Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2013, Side 11
aftur handtekinn tveimur dögum seinna vegna tveggja annarra lík- amsárása sem hann var sakað- ur um að hafa framið í félagi við Óskar Þór Gunnlaugsson. Önnur þeirra líkamsárása var á unga konu sem var farþegi í bíl með þeim en þeim var gefið að sök að hafa marg- sinnis slegið hana og sparkað svo á sá og öxl hennar tognaði. Við vitna- leiðslur kvaðst hann saklaus af þeirri árás. „Ég hafna þessu,“ sagði hann og sagði ástæðuna skýra. „Ég legg ekki hendur á kvenfólk,“ sagði hann þrátt fyrir að hafa ráðist á ungu móðurina á Eiðistorgi þegar hann var 11 ára ásamt bróður sín- um. Verjandi Stefáns fór fram á það fyrir dómi að tekið yrði tillit til erf- iðrar æsku Stefáns við ákvörðun refsingar og sagði þá bræður hafa átt erfiða æsku. Foreldrar þeirra hafi ekki verið góðar fyrirmyndir og kvöldsögur bræðranna hafi verið um ofbeldi og drykkju. Hann sagði Stefán hafa beðið um að fá að ljúka afplánun fyrri dóms í með- ferð en verið neitað um það vegna agabrota. „Hann fékk ekki hjálp því hann hafði verið óþekkur en hann hefur verið óþekkur allt sitt líf,“ sagði verjandinn fyrir dómi og sagði að þegar hann hefði losn- að úr fangelsi vegna fyrri dóms hefði hann fyrst um sinn reynt að standa sig enda þá nýorðinn fað- ir. Fíknin hefði fellt hann og eftir það hefði allt farið á verri veg. Stef- án fékk þriggja ára dóm fyrir eina líkamsárásina sem hann játaði á sig að mestu en sýknaður af hinum tveimur, meðal annars vegna þess að vitni breyttu framburði sínum fyrir dómi. Lítið virðist hafa farið fyr- ir Stefáni undanfarin ár en síð- asti dómur sem hann fékk, þar til dómurinn sem hann fékk á föstu- dag féll, var árið 2004. Þvinguð með ógn, aflsburði og ofbeldi Í dómnum yfir Stefáni Loga og Þorsteini segir að þeir hafi með ógn, aflsburði og ofbeldi komið fram vilja sínum og þvingað stúlk- una til samræðis. Þótti sannað að hún hefði verið áreitt um tíma og að mennirnir hefðu flutt stúlk- una nauðuga í burtu. Með tilliti til alvarleika brotsins, langs brotafer- ils Stefáns; en hann hefur alls hlot- ið átta refsidóma og fjórum sinnum gengist undir sektarrefsingu, var hann dæmdur í fimm ára fangelsi líkt og áður segir. Þorsteinn fékk fjögur ár og sex mánuði og þeim er gert að greiða stúlkunni tvær millj- ónir í skaðabætur. Sálfræðingur segir óvíst um bata konunnar en ljóst er að atvikið hafi haft alvarleg og víðtæk áhrif á hana en hún hef- ur þjáðst af áfallastreituröskun eftir nauðgunina. n Fréttir 11Mánudagur 14. janúar 2013 n Langur afbrotaferill Stefáns Loga Sívarssonar nær aftur til ársins 1992 n Dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun Bílaverkstæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað Löng afbrotasaga skeLjagrandabróður Brotasagan 1992 - Börðu unga móður Fyrstu afskipti lögreglu af bræðrunum voru árið 1992 en þá gengu þeir í skrokk á ungri móður á Eiðistorgi. Móðirin reyndi að vernda börn sín sem voru að halda tombólu en bræðurnir höfðu hrellt börnin, stolið tombólupeningunum og hrækt á tombóluborðið. 1997 – Árás á Rauða ljóninu og áramótbrennu Þegar Stefán Logi var 16 ára réðst hann á starfsmann Rauða ljónsins á Eiðistorgi. Stefán kýldi manninn ítrekað og stal að lokum farsíma hans. Bræðurnir létu svo næst til skarar skríða á áramótabrennu á Ægissíðu áramótin þar á eftir. Þá varð maður á sextugsaldri fyrir barðinu á báðum bræðrunum sem réðust að honum og veittu áverka. 1998 - Sex dómar og ofbeldi Bræðurnir stunduðu innbrot árið eftir og fengu dóma fyrir sex þeirra. Þann 23. apríl réðust bræðurnir svo á mann í Hveragerði. Stefán Logi kýldi síðar það sama ár tönn úr manni við meðferða- stöðina Vog. 2002 - Skeljagrandahryllingurinn Þetta ár voru Skeljagrandabræður dæmdir í fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás en fórnarlamb þeirra var þá skilið eftir í blóði sínu í nágrenni heimilis þeirra. Stefán Logi hlaut tveggja ára fangelsi og Kristján Markús þriggja og hálfs árs. 2003 - Á reynslulausn Stefáni var sleppt úr haldi á reynslu- lausn eftir að hafa afplánað tvo þriðju tveggja ára dóms. 2004 - Ofbeldið heldur áfram Stefán Logi var handtekinn fyrir líkamsárás á ungan dreng í byrjun apríl. Sleppt að loknum yfirheyrslum. Tveimur dögum síðar var hann handtekinn vegna tveggja annarra líkamsárása í félagi við Óskar Þór Gunnlaugsson. Stefán Logi fékk þriggja ára dóm fyrir líkamsárásina á drenginn en var sýknaður af hinum brotunum. 2011 Nauðgun Í nóvember 2011 nauðgaði hann ásamt Þorsteini Birgissyni 19 ára stúlku. Stef- án hafði kynnst stúlkunni í söluturni og áreitt hana í kjölfarið. Þeir sóttu stúlkuna á skemmtistað við Hlemm og fóru með hana á heimili Þorsteins við Lindargötu þar sem þeir þvinguðu hana til samfara og munnmaka. 2013 - Fimm ára fangelsi Stefán Logi er dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir nauðgunina í nóvember 2011. Þorsteinn fær fjögurra ára og sex mánaða dóm. Margdæmdur Stefán Logi hefur verið margdæmdur fyrir ofbeldisverk sín og glæpi. Skeljagrandabræður Mikið var fjallað um ofbeldisglæpi Stefáns og bróður hans í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum og þeir kallaðir Skeljagrandabræðurnir. „Hann fékk ekki hjálp því hann hafði verið óþekkur en hann hefur verið óþekkur allt sitt líf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.