Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Qupperneq 36
Úr Harvard
í hátísku
36 Viðtal 11.–13. maí 2012 Helgarblað
100 þúsund viðskiptavinir
„Í lok síðasta árs vorum við
komin með yfir 100.000 með-
limi víða í heiminum. Rúmlega
40 prósent viðskiptavina okkar
versla aftur á síðunni eftir að
hafa verslað einu sinni og margir
versla reglulega og gjarnan
mörgum sinnum í mánuði.“
„Ég held að það
sem ég hafi lært
sé að fylgja hjartanu og
gera það sem mér þykir
skemmtilegt í starfi – það
er erfitt að verða mjög
góður í einhverju nema
því aðeins að njóta þess
virkilega sem maður gerir.
Áslaug Magnúsdóttir er einn eigenda og forstjóri fyrirtækisins Moda
Operandi þar sem hægt er að panta hátískuvörur á netinu strax að
loknum sýningum hönnuðanna. Áslaug er lögfræðingur, með meist-
aragráðu í fyrirtækjalögfræði frá Bandaríkjunum og MBA-gráðu frá
Harvard. Hún vann meðal annars hjá McKinsey, Baugi og Marvin
Traub áður en hún stofnaði fyrirtækið. Áhugamálið? Tíska.
É
g hafði alltaf gaman af að skoða
falleg föt en get ekki sagt að ég
hafi haft meiri áhuga á tísku
en flestar aðrar íslenskar ung-
lingsstelpur,“ segir Áslaug sem
býr í New York.
Áslaug gekk í Verzlunarskóla Ís-
lands. Hún hafði áhuga á að fara í
viðskiptafræði eftir stúdentspróf en
taldi á endanum að betra væri að
reyna að breikka þekkingargrunninn
með því að fara í lögfræði.
Hún settist á skólabekk í lögfræði-
deild Háskóla Íslands og hóf að námi
loknu störf hjá Deloitte & Touche á
Íslandi þar sem hún vann í rúm þrjú
ár.
Duke og Harvard
Áslaug hóf meistaranám í fyrirtækja-
lögfræði við Duke University í North
Carolina árið 1997 og fór sonur
hennar, Gunnar, með henni.
Hún segir að upphaflega hafi hún
ætlað að fara heim beint eftir námið
og fara að vinna aftur sem lögfræð-
ingur. „Það var eitthvað sem togaði
í mig þegar til Bandaríkjanna var
komið. Mér fannst ég þurfa að verja
meiri tíma þar til að þróa nánar það
sem ég hafði þá þegar aflað mér.
Ég vildi prófa að starfa erlendis
og taldi að það yrði auðveldara ef ég
væri með viðskiptagráðu í viðbót við
lögfræðina en lögfræði er svo tengd
lögum og reglum hvers lands. Við-
skiptafög höfðu heillað mig frá því ég
var í Versló og ég taldi alltaf að það
væri gott að hafa menntun í hvoru
tveggja. Ég hef reyndar aldrei unnið
aftur við lögfræði eftir viðskiptanám-
ið en það nám kemur að góðum not-
um til dæmis við samningagerð.“
Áslaug hóf nám í Harvard og var
ákveðið að Gunnar færi aftur til Ís-
lands og byggi hjá föður sínum.
Hún útskrifaðist síðan með MBA-
gráðu árið 2000.
„Ég var ánægð með það nám sem
ég stundaði í Duke, sem er mjög góð-
ur og þekktur háskóli, og það var frá-
bær reynsla að vera í Harvard. Besti
hlutinn af náminu var allt frábæra
fólkið sem ég kynntist þar. Harvard-
hópurinn heldur fast saman og við
hjálpum hvert öðru eins mikið og við
getum. Margir þeirra sem útskrifuð-
ust með mér fluttu til New York og
ég hitti þau oft.“ Hún fann ástina í
Harvard: Eiginmaður hennar heitir
Gabriel Levy og var í sama námi. „Við
kynntumst rétt fyrir útskrift; hann var
á leið til New York og ég til London.“
Mikil ferðalög
Áslaug flutti til London eftir útskrift
frá Harvard og hóf störf hjá ráðgjaf-
arfyrirtækinu McKinsey þar sem hún
vann í þrjú ár.
„McKinsey var ótrúlegur skóli og
ég lærði mjög mikið af því að vinna
þar. Vinnudagarnir voru langir og ég
var endalaust að ferðast. Á þessum
tíma fór ég yfirleitt á hverjum mánu-
dagsmorgni til Þýskalands, Belgíu
eða annarra landa þar sem beið mín
verkefni og kom síðan yfirleitt til
baka á fimmtudagskvöldum. Ég var
síðan tvær til þrjár helgar í mánuði
annaðhvort á Íslandi, þar sem son-
ur minn var, eða í New York þar sem
maðurinn minn var. Gunnar minn
kom reyndar með mér þegar ég var
að vinna verkefni í Amsterdam og á
fleiri stöðum þegar hann var hjá mér
á sumrin. Hann þurfti því að verja
miklum tíma á hótelherbergjum.“
Hún segir að McKinsey hafi eigin-
lega verið eins og viðskiptaskóli. „Ég
lærði ótrúlega mikið um stefnumót-
un og mannauðsstjórnun. Það var
líka mikil reynsla að vinna í mörgum
mismunandi löndum með viðskipta-
aðilum þar. Þetta kenndi mér hversu
mismunandi viðskiptamenningin er
oft á milli landa og hvernig þarf að
haga sér með ólíkum hætti á hverjum
stað til að koma málum á framfæri.“
Í Katar
Áslaug vann í fjóra mánuði í Katar á
þessum tíma. „Þetta var rétt áður en
seinna stríðið í Írak hófst. Ég var að
vinna að verkefni fyrir símafyrirtæki
landsins og bjó á Ritz Carlton hótel-
inu á meðan. Hótelið var fullt af fjöl-
miðlafólki sem var að vinna að frétt-
um um ástandið í Miðausturlöndum.
Það var mikil reynsla að vinna í
Katar. Ég kom þangað á ramadan-
tíma og voru allir arabarnir fastandi.
Ég mátti hvorki borða né drekka fyr-
ir framan þá og þurfti að fela vatns-
flöskurnar mínar undir skrifborð-
inu. Karlar og konur máttu ekki taka
í hendurnar á hvert öðru og í sam-
kvæmum voru sérstök karla- og
kvennasvæði. Körlum og konum er
þannig ekki leyft að verja tíma sam-
an í samkvæmum – ekki einu sinni í
brúðkaupum. Það eru sér karla- og
konuveislur.
Ég fór í skemmtilegar eyðimerk-
urferðir á jeppum á meðan ég dvaldi
þarna og var þetta svolítið líkt jeppa-
ferðum í snjó. Jepparnir runnu niður
sandinn eins og við værum á skíðum.
Mér finnst landið vera skrýtið: Eyði-
mörk og háhýsi.“
Katar er eitt ríkasta land í heimi
og segir Áslaug íbúa þar búa við mik-
inn lúxus. „Þeir kaupa til dæmis mik-
ið af dýrum fatnaði og lúxusvarn-
ingi. Ég hafði það mjög gott á meðan
ég var þar, bjó á fallegu hóteli, sendi
fötin í hreinsun, fór í nudd og sund á
hótelinu og í „limo“ á skrifstofuna á
hverjum degi. Ég var hins vegar orð-
in hundleið eftir fjóra mánuði. Það
var engin leið að eignast þarlenda
vini. Konurnar höfðu varla tækifæri
til að fara af heimilinu og samskipti
kynjanna voru með þeim hætti að
það var illhugsanlegt að eignast karl-
kyns vini.“
Til Baugs
Gabriel flutti til London eftir þriggja
ára fjarbúð og þá sagði Áslaug upp
hjá McKinsey og fór að vinna fyrir
Baug þar sem hún vann í þrjú ár.
„Baugsreynslan var líka mikilvæg.
McKinsey var mjög fyrirtækjamiðað
fyrirtæki en Baugur nýsköpunarmið-
að. Það er mikilvægt fyrir mig í starfi
mínu í dag að hafa upplifað þessa
mismunandi aðferðafræði.“
Gullslegin einkaflugvél
Áslaug hóf störf hjá Marvin Traub
árið 2006 og tengdist það starf tísku-
og lúxusgeiranum.
„Marvin er oft kallaður „legend“
á bandaríska smásölumarkaðnum.
Hann vann hjá Bloomingdales í
40 ár og þar af í 22 ár sem forstjóri.
Hann stofnaði síðan ráðgjafarfyrir-
tæki sem vann með tískuhönnuðum
og smásölufyrirtækjum. Mig hefði
ekki getað dreymt um betra starf til
að kynnast heimi tískunnar á alþjóð-
legum mælikvarða og þeim einstak-
lingum sem reka helstu tískufyrir-
tækin í Bandaríkjunum.
Fyrsti fundurinn sem ég fór á
með Marvin var með Harvey Wein-
stein þar sem við vorum að skipu-
leggja kaup hans á Halston. Næsta
verkefni var að fljúga í gullsleginni
747 einkaflugvél spilavítiseigandans
Sheldon Adelson til Makaó og Singa-
púr þar sem hann var að setja upp
verslanakeðjur.
Ég vann í heilt ár með Andre 3000
úr hljómsveitinni Outkast og hjálp-
aði honum að setja fatalínu á fót.
Ég átti svo nokkra fundi með Kanye
West sem var að vinna að nýrri fata-
línu. Það var ótrúlegt hvað margir
komu til Marvins þrátt fyrir að hann
væri orðinn 85 ára á þessum tíma.“
Moda Operandi
Áslaug ákvað að stofna sitt eigið fyr-
irtæki eftir nokkur ár í tískuheim-
inum. „Ég hef unnið með mörgum
hönnuðum í gegnum árin sem hafa
allir haft sömu sögu að segja – að
þeir hanni mikið af fallegum hlutum
sem neytandinn fær aldrei aðgang
að vegna þess að tískuverslanir taki
ekki þá áhættu að fjárfesta í þeim.
Þær fjárfesta yfirleitt í því sem þær
telja að flestir vilji kaupa en ekki
endilega það sem verður líklegt til að
verði í tísku á næstunni né það sem
tímaritin hafa mestan áhuga á. Með
stofnun Moda Operandi vildum við
reyna að koma á nánari tengslum
milli hönnuða og viðskiptavina og
ná betra jafnvægi milli framboðs og
eftirspurnar.“
Áslaug stofnaði svo í fyrra fyrir-
tækið, Moda Operandi – modao-
perandi.com – ásamt Lauren Santo
Domingo sem vann áður hjá Vogue.
„Við leggjum áherslu á að gefa
viðskiptavinum tækifæri til að panta
nýjustu hönnun innan fárra daga frá
tískusýningu. Fólk vill geta valið það
sem því þykir fallegt og hefur áhuga
á og vill tryggja sér vöruna strax á
meðan hún er ný og spennandi.“
Rúmlega 40% versla aftur
Unnið er með rúmlega 200 hönn-
uðum sem hanna fatnað, töskur,
skó og skartgripi. „Við vinnum bæði
með stórum merkjum eins og Marc
Jacobs, Fendi og Versace og ungum,
hæfileikaríkum hönnuðum sem við
kynnum stundum fyrir viðskiptavin-
um okkar í fyrsta skipti.“
Reksturinn hefur orðið viða-
meiri með tímanum og nú starfa
um 40 manns hjá fyrirtækinu. „Ný-
lega hafa hafið störf hjá okkur mjög
reyndir einstaklingar sem unnu áður
til dæmis hjá Bergdorf Goodman,
Neiman Marcus, lúxusvefsíðunni
Net-a-Porter, Marie Claire og Teen
Vogue.“
Áslaug segir að viðtökur við-
skiptavina hafi verið frábærar. „Í lok
síðasta árs vorum við komin með
yfir 100.000 meðlimi víða í heimin-
um. Rúmlega 40 prósent viðskipta-
vina okkar versla aftur á síðunni eftir
að hafa verslað einu sinni og margir
versla reglulega og gjarnan mörgum
sinnum í mánuði.
Moda Operandi var nýlega valið
af tímaritinu Fast Company í þriðja
sæti sem mesta nýsköpunartískufyr-
irtækið í heiminum fyrir árið 2012.
Financial Times tilnefndi Moda
Operandi til verðlaunanna Boldness
in Business þar sem verðlaunað var
nýtt fyrirtæki sem þótti skara fram úr
varðandi nýjar viðskiptaaðferðir og
Harvard Business School skrifaði ný-
lega námsverkefni um Moda Oper-
andi sem er nú í námskrá skólans og
var kennt í fyrsta skipti í janúar. Mér
var boðið að vera viðstödd fyrstu
kennslustundina og svara spurning-
um úr sal. Það var mjög gefandi og
gaman að koma aftur til Harvard. Ég
var einnig aðalfyrirlesari fyrir 70 pró-
fessora og forstjóra í boði Wharton,
University of Pennsylvania, í mars
sem var mikill heiður.“
Lúxuslíf í New York
Það er nóg að gera hjá Áslaugu við
rekstur stækkandi fyrirtækis. „Með
nýtt fyrirtæki er lítill tími fyrir annað
en vinnu. Frítíminn er dýrmætur og
ég reyni að verja öllum frítíma með
fjölskyldu og nánustu vinum. Við
búum í fallegri byggingu í New York
með æfingasal, danssal, sundlaug og
heitum potti og ég nýti mér þessar
aðstæður eins mikið og ég get. Mér
þykir ótrúlega gott að slaka á í heita
pottinum rétt áður en ég fer að sofa
eftir langan og erfiðan vinnudag“.
Sonurinn, Gunnar, lýkur fljót-
lega stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð og segir Ás-
laug að hann ætli síðan að flytja til
New York. „Hann er nýkominn með
græna kortið og getur því unnið hér
eða farið í framhaldsnám.“
Hún hefur lært mikið á þessum
árum. „Ég hef átt svolítið óvenjuleg-
an starfsferil og prófað nokkur mis-
munandi starfssvið. Þetta var svolít-
ið erfið leið því maður þarf að mörgu
leyti að byrja upp á nýtt í hvert skipti
sem maður breytir til. Ég er hins
vegar þakklát fyrir það í dag að hafa
þessa fjölbreyttu reynslu því á end-
anum fann ég starfið sem ég elska.
Ég held að það sem ég hafi lært sé
að fylgja hjartanu og gera það sem
mér þykir skemmtilegt í starfi – það
er erfitt að verða mjög góður í ein-
hverju nema því aðeins að njóta þess
virkilega sem maður gerir.“
Svava Jónsdóttir