Fréttatíminn - 06.11.2015, Page 56
56 Helgin 6.-8. nóvember 2015
B láu augun þín, blika djúp og skær... Þessi texti, við vinsælt lag Hljóma, sem Ólafur Gaukur samdi á sínum
tíma er auðvitað fyrir löngu orðinn klassík og
við erum búin að heyra þetta lag býsna oft.
Augun eru glugginn að sálinni sagði einhver
og líklega er það rétt að þau gefa manni ansi
mikla innsýn í líf og líðan einstaklingsins.
Við getum séð gleði og hamingju, en einnig
sorg og myrkur með því einu að virða þau
fyrir okkur og umgjörð þeirra. Hver þekkir
það ekki að sjá glampann í augum einhvers
og skynja strax tengingu við þann einstak-
ling. Það er ekki að ósekju að talað er um að
ná augnsambandi sem er sterkara en flest
önnur samskipti sem við eigum við aðra.
Margir halda að við notum augun til að sjá,
en það er einungis að hluta til rétt. Þau virka
eiginlega eins og myndavél sem tekur við
ljósi í gegnum linsuna og brýtur það á ákveð-
inn máta. Ljósið þarf svo að berast að sjón-
himnunni þar sem það umbreytist í rafboð,
þau berast síðan með sjóntaugum að svæði
sem kallast sjónheilinn eða visual cortex og
fyrst þar verður myndin sem við sjáum til.
Þannig að myndvinnslan, ef svo mætti kalla,
fer fram í heilanum og þess vegna getum
við séð myndir og dreymt án þess að hafa
augun opin.
Augun eru býsna flókin líffæri, viðkvæm
og margvísleg vandamál geta hrjáð þau. Við
sem sjáum erum svo vön því að við hugsum
oft ekki nægjanlega vel um þau og finnst það
alveg sjálfsagt að geta horft á bíómynd, lesið
bók eða einfaldlega horft út í náttúruna. Það
er langt frá því að vera það og eru margir
sem þurfa gleraugu eða viðlíka leiðréttandi
tól til að geta sinnt daglegum störfum. Hér
einu sinni var algengt að fá sýkingar í augun
og gátu þær leitt til blindu. Í dag er algeng-
ara að fá einfaldari veirusýkingar sem valda
óþægindum en ganga yfirleitt niður án með-
ferðar og eftirkasta.
Eftir því sem við eldumst breytast aug-
un og þá geta myndast ský á augasteinum,
glákan getur stungið sér niður með auknum
augnþrýstingi og svo geta margir lífsstíls- og
bólgusjúkdómar haft veruleg áhrif. Þar má
nefna sem dæmi sykursýki, sjúkdóm með
eyðileggjandi áhrif á sjónina ef blóðsykurs-
tjórnun er ábótavant. Ef við horfum á sjón
sem mengi augna, sjóntauga og heila þá er
augljóst að blæðingar, blóðtappar og æxli í
heila geta einnig leitt til verulegra sjóntrufl-
ana eða jafnvel blindu þó ekkert ami að aug-
unum sjálfum.
Þar sem augun eru eitt mikilvægasta og
verðmætasta skynfæri okkar er sárgrætilegt
að sjá til einstaklinga án hlífðargleraugna með
slípirokkinn, logsuðutækið, flugeldana og
þannig mætti lengi telja. Augnslys við vinnu
eða íþróttir eru algengasta orsök blindu í
ungu fólki og mætti í flestum tilvikum koma í
veg fyrir þau með réttri vörn, ekki gleyma því!
Bláu augun þín
PISTILL
Teitur
Guðmundsson
læknir
Unnið í samstarfi við Doktor.is.
Hvað er gláka?
1 Hvíldu þig frá skjávinnu reglulega á 20 mínútna
fresti í a.m.k. 20 sekúndur.
2 Notaðu sólgleraugu.
3 Hlífðargleraugu eru skylda.
4 Borðaðu hollt.
5 Láttu skoða þig ef þú ert með endurtekin
óþægindi í augum.
6 Passaðu hreinlæti við linsunotkun.
7 Þekktu ættarsögu þína varðandi sjúkdóma sem
herja á augun.
8 Kynntu þér aukaverk-anir lyfja sem þú tekur
með tilliti til augnanna.
9 Endurnýjaðu maskar-ann þinn reglulega
(líftími er ca. 3 mánuðir).
10 Farðu reglulega í augnskoðun og
þrýstimælingu eins og við á.
Er þér illt í eyrunum?
Miðeyrnabólga gæti verið ástæðan. Miðeyrnabólga er oftast kölluð eyrnabólga í daglegu tali
og er bólga í slímhimnu miðeyrans af völdum bakteríu- og/eða veirusýkingar. Hún er mun
algengari hjá börnum en fullorðnum. Miðeyrnabólga kemur þegar bakteríur berast með
kokhlust frá nefkoki upp í miðeyra. Hættan á eyrnabólgu er mest þegar kokhlustin er stífluð
vegna kvefs.
Eyrnasuð
Tugir milljóna manna og
kvenna um allan heim þjást
af eyrnasuði. Um er að
ræða stöðugan tón fyrir
öðru eða báðum eyrum
sem dynur á sjúklingn-
um allan sólarhringinn,
allt árið. Erfitt er að lýsa
eyrnasuði fyrir þeim sem
aldrei hafa fengið það
sjálfir en því hefur verið lýst
sem suði, hringingu, öskri,
hvísli, klið eða öðru þvílíku.
Eyrnasuð er ekki sjúkdómur
heldur sjúkdómseinkenni og því getur
reynst erfitt að finna meðferð gegn
eyrnasuði.
Orsakir eyrnasuðs:
n Mikill hávaði
n Bakteríusýking í
miðeyra
n Veirusýking í
innra eyra
n Æxli í
heyrnartaug
n Sjúkdómar í
kjálkalið
n Eyrnamergur
Allir sem þjást af stöð-
ugu eyrnasuði ættu að
fara í rannsókn hjá háls- ,
nef- og eyrnalækni.
Þekktu einkennin:
n Verkur og þrýstingur í
eyra
n Minnkuð heyrn.
n Pirringur (getur
verið eina sjáanlega
einkennið hjá
ungbörnum þar
sem þau geta
ekki tjáð sig).
n Oft hiti en eyrnabólga
getur verið til staðar án
hita.
n Ef útferð kemur úr
eyra er það merki
um að hljóð-
himnan hefur
sprungið. Hún
grær hins
vegar fljótt og
enginn skaði
hlýst af.
Þegar þrýstingur er of mikill í auganu,
nefnist það gláka. Þessi hækkaði augn-
þrýstingur veldur dauða taugafrumnanna
í sjóntauginni. Þetta leiðir aftur til að
sjónsviðið skerðist og seinna meir sjón-
skerðingu og blindu ef ekkert er að hafst
til að koma í veg fyrir þessa þróun.
Þekktu einkennin:
Hægfara gláka:
n Sjónsviðið skerðist og blindir
blettir myndast í því.
n Blindu svæðin stækka og með
tímanum sér maður einungis með
skörpu sjóninni í miðju sjónsviðinu.
n Erfiðleikar með litarskyn.
n Léleg nætursjón.
Bráðagláka:
n Mött hornhimna vegna
bjúgmyndunar sem leiðir til sjón-
skerðingar.
n Verkur í auga og höfuðverkur.
n Ljósfælni.
n Roði í auga.
n Aukin táramyndun.
n „Regnbogasjón“ í kringum ljós.
Hár þrýstingur
í auga
Skemmdir
á sjóntaug
Skert
sjónsvið
10 hollráð fyrir augun