Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2011, Qupperneq 14
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 229,9 kr. 244,7 kr.
Algengt verð 229,7 kr. 243,7 kr.
Algengt verð 229,6 kr. 243,6 kr.
Algengt verð 229,9 kr. 243,9 kr.
Algengt verð 231,9 kr. 244,7 kr.
Melabraut 229,7 kr. 243,7 kr.
14 Neytendur 21. nóvember 2011 Mánudagur
Lækningarmáttur brenninetlunnar
n Líklega ein vanmetnasta lækningarjurt veraldar
B
renninetlan er hin ágætasta
lækningarjurt. Ef fólk þekkti
eiginleika hennar mundi
það fylla garða sína af jurt-
inni auk þess sem allar geymslur
væru fullar af þurrkaðri brenni-
netlu svo landsmenn ættu nægar
vetrarbirgðir. Þessu er haldið fram
á heimasíðu Heilsuhússins en þar
segir að jurtin sé líklega vanmet-
nasta lækningarjurt veraldar og
að horft hafi verið fram hjá henni
allt of lengi. Öll jurtin, stilkurinn,
blöðin, ræturnar og blómin, búi
yfir miklum lækningarmætti.
Þar segir einnig að Grikkir til
forna hafi notað jurtina til hreins-
unar en brenninetlan sé bæði
þvagræsandi og örvandi fyrir melt-
inguna. Nú sé því einnig haldið
fram að hún geti unnið á sykursýki
og jafnvel komið í veg fyrir ein-
hverjar tegundir krabbameina.
Það er þó vitað að brenninetlan
hafi bólgueyðandi eiginleika og hún
vinni gegn þvagfærasýkingum. Best
sé að neyta hennar fyrst á morgnana
eða eftir fyrstu máltíð dagsins. Mælt
er með að fólk drekki bolla á dag en
það framkalli mikla orku og geri fólki
kleift að takast á við lífið sem aldrei
fyrr.
Aðrir eiginleikar jurtarinn-
ar eru að hún vinnur gegn blóð-
leysi, er notuð gegn margs konar
gigt, svo sem liðagigt. Hún dregur
úr exemi, astma, ennis- og kinn-
holuvandamálum og nefkvefi. Auk
þess vinnur hún á margs konar
húðvandamálum og hreinsar bris-
kirtilinn.
gunnhildur@dv.is
Sanngjarnt verð
n Macland á Klapparstíg á lof skilið
fyrir frábæra þjónustu. Lesandi DV
lýsti ánægju sinni með starfsmenn
verslunarinnar og segir þá
vera með mikla þjónustu-
lund og vilji allt fyrir mann
gera. Lesandinn fór með
tölvuna sína í við-
gerð, fékk hana fljótt
til baka og segist hafa
borgað mjög sann-
gjarnt verð fyrir.
Tilboðin búin
n Lastið að þessu sinni fær Bakara-
meistarinn. Lesandi blaðsins lýsti
yfir óánægju sinni með svokallað
tilboð mánaðarins. Hans reynsla
er sú að bestu tilboðin séu yfirleitt
búin upp úr hádegi.
„Það lítur út eins og
þeir séu að lokka fólk
til að koma og kaupa.
Þegar varan er svo
ekki til þá endar fólk
á að kaupa dýrari vöru
sem er ekki á tilboði,“ sagði
umræddur lesandi.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Leitin taki
hámark
30 sekúndur
Neytendastofa sendi verslunum á
fimmtudag nánari leiðbeiningar
um túlkun reglna um verðmerk-
ingar og einingarverð við sölu á
vörum. Í þessum leiðbeiningum
kemur meðal annars fram að
stofnunin telji að verðleit neyt-
enda við notkun verðskanna skuli
að hámarki taka 30 sekúndur. Tak-
ist það ekki megi líta svo á að var-
an sé óverðmerkt að því er fram
kemur í umfjöllun um málið á vef
Neytendastofu. Eins og komið hef-
ur fram var verslunum leyft frá og
með 1. júní síðastliðnum að upp-
lýsa neytendur um verð vöru með
verðskönnun. Á það við um þær
vörur sem eru óverðmerktar og
forpakkaðar, til dæmis kjötvörur.
Fjölmörg góð áhrif Brenninetla er sögð hafa bólgueyðandi eiginleika og þá er hún sögð
vinna gegn þvagfærasýkingum.
L
eikföng úr plasti og þau sem
innihalda ilmefni menga
barnaherbergin með óæski-
legum efnum. Í herbergj-
um eldri barna bætast við
sjónvörp, farsímar og leikjatölv-
ur við þá hluti sem senda hættuleg
efni út í andrúmsloft herbergisins.
Neytendastofa upplýsir reglulega
á heimasíðu sinni um hættulegar
vörur á markaði í Evrópu og þar á
meðal leikföng.
Foreldrar ómeðvitaðir
Flestir foreldrar eru afar samvisku-
samir þegar kemur að öryggi og
heilsu barnanna sinna en á sama tíma
fylla þau herbergi barnanna af skað-
legum efnum og efnasamböndum.
Flestir eru ómeðvitaðir um að sjón-
vörp, tölvur, leikjatölvur og DVD-spil-
arar gefa frá sér efni sem geta valdið
krabbameini og breytt hormónastarf-
semi barnanna. Efni eins og þalöt
hafa verið bönnuð í leikföngum en
samt er enn möguleiki á að þau finn-
ist í barnaherbergjum.
Þalöt og PAH
Danskir fjölmiðlar hafa fjallað um
þessi skaðlegu efni í nokkur ár og
sem dæmi má nefna að á vef blaðs-
ins Politiken eru fjölmargar greinar
um hvar þessi efni er að finna. Þalöt
eru efni sem finnast í fjölmörgum
barnaleikföngum en einnig hefur ver-
ið rætt um PAH-efni sem eru með-
al algengustu mengunarefna heims.
Sum þeirra eru þekktir krabbameins-
valdar á meðan önnur eru sögð valda
krabbameini eða öðrum sjúkdómum.
Skaðlegri en gúmmídekk
Síðastliðið sumar gerði Umhverfis-
stofnun Danmerkur rannsókn á
20 leikföngum, allt frá blöðrum til
gúmmíanda og kom í ljós að skaðleg
efni voru í hverju einasta leikfangi.
Benda má á að Evrópusamband-
ið leyfir þúsund sinnum meira af
krabbameinsvaldandi efnum í leik-
föngum en í gúmmídekkjum.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Hættulegasti staðurinn
fyrir börnin á heimilinu
n Skaðleg efni finnast í auknum mæli í barnaherbergjum n Þalöt
finnast í leikföngum n Raftæki gefa frá sér krabbameinsvaldandi efni
Þalöt eru notuð til að mýkja sveigjan-
legt efni, til dæmis plastið utan um
rafmagnsvíra, en þau eru talin skaðleg
heilsu fólks þar sem þau eru afar lík
hormónum í líkamanum og geta því
haft hormónatruflandi áhrif. Sér-
staklega er þetta varasamt fyrir börn
þar sem þau eru að vaxa og þroskast
og hormónatruflanir geta haft áhrif á
vöxt og þroska þeirra í framtíðinni.
Hvað eru þalöt?
Þalöt eru efnasambönd sem hafa þá
eiginleika að gefa plasthlutum mýkt
og er algengast að þau séu notuð með
PVC-plasti. Þalöt hafa verið notuð í
efnaiðnaði síðan snemma á 20. öld og
sem mýkingarefni í plast fljótlega eftir
að það fór að koma á markað upp úr
1950. Vitað er að viss þalöt geta dregið
úr frjósemi manna og verið skaðleg
ófæddum börnum í móðurkviði. Þessi
efni eru talin sérstaklega hættuleg
yngstu börnunum sem eiga eftir að
taka út mikinn þroska.
Þalöt í fatnaði
Barnaföt geta innihaldið þalöt en
þetta kom í ljós í athugun sem Um-
hverfisdeild Gautaborgar stóð fyrir. Þar
voru skoðaðar 5 gerðir stuttermabola
fyrir börn, og reyndust allir bolirnir
innihalda þalöt. Þalötin leynast helst
í myndum og letri á bolunum, einkum
í upphleyptum eða háglansandi
áletrunum, sem gjarnan eru gerðar úr
PVC-plasti með þalöt sem mýkingar-
efni. Í löndum Evrópusambandsins er
bannað að nota tiltekin þalöt í leikföng
og smábarnavörur. Fatnaður fellur hins
vegar ekki undir þessar skilgreiningar,
og því eru engin takmörk á notkun
þalata í slíka framleiðslu.
Upplýsingar af nattura.is
Þalöt eru varasöm fyrir börn
Barnaherbergi Mörg leik-
föng innihalda hættuleg efni
sem geta haft slæm áhrif á
heilsu fólks. MYND PHOTOS.cOM