Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Qupperneq 14
A
far ólíklegt er að Jón Bjarna-
son, landbúnaðar- og sjáv-
arútvegsráðherra, sitji í rík-
isstjórn fram yfir áramót en
staða hans verður óbreytt
á meðan fjárlög hafa ekki verið sam-
þykkt. Þetta kemur fram í samtölum
við stjórnarliða beggja flokka. Fjár-
lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er nú
í vinnslu fjárlaganefndar eftir að ann-
arri umræðu lauk fyrr í vikunni.
Sjálfur hefur Jón Bjarnason ekki
viljað taka af allan vafa um hvort
stuðningur hans við ríkisstjórnina
einskorðist við ráðherrastólinn. Hann
hafnaði meðal annars beiðni DV um
viðtal um málið í dag. Þá hafnaði
aðstoðarmaður ráðherra því alfar-
ið að bera það undir Jón hvort hann
styddi ríkisstjórnina ef hann missti
ráðherrastólinn. Samkvæmt heim-
ildum DV telja margir stjórnarliðar
svo brýnt að koma Jóni frá að það sé
vel þess virði að leita út fyrir stjórn-
arflokkana um stuðning við einstaka
málefni. Þannig verði ef til vill hægt
að tryggja starfhæfa ríkisstjórn fram
yfir kosningar.
Heimildir DV herma að þingmenn
allra flokka séu „mjög meðvitaðir“ um
möguleikann á slíkri tilhögun, eins og
það var orðað. Sérstaklega er litið til
Hreyfingarinnar, Guðmundar Stein-
grímssonar og Sivjar Friðleifsdóttur,
þingkonu Framsóknarflokks, en hún
hefur stutt ríkisstjórnina í einstaka
málum, oft þvert á vilja Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar, formanns
flokksins. Aðspurð sagði Siv þó engar
hugmyndir uppi um stuðning hennar
við ríkisstjórnina. „Það hafa oft kom-
ið upp erfiðleikar í þessari ríkisstjórn
og mér finnst lítið benda til annars en
að stjórnin komi sér í gegnum þetta
mál eins og önnur,“ segir Siv og ítrekar
að það sé ekki í stöðunni að hún verji
ríkisstjórnina falli gegn því að koma
eigin málum í gegn. Raunar er Guð-
mundur Steingrímsson einn um að
taka vel í hugmyndir um slíkt sam-
starf við ríkisstjórnina.
Hreyfingin vill breyttar áherslur
„Ég á erfitt með að sjá Hreyfinguna
verja ríkisstjórn falli sem ekki er til-
búin í frekari aðgerðir vegna skulda-
vanda heimilanna,“ segir Þór Saari
aðspurður hvort Hreyfingin hafi
áhuga og pólitíska getu til að taka
þátt í meirihlutasamstarfi án þess
að skuldamál heimilanna séu þar
þungamiðja. „Ég veit heldur ekki
hvað ætti að breytast frá því sem nú
er við svona samstarf,“ segir hann.
„Þetta upphlaup í ríkisstjórninni er
eftir fyrirfram skrifuðu handriti og
hefur ekkert með kvótamálið að gera,“
segir Þór sem telur augljóst að aðför-
in að Jóni tengist andstöðu hans við
Evrópusambandsaðild. Hann segir
þingmönnum Hreyfingarinnar ekki
hugnast núverandi ríkisstjórn, hún
hafi haldið rangt á spilunum í ýms-
um málum. Þá sé ríkisstjórnin ekki
nægjanlega vösk í lýðræðisumbótum.
Þar nefnir Þór Saari stjórnarskrármál-
in og frumvarp forsætisráðherra um
persónukjör sem enn hafi ekki verið
samþykkt. „Í orðum ber ekki mikið á
milli Hreyfingarinnar og ríkisstjórn-
arinnar en þau hafa að því er virðist
ekki þrek til að koma slíkum umbót-
um í gegnum þingið,“ segir Þór.
Guðmundur gerir ekki kröfu um
ráðherrastól
„Nei, glætan það hefur ekki hvarfl-
að að mér,“ segir Guðmundur Stein-
grímsson spurður hvort hann geri
kröfu um ráðherrastól í staðinn fyrir
stuðning við ríkisstjórnina, hverfi
Jón Bjarnason frá. Guðmundur segir
möguleikann á að ríkisstjórnin semji
um málefnameirihluta í þinginu blasa
við öllum sem það vilji sjá. „Ég er ekki
áhugamaður um að steypa málum
eins og aðildarumsókn að Evrópu-
sambandinu, nýrri stjórnarskrá og
rammaáætlun í óvissu. Þetta eru stór-
mál sem ég tel að verði að klára,“ seg-
ir Guðmundur og tekur fram að hann
verði að ráðfæra sig við samstarfs-
fólk sitt áður en af yrði. „Ég myndi
alltaf ráðfæra mig við fólkið sem er
að stofna flokkinn með mér. Staðan
er hins vegar sú að enginn veit hvort
ríkisstjórnin sé með þingmeirihluta
eða ekki.“ Sjálfur telur Guðmundur
Jón hafa farið yfir strikið undan far-
ið. „Hann hefur ekki beinlínis verið
að framfylgja stjórnarstefnunni í ESB-
viðræðunum. Það hefur hann líka
komist upp með. Þegar kvótamálið
bætist við og það samráðsleysi sem
hann hefur orðið uppvís að í þeim
málum, þá get ég mjög vel skilið að
stjórnarliðar telji hann hafa farið yfir
strikið. Þetta eru bæði svo stór mál í
samstarfssamningi flokkanna.“
Jón er ráðherra vegna óvissunnar
„Jón er eingöngu ráðherra vegna þess
að ekki er vitað hvort ríkisstjórnin lifi
án þess að hann sitji í ráðherrastól,“
segir Þráinn Bertelsson, þingmaður
VG, aðspurður um stöðu Jóns. „Mér
skilst að hann hafi talað í þá veru að
missi hann stólinn þá sé áhugi hans
á að styðja ríkisstjórnina ekki til stað-
ar lengur,“ segir Þráinn en tekur jafn-
framt fram að hann hafi heyrt þessi
orð útundan sér en ekki frá ráðherra
sjálfum. „Ég skil ekki að Jón skuli ekki
hætta sem ráðherra,“ segir Þráinn um
stöðu Jóns. „Það er ekki skömm af
því að geta ekki leyst erfið verkefni.
Skömmin er í því að átta sig ekki á því
sjálfur. Ekki myndi ég vilja vera sjáv-
arútvegsráðherra. Í sporum Jóns vildi
ég ekki vera. Breytingar á fiskveiða-
stjórnunarkerfinu er risavaxið mál að
leysa en það þarf að leysa þessi mál
og Jón hefur sýnt að hann hefur ekki
burði til þess,“ segir Þráinn.
Steingrímur svaraði engu um
framtíð Jóns
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, hefur ekki viljað lýsa yfir af-
gerandi stuðningi við Jón Bjarnason
þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir um
slíkt í þinginu. Þá hefur hann þver-
tekið fyrir að svara spurningum um
hvort Jón geti setið áfram sem ráð-
herra í umboði flokksins. Um afstöðu
Jóhönnu Sigurðardóttur, formanns
Samfylkingarinnar, ríkir hins vegar
engin óvissa en Jóhanna hefur verið
óvenju berorð í gagnrýni sinni á ráð-
herrann undanfarið.
Jón Bjarnason ekki án stuðnings
Bæði Ögmundur Jónason innanríkis-
ráðherra og Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir, þingkona VG, hafa lýst yfir
stuðningi við sjávarútvegsráðherra.
Guðfríður Lilja gekk raunar svo langt
að kalla Jón Bjarnason einn dygg-
asta stuðningsmanninn við stefnu
VG í umræðum á þinginu. Þá sagði
hún það gríðarlegt áfall að snúa baki
við honum núna. Þá hafa stuðnings-
menn Jóns stofnað hóp á Facebook
honum til stuðnings og keypt aug-
lýsingar í blöðum. Ef til vill er það þó
lýsandi fyrir stöðu Jóns að Facebo-
ok-hópurinn hefur aðeins 160 með-
limi. Sjávarútvegsráðherra hefur þó
umfram aðra ráðherra sótt stuðning
út fyrir raðir VG og í sitt kjördæmi.
Ráðherrann hefur til dæmis iðu-
lega getað treyst á dyggan stuðning
frá Heimssýn andstæðinga Evrópu-
sambandsaðildar. Þá er skemmst að
minnast stuðningsyfirlýsingar Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna við
ráðherrann vegna afstöðu Jóns í hval-
veiðimálum. Því er ljóst að stuðning-
ur við ráðherrann nær langt út fyrir
stjórnarflokkana tvo.
Stefnubreyting nauðsynleg Þór
Saari segir afar ólíklegt að Hreyfingin
verji ríkisstjórnina falli nema tekið verði á
skuldavanda heimilanna.
Er sama um ráðherrastólinn
Guðmundur Steingrímsson tekur vel í
hugmyndir um að verja ríkisstjórnina gegn
vantrausti þýði það að ESB og ný stjórnar-
skrá nái fram að ganga.
14 Fréttir 2.–4. desember 2011 Helgarblað
J Ó L AT I L B O Ð
FULLT VERÐ
95.000
59.900FULLT VERÐ
139.900
99.900
FULLT VERÐ
59.900
42.900
YFIR 30 GERÐIR
GASGRILLA
MIKIÐ ÚRVAL
GRILLÁHALDA
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400
Grill sem endast
n Jón situr líklega sem ráðherra til áramóta n Guðmundur Steingrímsson tekur vel í að styðja ríkisstjórnina
n Margir stjórnarliðar vilja Jón úr ríkisstjórn þótt leita verði stuðnings við ríkisstjórnina utan Samfylkingar og VG
Jón BJarnason
verður settur af
„Í sporum
Jóns vildi
ég ekki vera
Þráinn Bertelsson
„Ég á erfitt með að
sjá Hreyfinguna
verja ríkisstjórn falli sem
ekki er tilbúin í frekari að-
gerðir vegna skuldavanda
heimilanna.
Óvissa um stuðning
Stuðningur Jóns Bjarna-
sonar við ríkisstjórnina
virðist ekki öruggur án
ráðherrastóls.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is