Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 38
38 11.–13. maí 2012 Helgarblað Stórafmæli Stórafmæli Ásdís Valdimarsdóttir húsmóðir 70 ára 12. maí Telma Eldrún Dögg Magnúsdóttir marglistakona 30 ára 12. maí 54 ára 12. maí Eric Singer, trommari hljómsveitarinnar Kiss. 51 ára 13. maí Körfuknattleiksmaðurinn og vandræðagemsinn Dennis Rodman reynir nú fyrir sér sem leikari og atvinnumaður í glímu. 29 ára 11. maí Holly Valance hóf ferli sinn í sjónvarpsþáttunum Nágrönnum og gaf svo út sína fyrstu smáskífu, Kiss kiss, árið 2002. Reyndi ekki Íslands- met í barneignum É g er Hólmavíkurmær, fædd þar og uppalin. Það var ótrúlega gott að vera barn á Hólmavík og ég ætlaði aldrei að flytja þaðan í burtu. Þetta er para- dís, á vetrum lékum við okk- ur í snjónum, vorum ýmist á sleðum eða skíðum og svo líka bara að atast í sköflunum. Við höfðum góðar skíðabrekkur en að vísu ekki neinar lyftur enda vorum við í fínu formi til að labba á fjallið. Á sumrin var margt að gera, við veidd- um mikið á bryggjunni og svo voru mamma og pabbi með kindur og kýr. Það þurfti auð- vitað að heyja fyrir bústofn- inn. Þá var engin mjólk seld í búðum og mikið um að fólk væri með svona dýrahald í þorpinu,“ segir Ásdís þar sem hún horfir dreymin yfir höfn- ina í Hafnarfirði með bernsku- myndir í huga. Hún byrjaði starfsferilinn á símstöðinni á Hólmavík en færði sig svo yfir í frystihúsið. „Þar var fjörið og líka miklu meiri tekjur. Þarna voru all- ir krakkarnir og mjög mikil vinna.“ Þegar Ásdís náði 16 ára aldri flutti hún suður og enn kom mjólkin í líf hennar því hún réðst til starfa í mjólkur- búðinni á Hrísateigi. Þar sem húsmæður hverfisins áttu eins konar fundarstað þegar þær náðu sér í dreitilinn. „Eftir tímann minn í mjólkinni fór ég að vinna hjá Landssímanum í Reykja- vík. Það hét Langlínumið- stöðin sem ég var hjá eða bara 02, fólk hringdi þá í 02 til að panta símtöl út á land enda ekki komnar sjálfvirkar símstöðvar utan Reykjavík- ur þegar ég byrjaði. Við urð- um því að gefa samband og skrá og tímamæla hvert sím- tal. Reglulega komum við inn í samtalið til að tilkynna fólki hvað það væri búið að tala lengi. Það kostaði þá að tala í síma og verðið fór eftir því hvað var talað langt út á land. Það voru heldur ekki nærri öll heimili með síma á þessum árum þannig að við þurftum oft að láta sækja fólk í símann. Þá fór sendill með kvaðn- ingu til fólks og það kom á símstöðina þar sem símtalið beið,“ segir Ásdís ljúfdreym- inn að rifja upp þessa tíma þegar hlutirnir voru einfald- ari í sniðum. Þegar börnin fóru að koma í heiminn tók hún sér hlé frá störfum utan heimilis enda í nógu að snúast við að sinna börnum og búi. „Það er nú seigt í Pálsættinni þó ég komist ekki nærri því að vera eins og hún Guðrún amma mín sem er sögð eiga flest- ar fæðingar á Íslandi en hún eignaðist 22 börn í hjóna- bandi með sama mannin- um. Mér hefur verið sagt að þetta sé Íslandsmet. Við Þór reyndum aldrei neitt að slá þetta met ömmu minnar,“ segir hún og hlær sínum tæra gleðihlátri. Eftir að börnin stækkuðu fór Ásdís að starfa hjá bæjar- fógetanum í Hafnarfirði. „Ég var að svara í símann og að gefa út vegabréf og ökuskír- teini. Það var gaman í öku- skírteinunum, unga fólkið var stundum bráðlátt og gat lítið beðið með að fá réttind- in í hendurnar. Það var svo einlæg spenna og gleði í eft- irvæntingu þeirra. Það mátti ekkert bíða. Við kláruðum alltaf þau sem áttu afmæli á helgum eða helgidögum svo þau gætu náð í skírteinin sín á lögreglustöðina þegar dag- urinn rann upp. Það var ekki hægt að gera þeim það að láta þau bíða.“ Ásdís tekur þessum tíma- mótum fagnandi enda engu að kvíða þegar heilsan er góð og lífið í góðri lukku. „Það verður ekki nein stórveisla. Ég er búin að halda svo mikið af afmælisveislum í gegnum tíð- ina að það er ekki neinu við það að bæta. Við verðum bara í ljúfri ró með nánustu fjöl- skyldu og fáum eitthvað gott að borða,“ segir glaðlynda konan af Ströndunum. Fjölskylda Ásdísar n Foreldrar: Eybjörg Áskels- dóttir húsfreyja f. 1910 – d. 1992 Valdimar Guðmundsson húsasmiður f. 1910 – d. 2001 n Maki: Þór Gunnarsson sparisjóðsstjóri f. 1940 n Barn: Anna Margrét Þórs- dóttir viðskiptafræðingur f. 1966 n Maki Ólafur Gauti Hilmarsson kerfisfræðingur f. 1967 n Börn: Hildigunnur Ólafsdóttir f. 1993 Arnar Gauti Ólafsson f. 1998 Ylfa Margrét Ólafsdóttir f. 2003 n Barn: Þórdís Þórsdóttir kerfis- fræðingur f. 1967 n Sambýlism: Jóhann G. Jóhannsson hagfræðingur f. 1964 n Börn: Hilmar Þór Dagsson f. 1990 Gunnar Þór Dagsson f. 1997 Ásdís Dagsdóttir f. 1999 n Barn: Davíð Arnar Þórsson tölvunarfræðingur f. 1971 n Maki: Ingibjörg Ólafsdóttir sjúkraþjálfari f. 1971 n Börn: Ólafur Andri Davíðsson f. 1999 Þór Breki Davíðsson f. 1999 Heiðar Bjarki Davíðsson f. 2007 n Systkin: Guðmundur Valdimarsson bifvélavirki f. 1932 Flosi Gunnar Valdimarsson smiður f. 1933 Bragi Valdimarsson sjómaður f. 1935 Helga Guðrún Valdimarsdóttir húsmóðir f. 1938 Sigrún Kristín Valdimarsdóttir húsfreyja f. 1940 Laufey Valdimarsdóttir ritari f. 1946 Valdís Valdimarsdóttir hár- greiðslukona f. 1951 Erna Valdimarsdóttir kennari f. 1954 É g er landablanda, alin upp um allt land. Tók tíu bekki grunnskóla í níu skólum. Í stuttu máli er ég alin upp á Ís- landi. Ég hef verið í sveit um allt, líka í borg og bæjum, og held að ég sé komin beint af Snorra Sturlusyni eða bróður hans,“ segir frumlega listakon- an Eldrún geislandi af dulúð- ugum húmor. Nú er hún að ljúka námi á listnámsbraut í FB þar sem hún freistaði þess að ná tök- um á ofvirkri sköpunargáfu sinni. „Ég var að taka síð- asta prófið áðan, þetta var skemmtilegt, mér finnst svo gaman að skapa. Mér er sama hvað það er, ljóð og textar, málverk og myndir, skipt- ir ekki máli, svo finnst mér gaman að skapa í tónum. Ég hélt lokasýningu í Gallerí Tukt með samnemendum mínum í FB og ég er búin að fara með hana til Grikklands og á með- an hún var þar setti ég upp aðra sýningu hér heima. Þá var Eyjafjallajökull að gjósa og ég var í ógeðslegum vand- ræðum með að komast á milli landa,“ segir hún og er mik- ið niðri fyrir enda margt eftir óskapað í heiminum. „Þegar ég var lítil ætlaði ég að verða fræg rokkstjarna og geimfari, ætlaði út í geim- inn til að sjá meira. Það er svo mikið til sem er óséð og ég vildi skoða það allt. Auðvitað er ég alltaf rokkstjarna en þetta með frægðina er eitthvað sem kemur einhvern daginn. Ég er að gera annað núna, ætla til dæmis að verða Íslandsmeist- ari í júdó á næsta ári. Eftir það má kíkja frægðina,“ segir gegn- umglöð fjöllistakonan. Spurð um dag sem sitji eftir í minni hennar þegar sía gleymskunnar hefur far- ið um þarf hún ekki að hugsa lengi. „Ég var ung, líklega 10 ára, að ríða á söndunum fyr- ir austan, ég var að passa og með barn með mér á hestin- um. Við fórum á harðastökki í fjörunni eins og við værum að ferðast um eilífðina. Við þeystum inn í sólarlagið og sáum Vestmannaeyjar úti við sjóndeildar hringinn. Ég fann hið fullkomna frelsi þarna í fjörunni. Það var stórkostleg upplifun,“ segir Eldrún slök af góðri minningu. Hún er ekki viss um hvernig afmælisdagurinn verður, lík- legt sé að hún muni eyða deginum að nokkru leyti í að skipta um skoðanir eða bara hugsa og þá jafnvel borða kex með því. „Ég mun örugglega byrja daginn á að fara og sjá strák- inn minn keppa í júdó, hann ætlar að verða júdókennari þegar hann verður stór. Svo fer ég kannski og skipti um nokkrar skoðanir og jafnvel á mótorhjólasýnwingu. Annars er þetta bara spurningin um að vera, eins og alla hina dag- ana,“ segir þessi hugmynda- framleiðandi og sköpunar- smiður. Tók tíu bekki grunnskóla í níu skólum Merkis- atburðir 11. maí 1311 64 musterisriddarar voru brenndir á báli í Frakklandi fyrir villutrú. 1661 Ragnheiður Brynjólfs- dóttir í Skálholti sór eið um hrein- lífi sitt. Sonur hennar, Halldór Daðason, fæddist 40 vikum síðar. 1721 Kötlugos hófst með jarð- skjálfta og miklum drunum, sem heyrðust allt norður í Eyja- fjörð. Gosmökkurinn sást víða að. 1777 Hannes Finnsson var vígður Skálholtsbiskup 38 ára að aldri. Hann gegndi biskups- embætti til æviloka. 1812 Spencer Perceval, for- sætisráðherra Bretlands, var myrtur af John Bellingham í anddyri breska þinghússins. 1911 Knattspyrnufélagið Valur í Reykjavík var stofnað af fjórtán strákum í KFUM. 1960 Ísraelskir leyniþjónustu- menn handtóku þýska nasista- foringjann Adolf Eichmann í Bue- nos Aires í Argentínu. 1998 Indverjar framkvæmdu þrjár kjarnorkutilraunir neðan- jarðar. Í einni þeirra sprengdu þeir vetnissprengju. 2001 Íslenska vefritið Bagga- lútur hóf göngu sína. 2010 David Cameron tók við embætti forsætisráðherra Bret- lands. 12. maí 1191 Ríkharður ljónshjarta gekk að eiga Berengaríu af Navarra og hún var krýnd drottning sama dag. 1882 Konur fengu takmarkað- an kosningarétt til sveitarstjórna. Eingöngu ekkjur og ógiftar konur sem orðnar voru 25 ára máttu kjósa, en giftar konur ekki. 1916 Hásetaverkfalli lauk eftir að hafa staðið í tvær vikur. Þetta var fyrsta verkfall á Íslandi sem bar nokkurn árangur. 1926 Roald Amundsen flaug yfir Norðurpólinn. 1935 Fyrsti golfvöllur á Ís- landi var vígður í Laugardalnum. 1984 Oddur Sigurðsson setti Ís- lands- og Norðurlandamet í 400 metra hlaupi: 45,36 sekúndur. 1990 Ásgeir Sigurvinsson lauk ferli sínum sem atvinnuknatt- spyrnumaður, en hann hófst 1973. 1999 Skoska þingið kom saman í fyrsta skipti. 2008 Jarðskjálftinn í Sesúan 2008 átti sér stað. 2009 Samtök fullveldissinna voru stofnuð gegn hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu. 13. maí 1776 Konungur gaf út tilskipun um póstferðir á Íslandi, en slíkar ferðir hófust þó ekki fyrr en 1782. 1934 Dettifossslagurinn á Siglu- firði, sem var hörð viðureign verk- fallsmanna og andstæðinga þeirra vegna afgreiðslubanns á skip Eimskipafélags Ís- lands. Hæstiréttur felldi dóm gegn verkfallsmönnum 1937. 1947 Sauðárkrókur varð kaup- staður með lögum frá Alþingi. 1966 Íslenska rík- ið keypti Skaftafell í Öræf- um undir þjóðgarð sem var opnaður tveimur árum síðar. Jörðin er 1% alls Íslands. 1981 Mehmet Ali Agca skaut Jó- hannes Pál páfa II á Péturs- torginu í Róm. 2005 Blóðbaðið í Andijan: Her- menn drápu hátt í 700 mótmæl- endur í austurhluta Úsbekistans. 2007 Manchester United hamp- aði níunda bikar sínum í ensku úrvalsdeildinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.