Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Page 31
Umræða 31Helgarblað 11.–13. maí 2012 Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni „Það mætti halda að Hákon hafi skitið á ís- lenska fánann, miðað við viðbrögðin hérna :).“ Steingrímur Rúnar Guð- mundsson í athugasemd við skyndibitarýni Hákonar á DV.is. Hákon rýndi þar skyndibitastaðinn Subway sem fékk alls ekki góða dóma og tóku margir upp hanskann fyrir staðinn. „Í svona málum á að heita ríflegum fundarlaunum, og bjóða köfurum aðgang að svæðinu. Svona tankur hlýtur að finnast ef nógu margir reyna að leita.“ Hafþór Þórarinsson um frétt á DV.is þess efnis að þúsund lítra olíutankur lægi á botni Ytriflóa Mývatns. „Og verðlaunin fyrir ósmekklegustu ummæli ársins hlýtur Bónus-Jóhannes!“ Heiða B. Heiðars við frétt á DV.is þar sem Jóhannes í Bónus sagði að það þyrfti bara að líta á fjölmiðlamanninn Egil Helgason til að átta sig á því að fjölskylda hans hefði mis­ notað lágt vöruverð. „Djöfull er gaman þegar menn þora að segja sannleikann bravó Egill.“ Styrmir Már Sigmundsson við frétt þar sem greint var frá bloggi Egils Helgasonar. Egill sagði það vera þjóðsögu að Jóhannes í Bónus hefði verið vildarvinur alþýðunnar. „Verð nú bara að segja að mér finnst jákvætt þegar menn sem þekkja þennan heim af eigin raun hvetja menn til að halda sig frá honum.“ Steinar Immanuel Sörensson við frétt á DV.is þar sem vitnað var í gagnrýni Jóns stóra og Ævars Arnar á kvikmyndina Svartur á leik. Voru lokaorð Jóns og Ævars skilaboð til ungs fólks um að halda sig frá því líferni sem fjallað er um í kvikmyndinni. „Jæja, þá er sá tími ársins kominn að fólk byrjar að alhæfa um bifhjólamenn upp til hópa. Um daginn svínaði maður á fólksbifreið fyrir mig. Þessir helvítis fólksbifreiðaökumenn eru stórhættulegir og það er kominn tími til að tala opin- skátt um það.“ Styrmir Barkarson um frétt á DV.is þar sem knapi kvartaði yfir mótorhjólamanni sem ók ógætilega fram hjá honum og dóttur hans. Sagði knapinn slíka hegðun jaðra við morðtilraun en atvikið átti sér stað fimmtudaginn 3. maí og vakti töluverða athygli á DV.is. „Subway er svolítið eins og útvarpsstöðin Bylgjan. Ekki einu sinni Jalapeno piparinn hefur skýrt eða sterkt bragð. Litrófið alveg frá grænu yfir í gult. Smám saman er markaðurinn að taka allt afgerandi burt og „besta“ hluti niður í svona lægsta samnefnara bragðs.“ Svavar Knútur við skyndibita­ rýni Hákonar þar sem Subway var tekinn fyrir. 07 04 10 36 31 39 32 „Þetta var gamal­ dags glassúrsnúður“ á að ná fram þjóðaratkvæðagreiðslum með tiltölulega greiðum hætti, þá gætirðu hugsanlega fengið að kjósa um Nató í framtíðinni. Ásta Sigrún Magnúsdóttir: Hvaða verkefni ertu stoltastur af á þínum ferli sem stjórnmálamaður og hvar hefur þér brugðist bogalistin?  Össur: Ég er stoltastur af Palestínu. Ég skammast mín fyrir að hafa ekki verið harðari gegn niðurskurðinum til þróunar­ mála meðan kreppan reið yfir. Týr Þórarinsson: Nú er sögulega lítill stuðningur við þessa ríkistjórn og vaxandi óánægja með ykkur. Hefur aldrei hvarflað að ykkur að hætta og boða til nýrra kosninga?  Össur: Nei. Þetta heitir lýðræði. Fólk kýs stjórn til 4 ára. Þessi stjórn er að ná miklum árangri. Hverja viltu? Stjórnarandstaðan hefur minna fylgi en stjórnin. Guðrún Konný Pálmadóttir: Sæll, Össur, hvað hefur hrunið helst kennt þér sem stjórnmálamanni?  Össur: Í fyrsta lagi að treysta ekki orðum matsfyrirtækja, sem gáfu bönkum og Íslandi toppeinkunn fram í rauðan dauðann. Í öðru lagi að skipta mér meira af verksviði annarra ráðherra. Í þriðja lagi að vera gagnrýninn á okkar eigin eftirlitsstofnanir. Í fjórða lagi hef ég velt mjög fyrir mér hvort ríkisstjórnin eigi ekki að vera fjölskipað stjórnvald, þar sem ráðherrar eru samábyrgir... og verða að fylgjast betur með hvers annars verkum. Í fimmta lagi að oddvitastjórnmál eru hættuleg. Gísli Sigurður Gunnlaugsson: Nú ert þú svolítið í neftóbakinu, hvernig finnst þér umræðan um neftóbaksnotkun Íslendinga búin að vera upp á síðkastið? Og ertu fylgjandi banni á svokölluðu „snúsi“, eða munntóbaki?  Össur: Reyklaust tóbak fer miklu betur með heilsuna en reykt tóbak. Ég, ásamt Inga Birni, Davíð Oddssyni, Halldóri Blöndal, Ögmundi Jónassyni og Guðna Ágústssyni, greiddi atkvæði gegn banninu. Ég var þá formaður heilbrigðisnefndar þingsins og varð auðvitað að hlíta banninu. Sama dag hætti ég í snuffinu og fór í innlendu fram­ leiðsluna. En þetta er viðkvæmt mál heima og í þinginu... Rafn Guðjónsson: Geturðu sagt mér, af hverju er ekki hægt að leggja niður verðtrygginguna nema að við göngum í ESB?  Össur: Fræðilega er það hægt, en reynslan sýnir að það er ekki gert. Menn í öllum flokkum tala fjálglega um að afnema hana, og halda betur á spöðunum í ríkisfjármálum o.s.frv. En þeir hafa aldrei gert það, og á þeirri reynslu byggi ég að þeir muni ekki heldur gera það í framtíðinni. Þess vegna er það einn af ávinningum aðildar að ESB að við getum afnumið verðtrygginguna. Sam­ hliða lækka vextir – og hví skyldum við ekki með okkar öflugu fúndament í efnahags­ lífinu stefna á þýska vexti? – Og við getum afnumið gjaldeyrishöftin sem ella munu skerða lífskjör okkar. Illugi Jökulsson: Heill og sæll! Segðu mér nú skorinort og fyrirvaralítið hvaða skoðun þú hefur á stjórnarskrárfrum­ varpi því sem við börðum saman nokkur, eitt sumar á landinu bláa.  Össur: Ávinningur þess er meiri en gallarnir. Þess vegna styð ég það. En ég er sammála forsetanum um að það færir hans embætti aukið vald. Það er galli sem ég vildi sjá þingið breyta. Lifi byltingin! Jónas Halldórsson: Er kreppan búin?  Össur: Já, það er sam­ felldur vöxtur í efnahagslífinu. Við nutum ríflega 3% vaxtar í fyrra. Spáð er 2,2–2,5% á næstu árum, en ég held að hann verði nær 4%. Við erum með hæstu þjóðum á okkar parti heims hvað varðar vöxt, þorskurinn er á rymjandi uppleið, loðnan fundin, ferðaþjónusta í sögulegri sveiflu, og uppgangur á næsta áratug við þjónustu og leit að olíu og gasi. Það breytir ekki hinu, að enn eiga alltof margir um sárt að binda eftir hrunið, og það er stjórnmálamanna að halda áfram að finna leiðir til að bæta stöðu þeirra. En kreppan, sem afleiðing af bankahruninu, er frá. Við eigum hins vegar eftir að vinna niður snjóhengjuna – 1.200 milljarða króna í eigu útlendinga – og leysa gjald­ miðilsmálin. Það er verkefnið. Konráð Jónsson: Sæll, Össur. Hvernig snúður var þetta sem Sigurjón Þ. Árnason gleypti hálfan í einum munnbita? Heldur þú að þú getir leikið þetta eftir honum?  Össur: Þetta var gamaldags glassúrsnúður, skorinn í tvennt. Nei, ég get ekki leikið þetta eftir. Það byggir á tilraun sem ég gerði, og mistókst. Gunnar Salvarsson: Þú fórst nýlega til Malaví – breytti sú heimsókn að einhverju leyti sýn þinni á þróunarsam­ vinnu? Telurðu að vilji sé fyrir því á þingi að hækka opinber framlög myndarlega á næstu árum?  Össur: Já, hún breytti afstöðu minni. Mér fundust okkar eigin vandamál ærið smá í samanburði við stöðu þeirra. Ég taldi heimkominn að aukin framlög ættu að vera forgangsmál ríkrar þjóðar einsog okkar. Ég tel að það sé vilji á Alþingi til að hækka framlögin á næstu árum. Þar hafa orðið kynslóðaskipti. T.d. gladdist ég yfir hversu snaggaralega forysta Sjálfstæðisflokksins talaði í málinu. Gott hjá BB. Pétur Þorsteinsson: Hefur utanríkisráðherra fylgst með vaxandi alþjóðlegri gagnrýni á stríðið gegn fíkniefnum? Tekur ráðherrann að fíknistríð sé líklegt til að skila árangri?  Össur: Ég tek eftir því að sumar þjóðir fara aðrar leiðir, og lögleiða tiltekin fíkniefni. Víða fylgjast menn með því, og munu væntanlega skoða af því reynsluna. Guðrún Jónsdóttir: Finnst þér að stjórnmálaflokkar þurfi á ungliðahreyf­ ingum að halda ?  Össur: Já. Þær eru oft samviska flokkanna, og halda þeim við efnið. Sjálfur er ég alinn upp á íhaldsheimili, reyndi að ganga í Heimdall, en til allrar guðs lukku klikkaði Kjartan Gunnarsson á því. Hallur Guðmundsson: Sæll, Össur. Skjaldborg um heimilin, sagði forsætisráðherra forðum. Hvernig túlkar þú þau orð?  Össur: Ég túlka þau þannig að hún hafi viljað gera allt sem hún gæti til að lina þjáningar þeirra sem blæddi eftir hrunið. Lilja Mós setti fram sitt mat í gær á fésbók hvað það er mikið: 230 milljarðar. Fundarstjóri: Hvern ætlar þú að kjósa í forsetakosningunum í sumar?  Össur: Það er hefð fyrir því að ég gefi ekki upp minn kandídat fyrr en degi fyrir kosninguna. Síðast var það Ólafur Ragnar Grímsson. Sigurður Gunnarsson: Sæll, Össur. Hver er málefnalegastur á þingi í dag að þínu mati? Fyrir utan sjálfan þig að sjálfsögðu.  Össur: Fair play að ég nefni bara til sögunnar stjórnarandstæðing: Það myndi vera Eygló Harðardóttir. Bárður og Lína: Eru tengsl á milli þín, Össur, og aðstoðarmanns Nubo, Halldórs Jóhannssonar?  Össur: Ég hef hitt hann í tengslum við Arctic portal sem sett var upp í tíð forvera míns, og hann kom með Nubo á fundinn sem ég átti með honum – einsog kom fram í frétta­ tilkynningu af þeim fundi. Ómar Valdimarsson: Ókei, ein alvöru: Hefur Ísland fengið vilyrði eða telur þú að hægt sé að semja um að ECB haldi ISK innan ákv. vikmarka, strax eftir hugsanlega inngöngu í ESB (fyrir ERM II)?  Össur: Ég tel að við getum gengið í ERM II jafnfljótt eftir formlega inngöngu og ýmsar aðrar smáþjóðir – og þar munar ekki nema örfáum mánuðum. Í því felst að ECB héldi krónunni innan ákveðins rúms. Fyrir þig og lesendur þína væri sér­ staklega áhugavert að skoða samninginn við Dani.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.