Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Side 46
Þ
ótt Íslendingar hafi um aldir
lifað af sjósókn hafa bók-
menntir nútímans sjaldn-
ast fjallað um sjómenn og
það sem þeir eru að bjástra
við. En það eru undantekningar frá
þessu. Bókin Upp á líf og dauða er
kilja í þremur hlutum sem eiga það
sameiginlegt að fjalla um sjávar-
háska.
Fyrsti hluti bókarinnar er um
Nýfundnalandsveðrið árið 1959
sem kostaði tugi íslenskra sjómanna
lífið. Frásögnin er um sjóferð síðu-
togarans Harðbaks á þessar slóðir.
Sagan hefst þegar Harðbakur leggur
úr höfn á Akureyri. Engan óraði
fyrir þeim ægilegu átökum sem
biðu áhafnarinnar á hinum fjarlægu
miðum. Jón Hjaltason skráir söguna
af slíkri alúð að það fer um mann
kuldahrollur við lesturinn. Það má
heita kraftaverk í bland við þekk-
ingu Áka Stefánssonar skipstjóra
sem sólarhringum saman barðist við
aftakaveðrið og hafði sigur. Þetta er
háspennusaga um háska.
Næsta frásögn er af því þegar tog-
arinn Elliði fórst. Sú saga er prýði-
lega skráð af séra Sigurði Ægissyni,
presti á Siglufirði. Athyglisvert er að
skipshundurinn virtist fá fyrirboða
um það sem var í vændum, nokkr-
um klukkustundum áður en skipið
fórst. Frásögnin heldur ágætlega
þótt hún standi sögunni af Harðbaki
að baki.
Lokahluti bókarinnar er byggður
á samtali tveggja manna um sjávar-
háska fyrir Norðurlandi í apríl 1963.
Himinn og haf er á milli þeirrar sögu
og hinnar fyrstu. Þarna hefði þurft
að koma til öflug ritstjórn til að gera
frásögnina bærilega. Fyrri sögurnar
tvær gera þó að verkum að þetta er
fín bók. Hún hentar vel í jólapakka
sjómannsins og annarra sem vilja
kynna sér baráttu sægarpa við hrika-
leg náttúruöfl.
46 Bækur 2.–4. desember 2011 Helgarblað
Skyrkonfekt er súkkulaði moli, gerður
úr gæða hvítu súkkulaði framleiddu af
Valrhona, með skyrfyllingu sem framleidd
er af Rjómabúinu Erpsstöðum.
Skyrkonfektið er handunnin vara og einstök
í sinni röð, hvað varðar útlit og bragð!
Með gómsætri skyrfyllingu!
„Ótrúlega
vel heppnuð
samsetning
þar sem
súrt og sætt
mætist“
Skyrkonfektið er samvinnuverkefni
hönnuða og bænda undir handleiðslu
Listaháskóla Íslands.
Sími: 868 0357 www.erpsstadir.is
V
el hannaðar, flóknar
ráðgátur eru unun allra
aðdáenda spennu- og
glæpasagna. Óttar Mart-
in Norðfjörð, höfundur
Lygarans, hefur borið slíka gátu
á borð fyrir lesendur. Söguþráð-
ur er á þessa leið: 1972 fer fram
sögufrægt skákeinvígi Fischers
og Spasskys í Reykjavík. Í bak-
grunni þarf lögreglan að takast á
við mannshvarf og dularfullar gát-
ur þar sem lífi Fischers er ógnað.
Sagan gerist hins vegar að mestu
leyti á árinu 2011. Við sögu koma
tvær fylkingar ungra manna og
Óttar þarf að
skrifa fleiri bækur
andstæðinga í pólitík. Fylkingin,
sem er hópur ungra vinstrisinna,
og Eimreiðarhópurinn, sem Davíð
Oddsson, Geir Haarde og fleiri
valdamenn tilheyrðu.
Málin tvö tengjast og Óttar
Martin leiðir lesendur áfram á
þeirri tengingu með skemmti-
legum, frumlegum og óvæntum
hætti.
Hröð framvinda og ótal gátur
Það er ekki hægt að segja frá sögu-
persónum eða rekja söguþráðinn
nánar án þess að skemma fyrir les-
endum ánægjuna af ráðgátunni.
En það má segja frá því að upp-
bygging sögunnar og frásagnar-
tækni sem er bein og hrein gerir
það að verkum að lesandinn er
hratt leiddur áfram. Rökrétt frá A
til B. Í sögunni eru skemmtilegar
minni gátur, litlar ferskeytlur og
skákþrautir sem lesendur fá einnig
að brjóta heilann um.
Einhverjir hafa gagnrýnt að
notuð eru raunveruleg nöfn, raun-
verulegar sviptingar og fylkingar.
Ég get ekki betur séð en það sé vel
til fundið. Rithöfundar leita í eigin
sarp og samtíma og hér er langt
gengið. Eflaust hefur bakgrunn-
ur Óttars sem var virkur í búsá-
haldabyltingunni eitthvað haft
um það að segja hvernig plottið
liðast hægri mönnum í óhag. Á
nokkrum stöðum í bókinni má
segja að hann „missi sig“ svolítið.
Málsgrein um einkavæðingu og
nasisma er hressandi lesning en
lesandinn verður meðvitaður um
að hún er óþarfi í sögunni. Það má
deila á þessar aukamálsgreinar,
ástríðukenndar frá höfundinum,
en það verður ekki frá honum tek-
ið að hann er naskur á eigin sam-
tíma.
Vasaklúturinn tekinn upp
Fortíðinni eru einnig gerð góð skil
í dagbókarbrotum. Allar aukapers-
ónur skipta máli. Reyndar gríðar-
legu máli í framvindu sögunnar.
Það er gaman að sjá slíka einbeitni
í glæpasagnaskrifum. Það er leitun
að jafn góðum vinnubrögðum.
Og enn annað gerir Óttar
Martin vel, hann gefur persónum
sínum góða tilfinningalega dýpt.
Aðalsöguhetjan, Vera. E. Ragn-
arsdóttir, er rithöfundur sem er
gift ofbeldismanni og tekur þátt í
róttækum hóp sem leitar að upp-
lýsingum um hrunið. Heimilisof-
beldið er tekið fyrir á raunsæjan
máta. Sársaukinn er áþreifanlegur
og engar klisjur á ferð. Gerandinn
er ekki gerður að myrkum durti
og illmenni. Þolandinn er ekki
grátandi fórnarlamb. En illskan
er vissulega til staðar og skortur á
samkennd og siðferði. Fínt ofið.
Þegar lokakafli bókarinnar
er leiddur í ljós þarf að taka upp
vasaklútinn. Að minnsta kosti
gætu einhverjir hrifnæmir þurft
að leita að honum. Endirinn er
meistaralega vel skrifaður. Enn er
ekki hægt að segja af hverju það er
án þess að ljóstra upp mikilvægu
atriði. En því er hægt að lofa að
gátuunnendur grípa andann á lofti
þegar þeim eru sýnd lok mála.
Umdeildur höfundur
Óttar Martin Norðfjörð hefur sent
frá sér sex skáldsögur. Hann er
umdeildur höfundur. Hvers vegna
veit ég ekki. Hann tekur áhættu
en á sama tíma er hann einbeittur
höfundur sem leggur mikið í form
glæpasögunnar. Kannski er það
vegna þess að eitt sinn sagðist
hann gefa út glæpasögu að gamni
sínu. Til að henda gaman að klisju-
forminu. Einhverjir hljóta að hafa
móðgast svona óbærilega. En
hverju sem það sætir þá verður að
segjast eins og er að Óttar Martin
þarf að skrifa fleiri bækur. Gátu-
unnendur munu krefjast þess.
— gátuunnendur krefjast þess
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Dómur Lygarinn
Höfundur: Óttar M. Norðfjörð.
Útgefandi: Sögur.
302 blaðsíður
Upp á líf og dauða
Höfundar: Sigurður Ægisson,
Júlíus Kristjánsson og
Jón Hjaltason.
Útgefandi: Völuspá útgáfa.
76 blaðsíður
Vel hönnuð og
flókin ráðgáta Óttar
Martin Norðfjörð, höf-
undur Lygarans, hefur
borið slíka gátu á borð
fyrir lesendur.
Harðbakur í háska
Reynir Traustason
rt@dv.is
Dómur
Stelpur A–Ö
Höfundur: Kristín Tómasdóttir
Útgefandi: Veröld
340 blaðsíður
Bók fyrir for-
vitnar stelpur
Stelpur A–Ö er bók fyrir stelpur um
næstum allt á milli himins og jarðar.
Í henni eru ítarlegar upplýsingar
fyrir unglingsstelpur. Meðal annars
er fjallað um bílpróf og bíla, sjálfs-
traust, ást, afbrýðisemi, barneignir
og margt fleira sem stelpur þurfa að
vita. Til dæmis er útskýrt vel hvað átt
er við með gagnkvæmri ást. Stelpa
spurði hvernig hún gæti kynnst
manneskju sem hún var hrifin af
betur. Þar eru gefin góð dæmi um
það og og hvað hún getur gert.
Einnig er talað um eftirsjá.
Stelpa spyr hvernig hún geti tæklað
eftirsjá. Eins og fyrr er svarað ítar-
lega og gefnar upp skemmtilegar,
skýrar og greinilegar lausnir.
Í bókinni er farið mjög vel yfir
efnið svo maður nær að skilja það
mjög vel. Bókin hentar fyrir allar
forvitnar stelpur. Bókin er mjög
góð og fræðandi. Kápan lítur mjög
vel út og er vel hönnuð.
Ég mæli hiklaust með henni. Bók-
in er skyldueign fyrir allar stelpur.
Harpa Mjöll Reynisdóttir, 15 ára.
Blái hnötturinn
í Sviss
Í vikunni var
frumsýnd leik-
sýning byggð
á Sögunni af
Bláa hnettinum
eftir Andra Snæ
Magnason í Lu-
zern-leikhúsinu
í Sviss. Leikritið er ógnar vinsælt
til uppsetningar í leikhúsum en
það hefur nú þegar verið sett upp í
Kanada, Pakistan og Finnlandi. Hér
á landi var það sett upp árið 2001 í
Þjóðleikhúsinu.
Sagan af Bláa hnettinum kom
fyrst út árið 1999 og hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin árið 1999 og
Verðlaun verðlaunanna árið 2009
í tilefni af 20 ára afmæli Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Hún
hefur komið út í fjölmörgum Evr-
ópulöndum, Kína, Japan, Taílandi,
Kóreu og nú síðast í Grikklandi.