Qupperneq 24
24 | Sport 8. ágúst 2011 Mánudagur
Breski hnefaleikakappinn Ricky Hat-
ton lagði öll spilin á borðið í við-
tali við sunnudagsútgáfu Daily Star
um helgina. Þar sagði hann frá því
hversu langt hann sökk í ruglinu.
Eins og margir muna birti götublað-
ið The Sun frægar myndir af honum
þar sem hann var vel við skál með
nefið á bólakafi í haug af kókaíni.
Hatton lenti í miklum vítahring eftir
að hafa tapað illa fyrir Manny Pac-
quiao.
„Ég átti mjög erfitt með mig eftir
að hafa tapað gegn Manny í tveimur
lotum. Ég hef alltaf verið stoltur box-
ari og að tapa svona illa var vand-
ræðalegt. Það rotaði mig alveg. Ég
tók mér smá frí eftir þann bardaga
og ætlaði mér að koma aftur. En ég
var svo langt niðri að hlutir sem voru
auðveldir áður voru orðnir erfiðir.
Að koma mér af stað út að hlaupa
og grenna mig var mér ofviða,“ segir
Hatton.
Á þessum tíma drakk Hatton mjög
mikið og þegar eiturlyfjaneyslan
hófst einnig náði Hatton sínum
lægsta punkti í lífinu.
„Ég hef alltaf elskað að drekka.
En það er samt það versta sem mað-
ur getur gert þegar maður er orðinn
þunglyndur eins og ég var. Svo ofan
á allt fór ég að neyta eiturlyfja til að
knýja drykkjuna áfram. Ég vissi ekk-
ert hvað ég var að gera,“ segir Hatton
sem hótaði sjálfsvígum ótt og títt.
„Mér leið svo illa að ég öskraði á
Jennifer kærustuna mína að ég ætl-
aði að drepa mig. Ég meinti það ef-
laust þá. En allt breyttist einn daginn
þegar hún yfirgaf mig í nokkra daga
og fór til móður sinnar. Hún hafði
stutt mig í einu og öllu en allt í einu
var hún farin. Þá vissi ég að ég varð
að taka mig á.“
Hatton segist hafa það betra í dag.
„Ég á von á barni, á frábæra kærustu
og barn og ætla að fara að taka þjálf-
araréttindin. Ég er búin að rota mína
djöfla og þó mín verði ekki minnst
sem besta breska boxarans frá upp-
hafi verð ég alltaf sá vinsælasti,“ segir
Ricky Hatton.
tomas@dv.is
Erfitt tap Hatton tapaði illa gegn Manny Pacquiao og fór að drekka mikið. H&N-MyNd REutERs
Ricky Hatton íhugaði sjálfsvíg þegar ruglið var hvað mest:
„Búinn að rota djöflana mína“
Eftir fjörutíu og fimm mínút-
ur af fótbolta á Wembley í leik Eng-
landsmeistara Manchester United
og bikarmeistara Manchester City í
leiknum um Samfélagsskjöldinn var
aðeins eitt í umræðunni: Voru meist-
ararnir að kaupa óhæfan markvörð,
David De Gea, á ríflega sautján millj-
ónir punda? Það virtist sem sú væri
raunin þótt United væri betri aðilinn
voru meistararnir tveimur mörkum
undir í hálfleik. Joleon Lescott skor-
aði fyrst með skalla en De Gea leit
vægast sagt illa út þar. Fór ekki út í
boltann og var sestur á rassinn áður
en Lescott kom við knöttinn. Seinna
markið var sérstaklega vont þar sem
hann sá þrumuskot Edins Dzeko alla
leið en það hafnaði samt í ramman-
um, ekki einu sinni úti við stöng. Það
var De Gea til happs að hann þurfti
ekki að koma mikið meira við bolt-
ann.
Endurkoma
Manchester United hefur lagt það
í vana sinn undir stjórn Ferguson
að lenda oft undir með tveimur til
þremur mörkum en koma til baka
þegar mest á reynir. Það gerðu meist-
ararnir á sunnudaginn en Fergu-
son gerði þrjár breytingar í hálfleik.
Hann hvíldi miðverðina Ferdinand
og Vidic og setti hinn unga Tom Cle-
verley inn á fyrir Carrick. Þetta virt-
ist kveikja í United-liðinu, sérstak-
lega innkoma Cleverley, því ekki
voru liðnar fimmtán mínútur þeg-
ar Smalling og Nani voru búnir að
jafna fyrir United. Þeir rauðklæddu
réðu lögum og lofum á vellinum og
þurfti De Gea til allrar hamingju að-
eins að verja eitt skot í seinni hálfleik
sem hann gerði þó vel. Sigurmark-
ið var æði skrautlegt en það skor-
aði Nani eftir mikil mistök Vincents
Kompany. Slapp Nani einn inn frá
miðju og átti ekki í vandræðum með
að tryggja United sigurinn, 3–2, eftir
enn eina endurkomuna.
stjórinn stoltur
„Leikmenn mínir eiga heiður skil-
ið, þeir héldu haus,“ sagði Sir Alex
Ferguson við Sky Sports eftir sigur-
inn. Þó De Gea fái eflaust orð í eyra
frá gamla manninum í vikunni varði
hann sinn mann aðspurður um
mörkin tvö sem Spánverjinn ungi
fékk á sig. „Það er erfitt að segja hvort
hann hafi átti að gera betur í seinna
markinu,“ var það eina sem hann
sagði. City-menn voru mjög grimm-
ir í leiknum og flugu nokkrar harðar
tæklingar. „Við erum með mjög góð-
an hóp. Okkar strákar hafa hugrekki
til að halda boltanum og hræðast
ekki grófar tæklingar,“ sagði Fergu-
son.
Meistararnir hefja leik í ensku úr-
valsdeildinni á sunnudaginn á úti-
velli gegn WBA á meðan Manches-
ter City mætir nýliðum Swansea á
mánudaginn eftir viku.
n Manchester united vann samfélagsskjöldinn n Lenti tveimur mörkum undir gegn City
n Nani – hetjan með mark í uppbótartíma n david de Gea veldur áhyggjum í markinu
Enn ein endurkoman
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Fleiri titlar í safnið Manchester United
vann Samfélagsskjöldinn.
H&N-MyNd REutERs
Toppliðið í
Vesturbænum
Þrettánda umferðin í Pepsi-deild
kvenna hefst á þriðjudagskvöldið
með fjórum leikjum. Topplið Stjörn-
unnar
heldur í
Vesturbæ-
inn og
mætir KR
sem er í
áttunda
sæti en
Stjarnan
hefur fimm
stiga for-
skot á Val
eftir sigur
á Hlíðarendastúlkum í síðustu um-
ferð. Einnig mætast á þriðjudaginn
nýliðar Þróttar og ÍBV á Valbjarnar-
velli, Þór/KA tekur á móti Íslands-
og bikarmeisturum Vals og Grinda-
vík verður í heimsókn hjá Blikum í
Kópavogi.
Það kom loks að því að Andre Villas-
Boas, knattspyrnustjóri Chelsea, fengi
sér leikmann. Chelsea er nú að landa
belgíska undrabarninu Romelu Lu-
kaku frá Anderlecht en kaupverðið er
talið nema um 20 milljónum punda.
Lukaku er það sem kallast á góðri ís-
lensku undrabarn og hann stendur al-
gjörlega undir nafni.
Ellefu dögum eftir sextán ára af-
mæli sitt spilaði Lukaku sinn fyrsta leik
fyrir Anderlecht. Árið eftir var hann
orðinn fastamaður í liðinu og endaði
sem markahæsti leikmaður belgísku
úrvalsdeildarinnar aðeins sautján ára.
Tímabilin 2009/2010 og 2010/2011
spilaði Lukaku 95 leiki fyrir Anderlecht
í öllum keppnum og skoraði 39 mörk,
enn nokkuð frá því að vera orðinn tví-
tugur. Hann hefur nú þegar spilað tíu
landsleiki fyrir Belga og skorað í þeim
tvö mörk. Eins og með svo marga leik-
menn sem ættaðir eru frá Afríku hafa
ekki allir trúað því að Lukaku sé jafn-
ungur og raun ber vitni. Líkamsburð-
ir hans eru allt að óeðlilegir fyrir svo
ungan dreng. Sjálfur hann ekkert spáð
í hvað aðrir segja og einbeitir sér að því
að skora mörk.
Lukaku er hvergi banginn við að
bætast í hóp stórstirna Chelsea og veit
að hann getur fljótlega komið sér í lið-
ið. „Algjörlega. Ef ég er að spila með
betri leikmönnum verð ég að bæta
mig fljótt. Ég veit að ég fer ekki að byrja
fyrsta leik en hjá betra liði ætti ég að
verða betri líka. Ætli ég þurfi ekki eitt
tímabil til að aðlagast boltanum alveg
á Englandi. Það er samt nóg af leikjum
þannig að ég mun alltaf fá eitthvað að
spila,“ segir Romelu Lukaku.
tomas@dv.is
Romelu Lukaku gengur í raðir Chelsea:
Algjört undrabarn á Brúna
Aðeins átján ára Romelu
Lukaku hefur nær drottnað yfir
belgísku deildinni undanfarin ár.
H&N-MyNd REutERs
Úrslit
Pepsi-deildin
ÍBV - Valur 1-1
1-0 Ian Jeffs (20´) 1-1 Jón Vilhelm Ákason (‘77)
Stjarnan - Þór 5-1
1-0 Garðar Jóhannsson (‘3) 1-1 David Disztl (‘12)
2-1 Jesper Jensen (‘38) 3-1 Halldór Orri Björnsson
(‘48) 4-1 Garðar Jóhannsson (‘56) 5-1 Garðar
Jóhannsson (‘89) Rautt spjald: Baldvin Sturluson,
Stjörnunni (‘44)
Grindavík - Breiðablik 1-1
0 - 1 Kristinn Jónsson (́ 11) 1 - 1 Scott Ramsay (́ 58)
KR - Víkingur 3-2
1-0 Baldur Sigurðsson (́ 23) 1-1 Þorvaldur Sveinn
Sveinsson (́ 24) 2-1 Kjartan Henry Finnbogason
(́ 51) 2-2 Helgi Sigurðsson (76) 3-2 Kjartan Henry
Finnbogason. Rautt spjald: Guðmundur Reynir
Gunnarsson (́ 33)
Fram - Fylkir 0-0
FH - Keflavík 1-0
1-0 Atli Viðar Björnsson (80) Rautt spjald: Adam
Larsson (Keflavík) (́ 6)
Staðan
1 KR 12 9 3 0 28:9 30
2 ÍBV 13 8 2 3 20:11 26
3 FH 14 7 4 3 28:18 25
4 Valur 14 7 4 3 20:11 25
5 Stjarnan 14 6 4 4 28:22 22
6 Fylkir 14 5 4 5 21:24 19
7 Keflavík 13 5 2 6 17:18 17
8 Þór 14 5 2 7 21:28 17
9 Breiðablik 14 4 4 6 21:26 16
10 Grindavík 14 3 4 7 17:28 13
11 Víkingur R. 14 1 5 8 12:25 8
12 Fram 14 1 4 9 7:20 7
SAMFÉLAGSSKJÖLDURINN
Man. United - Man. City 3-2
0-1 Joleon Lescott (38.), 0-2 Edin Dzeko (45.+1), 1-2
Chris Smalling (52.), 2-2 Nani (58.), 3-2 Nani
(90.+4).
CHAMPIONSHIP-DEILDIN
Coventry - Leicester 0-1
Brighton - Doncaster 2-1
Bristol City - Ipswich 0-3
Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í stöðu
miðvarðar hjá Ipswich.
Bunrley - Watford 2-2
Derby - Birmingham 2-1
Middlesbrough - Portsmouth 2-2
Hermann Hreiðarsson lék fyrstu 64 mínúturnar
fyrir Portsmouth og nældi sér í gult spjald.
Nott. Forest - Barnsley 0-0
Peterborough - Crystal Palace 2-1
Reading - Millwall 2-2
Brynjar Björn Gunnarsson sat allan tímann á
varamannabekk Reading í leiknum.
Southampton - Leeds 3-1
West Ham - Cardiff 0-1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með sínu
nýja liði, Cardiff.