Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 20
Láttu ekki pLata þig 20 Fréttir 11.–13. maí 2012 Helgarblað NIP + FAB krem Hvað gerir það: Stækkar brjóst Hvernig: Kremið inniheldur virk efni sem unnin eru úr plöntum sem hjálpa til við að virkja uppsöfnun fitu og gefur þar með brjóstunum fyllingu. Afraksturinn eru stinnari og stærri brjóst, fallegri og fyllri brjóstaskora, kvenlegra útlit og mýkri húð. Það má einnig fá krem frá sama fram- leiðanda sem minnkar magamál. Hvar: Hagkaup, snyrtivöruverslanir og apótek Verðdæmi: 3.299 krónur Hvað segir sérfræðingurinn? Svanur Sigurbjörnsson læknir hlær þegar hann er spurður um hvort krem geti stækkað brjóst. „Mér finnst nú bara sorglegt að apótekin séu að selja svona rusl.“ Hann bendir á að ef til væri efni sem hefði áhrif á vefi líkamans og á niðurrröðun og lögun fitufrumna, þá væri það mjög líffræðilega virkt og sterkt efni. „Þá værum við komin með lyf í hendurnar sem mætti að sjálfsögðu ekki selja sem krem. Það er því auðvelt að sjá að þetta er lygi. Það segir sig sjálft.“ Aðspurður hvort það megi selja vörur með slíkum full- yrðingum segir hann að svo sé ekki. Sam- kvæmt neytendalögum sé ekki leyfilegt að lofa nokkru um vöru sem stenst ekki. Einhverra hluta vegna sé það auðveldara að kvarta yfir til dæmis sjónvarpi sem virkar ekki, heldur en vöru sem svíkur okkur varðandi heilsu. Fitusugan Hvað gerir hún: Fitusugan sýgur í sig fituna af yfirborði matarins fljótt og örugglega á auðveldan hátt. Hvernig: Hafðu fitusuguna að lágmarki 2,5 klst. í frystihólfinu í ísskápnum áður en þú notar hana í nokkrar sekúndur á heitan matinn. Fitan sest á fitusuguna (málmplötuna) og má síðan hreinsast burt með skeið eða hníf. Notaðu fitusuguna á pottrétti, kínverskan mat og á allan fitugan mat. Hvar: belis.is Verð: 4.990 krónur Hvað segir sérfræðingurinn? Borghildur Sverrisdóttir hjá Mataski segist ekki alveg skilja hvers vegna fólk eigi að vilja soga alla fitu úr mat. „Við fyrstu sýn þá er þetta bara grín. Þú vilt ekki soga alla góða fitu úr matvælum. Þetta er bara til að gera matinn næringarrýrari þannig að í rauninni skil ég ekki hvað þetta á að gera. Á að nota þetta á djúpsteiktan mat? Til hvers þá að djúp- steikja? Það er eins og með kjöt, bragðið kemur úr fitunni og við þurfum öll pínulitla fitu.“ Ristilskolun Hvað gerir hún: Mælt er með henni til að afeitra líkamann og til að vinna gegn harðlífi, vindgangi og meltingartruflunum, gigt, húðsjúkdómum (psoriasis, bólum og húðblettum), ofnæmi, há- og lágþrýstingi og höfuðverk, astma, nikótín-, áfengis- og lyfjaeitrun, sveppa- og candida-sýkingum í ristli, viðvarandi sjúkdómum í innri líffærum, fyrirbyggjandi afeitrun líkamans. Hvernig : Eiturefni sem safnast fyrir eru skoluð út. Hvar: Heilsuhótel Íslands Verð: 9.900 krónur Hvað segir sérfræðingurinn? Svanur Sigurbjörnsson læknir segir að fyrst og fremst sé ekki vitað um hvaða eiturefni sé að ræða þegar talað er um afeitrun eða detox. „Það er vitað að sum fæða er mögulega krabbameinsvaldandi, svo sem mikið pæklaður matur og unnin matvæli. Í þessum mat eru efni sem eru óæskileg í miklum mæli en það er of seint að fara að skola þeim út í hinum endanum, þegar þú ert búinn að láta matinn fara í gegnum allan líkamann. Ef þú ætlaðir virkilega að gera eitthvert gagn með slíkri skolun og ef öll þessi eiturefni væru þarna í afturendanum þyrftir þú væntanlega að framkvæma hana daglega, ef ekki nokkrum sinnum á dag. Eitt skipti gerir ekki neitt.“ Hann segir að það sé einföld lógík: Að sleppa því að láta slíkan mat ofan í sig til að byrja með. Svanur bendir einnig á að upp- talningin á því sem ristilskolun á að laga sé algjör staðleysa og í raun lygar. „Fyrrverandi landlæknir, meltingarlæknar, sem og fleiri sérfræðingar segja að það séu engar rann- sóknir sem styðja þetta.“ Bathmate Hvað gerir það: Þetta er tól sem stækkar getnaðarliminn Hvernig: Á aðeins 15 til 20 mínútum á dag í stuttar sex vikur mun Bathmate gefa þér þykkari, lengri og heilbrigðari lim. Tólið bætir 30 prósentum við þykkt limsins og allt að 40 prósentum við rúmmál. Hvar: elskendur.is Verð: 17.191 krónur Hvað segir sérfræðingurinn? „Það eru ekki til neinar einustu rannsóknir sem sýna fram á að þetta virki. Það eru ekki til nein tól eða tæki sem gera þetta. Þetta er bara einhver sölumennska. Þetta er bara eins og allt annað í þessum bransa, bara einhver peningagræðgi,“ segir þvagfæraskurðlæknir sem DV ræddi við. Sjónþjálfun Hvað gerir hún: Lagar sjónina með því að gera réttar æfingar Hvernig: Námskeið sem kennir fólki að gera æfingar til þess að laga sjónina. Á nokkrum mánuðum getur þú farið úr -5 í sjón í fullkomna sjón og losað þig við gleraugun. Hvar: nysyn.is Verð: 29.900 krónur Hvað segir sérfræðingurinn? „Í stuttu máli hafa engar rannsóknir sýnt að þetta sé mögulegt á nokkurn einasta hátt. Það er verið að leika sér með taugateygjur í augasteininum sem við notum til að fókusera. Hann stirðnar hægt og bítandi og er orðinn frekar gagnslaus upp úr fertugu. Þess vegna þurfum við öll lesgleraugu, það er þó mismikið og gerist mishratt. Það er einstaka sinnum hægt að ná pínu árangri með smá þjálfun en það er allt dæmt til að hverfa með tímanum út af öldrun,“ segir augnlæknir sem DV ræddi við. Lifewave-plástur Hvað gerir hann: Vinnur gegn tauga- veiklun, óróleika, eirðarleysi, langvarandi þreytu, þróttlausum vöðvum, syfju og sleni n Aðferðir sem sagðar eru losa fólk við ýmsa kvilla n Fólk hvatt til að vera á varðbergi n „Ef það hljómar of vel til að vera satt þá er það líklega ósatt“ Ó trúlegur fjöldi af framandi heilsuvörum, óhefðbundn- um meðferðum og bylting- arkenndum tækjum hafa flætt inn á markaðinn hér á landi. Flestar eiga þessar vörur það sameiginlegt að lofa, eða að minnsta kosti ýja að, ótrúlegri virkni. Engiferdrykkur er sagður vera góður við kvefi, mígreni, gigt, ógleði, ferðaveiki, sjóveiki, melting- artruflunum, fótasveppum, svita- lykt og mörgu fleira. Lúpínusaft er sögð vinna gegn krabbameini. Plástur á að vinna gegn tauga- veiklun, óróleika, eirðarleysi, lang- varandi þreytu, þróttlausum vöðv- um, syfju og sleni og erfiðleikum með að festa svefn og sérstakt tól sem kostar 17 þúsund krónur á að stækka getnaðarliminn verulega. DV hefur leitað til fagfólks sem seg- ir að í flestum tilvikum séu mjög veikar, ef nokkrar, vísindalegar sannanir að baki því sem lofað er að vörurnar geri. „Þarna greinir á milli hjátrúar og vísinda,“ segir Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir og einn af álitsgjöfum blaðsins. „Vísindi eru sönnuð eins langt og það nær og við erum allavega nálægt sannleik- anum með því að beita þeim. Svo er annað sem byggist bara á algjör- um hindurvitnum. Það getur tengst trúarbrögðum og það er þá ekkert á bak við það. Stundum hafa menn reynt að sýna fram á virkni með vís- indum en ef það tekst ekki þá fara menn bara fram hjá þeim og þykj- ast vera að beita vísindum. Þeir nefna eitthvað sem ekkert stenst. Það er hrikalega ljótur leikur og af- bökun á sannleikanum. Það er svo margt í gangi sem stenst engin vís- indi,“ segir Vilhjálmur Ari. Fagfólk sem DV leitaði til segir oft að einu upplýsingarnar sem fólk fái um þessar vörur komi frá söluaðilunum sjálfum – frá fólki sem hefur beinan hag af því að láta vöruna hljóma eins spennandi og magnaða og mögulegt er. Vilhjálm- ur Ari segir að oft sé reynt að plata fólk. „Umburðarlyndi hefur verið afskaplega mikið hjá læknum og landlæknisembættinu. Mörkin eru að ef það hefur ekki skaðleg áhrif þá er það látið óáreitt.“ Hann segist oft vera hissa á því hvað er látið óáreitt í umræðunni og að það komi út eins og þögn sé sama og samþykki. Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Taktu þessar vörur með fyrirvara Viðmælendur n Vilhjálmur Ari Arason heimilislæknir n Steinar B. Aðalbjörnsson næringar- fræðingur n Svanur Sigurbjörnsson sérfræðingur í lyflækningum n Borghildur Sverrisdóttir einkaþjálfari og framkvæmdastjóri MatAsk ehf. Framandi lyf og heilsuvörur Það má finna ógrynni af slíkum vörum nú til dags og erfitt að átta sig á hvaða fullyrðingar eru sannar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.