Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Síða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Síða 64
Allt fram- sóknar- menn hjá FÍB? „Þá göngum við bara lengra“ n „Þá göngum við bara lengra í næsta skrefi, Ögmundur!“ segir Gísli Tryggvason stjórnlagaráðsfulltrúi sem gerir ræðu Ögmundar Jónassonar á al- þjóðlegri ráðstefnu um samfélags- áföll, lýðræði og umbreytingaskeið að umtalsefni á Facebook. Ögmund- ur gagnrýndi tillögur stjórnlagaráðs að breyttri stjórnarskrá – þær gengju ekki nægjanlega langt. Gísli varar Ögmund við að bregða fæti fyrir til- lögurnar. „Ekki taka þátt í að bregða fæti fyrir fyrstu heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar frá 1874 – sem beðið hefur verið eftir frá stofnun lýðveldis og margoft strandað á mál- þófi og stagli.“ Frumsýna á Borginni n Vinkonurnar Anna Lilja Johansen og Manuela Ósk Harðardóttir frum- sýna nýja fatalínu sína, Malla Johansen, á Hótel Borg á laugar- dag. Munu þær stöllur hafa unnið um dágott skeið að línunni en mikil leynd hefur hvílt yfir því hvað hún hefur að geyma. Sam- kvæmt heimildum DV eru fötin unnin úr ítölskum gæðaefnum og saumuð á Ítalíu. Ein vinsælasta og farsælasta fyrirsæta landsins, Tinna Bergsdóttir, sem er búsett erlendis flaug heim til þess að sitja fyrir á myndum fyrir línuna. Tinna gerði sér lítið fyrir og litaði hárið dökkt fyrir mynda- tökuna en hún hafði verið ljós- hærð um nokkurt skeið. Afmælisgleði á Austri n Fréttamaðurinn góðkunni Breki Logason ætlar að halda upp á 30 ára afmælið sitt með pomp og prakt um helgina. Breki, sem áhorfendur Stöðvar 2 ættu að þekkja af skjánum, ætlar að leggja undir sig skemmti- staðinn Austur fyrir afmælis- gleðina. Heyrst hefur að mikil eftir- vænting sé á meðal vina og kunn- ingja Breka sem ku vera gleði- pinni mikill. Að sögn samstarfs- manns Breka, fréttamannsins Þor- bjarnar Þórðarson- ar, verður þetta hvorki meira né minna en „partý ársins“ samkvæmt Facebook-síðu hans. K annski þeir séu bara svona forspáir eða kannski er ég bara að leysa hana Katrínu af í tvíburafríinu án þess að vita af því,“ segir Vigdís Hauksdóttir þingkona sem fékk á fimmtudag bréf frá FÍB. Bréfið var stílað á Vig- dísi Hauksdóttur iðnaðarráðherra en eins og flestir vita þá gegnir Oddný G. Harðardóttir því emb- ætti á meðan Katrín Júlíusdóttir er í fæðingarorlofi. „Ég fór í pósthólfið mitt í morg- un eins og vani er, þingmenn hafa hver sitt pósthólf með sínu nafni og þar rak ég augun í þetta bréf. Það er samt svolítið skrýtið því að þetta er á póstlista og nöfnin okkar eru ekki einu sinni nálægt hvort öðru á list- anum,“ segir Vigdís og viðurkennir að hún hefði nú ekkert á móti því að gegna embættinu. „Það versta er að við erum að ræða hérna í þinginu sameiningu ráðuneyta og það er tillaga um að sameina iðnaðarráðuneytið at- vinnumálaráðuneytinu. Þannig ef það verður samsett þá verður ekk- ert úr þessu, en ef stjórnarandstað- an hefur betur í þessu máli þá kem- ur iðnaðarráðuneytið til með að standa,“ segir Vigdís sem þótti at- vikið skondið. Þegar blaðamaður náði tali af Vigdísi þá var hún einmitt nýstigin úr ræðustól þar sem var verið að ræða sameiningu ráðuneytanna. Vigdís segir stemminguna á þingi ekki vera upp á marga fiska. „Hún er ekki góð. Þetta er keyrt hér áfram af hörku og forgangsröðunin hér er algjörlega út í hött. Staðan er mjög slæm að mínu mati, forgangsröð- unin hjá þessari ríkisstjórn er ekki góð.“ viktoria@dv.is Iðnaðarráðherra í einn dag n Þingkonan segir FÍB kannski vera forspátt Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 11.–13. MAÍ 2012 54. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr. Vigdís með bréfið Hér er Vigdís með bréfið sem hún fékk sent.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.