Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Síða 30
30 Umræða 11.–13. maí 2012 Helgarblað „Þetta var gamal­ dags glassúrsnúður“ Aron Ólafsson: Hvernig getur ríkisstjórnin réttlætt að halda áfram aðlögunarferli inn í ESB þegar þjóðin er á móti?  Össur: Sæll, Aron. Ísland er ekki í aðlögunar- ferli. Eitt af því sem við náðum fram er að þurfa ekki að aðlaga fyrr en þjóðin hefur goldið jáyrði. Það var fyrsti samningasigur- inn. Meirihlutinn vill ljúka samningnum. Hrafnhildur Ragnarsdóttir: Hvernig er verið að vinna að því að styrkja samstarf Færeyja og Grænlands og auka vægi okkar og þeirra er kemur að málum norðurslóða?  Össur: Við styðjum báðar til áhrifa á norður- slóðum. Eigum sérlega góða og vaxandi samvinnu við Grænlendinga þar. Get þess að Ísland hefur sérstaklega stutt rétt frum- byggja til ákvarðana á norðurslóðum. Torfi Símonarson: Hvaða skoðun hefur þú á röddum þess efnis að Kínverjar séu að reyna með landakaupum á Íslandi að byggja upp hernaðarlegan grunn á norðurslóðum til að vera í góðri stöðu gagnvart t.d. Bandaríkjunum?  Össur: Fráleitt tel ég. Mál Núbós snýst ekki lengur um kaup á 3% Íslands, heldur leigu á 300 hekturum, á grundvelli fjárfestingar- samnings sem þarf að staðfesta eftir tíu ár, og rennur þar að auki út eftir 40. Guðrún Jónsdóttir: Telur þú að Íslendingar eigi að setja meira í þróunaraðstoð – ef já – þá af hverju?  Össur: Já. Ég skammast mín fyrir að við skárum niður í kreppunni. Þróunaraðstoð ræður úrslitum um möguleika fátækustu þjóðanna. Við erum með ríkustu þjóðum og ber siðferðileg skylda til að aðstoða örsnauða. Ásgeir Einarsson: Styður Samfylkingin eða þú aðskilnað ríkis og kirkju?  Össur: Ég hef gert það, enda utan Þjóðkirkjunnar (í Fríkirkjunni) en í Samfó hef ég aldrei verið spámaður. Bjarki Hilmarsson: Er ekki kominn tími til að íslensk stjórnvöld fordæmi mann- réttindabrot Ísraela á herteknu svæðunum í Palestínu?  Össur: Hei – í hvaða heimi býrðu, elsku Bjarki? Engin ríkisstjórn utan Arabaheims- ins hefur talað jafn svert. Má ég minna á að Alþingi samþykkti tillögu mína um viðurkenningu á Palestínu? Ég hef notað allar ræður mína á Allsherjarþingum SÞ til að styðja Palestínu, talað máli hennar hvar sem ég kem, nú síðast á opnum fundi með ráðherrum Norðurlanda í Noregi í sl. viku. Það er ekkert sem ég er eins stoltur af og að hafa verið á dekki þegar Ísland, eitt Vestur- landa sl. 20 ár, viðurkenndi Palestínu. Það var Íslandi til sóma. Ásgeir Einarsson: Getur Samfylking myndað ríkisstjórn með hvaða flokki sem er á Alþingi eftir næstu kosningar?  Össur: Ef kraftaverk eru undanskilin gæti hún tæpast myndað tveggja flokka stjórn með nema einum. Mér finnst hins vegar skemmtilegast í margflokka stjórnum, eða minnihlutastjórnum. Ómar Valdimarsson Sæll, Össur. Væri ekki séns að hafa þjóðaratkvæða- greiðslu um hvort það eigi að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB?  Össur: Ertu að vera hótfyndinn á kostnað eina alvörugefna stjórnmálamannsins í landinu? Allt er hægt. Minn smekkur er fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um fullkláraðan samning. Ragnheiður Pálsdóttir: Sæll, Össur. Mig langar að forvitnast um það hvort staða menningarfulltrúa ráðuneytisins verði auglýst. Það er mikilvægt að manneskja með vit og áhuga á menningarlífinu skipi þessa stöðu.  Össur: Ég hef hug á því að gera tímabundna tilraun með að flytja menningarþáttinn inn í samstarf Íslandsstofu og kynningarmið- stöðvanna. Ná þannig meiri slagkrafti í að flytja orðstír skapandi Íslendinga út. Viktor Valgarðsson: Telur þú tímabært að skipta um forystu Samfylkingarinnar? Hverjir sérðu fyrir þér að leiði flokkinn í næstu kosningum?  Össur: Ég á enga kristalskúlu til að skyggnast inn í framtíðina. Árni Páll er að máta formannsbrækur, Katrín og Dagur eru nefnd, fleiri langar, margir þeirra hæfir. En formaðurinn heitir Jóhanna. Guðrún Jónsdóttir: Össur, ertu femínisti ?  Össur: Ég er alinn upp í skini Rauðsokkahreyfingarinnar, og er af þeirri kynslóð kalla sem amk. vill vera femínistar. Þórunn Sveinbjarnar sagði að ég væri það næstum. María Þrastardóttir: Sérðu fyrir þér að Samfylkingin geti unnið með Sjálfstæðisflokki eftir kosningar eða kemur yfirlýsing um samstarf eða kosninga- bandalag við VG til greina?  Össur: Ég er á móti kosningabandalögum. Ég gæti við vissar aðstæður unnið með Sjálfstæðisflokknum, en tel líklegustu niðurstöðuna félagshyggjustjórn þar sem VG sæti á fletinu líka. Þórarinn Einarsson: Hvað ætlar Samfylkingin að gera ef þjóðin hafnar aðild að ESB? Hefur hún þá nokkuð fyrir stafni?  Össur: Hvort sem við vöknum upp innan eða utan ESB eru verkefnin ærin við að moka fjósið sem samstjórn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar skildi eftir – og gæti haldið Samfó upptekinni í áratugi í viðbót. Hins vegar tel ég ólíklegt að samningurinn verði felldur að lokum – svo fremi við náum niðurstöðu í sjó. Þar veldur ekki síst að aðild er langbesta leiðin til að leysa gjaldmið- ilsmálin. Án samstarfs við ESB um þau sé ég fram á að gjaldeyrishöft verði örlög okkar um langa hríð. Svo væri ekki verra að fá hingað þær erlendu fjárfestingar sem reynslan sýnir að fylgi aðild smáríkja. Ragnheiður Ragnarsdóttir: Tvö alsírsk börn voru nýlega dæmd í fangelsi hérna, í hróplegu ósamræmi við Barnasáttmála SÞ. Getur þú/ætlar þú að aðhafast eitthvað í því máli?  Össur: Það á aldrei að setja börn í fangelsi. Það er mín skoðun. Ég get ekki lofað þér öðru en að ræða málið við hlutaðeigandi félaga mína í ríkisstjórn. Guðmundur Franklín Jónsson: Þú ert mjög vinsæll innan Samfylkingarinnar. Hefur þú hugsað þér að fara fram (Árni Páll hefur lýst yfir löngun) gegn núverandi formanni?  Össur: Ég nýt fráleitt sama stuðnings innan Samfó og þú innan þíns – enda bara starfs- maður á plani. Ég er saddur formannsdaga. Það er afgreitt mál. Sorrí Stína. Andrés Jónsson: Talað er um atgervis- flótta úr stjórnmálum. Eru stjórn- málamennirnir sem eru núna á þingi, betri eða verri, heilt yfir, en þeir sem við höfðum áður að þínu mati?  Össur: Þeir eru að minnsta kosti miklu orð- ljótari en þeir sem áður vermdu bekkina. Ég kalla ekki allt ömmu mína í þeim efnum, en kjaftbrúkið í þinginu kemur m.a.s. mér í opna skjöldu á stundum. Ari Brynjólfsson: Veistu hvaðan samsæriskenningin um samband Samfylkingar og Jóns Ásgeirs á rætur sínar? Gætir þú tjáð þig eitthvað um það mál, hvort sem það er eitthvað á bak við það eður ei?  Össur: Ég hef verið húðskammaður fyrir að segja að mér fannst Samfó hafa of mikla glýju í augunum gagnvart nýja kapítalinu. Jafnaðarmannaflokkar hér og erlendis stóðu sig ekki í aðhaldshlutverkinu. Kenningin sem þú nefnir spratt helst upp á bloggsíðum Björns Bjarnasonar. Sjálfur tapaði ég næstum formannssætinu fyrr en ella fyrir samskipti min ill og hörð við Baugsveldið. Logi Björnsson: Ætlar ríkisstjórnin/ Alþingi ekkert að gera til að stöðva innheimtu á gengistryggðum lánum? Ef ekki, er búist við því að launafólk hafi efni á að borga lögfræðingi til að verja hagsmuni sína?  Össur: Ég veit að glíman við Dróma er ekki fullgengin og það er skelfilegt mál. En að öðru leyti hélt ég að það væru engir að innheimta gengislán sem ólögmæt voru fundin. Helgi Ingason: Finnst þér að það ætti að vera hámarkstími sem menn geta setið á Alþingi?  Össur: Pétur Ottesen sat í 40 ár og var bestur undir lokin. Nei, mér finnst það ekki. Þegar persónukjör verður upp tekið getur þjóðin hæglega komið í veg fyrir slímusetur þeirra sem flokkarnir hafa dálæti á. Sigurður Sigurðsson: Eru mannrétt- indabrot í Kína ekkert að bögglast fyrir þér, Össur? Hvernig réttlætir þú þjónkun og fyrirgreiðslu ákveðinna aðila innan Samfylkingarinnar við Nubo? Er þetta ekki bara dæmi um spillingu?  Össur: Ég hef sjálfur tekið upp mannrétt- indi við Kína og hlustað á forsætisráðherra gera slíkt hið sama með kraftmiklum hætti. Nubo fær ekki aðra fyrirgreiðslu en lög heimila öðrum. Hallur Guðmundsson: Hvað ESB varðar, er það raunhæfur möguleiki að ætlast til þess að fá varanlegar undanþágur eins og Samfylkingin hefur talað fyrir eða eru þessar undanþágur bara hugsaðar tímabundið til aðlögunar?  Össur: ESB er þekkt fyrir sérlausnir varðandi stóra hagsmuni umsóknarríkja. Við munum freista þeirra í nokkrum stórmálum. Sums staðar verður væntanlega leitað eftir tímabundnum aðlögunum. Það er heldur ekki hægt að útiloka að samningahópar okkar komist að þeirri niðurstöðu að í ein- stökum málum, þar sem sérstaða okkar er rík, verði óskað eftir undanþágum. Það mun koma í ljós. María Þrastardóttir: Ertu enn þeirrar skoðunar að ekki eigi að virkja í neðri hluta Þjórsár til að knýja álver í Helguvík og er rétt að setja háhitasvæði á Reykjanesfólkvangi í nýtingarflokk í rammaáætlun.  Össur: Ef skoðun á laxarökum Orra Vigfús- sonar sýnir að þau standast ekki finnst mér líklegt að efri virkjanirnar tvær verði gerðar í framtíðinni, en Urriðafoss ekki. Hvað varðar Reykjanes þá er ég giska sáttur við niðurstöðuna einsog hún liggur fyrir í tillögunni í þinginu. Menn verða hins vegar að gæta að sjálfbærni, og ganga ekki of hart í nýtingunni. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir: Hvað þarf ég að bíða lengi eftir ríkisstjórn sem vill ekki vera aðili að hernaðarbandalaginu Nató?  Össur: Mér þykir líklegt, ef stjórnarskrár- breytingarnar verða, þar sem opnað er Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sat fyrir svörum á Beinni línu DV.is á miðvikudag. Hann styður aðskilnað ríkis og kirkju og er ánægður með tillögur stjórnlagaráðs. Nafn: Össur Skarphéðinsson Starf: Utanríkisráðherra Aldur: 58 ára Menntun: Doktorspróf í lífeðlisfræði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.