Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Qupperneq 6
6 Fréttir 14. janúar 2013 Mánudagur „Ertu ekki rosa þröng?“ n Íslenskir karlmenn klæmast við 12 ára stúlkubarn í Málinu á Skjá Einum í kvöld Þ að er líklegra að stúlka í 10. bekk á Íslandi árið 2013 hafi verið misnotuð kynferðislega en að hún hafi reykt sígar- ettur. Þetta kemur fram í nýrri rann- sókn sem UNICEF á Íslandi lét gera og er meðal þess sem fram kemur í fréttaskýringaþættinum Málinu á Skjá Einum í kvöld, mánudag. Það má gera ráð fyrir að tvö þúsund og fimm hundruð stúlkur sem hafa náð fimmtán ára aldri á hverjum tíma á Íslandi hafi orðið fyrir misnotkun. Við undirbúning þáttarins var notast við tálbeitu í þeim tilgangi að lokka fram fullorðna, menn sem voru tilbúnir til stefnumóts við 12 ára stúlkubarn, í þeim tilgangi að stunda með því kynlíf. Fjölmargir fullorðn- ir íslenskir menn klæmdust að fyrra bragði við það sem þeir töldu 12 ára gamalt barn. Á meðal þess sem mennirnir spurðu stúlkuna um var: „Ertu ekki rosa þröng?“, „Hefur þú tottað?“ og „Mig langar að sýna þér hann og sjá þig“. Einn mannanna sem mætti á stefnumót við tálbeituna samþykkti að koma í viðtal hjá Sölva Tryggva- syni, umsjónarmanni þáttarins. Í viðtalinu segir maðurinn að reynslu- leysi viðkomandi hafi verið það sem helst hafi höfðað til hans. „Þegar þetta tækifæri kom veit ég ekki hvað snappaði í mér … það var eitthvað sem sagði mér að ég gæti komist upp með þetta,“ segir mað- urinn meðal annars í viðtalinu, þar sem hann viðurkennir að reynslu- leysi barna sé það sem höfði helst til hans. Þátturinn hefst klukkan hálf tíu í kvöld. n Sérstakur ákærir tvo „tæknimenn“ n Sérfræðingar sem skrifuðu upp á viðskiptin ákærðir líka„Tæknimennirnir í viðskiptunum sem til rannsóknar eru virðast eiga verulega á hættu að verða ákærðir líka.S érstakur saksóknari hefur á síðustu mánuðum ákært tvo „tæknimenn“, einn lögmann og einn endurskoðanda, fyr- ir aðkomu þeirra að meint- um lögbrotum á sviði viðskipta. Ákærurnar í málunum tveimur beinast gegn þeim Lýði Guðmunds- syni, kenndum við Exista, og Eiríki Sigurðs syni, sem yfirleitt er kenndur við verslanirnar 10-11. Lögmað- ur Lýðs, Bjarnfreður Ólafsson, og endurskoðandi Eiríks, Hjalti Magn- ússon, eru einnig ákærðir í málun- um ásamt umbjóðendum sínum. Lýður og Bjarnfreður eru ákærðir fyr- ir brot á hlutafélagalögum en Eiríkur og Hjalti vegna skattalagabrota – ákæran gegn þeim tveimur síðar- nefndu var þingfest í síðustu viku. Skrifuðu upp á viðskiptin Ákærurnar gegn þeim Bjarnfreði og Hjalta eru áhugaverðar fyrir þær sakir að um er að ræða menn úr þeim tveimur starfsstéttum, lög- fræðinga og endurskoðenda, sem yfirleitt unnu tæknivinnuna, fræði- lega þáttinn, í útfærslum á þeim við- skiptagjörningum sem sérstakur sak- sóknari rannsakar. Í þessum tveimur tilfellum voru þeir Bjarnfreður og Hjalti ekki aðilar að málunum sem þeir eru ákærðir fyrir; þeir áttu ekki peningana sem um ræddi í viðskipt- unum, hluti í þeim félögum sem áttu hlut að máli eða fleira í þeim dúr: Þeir voru hins vegar sérfræðingar sem veittu sérfræðiþjónustu til aðila sem ákærðir hafa verið fyrir lögbrot. Bjarnfreður og Hjalti hafa nú einnig verið ákærðir fyrir hlutdeild sína í þessum meintu lögbrotum. Sérstakur saksóknari hefur gert húsleit á nokkrum lögfræði- og endurskoðunarskrifstofum síðast- liðin ár til að leggja hald á gögn sem tengjast rannsóknum embættisins. Meðal annars hefur farið fram hús- leit hjá Logos, lögmannstofu Bjarn- freðs, Fulltingi, lögmannsstofu Kristins Hallgrímssonar sem kom að viðskiptum sjeiksins Al-Thanis, sem og á endurskoðendaskrifstofunum PwC, Deloitte og KPMG. Ef marka má þær tvær ákærur gegn þessum tæknimönnum sem litið hafa dagsins ljós hjá sérstökum saksóknara, og þegar litið er til þess að tiltölulega fáar ákærur hafa verið gefnar út enn sem komið er, má ætla að fleiri ákærur gegn tæknimönnum muni koma frá embættinu. Tækni- mennirnir í viðskiptunum sem til rannsóknar eru virðast eiga verulega á hættu að verða ákærðir líka. Farið fram á tveggja ára dóm Líkt og komið hefur fram í DV er Lýður Guðmundsson ákærður fyrir brot á hlutafélagalögum í hluta- fjáraukningu Exista í lok árs 2008. Hann gæti átt yfir höfði sér tveggja ára fangelsisdóm verði hann fund- inn sekur. Lýður og lögmaðurinn Bjarnfreður greindu ranglega frá því til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra að greitt hefði verið að fullu fyrir 50 milljarða króna hlutafjáraukningu hjá Exista þegar sannleikurinn er sá að aðeins einn milljarður hafði ver- ið greiddur. Fyrir vikið náðu Bakka- bræður að halda yfirráðum sínum yfir Exista lengur en ella þar sem talið var að þeir hefðu lagt félaginu til 50 milljarða af nýju hlutafé. Eiríkur Sigurðsson er ákærður fyrir skattalagabrot. Fyrir að hafa vantalið tekjur sínar um 800 millj- ónir króna árið 2007. Fyrir vikið kom hann sér hjá að greiða rúm- lega 80 milljónir króna í skatta það árið. Tekjur Eiríks á þessum tíma, sem voru tilkomnar vegna viðskipta með framvirka samninga með gjaldeyri, námu rúmum milljarði króna. Hjalti er ákærður fyrir hlut- deild í brotinu. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Tæknimenn ákærðir Tveir tæknimenn, lögfræðingur og endurskoðandi, voru ákærðir af embætti sérstaks saksóknara síðast- liðna mánuði. Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, sést hér yfirgefa dómsalinn eftir þingfestingu annars málsins. Mynd SigTryggur ari Stálu sjónauka Brotist var inn í Sjónvarpsmið- stöðina aðfaranótt sunnudags og þaðan stolið sjónauka. Lög- regla hafði hendur í hári þeirra sem eru grunaðir um verknað- inn en þar voru á ferðinni fjór- ir einstaklingar undir áhrifum vímuefna. Fjórmenningarnir voru einnig grunaðir um tvö innbrot á laugardagskvöldið. Ökumaður bifreiðarinnar er einnig talinn hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og voru all- ir farþegar í mjög annarlegu ástandi og með talsvert af fíkni- efnum á sér. Þau hafa öll kom- ið við sögu lögreglu áður, en einn maður í hópnum er einnig grunaður um rán í Breiðholti á laugardag. Hringdi 200 sinnum í 112 Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu handtók konu á heimili sínu á laugardagskvöld vegna margendurtekinna sím- hringinga í Neyðarlínuna. Kon- an hefur stundað það að ónáða starfsfólk Neyðarlínunnar með ónauðsynlegum símhringingum um tíma en af því getur skapast hætta nái fólk í raunverulegri neyð ekki inn. Í gærnótt hringdi konan um það bil 200 sinnum í Neyðarlínuna á klukkustundar tímabili og hlaust af því mikil truflun fyrir starfsfólk Neyðar- línunnar. Í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér segir að konan hafi verið vistuð í fanga- geymslu til að tryggja starfsfólki Neyðarlínunnar starfsfrið. 16 ára ölvað- ur undir stýri Lögregla stöðvaði bifreið rétt fyrir klukkan ellefu á laugar- dagskvöld. Þar voru mæðgin á ferðinni, en drengurinn var að- eins fjögurra ára og í farþegasæti við hlið bílstjóra. Móðir hans reyndist vera án ökuréttinda og var för hennar stöðvuð. Nóg var að gera hjá lögreglunni og voru nokkrir teknir í kjölfarið við ölv- unarakstur, bæði við Hringbraut og Höfðabakka. Einn þeirra sem var gripinn var sextán ára. Hann var ölvaður og eðli málsins sam- kvæmt bílprófslaus. Viðkomandi ók á grindverk í Kópavogi, en tveir aðrir jafnaldrar hans voru í bifreiðinni. Foreldrar hans voru kallaðir til og segir lögreglan að málinu sé lokið. Samþykkti viðtal Reynsluleysi var það sem heillaði manninn sem vildi stunda kynlíf með 12 ára stúlkubarni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.