Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 47
maður ræður við miklar áskoranir með skipulagningu og góðum und- irbúningi. Svo andlegi styrkurinn, hausinn skiptir ekki síður máli. Ég er búinn að fara í gegnum tvö tveggja sólarhringa hlaup og það er ekkert alltaf auðvelt, en maður bara lærir og áttar sig á að þetta er ekki síður hausinn en skrokkurinn.“ Hann notar einmitt höfuðið mjög mikið akkúrat þegar hann er að hlaupa og vinnur eftir ákveðinni aðferðafræði. „Maður skiptir þessu öllu niður í áfanga. Maður hugsar næstu fimm kílómetrana, næstu tíu kílómetrana, hvað ætla ég að borða, hvenær á að skipta um föt og fylgist með hraðanum. Stundum er næsti áfangi bara næsta drykkjarstöð þeg- ar maður er í svoleiðis hlaupum. Svo er bara að reikna og reyna að átta sig á því hvort plönin gangi upp. Ég er eiginlega hættur að hafa útvarp eða eitthvað í eyrunum, mér finnst það bara trufla mig. Maður er bara einn með sjálfum sér og vinnur sig svona í gegnum hlutina.“ Stofnaði félag 100 km hlaupara Hlaupin hafa gefið Gunnlaugi margt fleira en heilbrigða sál í hraustum líkama. Hann hefur kynnst heil- miklu af fólki síðan hann fór að hlaupa af alvöru, en í kringum hlau- paíþróttina er mjög stórt samfélag. Þá hefur hann í tengslum við hlaup- in ferðast út um allan heim, jafnvel á staði sem honum hefði aldrei dottið í hug að ferðast til. „Þetta kennir manni bara það að ef mann langar til að gera eitt- hvað þá á maður að takast á við það, ekki vera hræddur við að tak- ast á við nýjar áskoranir. Ef maður hugsar fyrirfram: Ég get þetta ekki, þá getur maður það örugglega ekki, en ef maður hugsar: Ég geri það sem maður get, þá er það möguleiki. Gunnlaugur segir hlaupaíþrótt- ina sífellt verða vinsælli. Árið 2004 stofnaði hann ásamt fjórum öðrum félag 100 kílómetra hlaupara. Nú eru í félaginu yfir fimmtíu manns. Tók þátt í ofurhlaupi í steikjandi hita Það hefur aðeins einu sinni kom- ið fyrir að Gunnlaugur þurfti að hætta í hlaupi. Það var árið 2007 í Spart athlon ofurhlaupinu, þar sem hlaupið er á milli Aþenu og Spörtu, um 245 kílómetra vegalengd. Þar á meðal yfir tvö fjöll. Mjög heitt var á þessum tíma og Gunnlaugur varð að hætta keppni eftir 150 kílómetra, því hitinn var að bera hann ofur- liði. „Ég man að mér leið svo djöful- lega að ég gat ekki með nokkru móti ímyndað mér hvað drægi menn í að fara í þetta hlaup tvisvar. Allt í lagi að villast inn í það einu sinni, en að fara í það aftur, það gat ég bara ekki skilið. En svo morguninn eftir þegar maður var búinn að sofa þá fór maður að hugsa hvernig mað- ur gæti búið sig betur undir hlaup- ið.“ Gunnlaugur fór aftur í hlaup- ið ári síðar og þá gekk allt eins og í sögu. Hann undirbjó sig með því að hlaupa kappklæddur á hlaupabretti í Laugum, með stillt á mesta halla. „Svo bara böðlaðist maður áfram og fór í saunu á eftir og þetta bara virk- aði. Partur af þessu er að finna lausn á þeim vandamálum og erfiðleikum sem maður veit að geta komið upp á,“ útskýrir hann. Þrátt fyrir að hafa tekið þátt í mörgum ofurhlaupum vill Gunn- laugur ekki meina að hann sé neinn ofurmaður, hann sé bara venjulegur maður. „Þetta er nefnilega málið, að fólk getur miklu meira en það held- ur.“ Mataræðið skiptir miklu máli Gunnlaugur hefur verið mjög hepp- in hvað meiðsli varðar og þakk- ar hann það að hluta til mataræð- inu sem hann tók í gegn fyrir fimm til sex árum. „Ég borða eins lítið og ég get af mat sem ég veit að er ann- aðhvort lélegur eða gerir manni ekki gott. Ég reyni að borða góðan, hollan mat. Sleppi kökum og sykri og „junk food“ og borða ekki hvítt hveiti eða eitthvað sem er bara inni- haldslaus kolvetni.“ Hann finnur fyrir því á löngum hlaupum að það er honum algjör- lega gagnslaust ef hann freistast til þess að fá sér brauð eða pítsur. Finnst það í raun vera fölsk orka. „Það dugir ekkert annað en staðgóð beisik fæða. Það skiptir svo miklu máli þegar maður er með skrokk- inn í miklu álagi að slíta honum að hann fái næringu til að byggja sig upp aftur.“ Undirstaðan í mataræði Gunnlaugs er kjöt, fiskur, grænmeti og ávextir. Skipuleggur ofurhlaup á Esjunni Búin að brenna 15 hamborgurum n Áhuginn á fjallahlaupum eykst sífellt n Lilja Katrín notar forritið Endomondo sem hún segir „súpereinfalt“ L ilja Katrín Gunnarsdóttir, rit- stýra Séð og heyrt, fylgir nokk- uð stífri hlaupadagskrá þessa dagana en hún er að undir- búa sig fyrir þátttöku í hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar. Hún hefur tvisvar hlaupið tíu kíló- metra ásamt systur sinni en ákvað að setja markið hærra í ár. „Ég skráði bara mig og systur mína og lét hana ekkert vita. Ég lét smá pressu á okk- ur og og fann hlaupaprógramm á netinu sem snýst um hvernig á að hlaupa hálfmaraþon á undir tveimur tímum. Ég veit ekki hvort ég næ því en þetta er allavega gott prógramm.“ Lilja segir að sér gangi prýðilega að fylgja dagskránni sem nær yfir tólf vikur og lýkur á hálfmaraþoni. Hún er nú á fimmtu viku. Til að halda utan um hlaupin náði Lilja sér í forritið Endomondo, sem hún einfaldlega hlóð niður í Andro- id-snjallsímann sinn. Forritið er einnig fáanlegt fyrir iPhone. Um er að ræða einfalda fría útgáfu af forrit- inu sem Lilja segir að sé „súperein- falt“ að nota. „Í þessari fríu útgáfu eru ekkert svo margir möguleikar. Þú velur bara hvaða sport þú iðkar og svo geturðu sett þér markmið, ann- aðhvort tíma- eða kílómetramark- mið, og forritið lætur þig vita þegar þú ert búinn að ná þínum markmið- um,“ útskýrir hún. Samkvæmt hlaupadagskránni á Lilja að hlaupa fjórum sinnum í viku en hún viðurkennir að hún nenni því ekki alltaf. „En svo er þetta alltaf voða gaman þegar maður byrjar og það er mjög gaman með þetta Endo- mondo-forrit, þú færð svo ítarlegar upplýsingar eftir hvert hlaup. Og þú getur líka stillt það þannig að þú ferð svona „pepptalk“ eftir hvern kíló- metra.“ Notandinn getur svo flett upp í forritinu og séð hvað hann er bú- inn að hlaupa mikið á ári og brenna mörgum hitaeiningum. „Svo getur maður séð hvað maður er búinn að brenna mörgum hamborgurum!“ Lilja segir þann valmöguleika eigin- lega vera eitt það besta við forritið. „Ég held ég sé búin að brenna ein- hverjum fimmtán á þessu ári,“ segir hún hlæjandi. solrun@dv.is Lífsstíll 47Helgarblað 11.–13. maí 2012 Reynir Traustason Baráttan við holdið H ópur ungra manna geyst- ist á ógnar- hraða upp jökulinn. Það var ekki hægt annað en að dást að snerpunni þar sem haldið var áleiðis upp á hæsta tind Íslands. Þetta var lík- lega í 1.100 metra hæð. Hópurinn minn var að fara í línu sem kallað er. Vegna sprungusvæðisins er fólk bundið saman og þannig gengið upp þá 1.100 metra sem eftir eru. 100 manna hópi Ferðafélagsins hafði verið skipt upp í litlar grúppur sem hver hafði sinn fararstjóra. Við vorum í hópnum sem lagði síðast af stað upp fjallið. Og þegar við vorum búin að tengjast böndum þá geyst- ust ungu mennirnir að. V ið siluðumst upp fjallið. Fyrir aftan okkur voru snarfararnir eld- snöggir að koma sér í línu. Svo var stokkið af stað. Fyrr en varði tóku þeir fram úr okkur. Í línunni okkar var fólk um og yfir miðjum aldri. Við litum það ekki alvarlegum augum að vera stungin af með þessum hætti. Anna Lára fararstjóri ítrekaði við sitt fólk að það skipti mestu máli að halda sama góða tempóinu. Hún hló við þeim sem hlupu fram úr. „Við erum skjaldbakan en þetta er hérinn,“ sagði hún og hló svo undir tók í kyrrð jökulsins. S kyndilega sáum við að hrað- lest hinna ungu stöðvaðist um það vil 200 metrum fyrir framan okkur. Þar hófst nokkur rekistefna sem gat bent til þess að eitthvað hefði komið upp á. Fyrr en varði silaðist Skjaldbakan fram úr Héranum. Í návígi séð var augljóst að þeir fótfráu voru sprungnir. Laf- móðir og eldrauðir af áreynslunni sögð- ust þeir vera að fá sér vatnspásu, rétt eins og það hefði verið skipulagt. V ið pjökkuðumst áfram. Aftur undan sást hvar Hérinn tók aftur stökkið. Hraðlestin áfram upp snarbrattan jökul- inn. Og Skjaldbakan laut í lægra haldi þar sem másandi ungmennin geystust áfram. En svo gerðist það aftur. Þeir stöðvuðu og þar sem við siluðumst fram hjá þeim var tautað um vatnspásu. Svona leið dagurinn. Hérinn tók á harðaspretti fram úr Skjaldbökunni að minnsta kosti sex sinnum. Og þetta var eins og í ævin- týrinu: „Hér er ég,“ skrækti Skjald- bakan í hvert sinn sem hún þramm- aði fram úr örþreyttum Héranum. Fararstjórinn hló svo öll línan hrist- ist. Það var gaman að vera skjald- baka í kapphlaupi við héra. Í 1.800 metra hæð skildu loksins leiðir alveg. Skjaldbakan silaðist í áttina að Hvannadalshnjúk. Veðr- ið var orðið slæmt og færið afleitt. Það kyngdi niður snjó og frostið beit í nef og vanga. Fólkið í línunni þurfti að brjótast áfram í slæmu færi sem var á mörkum þess að vera ófærð. En áfram silaðist línan þar til við náðum að rótum Hnjúksins. Þá bár- ust af því fréttir að þeir sem komust á undan upp væru í alvarlegum vandræðum í bratta og blindu. Öllum var snúið við. Skjaldbakan silaðist til baka og tæplega 1.900 metra niður jökul og fjall. Ekkert sást til Hérans en heimildir herma að hann hafi á endanum skilað sér til byggða, úrvinda. „Komumst þótt hægt fari,“ sagði Anna Lára og glotti við tönn þegar Skjaldbakan mjakað- ist niður fyrir snjólínu. Hérinn og Skjaldbakan Ætlar hálfmaraþon Lilja Katrín æfir stíft fyrir hálfmaraþon í Reykjavíkur- maraþoninu og heldur utan um hlaupin með forritinu Endomondo. n Gunnlaugur hljóp fyrsta maraþonið 48 ára n Boltinn fór að rúlla eftir að hann tók þátt í þriggja kílómetra skemmtiskokki fyrir tilviljun „Fólk getur meira en það heldur“ Góð ráð: n Vera þolinmóður og ekki fara of geyst af stað. n Það tekur tíma að venja líkamann við aukið og breytt álag. n Setja sér raunsæ markmið. n Borða hollan mat – líkaminn er það sem þú borðar. n Mundu að þú getur meira en þú heldur. n Lærðu af öðrum. Algeng mistök: Fara of geyst af stað – sinafestingar og brjósk í liðunum þarf að harðna til að þola álagið. Gefa sér ekki tíma – fara strax í löng hlaup. Speki í boði Gunnlaugs: Bera virðingu fyrir þeim síðasta „Ég hef stundum sagt að það séu tveir sem maður á að bera virðingu fyrir í hlaupum. Það er auðvitað sá sem vinnur og svo sá sem kemur síðastur. Hann hefur dálítið hugrekki að fara í hlaup vitandi það jafnvel að hann verður síðastur af öllum. Hann er kannski að byrja og allt það en lætur sig samt hafa það og taka þátt í hlaupum. Ef enginn vill vera síðstur þá verður ekkert hlaupið. Hlaup standa saman af öllum en ekki bara þeim sem vinna.“ Fyrsti sigur Íslendings Árið 2009 sigraði Gunnlaugur fyrstur Íslendinga alþjóðlegt ofur- hlaup í Borgundarhólmi. Hlaupið var í 48 klukktíma. Í Suður-Afríku Árið 2010 varð Gunnlaugur fyrsti hlauparinn í heimi til að ljúka klassísku ofurhlaupunum fjórum. 208 kílómetrar á bretti Hann var fyrstur Íslendinga til að hlaupa 100 kílómetra á bretti árið 2009. Árið 2010 setti hann svo Norðurlandamet í hlaupi á bretti. Hljóp í 24 klukkutíma 208 kílómetra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.