Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Síða 6
6 Fréttir 2.–4. desember 2011 Helgarblað
Bloggari dæmdur í Aratúnsmáli
n Andrés Helgi er í sjokki eftir dóm héraðsdóms
Þ
etta er svakaleg upphæð og
mér finnst það sjokk að héraðs-
dómur hafi dæmt svona,“ segir
Andrés Helgi Valgarðsson sem
á miðvikudaginn var dæmur í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur til að greiða
samtals 950 þúsund krónur vegna
skrifa á bloggsíðu sína um Aratúns-
málið svokallaða.
Andrés Helgi var dæmdur til að
greiða Margréti Lilju Guðmunds-
dóttur 300 þúsund krónur í bætur
vegna meiðyrða auk 650 þúsund
króna í málskostnað til lögmanns
hennar. Andrési Helga finnst þó
ekki ólíkegt að hann áfrýi dómnum
til Hæstaréttar, ef hann hefur efni á
því og ef það er ekki álitið alveg út í
hött. Hann bendir á að um prófmál
hafi verið að ræða í réttindum blogg-
ara og því hafi hugsanlega verið erfitt
fyrir héraðsdóm að taka raunveru-
lega afstöðu.
Ummælin á bloggsíðunni sem
stefnt var fyrir birtust þann 19. júlí í
fyrra í tengslum við Aratúnsmálið.
Fyrirsögnin var Siðblint ofbeldisfólk
og ráðalaus lögregla, en samtals voru
sjö ummæli sem hann lét falla dæmd
dauð og ómerk. Í niðurstöðu dómsins
kemur fram að ekki hafi verið sannað
að Margrét Lilja hafi gerst sek um of-
beldisverk eða ofsóknir gagnvart ná-
grönnum sínum. Var Andrés Helgi því
sem fyrr segir dæmdur til að greiða
Margréti Lilju samtals 950 þúsund
krónur vegna málsins.
Dæmdur fyrir blogg Andrés Helgi var
dæmdur fyrir meiðyrði vegna ummæla
sem hann skrifaði á bloggsíðu sína.
Birna ráðin fram-
kvæmdastýra
Birna Þórarinsdóttir stjórn-
málafræðingur hefur verið ráðin
framkvæmdastýra Evrópustofu
– upplýsinga-
miðstöðvar
ESB. Evrópu-
stofu er ætlað
að veita hlut-
lægar upp-
lýsingar og
auka umræðu,
þekkingu og
skilning á eðli
og starfsemi ESB. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Evr-
ópustofu. Þar kemur einnig fram
að Birna er með BA-gráðu í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands og
MA-gráðu í alþjóðlegum öryggis-
málafræðum frá Georgetown Uni-
versity í Bandaríkjunum. Evrópu-
stofa verður rekin af Athygli ehf.
og þýska almannatengslafyrir-
tækinu Media Consulta. Starfsemi
stofunnar er fjármögnuð af Evr-
ópusambandinu.
Sala á
jólabjór fer
vel af stað
Sala á íslenskum og erlendum
jólabjór fer vel af stað og hafa
þegar selst um 206 þúsund lítrar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Vínbúðinni. Langmest hefur selst
af jólabjór frá Tuborg, eða sem
nemur þriðjungi allrar sölu. Bjór-
inn hefur selst í tæplega 81 þús-
und lítrum en næstur á eftir kem-
ur Víking Jólabjór sem selst hefur
í 45 þúsund lítrum. Þá hefur Kaldi
Jólabjór selst í tæplega 25 þúsund
lítrum og Egils Jólagull hefur selst í
rúmlega 19 þúsund lítrum. „Á síð-
ustu árum höfum við einfaldlega
ekki annað eftirspurn og jólabjór-
arnir okkar hafa klárast of fljótt,“
segir Andri Þór Guðmundsson,
forstjóri Ölgerðarinnar, í fréttatil-
kynningu um málið.
K
ona, sem leitaði til Neyðar-
móttöku vegna nauðgana
aðfaranótt föstudagsins 25.
nóvember, hefur kært karl-
mann og konu fyrir nauðgun.
Konan sem um ræðir er rétt ný-
orðin átján ára gömul. Hinn meinti
ofbeldismaður er hins vegar á fer-
tugsaldri. Kærastan hans sem var
kærð með honum er um tvítugt.
Samkvæmt heimildum DV bar kon-
an því við við starfsfólk Neyðarmót-
tökunnar að maðurinn hefði nauðg-
að henni á meðan kærastan var
viðstödd. Konan sagði jafnframt að
hún hefði beðið kærustu mannsins
um aðstoð en hún hefði ekki orðið
við því. Hún hefði jafnvel tekið þátt
í ofbeldinu. Því var hún einnig kærð.
Hittust í partýi FM957
Konan hitti parið á Eldhúspartýi út-
varpsstöðvarinnar FM957, sem hald-
ið var á Glaumbar í miðbæ Reykjavík-
ur aðfaranótt föstudags. Samkvæmt
heimildum DV ber konan því við að
hún hefði kannast við manninn og
treyst honum, þar sem hann var í
ákveðinni ábyrgðarstöðu gagnvart
henni. Hún hafi ætlað að fara með
parinu á skemmtistaðinn Players í
Kópavogi og því fengið far með því.
Vinkona hennar hefði einnig ætl-
að með en parið meinað henni það.
Ferðin hafi hins vegar tekið óvænta
stefnu þegar konan endaði heima
hjá manninum, án þess að hafa ætl-
að sér það. Þar segir hún að ofbeldið
hafi farið fram.
Leitað sönnunargagna
Konan leitaði til vinkonu sinnar sem
fylgdi henni á Neyðarmóttökuna
aðfaranótt föstudags. Þar fékk hún
læknisaðstoð og skoðun vegna rann-
sóknar málsins. Lífsýni voru tekin og
leitað var að sönnunargögnum sem
gætu stutt frásögn hennar. Eins ræddi
hún við sálfræðing og fékk lögmann
sem fylgdi henni á lögreglustöðina er
hún gaf skýrslu á fimmtudag.
Metið er hverju sinni í hverju
þjónusta Neyðarmóttökunnar felst
í samvinnu og samráði milli starfs-
fólks Neyðarmóttökunnar og þol-
andans.
Markmiðið er að tryggja velferð
og stöðu þeirra sem til þjónustunn-
ar leita vegna nauðgunar, tilraunar
til nauðgunar eða annars kynferðis-
ofbeldis. Tilgangurinn með þjónustu
Neyðarmóttökunnar er að draga úr
eða koma í veg fyrir andlegt og lík-
amlegt heilsutjón sem oft er afleið-
ing kynferðisglæpa.
Lögmaður varaði hana við
Konan var hins vegar vöruð við því
af lögmönnum að kæruferlinu fylgdi
mikið álag auk þess sem ólíklegt væri
að ná fram sakfellingu eins og fram
kemur þegar afdrif nauðgunarmála
eru skoðuð. Þá má nefna að árið
2009 voru 130 nauðganir tilkynntar
til Neyðarmóttökunnar. Af þeim voru
59 nauðgunarmál kærð til lögreglu.
Sama ár fékk ríkissaksóknari upp-
lýsingar um 42 nauðgunarmál eft-
ir rannsókn lögreglu víðs vegar um
landið. Af þessum 42 málum voru 28
nauðgunarmál felld niður hjá ríkis-
saksónara en ákært í fimmtán. Í einu
málinu var hluti málsins felldur nið-
ur en ákært í öðrum hluta hans.
Í héraðsdómi féllu dómar þannig
að sjö voru sakfelldir og sjö sýknað-
ir. Óvíst er hvernig dómur féll í einu
máli.
Samkvæmt heimildum DV neitar
maðurinn sök þótt hann viðurkenni
að hafa farið með stúlkuna heim.
Kona Kærir par
fyrir nauðgun
n Konan er nýorðin 18 ára n Segir að kærasta hins meinta ofbeldismanns hafi
verið viðstödd og tekið þátt í ofbeldinu n Fékk læknisaðstoð á Neyðarmóttökunni
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
28. nóvember síðastliðinn
Fékk far með pari
Endaði heima hjá
manninum og sakar
parið um nauðgun.
SviðSett MyND