Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 48
48 Lífsstíll 11.–13. maí 2012 Helgarblað Þrálátur hósti gæti verið lungnakrabbi n Stjörnurnar taka þátt í vitundarvakningu um lungnakrabbamein Þ rálátur hósti getur verið merki um lungnakrabba vilja bresk- ir sérfræðingar meina. Þar í landi hefur verið boðað til vit- undarvakningar um sjúkdóminn en lungnakrabbamein dregur fleiri Breta til dauða en nokkurt annað krabba- mein. Heilbrigðisráðherrann, Paul Burstow, segir mikilvægt að fólk þekki einkenni krabbameins í lungum og geti þannig bjargað lífi sínu. „Skila- boð þessarar herferðar eru einföld; ef þú ert með hósta lengur en í þrjár vik- ur skaltu fara til læknis,“ segir Burstow en vonast er til að herferðin, Be Clear on Cancer, bjargi um 1.300 mannslíf- um á ári. Ýmsar stjörnur sem hafa misst ættingja vegna sjúkdómsins hafa lagt lóð sitt á vogarskálarnar til að vekja at- hygli á sjúkdómnum. Þar á meðal er leikarinn Ricky Gervais, söngkonan Jenny Frost og knattspyrnuþjálfarinn Sir Alex Ferguson sem missti báða foreldra sína úr lungnakrabbameini. „Pabbi var 66 ára þegar hann lést og mamma var aðeins 64 ára. Pabbi var greindur með lungnakrabba- mein viku eftir að hann hætti að vinna og var dáinn innan tólf mán- aða. Mamma sem hafði reykt alla ævi var einnig greind með lungnakrabba og lést nokkrum árum á eftir pabba,“ sagði Ferguson í viðtali. Lungnakrabbamein hefur áhrif á 33 þúsund manns í Bretlandi á hverju ári en flestir sem greinast eru yfir 55 ára aldri. Þegar krabbinn er greind- ur snemma eru 80% líkur á að sjúk- lingurinn verði á lífi fimm árum eftir greiningu en sú tala lækkar niður í 7% þegar veikindin eru greind seint. Of löng meðganga hættuleg Samkvæmt nýrri rannsókn eru börn sem fæðast eftir 42. viku meðgöngu líklegri til að þjást af ýmsum heilsufarslegum vanda- málum í framtíðinni. Rannsókn- in var framkvæmt í Hollandi en niðurstöður hennar birtust í Int- ernational Journal of Epidemio- logy. Fylgst var með 5.000 börnun. Niðurstöðurnar gefa í skyn að ein- staklingar sem fæðast eftir langa meðgöngu séu líklegri til að grein- ast með ADHD í æsku. Hanan El Marroun, sérfræðingur við barna- og unglingageðdeildina við Eras- mus MC-Sophia í Rotterdam og stóð að rannsókninni, segir að börn sem fæðist eftir settan dag séu jafn líkleg til að þjást af heilsu- farsvandamálum og börn sem fæðist fyrir tímann. Karrý gegn krabbameini Breskir vísindamenn rannsaka hvort efni í karrýi geti drepið krabbameinsfrumur í ristli. Neysla á curcumin, sem finnst í túrmer- ik-kryddi, er talið hafa mikinn heilsufarslegan ávinning. Rann- sóknir gefa til kynna að efnið hægi á vexti krabbmeins og hafi jákvæð áhrif á einstaklinga sem hafa fengið heilablóðfall eða þjást af andlegri hrörnun. Nú stendur yfir rannsókn á sjúkrahúsum í Lei- cester þar sem curcumin er gefið með hefðbundnu lyfjunum. Yfir 40 sjúklingar taka þátt í rannsókn- inni en fyrri rannsóknir sem fram- kvæmdar voru á dýrum gefa góða von. Um það bil 40 þúsund ein- staklingar eru greindir með ristil- krabba í Bretlandi árlega. 42 prósent of feit 2030 Árið 2030 verða 42% Bandaríkja- manna of feit, samkvæmt spám Lýðheilsustöðvar Bandaríkjanna. Þrátt fyrir svo hátt hlutfall er offita þjóðarinnar í hægari vexti en áður. Fyrir nokkrum árum var því spáð að hlutfallið yrði 51% svo ljóst er að breytingar á lífsstíl og mataræði skila sér í þjóðfélagið með betri heilsu. Í rannsókninni vekur það enn fremur athygli að það eru konur sem eru að taka sig á meðan offita eykst meðal ungra karla. Stjörnur vekja athygli Stjörnur sem hafa misst nákominn ættingja úr krabbameininu taka þátt í herferðinni sem nefnist Be Clear of Cancer. F yrirsætan fyrrverandi og raunveruleikastjarnan Kelly Killoren Bensimon úr þáttun- um The Real Housewives Of New York City hefur gefið út sjálfshjálparbókina I Can Make You HOT! – The Supermodel Diet. Kelly, sem er 44 ára, vakti mikla athygli þegar hún gekk til liðs við raunveru- leikaþáttinn. Hún ákvað að gefa út bókina eftir að hafa fengið óteljandi fyrirspurnir frá aðdáendum um það hvernig hún héldi sér í formi, hvaða líkamsrækt hún stundaði, hvaða mat hún borðaði, hver sæi um hár henn- ar, hvar hún keypti föt sín og hvernig hún hagaði barnauppeldinu. Kelly segist hafa valið titil bókar- innar til að vekja athygli. HOT! sé í raun skammstöfun fyrir „healthy op- tions today!“ eða „heilbrigða valkosti í dag!“ Í bókinni lýsir hún matarplani ofurfyrirsætu en sjálf byrjaði hún í bransanum 15 ára. „Ég var alltaf mjög hávaxin og grönn. Samt fékk ég alltaf að heyra að ég væri of þung. Ég var aldrei ánægð með mig. Í dag veit ég að það besta fyrir útlit mitt er að hugsa vel um mig,“ segir Kelly sem segist búa yfir aðferð til að missa eitt kíló á viku á heilbrigðan máta. „Matarplan ofurfyrirsætu á ekki að snúast um að svelta sig. Það á að snúast um að hugsa vel um sig. Ef ég tek því rólega, hangi með vinkonun- um, drekk mikið vatn og borða hreinan mat fæ ég iðulega að heyra hvað ég líti vel út dag- inn eftir. Ekki hugsa um líkama þinn sem bíla- leigubíl! Komdu fram við hann eins og Ferrari!“ segir Kelly sem á tvær dætur með franska tísku- ljósmyndaranum heims- fræga Gilles Bensimon. Kelly skiptir vikunni upp í þrjá og fjóra daga. Þrjá daga er algjört bann við olíu, sykri, áfengi, salti, hnetum og koffeini. Og það er bannað að svindla. Hina fjóra dagana borðar Kelly allan venjulegan mat. Hún borðar alltaf stórar og orkumikl- ar máltíðir í hádeginu til að endast út daginn en litlar léttar máltíðir á kvöldin. Kelly segir skammtastærðir skipta máli en hún legg- ur til að kjöt sé borðað á salatdiskum og salat á venjulegum matardisk- um. Kelly leggur einnig til að fólk tyggi matinn allt upp að átta sinnum í stað þess að tyggja aðeins þrisvar, fjórum sinnum og að fólk stingi upp í sig tyggigúmmíi strax eft- ir matinn svo það narti síður þegar gengið er frá eftir matinn. Kelly er ekki með próf í næringarfræði en í bókinni kemur hún með ráð sem hafa hentað henni best í gegnum tíðina. indiana@dv.is n Segist kunna aðferð til að missa eitt kíló á viku á heilbrigðan máta Léttist án þess að svelta sig Þriggja daga matarplan n Taktu út olíu, áfengi, sykur, hnetur, salt og koffein – og ekkert svindl! n Fáðu þér tvö glös af grænum Kelly-safa (sjá uppskrift fyrir neðan). n Hádegisverður samanstendur af brúnum hrísgrjónum, kjúklingi og grænmeti. n Í kvöldmatinn er magurt kjöt, kjúklingur eða rækjur með gufusoðnu spínati og kreistið safa úr sítrónu yfir. n Drekktu vatnsglas eftir kvöldmatinn og kreistu safa úr sítrónu í vatnið. n Breyttu skömmtunum. Notaðu salat- disk fyrir kjötið og matardisk fyrir salatið. n Tyggðu matinn átta sinnum í stað þess að tyggja þrisvar, fjórum sinnum. n Burstaðu tennurnar eða fáðu þér tyggi- gúmmí strax að máltíð lokinni til að þú nartir síður. n Drekktu átta til tíu glös af vatni á dag – meira magn getur valdið vatnseitrun. n Taktu fjölvítamín daglega. n Gerðu 20 auðveldar æfingar á hverjum degi – hjólaðu, gakktu, farðu í jóga eða pilates. n Sofðu í átta klukkutíma á hverri nóttu. n Hugsaðu vel um þig. Farðu í hand- snyrtingu, farðu í heitt bað, notaðu skrúbb og barnaolíu, þurrkaðu hárið með hárþurrkara, málaðu þig og settu á þig kinnalit. Grænn Kelly-safi n 8 fersk mintulauf, söxuð n 4 steinseljulauf, söxuð n Grænkál, saxað n 1 bolli af söxuðu brokkolí n 1 tsk. af nýkreistum sítrónusafa n 1/2 bolli af nýkreistum appelsínusafa n 1 bolli vatn n Henda öllu saman í blandara 25 mínútna hreyfing Kelly n Hlauptu rólega í 18 mínútur. n Sippaðu í tvær mínútur. n Fimm mínútna teygjuæfingar. Glæsileg Kelly er 44 ára og neitar að svelta sig. Hún borðar alltaf orkumikinn hádegismat en léttan kvöldverð. Raunveruleika- stjarna Kelly ákvað að skrifa bókina eftir að hafa fengið fjölda fyrirspurna frá aðdáendum sem vildu fá að vita hvernig hún lifir lífinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.