Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Blaðsíða 8
É
g byrjaði að nota stera því þeir
eru „performance enhan-
cer“ [bæta frammistöðu innsk.
blm.] því mig langaði til að ná
ákveðnu markmiði í kraftlyft-
ingum sem ég og gerði. Ég ákvað að
taka átta vikna sterakúr til að setja
met,“ segir tvítugur háskólanemi sem
byrjaði að nota stera á þessu ári. „Svo
er ég á mínum öðrum sterakúr núna
og það er eiginlega bara til að líta betur
út,“ segir háskólaneminn sem vill ekki
láta nafns síns getið. Hann segist með
steranotkuninni hafa getað létt sig um
20 kíló án þess að tapa vöðvamassa.
DV hefur upp á síðkastið fjallað
um aukinn innflutning á sterum og
áhyggjur lögreglunnar af því mikla
magni sem er í umferð. Svo virðist sem
sterunum sé einkum haldið að ungu
fólki. Samkvæmt heimildum DV er
steranotkun töluvert algeng á meðal
ungra karlmanna sem vilja auka kraft
sinn og bæta útlit. Lögregla telur ríka
ástæðu til að vara við steranotkun
enda geta aukaverkanir hennar verið
alvarlegar.
Nota eiginlega allir stera
Háskólaneminn er meðlimur í kraft-
lyftingafélaginu ÍFK Metal en það er
annað stærsta kraftlyftingafélagið á Ís-
landi. Ólíkt Kraftlyftingasambandi Ís-
lands eru keppendur innan ÍFK Metal
ekki lyfjaprófaðir. Hann segist þó vita
til þess að einhverjir keppendur innan
Kraftlyftingasambandsins noti stera.
Hann þekkir mjög marga sem nota
stera að staðaldri. „Af þeim sem eru að
keppa hjá Metal þá eru þeir margir. Ég
æfi í Laugum og það eru allir að gera
eitthvað, líka stelpurnar. Maður sér oft
kvenfólk sem er mjög augljóslega að
nota stera. Þú sérð að andlitið á þeim
er ekki í lagi lengur. Þannig að það er
nokkuð um óskynsamlega notkun.“
Í hans vinahópi er talað mjög op-
inskátt um steranotkun og félagarnir
bera saman bækur sínar, hvað virkar
og hvað ekki. „Við erum ekkert feimnir
við þetta. Ég veit hvað vinir mínir eru
að taka og þeir vita hvað ég er að gera.“
Verður að þekkja rétta fólkið
Eftir sterakúra tekur hann meðal ann-
ars inn efnið hCG til að koma eðli-
legri hormónastarfsemi aftur í gang.
Þannig getur hann handstýrt horm-
ónaframleiðslunni, eins og hann orðar
það. Þá þarf hann einnig að taka inn
SERM, sem meðal annars er gefið
krabbameinssjúklingum. Hann segir
þó algengt að steranotendur á Íslandi
sleppi þessum lyfjum en vill meina að
þá verði aukaverkanirnar meiri.
Til að kaupa stera verður maður
að þekkja rétta fólkið, að hans sögn.
Hann tekur þó fram að salan fari ekki
fram inni í líkamsræktarstöðvunum
sjálfum. „Ég veit hins vegar að það eru
einhverjar fæðubótaefnaverslanir sem
selja þetta undir borðið. Persónulega
finnst mér þó þægilegra að tala bara
við fólk sem ég þekki. Þú vilt vita hvað-
an þetta kemur.“ Hann segir að flestir
sem selji stera séu viðloðandi lyftinga-
bransann en hCG kaupir hann hins
vegar af fimm barna móður.
Auðvelt að verða háður
Vitað er að steranotendur geta orð-
ið andlega háðir sterunum. Þung-
lyndi og sjálfsmorðshugleiðingar
eru algeng fráhvarfseinkenni þeg-
ar notkun er hætt. Háskólanem-
inn segist hafa velt þessum áhættu-
þætti fyrir sér en hann sé tilbúinn
að taka sénsinn. „Lífið er betra á
sterum. Ekki bara geturðu borð-
að eins og þú vilt og fitnar ekkert
heldur bætirðu bara á þig vöðvum.
Ekki bara líturðu betur út, þú þarft
líka að sofa minna og þú ert í betra
skapi.“ Þá vill hann einnig meina að
námsárangur hans hafi aukist eftir
að hann byrjaði að nota stera. Í ljósi
þessara breytinga sem hann seg-
ist finna á sjálfum sér, skilur hann
mjög vel að auðvelt sé að verða
andlega háður sterum. Hann segist
alveg sjá fyrir sér að eftir að hann
hafi eignast börn þá muni hann
taka stera inn til frambúðar.
Önnur þekkt aukaverkun ster-
anotkunar er hækkun blóðþrýst-
ings, aukin hætta á hjarta- og
æðasjúkdómum, þar á meðal heila-
blóðfalli. Háskólaneminn hefur þó
ekki miklar áhyggjur af því. Hann
segir lífsstíl sinn mjög heilbrigð-
an; hann hreyfi sig mjög mikið og
borði hollan mat. Aukaverkanirn-
ar sem hann hefur tekið eftir eru
þær að hann verður uppstökkari á
ákveðnu efni og er hugsanlega að-
eins loðnari.
8 Fréttir 21. nóvember 2011 Mánudagur
„Eigum að vera stolt“
n Margrét vill láta þýða rannsóknarskýrsluna yfir á ensku
Þ
að er ekki einkamál okkar að
það varð hérna hrun. Það urðu
rosalega margir fyrir þessu,“ seg-
ir Margrét Tryggvadóttir, þing-
maður Hreyfingarinnar, sem hefur lagt
fram tillögu til þingsályktunar um þýð-
ingu skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis yfir á ensku. Meðflutningsmenn
tillögunnar eru Birgitta Jónsdóttir, Þór
Saari og Eygló Harðardóttir.
Skýrslan sem fjallar um aðdrag-
anda og orsakir falls íslensku bank-
anna kom út í apríl 2010. Hún hef-
ur ekki verið þýdd á önnur tungumál
en hlutar hennar eru aðgengilegir á
ensku á vef Alþingis. Flutningsmenn
tillögunnar hafa áður farið fram á það
við forsætisnefnd Alþingis að skýrslan
yrði þýdd, en ekki hefur verið brugðist
við því.
„Þetta snertir miklu fleiri en bara
Íslendinga og svo er það líka það að
við erum að horfa á heimskreppu og
það er svipuð rót mjög víða. Þannig að
ég held að það geti mjög margir lært af
þessari skýrslu.“
Margrét fann fyrir því þegar hún
var að afla sér meðflutningsmanna
að margir svitnuðu við tilhugsunina
um þýðingu skýrslunnar yfir á ensku.
„Fólk var einhvern veginn spéhrætt.
Að allur heimurinn gæti farið að lesa
þetta.“ Margrét telur þó að það þurfi
ekki að hafa neinar áhyggjur af því,
enda hafi þeir sem eru að vinna fyrir
kröfuhafa væntanlega látið þýða við-
eigandi kafla nú þegar.
„Það þarf hugrekki til að gera þetta
og við sýndum ótrúlegt hugrekki með
að fara í þessa vinnu. Þetta heppnaðist
svakalega vel og mér finnst að við eig-
um að vera stolt af þessu.“
www.omnis.is444-9900
Dell Inspiron veitir þér innblástur.
Opnunartilboð í tilefni af nýrri verslun
í Ármúla 11, aðeins 109.900 kr.
- Við þekkjum tölvur
REYKJAVÍK Ármúli 11
REYKJANESBÆR AKRANES BORGARNES
Ekki einkamál Margrét segir hrun
íslensku bankanna ekki vera einkamál
þjóðarinnar. Því beri að þýða rannsóknar-
skýrsluna yfir á ensku.
Milljarða launa-
kostnaður
Rekstrarkostnaður gamla Lands-
bankans hefur numið tæpum 5,6
milljörðum króna á árinu, sam-
kvæmt uppgjöri sem var kynnt á
fundi slitastjórnar bankans með
kröfuhöfum á fimmtudag. Mestur
var kostnaðurinn á öðrum árs-
fjórðungi, eða rétt rúmir 2 millj-
arðar króna en hann lækkaði um
217 milljónir á þriðja ársfjórðungi.
Mestur kostnaður er vegna
launa og launatengdra gjalda, en
hann hefur numið 1.600 milljón-
um króna það sem af er ári. Inn-
lendur lögfræðikostnaður hefur
numið 558 milljónum og hefur er-
lendur lögfræðikostnaður numið
835 milljónum. Í innlendum lög-
fræðikostnaði felast meðal annars
greiðslur til þeirra sem sitja í skila-
nefnd og slitastjórn.
Fá bætur
vegna áreitni
yfirmanns
Plastfyrirtækið Promens, sem áður
hét Sæplast, hefur gert samning
við fjórar konur sem störfuðu hjá
fyrirtækinu um að þær fái greidd-
ar 26 milljónir króna í miska- og
skaðabætur vegna kynferðislegr-
ar áreitni og kynferðislegrar mis-
mununar sem þær urðu fyrir af
hálfu yfirmanns hjá fyrirtækinu í
Chicago í Bandaríkjunum.
Business Management Daily
greinir frá þessu, en samkvæmt
blaðinu kærðu konurnar fyrirtæk-
ið vegna áreitni mannsins. Kæran
barst á síðasta ári, en áreitnin
hófst árið 2007. Maðurinn mun
hafa boðið konunum fríðindi inn-
an fyrirtækisins gegn kynlífi, en
þegar þær höfnuðu tilboði hans
voru þær reknar.
Promens, sem rekur 45 verk-
smiðjur víða um heim, rekur ekki
lengur verksmiðjuna í Bandaríkj-
unum. Maðurinn sem varð uppvís
að hinni ósæmilegu hegðun hefur
verið rekinn.
Kaupir efni af
5 barna móður
n Tvítugur háskólanemi byrjaði að nota stera á þessu ári n Vill ná betri árangri og bæta
útlitið n Vinirnir tala opinskátt um steranotkun n Ætlar að taka stera til frambúðar
Aukaverkanir stera
n Eistu karlmanna geta minnkað
n Bólur í andliti
n Ofvöxtur á hári. Konum getur vaxið hár í andliti og víðar um líkamann, svo
sem á bringu og maga
n Karlmönnum geta vaxið brjóst
n Árásar- og ofbeldishneigð
n Lifrarskemmdir og lifrarkrabbamein
n Aukin hætta á hjarta- og æðasjúkdómum, þar á meðal heilablóðfalli
n Notendur vefaukandi stera geta orðið andlega háðir þeim. Þunglyndi og
sjálfsmorðshugleiðingar eru algeng fráhvarfseinkenni þegar notkun er hætt.
HEiMild: VísiNdAVEfur HáskólA íslANds
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Aukinn kraftur Steranotkun er mest meðal ungra karlmanna
sem vilja auka kraft sinn og bæta útlit. Aukaverkanirnar geta
hins vegar verið alvarlegar. MyNd PHoTos.coM