Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 14
14 Fréttir 11.–13. maí 2012 Helgarblað
Þ
etta var full vél af ullarþvotti
og flísþvotti, nánast öll úti-
fötin hennar dóttur minnar,
þannig að þetta er talsvert
mikið,“ segir Anna Kristín
Óskarsdóttir, íbúi í Eskihlíð í Reykja-
vík. Anna Kristín varð fyrir þeirra
óskemmtilegu reynslu á dögunum
að fötum af eins og hálfs árs gamalli
dóttur hennar var stolið úr þvottavél
að nóttu til.
Tóm vél
„Ég fór og setti í vél um kvöldið og
gleymdi svo að ná í þvottinn. Síð-
an fór ég morguninn eftir niður í
þvottahús til að athuga með þvottinn
og þá blasti við mér tóm vél,“ segir
hún. „Ég trúði þessu nú ekki fyrst og
hugsaði með mér hvort ég væri búin
að ná í þvottinn. Ég var ekki búin að
því og því augljóst að einhver hafði
komið þarna yfir nóttina og rænt
blautum þvotti,“ segir Anna Kristín
sem er nokkuð hissa á atvikinu.
Ekki víst að tjónið verði bætt
Í vélinni voru útiföt dóttur hennar,
dýr ullar- og flísföt, og því ljóst að
tjónið hleypur á tugum þúsunda.
Hún segir ekki ljóst hvort tjónið fá-
ist bætt frá tryggingunum. „Ég læsti
millihurðinni þegar ég fór úr þvotta-
húsinu en þetta er gömul hurð og
erfitt að vita hvort einhver hafi far-
ið þarna í millitíðinni og kannski
gleymt að læsa. En það er algjör-
lega fáránlegt ef maður fær þetta
ekki bætt út af því að þetta er stór
stigagangur og mikið af fólki sem
býr hérna og ómögulegt fyrir mann
að standa yfir þvottavélinni meðan
hún klárar og passa upp á að þvotta-
húsið sé læst. Það er líka útihurð þar
sem fólk fer inn og út með hjólin sín
og kannski hefur einhver komist þar
inn,“ segir Anna Kristín en fjölmarg-
ar íbúðir eru í stigaganginum.
Leita að barnafötum
„Mér finnst eiginlega bara dálítið
óhugnanlegt að það virðist einhver
hafa verið að leita að barnafötum
því það var tekið úr okkar vél og líka
barnaföt frá nágrannakonu okkar.
Það er óþægilegt að vita til þess að
einhver hafi farið í gegnum þvott-
inn manns,“ segir Anna Kristín sem
var á leið með kvittanir til trygging-
arfélags síns en þeim safnaði hún
saman með því að fara á milli þeirra
búða sem fötin voru keypt í. „Þetta
eru ábyggilega föt upp á 70 þúsund
krónur eða eitthvað þar í kring. Þetta
eru líklega svona dýrustu fötin sem
börnin eiga og því kannski eftirsókn-
arvert fyrir einhverja að ná í þau,“ en
nánast öll útiföt dóttur hennar voru
í vélinni.
Vonast til að fá þvottinn bættan
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem frétt-
ir berast af þjófnaði tengdum þvotti í
Eskihlíðinni. DV sagði frá því síðast-
liðið haust að tveimur þvottavélum
hefði verið stolið í Eskihlíð með tæp-
lega mánaðar millibili. Um mánuði
áður var þvottavélaþjófur á ferðinni
annars staðar í Hlíðunum sem rændi
tveimur þvottavélum og tveimur
þurrkurum úr þvottahúsi í fjölbýlis-
húsi. Anna Kristín hefur kært þjófn-
aðinn og vonast til þess að fá fötin til
baka eða þvottinn bættan.
Stálu barnafötum
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
n Fullri þvottavél af barnafötum stolið n Tjónið hleypur á tugum þúsunda„Mér finnst eigin-lega bara dá-
lítið óhugnanlegt að
það virðist einhver
hafa verið að leita að
barnafötum.
Tæmdi vélina Blautur þvottur var tekinn ófrjálsri hendi úr vélinni. Um var að ræða ullar- og flísföt í eigu 1 og hálfs árs stúlku. Tjónið
hleypur á tugum þúsunda. mynd SigTryggur Ari