Fréttatíminn - 06.11.2015, Side 11
Barnavernd nú með
í 90% útkalla
Greinilega aukning árið 2011 endurspeglar
tilraunaverkefni Barnaverndarstofu sem
hófst í byrjun árs 2011. Það fól í sér nýtt
verklag þar sem starfsfólk fór inn á heimili
þegar upp komu ofbeldismál til að fylgja
málunum eftir með þjónustu og sálfræði-
legri aðhlynningu fyrir börn. Verkefnið
leið síðar undir lok. Í janúar á þessu ári
hóst nýtt samstarfsverkefni Lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkur-
borgar, “Saman gegn ofbeldi”. Verkefnið
er tilraunaverkefni til eins árs. Samkvæmt
Steinunni Bergmann, starfsmanni hjá
Barnavernd Reykjavíkur hefur verkefnið í
sjálfu sér ekki breytt verklagi starfsfólks
mikið enda hafi stofnunin margra ára
reynslu af sjónarhorni barnsins í þessum
aðstæðum. Verkefnið hafi þó gert það
að verkum að hlutverk stofnunarinnar sé
skýrara og skilgreindara. Hér áður fyrr hafi
lögreglan kallað eftir aðstoð Barnaverndar
í 2-3% tilfella, yfirleitt 10 dögum eftir að
útkallið átti sér stað. Í dag fari starfsfólk
Barnaverndar með í 90% útkalla.
150% aukning á heimilisofbeldis-
málum eftir breytt verklag
Frá því að lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu ákvað síðastliðinn janúar að
fylgja fordæmi lögreglunnar á Suður-
nesjum og innleiða nýtt verklag vegna
heimilisofbeldismála hafa 469 slík mál
komið á borð lögreglu. Það eru um 50
mál á mánuði miðað við 20 mál á mán-
uði áður en verklaginu var breytt. Ein
af þeim nýjungum sem átakið stendur
fyrir er að nú geta þolendur heimilisof-
beldis fengið neyðarhnapp til notkunar
ef ofbeldismaðurinn nálgast og það
sem af er ári hafa sex brotaþolar fengið
neyðarhnapp og þrír eru í notkun í dag.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðstoðarlög-
reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og
fyrrverandi yfirlögfræðingur lögreglu-
stjóraembættisins á Suðurnesjum, hef-
ur yfirumsjón með innleiðingunni.
Alda sagði í samtali við Fréttatímann
að fjölgun mála á höfuðborgarsvæðinu
megi að hluta til rekja til nýs verklags
en einnig til nýrra og víðari skilgrein-
inga á heimilisofbeldi. Þar að auki hafi
umræðan um heimilisofbeldi aukist
sem geri það að verkum að tilkynning-
um um ofbeldið fjölgi. Kannski hafi fólk
meiri trú á því í dag að eitthvað verði
gert í málunum þegar tilkynnt er um
heimilisofbeldi. „Að mínu mati hefur
verklagið sannað gildi sitt svo
um munar og lögregla í sam-
vinnu við félagsþjónustu
og barnavernd er á réttri
leið í þá átt að bæta
þjónustu við bæði þol-
endur og gerendur
í heimilisofbeldis-
málum.“
Fjöldi tilkynninga til Barnavernd-
arstofu vegna heimilisofbeldis í
Reykjavík:
Heildarfjöldi 2010:
140 tilkynningar
Heildarfjöldi 2011:
203 tilkynningar
Heildarfjöldi 2012:
87 tilkynningar
Heildarfjöldi 2013:
122 tilkynningar
Heildarfjöldi 2014:
133 til kynningar
Heildarfjöldi frá jan.
til sept. 2015
159 tilkynningar
Breytt verklag
Ein af ástæðum þess að lögreglan á Suður-
nesjum ákvað árið 2013 að leggja áherslu
á heimilisofbeldismál var sú að fá mál
náðu framgöngu í réttarkerfinu. Árið 2011
voru sett lög um nálgunarbann og brott-
vísun af heimili en þeim var sjaldan beitt
því ofbeldinu var ekki fylgt eftir, hvorki af
lögreglu né félagsmálayfirvöldum. Eftir
að verklaginu var breytt leggur lögreglan
og félagsþjónustan áherslu á að afla sem
mestra gagna strax á vettvangi og viku
síðar mætir lögreglan aftur á heimilið til
að fylgja málinu eftir. Önnur nýjung er
innleiðing neyðarhnappsins. Allar þessar
breytingar hafa gert það að verkum að í
dag hefur tilkynningum um heimilisofbeldi
fjölgað, mun fleiri einstaklingar fá á sig
nálgunarbann og mun fleiri eru fjarlægðir
af heimilum sínum.
Framhald á næstu opnu
Kolvetnaskert
Ko
lve
tn
as
ke
rt
Nýtt skyr með sítrónusælu er sannkölluð
veisla fyrir bragðlaukana. Kolvetnaskert,
fitulítið, próteinríkt og dásamlegt á bragðið.
1
5
-1
8
6
2
-H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
samfélagið 11 Helgin 6.-8. nóvember 2015