Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Side 50
50 Lífsstíll xxx xxx
Deilarinn
Eins og ræðinn leigubílstjóri
n Deilarinn kann ekki á „delete“-takkann og
skammast sín ekki fyrir nokkurn skapaðan
hlut. Hann setur inn truflandi persónulegar
myndir úr eigin lífi. Til dæmis röntgenmynd
af eigin ristli úr nýlegri læknisskoðun. Hann
er svolítið eins og leigubílstjórinn sem
ákveður að segja þér frá smáatriðum úr
eigin lífi í langri leigubílaferð til Keflavíkur.
Kynningarfulltrúinn
Þarf að vera úti!
n Kynningarfulltrúinn hefur nýlega
„líkað“ við eigin athugasemd eða færslu.
„Þetta „like“-ar sig ekki sjálft,“ sagði einn
þekktasti kynningarfulltrúi landsins, Andrés
Magnússon, eftir að hafa líkað við eigin
athugasemd.
Hann virðist fara á alla viðburði sem honum
er boðið á og á hverjum degi setur hann inn
að minnsta kosti 10 færslur, fréttir, tilkynn-
ingar og greinar sem snúa að hans eigin
lífsviðurværi. Kynningarfulltrúinn veit það
ekki, en við felum hann á Facebook. Hann
fær tækifærið ef hann kemur með eina
persónulega færslu. Þangað til þarf hann
að vera úti.
Alfræðingurinn
Nærist á ótta og samsæriskenningum
n Alfræðingurinn er að taka alla Facebook á
taugum. Ef það er banvænt og hættulegt þá
er hann með allt á hreinu. Vandinn er sá að
jafnvel það allra meinlausasta er banvænt
í hans augum. Ryk, bananar, gæludýr, ást
og kynlíf, hamborgarar! Alfræðingurinn
nærist á ótta og breiðir hann út af alefli á
Facebook.
Reglulega birtir hann greinar frá miðlum
sem eru vægast sagt vafasamir og efnið
er ávallt í þessum dúr: Aspirín drepur, jóga
drepur eða eyðni smitast með smápen-
ingum.
En einu gleymdi alfræðingurinn sem er alveg
örugglega banvænt til lengdar: Leiðindum!
Tjúllaði kommentarinn
Refsivöndur samfélagsins
n Kommentaranum tekst illa að
hemja bælda reiði og gremju. Makinn er
farinn frá honum, kötturinn líka og hann
borgar þrefalt meðlag. Til að fá útrás finnst
kommentaranum hann knúinn til að segja
reiðilegt álit sitt á sem flestu er fer miður í
samfélaginu. Hann fer eins og refsivöndur
um fréttamiðlana og hamrar á lyklaborðið
í hástöfum þar sem hann úthúðar sam-
borgurum sínum. Hann getur illa greint mun
á raunveruleika og netheimum og myndi
líklegast verða ansi sneyptur yrði hann
neyddur til að takast á við sömu álitamál
maður á mann.
Ofurkonan eða heljarmennið
Hlífið okkur
n „Hljóp 10 kílómetra í morgun og er með
ljúffengar muffins í ofninum. Best að setja
fæturna upp í loft meðan ég legg lokahönd-
ina á meistaraprófsverkefnið :-)“
Einhvern veginn svona gæti stöðufærsla
ofurkonunnar hljómað. Ofurkonan veit
það ekki en í hvert skipti sem hún setur inn
ofurfærslu, missir önnur kona hárið (með
handafli). Enginn er svona fullkominn og
þeir ófullkomnu gnísta tönnum yfir sléttu
og felldu yfirborði ofurfólksins á Facebook.
Heljarmennið er á svipuðum slóðum. Birtir
ef til vill nokkrar myndaraðir af þeim að
keppa á járnkarlinum. Eitthvað fyrir félaga
þeirra með bjórvambir til að gráta yfir á
góðu föstudagskvöldi. Ofurfólk. Hlífið
okkur. Við erum mannleg.
Hvaða týpa ert þú?
n Sex algengar týpur á Facebook
Aðrar týpur:
6. Njósnarinn
n Segir aldrei neitt. Setur aldrei at-
hugasemdir við færslur. Líkar ekki við
færslur … en les allt. Og gæti jafnvel
minnst á gamlar stöðufærslur við þig ef
þú mættir honum í raunveruleikanum.
7. Rauðvínslegni Facebook-
notandinn
n Æ,æ,æ. Langar tilfinningaþrungnar
stöðufærslur og tíðar athugasemdir
koma upp um hinn meyra og rauðvín-
slegna Facebook-notanda.
8. Dramafíkillinn
n Stöðugar sviptingar í einkalífinu fara
ekki framhjá nokkrum manni. „Single“.
„In a relationship“. Sambandsstaðan er
eins og íslenskt veðurfar.
9. Leikjafíkillinn
n Leikjafíkillinn vaknar klukkutíma fyrr
á morgnana til þess að gefa tölvuteikn-
uðum dýrum að borða í Farmville. Hann
er með stöðuna á hreinu í Mafia Wars
og er jafnvel ögn pixlaður í raunveru-
leikanum.
10. Hvatningarverksmiðjan
n Sumir dæla úr sér hvatningu og hóli
linnulaust. Sæta spæta, skrifa þeir undir
mynd af vinkonu. Sakn-ást-knús eru
regluleg skilaboð til vina og þótt atlotin
til vinanna séu vel meint þykir öðrum
svartsýnni notendum nóg um.
kristjana@dv.is
S
tór hluti Íslendinga nýtir
sér samskiptaforritið Face
book og margir virðast ekki
getað án þess verið. Alls
eru um eða yfir 500 millj
ónir notendur samskiptaforritsins
um heim allan. Notkun þeirra
sem nýta sér Facebook getur verið
mjög upplýsandi um hvaða mann
þeir hafa að geyma og hvað drífur
á daga þeirra. Hvaða týpa ert þú á
Facebook?