Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 62
Gleði og sorg n Þórunni Ernu líst vel á Gretu Salóme M ér líst mjög vel á lagið og hefur litist vel á það síðan í keppninni hérna heima. Ég var mjög glöð með þessi úrslit. Greta Salóme er góður tón- listarmaður og dugleg stelpa,“ segir Þórunn Erna Clausen leikkona um framlag Íslendinga til Eurovision en íslenski hópurinn heldur til Bakú um helgina. Eins og allir muna sungu Vinir Sjonna lagið Coming Home í fyrra en Þórunn Erna samdi textann við lagið og hélt utan um allan undir- búning. Þrátt fyrir að Greta eigi eftir að bera hitann og þungann af íslenska atriðinu hefur Þórunn Erna eng- ar áhyggjur. „Þetta verður álag en hún getur þetta alveg,“ segir hún og bætir við að ef hún eigi að gefa Gretu einhver ráð þá sé það helst að vera einlæg og opin. „Hún er alveg með þetta. Lagið er líka svo skemmtilega þjóðlegt og íslenskt. Þetta var í eitt af fáu skiptunum sem ég hefði verið til í að heyra lagið sungið á íslensku. Ég held að það hefði ekki minnkað lík- urnar á sigri. Hins vegar er ég sátt við þýðinguna. Þar tókst líka vel til.“ Þórunn Erna ætlar að fylgjast vel með keppninni. „Ég hef heyrt að lögin í ár séu upp til hópa leiðinleg – sem er gott fyrir okkur,“ segir hún og bætir við að íslenski hópurinn eigi skemmtilegar stundir framundan. „Þrátt fyrir að þessi tími í fyrra hafi verið mjög erfiður var þetta á sama tíma með því yndislegra sem ég hef upplifað. Það er einkennilegt hvernig þetta tvennt getur farið saman – erf- itt og yndislegt, sorglegt og skemmti- legt. Þetta var ógleymanlegt.“ 62 Fólk 11.–13. maí 2012 Helgarblað Hittust með tvíburana sína Fjórar þekktar tvíburamæður hittust með hópinn sinn á dög- unum. Þetta voru þær Guðrún Tinna Ólafsdóttir, dóttir forseta Ís- lands, leikkonurnar Tinna Hrafns- dóttir og Birna Hafstein og Katrín Júlíusdóttir ráðherra. Mæðurnar smelltu að sjálfsögðu mynd af hópnum glæsilega á Facebook. Börnin átta bera öll sterk íslensk nöfn en dætur Birnu heita Hall- gerður Júlía og Úlfhildur Erna. Börn Tinnu Ólafs heita Grímur Fannar og Fanney Petra. Synir Tinnu Hrafns heita Jökull Þór og Starkaður Máni og drengir ráð- herrans voru skírðir Pétur Logi og Kristófer Áki. Komst inn í annan skóla DV greindi frá því fyrir stuttu að íslenski leikarinn Alexander Briem hefði komist inn í hinn virta breska leiklistarskóla Central School of Speech and Drama. Í viðtalinu við Alexander kom fram að hann hefði sótt um inngöngu í fleiri skóla og nú hefur komið í ljós að hann hefur einnig fengið inn- göngu í East 15-leiklistarskólann sem þykir ekki minni heiður. Það er því ljóst að Alexanders bíður stór ákvörðun. Í báðum skólum er um mastersnám að ræða en Alex- ander útskrifaðist af leiklistarbraut Kvikmyndaskóla Íslands árið 2010. Þess má geta að hann er sonur Sigríðar Pétursdóttur kvikmynda- sérfræðings. Bjartmar blæs til sextugstónleika Þ að er bara svo andskoti furðulegt að ég finn bara ekkert fyrir því, ég bara næ því ekki. Og pæli ekkert í því. Ég bara pæli í því að knúsa lífið hvern einasta dag, maður,“ segir tónlistarmaðurinn Bjartmar Guð- laugsson sem heldur upp á sex- tugsafmæli sitt í næsta mánuði með pompi og prakt. Hann heldur stór- tónleika í Háskólabíói laugardags- kvöldið 16. júní þar sem hann, fjöldi gesta og frábærir tónlistarmenn, munu fara yfir langan og farsælan tónlistarferil kappans. Og Bjartmar lofar því að það verði mikið um dýrð- ir. „Þetta verður bara „happening“, við verðum ekki bundin af neinu. Ég spila „live“ og ég neitaði að fá ein- hvern tónlistarstjóra til að njörva þetta niður í einhverja kafla. Ég er með athyglisbrest og kann ekkert svo- leiðis. Þetta verður frelsi út í eitt. Ég ætla að virkja fólkið líka, það er 17. júní daginn eftir og við erum enn eina ferðina að halda upp á það að vera frjáls frá Dönum. Ég vil að fólk syngi og skemmti sér og fari þarna út í al- sælu,“ segir Bjartmar en tónlistarfer- ill hans hefur gengið í endurnýjun líf- daga undanfarin misseri síðan hann gaf út plötuna Skrýtin veröld ásamt Bergrisunum. Og hann upplýsir það í fyrsta skipti í samtali við DV að ný plata sé væntanleg í haust. „Ég er að vinna rosalega hart að henni núna. Hvort sem hún verður með Bergris- unum eða bara ég sóló, þá kemur plata í haust.“ Og sú plata verður ekki eina út- gáfa Bjartmars í ár. Á afmælisdag- inn hans, þann 13. júní, stendur til að gefa út þriggja diska viðhafnarpakka sem mun innihalda 60 af bestu lögum hans sem valin hafa verið af sérlegum sérfræðingum auk þess sem veglegur mynda- og sögubæklingur mun fylgja pakkanum. „Og það verða tvö ný lög á henni,“ bætir hann við. „Ég er bara fyrst og fremst í því að búa til nýtt efni. Segja mína sögu í ljóðum og lögum og þakka fyrir að vera til.“ Bjartmar verður bissí í sumar þar sem fram undan er þétt dagskrá og býst hann við að vera á faraldsfæti um allt land. Framtíðin er björt hjá Bjart- mari og gæfan hefur snúist honum í vil frá því fyrir nokkrum árum þegar hann gekk í gegnum dimma dali. En hefði hann búist við því þá að ná sex- tugsaldri og vera aftur kominn á topp- inn? „Á tímabili hefði ég bara ekki haft áhuga á því. Svo bara fæ ég heilsuna og það er ekkert sjálfgefið, og fyrir þá gjöf þakka ég hverja einustu mínútu sem ég á ólifaða með því að vinna úr því sem ég hef í þessu lífi. Því að sinna ekki hæfileikum sínum er líka tortíming.“ Hægt er að tryggja sér miða á af- mælistónleika Bjartmars í Háskóla- bíói á midi.is. mikael@dv.is n Mikið um dýrðir í Háskólabíói 16. júní n „Frelsi út í eitt“ Sextugur í sérflokki Bjartmar Guðlaugsson heldur upp á sextugsafmælið með stórtónleikum í Háskólabíói þann 16. júní. Mynd: SiGtryGGur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.