Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 8
8 Fréttir 11.–13. maí 2012 Helgarblað
Olíutankur týndur í Mývatni
n „Mér finnst þetta afleitt,“ segir Árni Einarsson líffræðingur
Þ
úsund lítra olíutankur, sem
sennilega er fullur af olíu, liggur
á botni Ytriflóa Mývatns. Olíu-
tankurinn týndist af dráttarbáti
Kísiliðjunnar hf. síðasta sumarið sem
hún starfaði. Þetta kemur fram í við-
auka við verndaráætlun Mývatns og
Laxár. „Mér finnst þetta afleitt,“ segir
Árni Einarsson, líffræðingur hjá Nátt-
úrurannsóknastöðinni við Mývatn,
í samtali við Akureyri vikublað sem
greindi frá málinu á fimmtudag.
Árni segir að óhappið hafi orðið
síðustu dagana sem dráttarbátur Kísil-
iðjunnar í Mývatnssveit var starfrækt-
ur og að minnstu hafi munað að bát-
urinn sykki. Starfsmenn sem voru á
bátnum urðu þess hins vegar ekki varir
fyrr en þeir sigldu í land að olíutankur-
inn hafði horfið í vatnið. Í kjölfarið var
leitað nokkrum sinnum í vatninu sum-
arið 2004 en án árangurs.
Olíutankurinn er tifandi meng-
unartímasprengja en Mývatnssvæðið
er sérlega viðkvæmt. Þar er búsvæði
margra fuglategunda og silungur er
í vatninu, auk þess sem svæðið þykir
gífurlega fallegt. Árni segir þó erfitt að
kalla menn til ábyrgðar þar sem átta
ár eru liðin frá því að Kísiliðjan hætti
störfum. Hann bindur vonir við að
tankurinn finnist í leitaraðgerðum í
sumar.
Samkvæmt Akureyri vikublaði var
um tíma bauja þar sem starfsmenn
töldu líklegast að tankinn væri að
finna en baujan er ekki lengur á vatn-
inu. Tankurinn er talinn liggja á svæði
austan Slútness.
40 ökumenn
eiga von á sekt
Brot 40 ökumanna voru mynd-
uð í Arnarbakka í Reykjavík á
miðvikudag. Fylgst var með
ökutækjum sem var ekið Arn-
arbakka í vesturátt, við Dverga-
bakka. Á einni klukkustund,
fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki
þessa akstursleið og því ók
tæplega helmingur ökumanna,
eða 48 prósent, of hratt eða
yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var 46 kílómetr-
ar á klukkustund en þarna er
30 kílómetra hámarkshraði. Tíu
óku á 50 kílómetra hraða eða
meira, en sá sem hraðast ók
mældist á 58.
J
óhannes Jónsson verður eftir
sumarið ekki lengur þekktur
sem Jóhannes í Bónus, heldur
Jóhannes í Iceland. Hann,
ásamt Malcolm Walker, eiganda
bresku verslanakeðjunnar Iceland,
hafa náð samkomulagi um sérleyfa-
samning og mun fyrsta Iceland-mat-
vöruverslunin verða opnuð á Íslandi
síðsumars. „Já, þetta er spennandi
verkefni,“ segir Jóhannes sem vill þó
ekkert gefa upp um það hvar verslun-
in verði til húsa en staðsetningin hef-
ur verið ákveðin engu að síður. Fjöldi
verslana mun ráðast af eftirspurn.
„Við förum bara fetið,“ segir Jóhannes.
Sextíu prósent íslenskar vörur
Aðspurður hvort hann telji þetta
muni hafa góð áhrif á íslenskan mat-
vörumarkað segist Jóhannes vona
það. Iceland-verslanirnar hafa verið
þekktar fyrir lágt vöruverð í Bretlandi,
en líklega er óraunhæft að ganga út
frá sömu verðlagningu þar og hér
vegna flutningskostnaðar á matvöru
til Íslands. Verslanir Iceland eru 850
og markaðsstærð á breskum mat-
vörumarkaði er um 1,8 prósent. Ice-
land hefur sérhæft sig að miklu leyti í
frosinni matvöru en þó selur verslun-
in einnig þurrvöru. Mikið af varningi
sem seldur er innan Iceland- versl-
anakeðjunnar er matur sem er fram-
leiddur undir merkjum hennar.
Jóhannes segir að verslunin hér
á landi komi til með að selja bæði
þurrvöru og frosna matvöru. „Ég
kem til með að versla mikið við inn-
lenda birgja, allt að sextíu prósent
íslenskar vörur, sem markaðurinn
hérna þekkir og vill,“ segir hann.
Iceland kostaði 300 milljarða
Malcolm Walker stofnaði Iceland-
keðjuna árið 1970 en árið 2001 lét
hann af störfum hjá fyrirtækinu. Þeg-
ar íslenska fyrirtækið Baugur, sem
var í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannesson-
ar, tók yfir fyrirtækið kom Walker aft-
ur til starfa hjá Iceland. Eftir íslenska
bankahrunið eignaðist Landsbank-
inn 77 prósenta hlut í Iceland og vann
Walker að því leynt og ljóst að eign-
ast aftur fyrirtækið líkt og Jóhannes
reyndi að gera gagnvart Bónus.
Í febrúar greindi breska dagblaðið
The Telegraph frá því að Walker hafi
leitað meðal annars til fjölskyldu og
vina, fjölmargra stórra banka, á borð
við Deutsche Bank, til að fjármagna
kaupin sem The Telegraph segir einn-
ig að hluta til fjármögnuð með 250
milljóna punda láni frá Landsbank-
anum og Glitni. Fréttir bárust af því í
mars að Malcolm Walker hefði tryggt
sér verslanakeðjuna Iceland aftur
og greiddi fyrir hana 1.550 milljónir
sterlingspunda eða sem nemur um
300 milljörðum íslenskra króna. Jó-
hannes segir samstarfið við Malcolm
Walker hafa komið til nokkru áður en
Walker keypti verslanakeðjuna á vor-
dögum. „Hann er gamall kunningi og
vinur. Hann var búinn að vinna hjá
okkur í mörg ár,“ segir hann og segir
að því hafi verið auðvelt að hefja sam-
starf við hann.Sonur Jóhannesar, Jón
Ásgeir, er ekki tengdur þessum samn-
ingi. Walker á í fleiri viðskipum hér-
lendis en hann er aðalfjárfestirinn að
baki kaupum á Catco vínum ehf., fé-
lagi sem var í eigu Ölgerðarinnar og
rekur brugghús í Borgarnesi. Catco
sér meðal annars um framleiðslu á
hinum vinsæla Reyka Vodka.
Bolað út af markaði
Jóhannes segist hafa stefnt að því
lengi að hefja rekstur á matvöru-
markaði á Íslandi aftur. Jóhannes var
ósáttur við skilnaðinn við Haga og
Bónus og segir að sér hafi verið bol-
að út af markaði. Því hafi hann stefnt
að því síðan að koma aftur inn á ís-
lenskan matvörumarkað. „Jú, löng-
unin hefur verið til staðar. Það var
ekkert hlustað á nein tilboð frá okk-
ur í það fyrirtæki,“ segir Jóhannes.
„Þá verður maður bara að gera eitt-
hvað annað, en ég er búinn að gera
þetta í 50 ár,“ segir hann.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
„Ég kem til með að
versla mikið við
innlenda birgja.
Jóhannes í Iceland
n Jóhannes Jónsson snýr aftur n Walker„er gamall vinur“
Kunningjar Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, vann að því leynt og ljóst að eignast
aftur Iceland eftir íslenska bankahrunið. Hann og Jóhannes þekkjast frá gamalli tíð.
Verslar við íslenska birgja Jóhannes
segir að verslunin hér á landi komi til með að
selja bæði þurrvöru og frosna matvöru.
Mývatn Svæðið er sérlega viðkvæmt en þar heldur til fjöldi fuglategunda auk þess sem
silungur er í vatninu.
Mótmæla dómi
harðlega
Málefnahópur Dögunar, samtaka
um réttlæti, sanngirni og lýðræði,
gagnrýnir harðlega dóm héraðs-
dóms yfir tveimur drengjum, hæl-
isleitendum frá Alsír, sem segjast
vera 15 og 16 ára. Þeir voru dæmdir
í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi
fyrir að framvísa fölsuðum vega-
bréfum við komuna til landsins.
„Talið er að héraðsdómur
hafi með dómnum brotið flótta-
mannasamning Sameinuðu
þjóðanna þar sem segir að hælis-
leitendur sem framvísi fölsuð-
um skilríkjum eigi að fá vernd
gagnvart refsingu fyrir slíku, en
í gegnum tíðina hafa íslenskir
dómstólar sætt athugasemdum
frá Sameinuðu þjóðunum vegna
endurtekinna brota á umrædd-
um samningi. Þá er sérstaklega
ámælisvert að börn skuli hafa ver-
ið vistuð í fangageymslum enda
brot á Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna,“ segir í tilkynningu sem
samtökin sendu frá sér.
Lögreglustjórinn á Suður-
nesjum sendi frá sér tilkynningu á
miðvikudag vegna fréttar RÚV um
málið, sem greindi fyrst frá því, þar
sem dómur héraðsdóms var var-
inn. „Umræddir aðilar framvísuðu
fölsuðum skilríkjum við landa-
mæraeftirlit og höfðu engin önnur
skilríki í fórum sínum og hafa því
ekki getað sannað á sér deili. Um-
ræddir aðilar hafa til meðferðar
hælisumsóknir í Finnlandi og er
mál þeirra til rannsóknar hjá þar-
lendum yfirvöldum sem telja rök-
studdan grun fyrir því að aðilarnir
séu eldri en þeir halda fram en það
mun þurfa að leiða í ljós með ald-
ursgreiningarrannsókn.“