Fréttatíminn - 06.11.2015, Side 32
Egill segir þó þessa mynd hanga yfir
Stuðmönnum sem blár skuggi í vissum
skilningi. „Vinsældir myndarinnar urðu
til þess að margt af því sem á eftir kom
féll í skuggann af vinsældum myndar-
innar. Ekki þar fyrir að myndin stendur
auðvitað fyrir sínu og við erum stoltir af
vinsældum hennar.“
Sjómaður siglir um höf
Egill tók þá ákvörðun, ásamt Tinnu konu
sinni, á síðasta ári að láta langþráðan
draum verða að veruleika. „Í algeru brí-
aríi buðum við í gamla seglskútu sem
við sáum á sölu í Hollandi. Skútan leit
vel út við fyrstu sýn og allt virtist virka
eins og til var ætlast, þrátt fyrir háan
aldur, en henni fylgdi engin saga frá fyrri
eigendum og það setti okkur ögn út af
laginu. Eftir að hafa ráðfært okkur við
sérfróða aðila þarna ytra, ákváðum við
að bjóða umtalsvert lægri upphæð en
sett var upp, þar sem það fylgdi kaup-
unum augljós áhætta. Með það fórum við
heim og gerðum okkur svo sem engar
vonir. Svo leið tíminn og nokkrum vikum
síðar fáum við upphringingu þar sem við
erum spurð hvort við höfum enn áhuga á
bátnum. Eftir andvökunótt ákváðum við
að láta slag standa, við lifum bara einu
sinni, ekki satt, og til hvers eru draumar
ef þeir daga bara uppi og fá aldrei að
rætast,“ segir hann.
„Bátur er fljótandi fyrirbæri sem aldrei
er kyrr og við vissum sem var að með
þessari ákvörðun værum við í raun að
hefja nýjan kafla í lífi okkar og við vorum
bæði tilbúin til þess. Tinna var nýhætt
sem þjóðleikhússtjóri og við sáum fram á
að geta gefið þessum nýja fjölskyldumeð-
limi þann tíma sem til þyrfti,“ segir Egill.
„Ég hafði tekið pungapróf í Stýrimanna-
skólanum fyrir einhverjum 13 árum, en
það er meira en að segja það að stökkva
bara um borð og sigla af stað. Það kom
á daginn að Tinna er mjög sjóhraust og
í henni er sjómannsblóð eins og mér. Ég
fór til Hollands snemma í vor og sigldi
skútunni við annan mann út á Norður-
sjóinn og upp Kílarskurðinn til Dan-
merkur, þar sem hún var tekinn í slipp,“
segir Egill. „Rúmum mánuði síðar vorum
við Tinna bæði komin út og fylgdum eftir
síðustu viðgerðum og endurbótum og í
lok júní var hún tilbúin til sjósetningar.
Fyrst fórum við í skemmri ferðir en
lögðum svo upp frá Egernsund á suður
Jótlandi og sigldum upp með vestur-
ströndinni og síðan fyrir Sjálandsodda,
niður Eyrarsundið og upp Eystrasaltið
og þaðan í skerjagarðinn sænska allt upp
til Stokkhólms.
Við vorum á sjó í 10 vikur, að vísu lögð-
um við alltaf að á kvöldin, en þetta var
mikil eldskírn og ákaflega gaman. Við
lentum í allskonar veðrum. Allt upp í sjö
til átta metra ölduhæð þar sem við vorum
eina skipið á sjó, og mér leist stundum
ekkert á blikuna,“ segir hann. „En við
stóðum þetta af okkur og vorum stolt og
ánægð þegar við lögðum að höfn eftir tólf
tíma barning. Aldan í Kattegat getur ver-
ið varasöm, en við tækluðum þetta mjög
vel, þó ég segi sjálfur frá. Við lentum líka
í barningi á Eystrasaltinu þar sem við
vorum í einhverjum 18 metrum. En við
fengum líka okkar skammt af ánægju og
gott betur en það. Því verður ekki lýst
með orðum þegar maður er kominn út á
sjó og búinn að slökkva á vélinni. Vindur-
inn er í seglunum og maður líður hljóð-
laust um hafið, og stefnan getur verið
hver sem er, hvert sem hugurinn leitar.
Nú er báturinn við höfn í Smálönd-
unum í Svíþjóð og draumurinn er að sigla
meira og ferðast víða. Okkur langar að
fara vatnaleiðina niður Evrópu. Þar eru
nokkrir kostir í boði en við erum helst
að stefna á að fara frá Pétursborg niður í
Kaspíahafið og þaðan yfir í Svartahafið
og svo inn í Miðjarðarhafið. Sigla svo
þaðan til Madeira og niður að vestur-
strönd Afríku og vonandi komumst við
af stað sem fyrst,“ segir Egill. „Það fylgir
því frelsistilfinning að vera á sjó, fyrir
utan það hvað mér finnst það gott. Það er
dálítið eins og að fara heim í jóðlífið. Þar
sem maður er aldrei kyrr, og það er nota-
leg þreyta sem fylgir því að hafa verið úti
á opnu hafi að takast á við náttúruöflin í
heilan dag.“
Alltaf að
„Ég er að verða 63 ára gamall og mér
finnst síðustu 20 ár hafa liðið mjög hratt,“
segir Egill. „Ég býst við því að næstu 20
líði enn hraðar. Við erum að komast á
þann stað að geta ráðið meira okkar tíma
og það er hrífandi hugmynd að dvelja
meira til sjós,“ segir hann. „Hvað varðar
tónlistina þá dreymir mig alltaf um að
gera meiri músík og það hefur lengi legið
í loftinu að ég muni setja saman ein-
hverskonar band. Það þarf að vera band
sem á endanum spilar músík sem væri
eftir minni forskrift, auðvitað í samvinnu
við þá sem mundu nenna að vera með
mér. Ég hef það alltaf í bakhöndinni.
Svo hef ég líka hugsað til þess að mað-
ur má ekki heldur vera að þvælast mikið
fyrir þeim sem nýir eru,“ segir hann.
„Það er mikið af ofboðslega skemmti-
legum hlutum að gerast í tónlistarlífinu
í dag. Bæði í poppi og í djassinum. Mér
líður afskaplega vel að sjá alla þessa
grósku en það kitlar mann alltaf að vera
með. Allt hefur sinn tíma í þessu og það
er ómögulegt að vita hvaða skref maður
tekur næst. Það er gaman að sjá þessa
nýju tónlist, sem er alvarlega hugsuð, fá
það brautargengi sem hún fær. Þá hugsa
ég „Það er ennþá von.“ Svoleiðis efni
tekur meiri tíma og það sem er erfitt er
að fólk hefur ekki tímann. Það vill geta
tileinkað sér allt og vita það fyrirfram
hvort eitthvað sé gott, í stað þess að kom-
ast að því sjálft. Maður þarf að finna það
rétta fyrir sig sjálfan. Þetta er leit og það
er ekki hægt að lifa lífinu eftir einhverri
forskrift. Ef maður ætlar að lifa eftir því
þá er það hol hamingja.“
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
3.250.000 kr.
Kia cee’d SW 1.6
Árgerð 2013, ekinn 34 þús. km,
dísil, 128 hö, beinskiptur.
2.350.000 kr.
Kia Rio LX 1.4
Árgerð 2014, ekinn 19 þús. km,
dísil, 90 hö, beinskiptur.
6.450.000 kr.3.950.000 kr.
Kia Sorento LuxuryKia cee’d EX 1.6
Árgerð 2014, ekinn 43 þús. km,
dísil, 198 hö, sjálfskiptur.
Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km,
dísil, 128 hö, sjálfskiptur.4.690.000 kr.
Kia Sportage EX
Árgerð 2013, ekinn 38 þús. km,
dísil, 136 hö, sjálfskiptur.
42.777 kr. á mánuði*
51.777 kr. á mánuði*
30.777 kr. á mánuði*
84.777 kr. á mánuði*
Afbo
rgun
aðe
ins:
61.7
77 k
r./mán
.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 70% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25%
og árleg hlutfallstala kostnaðar er frá 10,72-10,83%.
**Ábyrgð er í 7 ár frá skráningardegi bifreiðar.
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir ÁRA
ÁBYRGÐ
Notaðir
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartími:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
Allt að 7 ára
ábyrgð fylgir
notuðum Kia**Ábyrgð fylgir!
„Vinsældir myndarinnar urðu til þess að margt af því sem á eftir
kom féll í skuggann af vinsældum myndarinnar. Ekki þar fyrir
að myndin stendur auðvitað fyrir sínu og við erum stoltir af
vinsældum hennar,“ segir Egill Ólafsson. Ljósmynd/Hari
Egill og
Tinna ásamt
börnum,
tendabörnum
og barnabörn-
um í skerja-
garðinum í
Stokkhólmi
síðasta sumar.
Báturinn sést
við bryggju.
Ljósmynd/Gunnur
Von Matérn
32 viðtal Helgin 6.-8. nóvember 2015