Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Síða 42
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
12
maí
11
maí
13
maí
Vortónleikar Baggalúts
Baggalútur heldur vortónleika í
Gamlabíói, en hljómsveitin fagnar
því um þessar mundir að sjö ár eru
liðin frá útgáfu
hljómplötunnar
Pabbi þarf að
vinna. Tónleik-
arnir hefjast kl.
21.00 og ætlar
Baggalútur að
slá upp mikilli
kántríveislu með tilheyrandi húll-
umhæi. Húsið opnar hins vegar
kl. 18.00 og getur fólk hresst sig
við fyrir tónleikana í glæsilegum
salarkynnum á efri hæð Gamla
bíós og notið skemmtiatriða og
góðs félagsskapar.
Tónlist allan daginn
Vatnsmýrarhátíð Norræna hússins
verður nú haldin í þriðja sinn í ár á
laugardaginn. Hátíðin er sniðin að
allri fjölskyldunni og leggur áherslu
á svæðið í kringum Norræna húsið.
Margt verður á dagskrá bæði inn í
húsinu og fyrir utan. Hægt verður
að njóta tónlistar allan daginn,
gæða sér á veitingum frá DILL
sem verður við grillið, skella sér á
hestbak, moka í sandkassanum
okkar, gera góð kaup í verslun
Norræna hússins þar sem boðið
verður upp á 20 prósent afslátt af
norrænum barnavörum, fá af sér
andlitsteikningu eða ljósmynd,
fræðast um fuglafriðlandið í
Vatnsmýrinni og fá persónulega
leiðsögn um sýninguna Fólk í
mynd sem nú stendur yfir og er í
tengslum við List án landamæra.
Dagskráin hefst kl. 13.00 og
stendur til kl. 17.00
Stórtónleikar í Hörpu
Í tilefni af Evrópuviku býður
Evrópustofa stórtónleika í Eld-
borgarsal Hörpu á sunnudag
með European Jazz Orchestra og
Stórsveit Reykjavíkur. European
Jazz Orchestra er stórsveit hæfi-
leikaríks ungs tónlistarfólks sem
kemur víðs vegar að úr Evrópu og
fer í árlegar tónleikaferðir undir
merkjum dönsku samtakanna
Swinging Europe og Evrópu-
samtaka útvarpsstöðva með
stuðningi frá Evrópusambandinu.
Sveitin er í raun einstakt verk-
efni í stöðugri mótun. Ár hvert
kynnir hljómsveitin til leiks nýja
tónlistarmenn, ný tónverk eftir
fremstu tónskáld Evrópu, nýjan
hljómsveitarstjóra og nýja efnis-
skrá. Stórsveit Reykjavíkur mun
leika nýja og nýlega tónlist sem
samin hefur verið sérstaklega
fyrir hljómsveitina. Annarsvegar
verða flutt verk eftir Agnar Má
Magnússon, Hilmar Jensson og
Kjartan Valdemarsson af nýjustu
plötu sveitarinnar; HAK sem valin
var jazzplata ársins á Íslensku
tónlistarverðlaununum nú nýverið.
Hinsvegar verður flutt svíta finnska
tónskáldsins Eero Koivistoinen Tví-
söngur, en hún byggir á íslenskum
þjóðlagastefjum. Tónleikarnir, sem
hefjast klukkan 20.00, eru gestum
að kostnaðarlausu en nauðsynlegt
að tryggja sér miða á heimasíðu
Hörpu.
42 11.–13. maí 2012 Helgarblað
Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
„Sannkallaður
landsbyggðarblús“
Þorpið
Bubbi
„Lágstemmd en áhrifamikil
baráttusaga íslenskrar náttúru“
Baráttan um landið
eftir Helenu Stefánsdóttur.
V
ið tökum virkan þátt
í sýningunni með
því að taka okkar
fyrstu fyrirfram
ákveðnu dansspor,“
segir Daníel Ágúst Haralds-
son, meðlimur í hljómsveit-
inni GusGus um sýninguna
Á vit... sem er samstarfsverk-
efni hljómsveitarinnar og Ís-
lenska dansflokksins og er sett
upp í tengslum við Listahá-
tíð í Reykjavík. Í sýningunni
eru sameinaðir kraftar ólíkra
listforma en jafnframt verða
frumsýndar stuttmyndir
Reynis Lyngdal og Katrínar
Hall. Uppspretta verksins er
sameinaður sköpunarkraftur
hópsins með dansara íslenska
dansflokksins í fararbroddi
ásamt nýrri frumsaminni tón-
list frá GusGus.
„Skemmtileg áskorun“
Aðspurður hvernig hljóm-
sveitarmeðlimum hafi gengið
að ná danssporunum, segir
Daníel Ágúst það hafa gengið
vel. „Þetta er nú ekkert flókið
sko, við erum náttúrulega að
syngja og eitthvað að hreyfa
okkur með dansstraumnum í
sýningunni. Við fljótum með.
Við erum ekkert að dansa neitt
flókinn dans. Það er nú ekki
hægt að ætlast til þess, enda
eru þau ekki að gera neinar
kúnstir á tónlistarsviðinu.“
Fjórir meðlimir GusGus
taka þátt í sýningunni og níu
dansarar frá Íslenska dans-
flokknum.
GusGus hefur áður unnið
fyrir Íslenska dansflokkinn
en ekki með þessum hætti.
Hljómsveitin hefur ekki áður
tekin virkan þátt í sýningu
með danslist og er því að
þreyta frumraun á því sviði.
Daníel Ágúst segir mjög
gaman að taka þátt í sýningunni
og fá tækifæri til koma fram
með öðrum hætti en venjulega.
Það sé skemmtileg tilbreyt-
ing að fá að dansa. „Jú, það er
miklu skemmtilegra, það er
mjög spennandi og skemmtileg
áskorun fyrir okkur.“
Svipmyndir úr lífinu
Daníel Ágúst lýsir sýningunni
sem innra ferðalagi og jafnvel
ytra líka. „Þetta eru nokkrar
svipmyndir úr þeim aðstæð-
um sem maður lendir í, í líf-
inu. Þær eru bæði innhverfar
og úthverfar. Það er allt frá
mjög úthverfum partíglaumi
til innhverfrar íhugunar og
ástands. Þetta tekur á lífinu í
sinni fjölbreyttustu mynd.“
Þar sem þrettán einstak-
lingar koma fram í verkinu
er oft mikið „húllumhæ“ á
sviðinu, eins og Daníel Ágúst
kemst að orði, og margt í gangi
í einu í tengslum við þá túlkun
sem á sér stað hverju sinni.
Hann segir samstarfið hafa
gengið eins og í sögu og á síð-
ustu æfingu virtist allt vera að
smella saman. „Þetta verður
mjög skemmtileg sýning held
ég og spennandi,“ segir Daníel
Ágúst sem vill þó ekki gera of
mikið úr dansafrekum sínum
og hljómsveitarinnar. „Fólk
má ekki gera sér allt of miklar
væntingar um að við séum að
dansa einhver flókin dans-
atriði. Við svona brimum á
þeirra öldum. Svona smá fyrir-
fram ákveðnar hreyfingar,“ út-
skýrir hann hlæjandi.
Dansararnir fá ekki að
syngja
Emilía Benedikta Gísladóttir
er einn dansaranna í sýning-
unni. Hún tekur undir með
Daníel Ágústi og segir sam-
starf dansflokksins og hljóm-
sveitarinnar hafa gengið mjög
vel. Það sé mjög skemmti-
legt að vera með GusGus á
dansæfingum. „Þau eru voða
skemmtileg og eru með fullt
af hugmyndum fyrir dansinn.
Þau öll eru alveg til í allt og
finnst örugglega svolítið gam-
an að því að fara aðeins út úr
venjulega tónleikaforminu.“
Þrátt fyrir að tónlistarmenn
sýningarinnar spreyti sig á
dansi kemur það ekki í hlut
dansaranna að þenja radd-
böndin. Emilía viðurkennir þó
hlæjandi að auðvitað hefði það
átt að vera þannig. „Þeir syngja
því þeir eru góðir í því og við
dönsum meira því við erum
góð í því. Við reynum samt að
vera ein heild,“ útskýrir hún.
Dansflokkurinn semur
verkið
Emilía segir það nokkuð nærri
lagi hjá Daníel Ágústi að lýsa
verkinu sem innra ferðalagi.
„Það eru þarna alls konar
mannleg móment í verkinu sem
fólk ætti að kannast við.“ Hún
vill þó ekki segja of mikið frá
verkinu til að hafa ekki áhrif á
upplifun áhorfenda. „Við erum
með það mjög skýrt hvernig
við vinnum þetta og með skýra
n Sýningin Á vit... er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og hljómsveitarinnar GusGus
„Við brimum á
þeirra öldum“
Samstarfsverkefni Meðlimir hljómsveitarinnar GusGus spreyta sig á dansi í sýningunni Á vit... sem sett er upp í tengslum við Listahátíð í Reykjavík.
Húllumhæ Daníel Ágúst segir að oft sé margt í gangi á sviðinu í einu og
mikið „húllumhæ“.
Til í allt Emilía Benedikta segir GusGus hafa verið til allt og jafnvel komið
með hugmyndir fyrir dansarana.